Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 B 3 NORSKA knattspyrnufélagið Brann hefur boðið til sín tveimur 16 ára gömlum íslenskum drengja- landsliðsmönnum. Það eru þeir Bjarki Már Sigvaldason úr HK og Heiðar Geir Júlíusson úr Fram. Félagið vildi fá þá til sín um liðna helgi en ekki varð af því og þeir fara væntanlega til Bergen innan skamms. Bergensavisen sagði frá því að félagið hefði komist á snoðir um piltana þegar það var að fylgjast með Ólafi Erni Bjarnasyni, lands- liðsmanni úr Grindavík, í haust. Eins og áður hefur komið fram samdi Ólafur við norska liðið. Haft er eftir Lúkas Kostic, þjálf- ara drengjalandsliðsins, að Bjarki Már sé líkamlega sterkari og fái væntanlega tækifæri í meist- araflokki á næsta ári en Heiðar þurfi tvö ár til viðbótar. „Þeir eru báðir stórgóðir knattspyrnumenn og með gífurlegan sigurvilja, báðir tveir,“ segir Lúkas við norska blaðið. Per-Ove Ludvigsen, íþróttastjóri Brann, segir að ekki sé ljóst á þessari stundu hvort piltunum verði boðinn samningur. „Núna er- um við bara að skapa tengsl við Ísland, fá þá til að koma og skoða sig um hjá Brann og kynnast okk- ur,“ segir Ludvigsen við Bergens- avisen. Brann með tvo 16 ára stráka í sigtinu  BRYNJAR Björn Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Nottingham Forest sem burstaði Wimbledon, 6:0, í ensku 1. deildinni. Brynjar Björn hefur fengið fá tækifæri með liði For- est á leiktíðinni og hefur oftar en ekki þurft að sætta sig við að vera ekki í 16-manna hópnum.  GUÐJÓN Þórðarson og lærisvein- ar hans eru í áttunda sæti 2. deild- arinnar eftir 2:1 útisigur á Wygombe.  ÞÓRÐUR og Bjarni Guðjónssynir sátu allan tímann á bekknum í liði Bochum sem vann góðan útsigur á Schalke í þýsku 1. deildinni í gær.  HJÁLMAR Jónsson lék allan leik- inn fyrir Gautaborg sem sigraði Malmö á útivelli í sænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Gautaborg er í sjöunda sæti deildarinnar.  INDRIÐI Sigurðsson fékk ekki að spreyta sig með Genk sem sigraði Cercle Brügge, 3:1, í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu í gær.  HELGI Kolviðsson lék allan leikinn fyrir Kärnten sem tapaði fyrir Matt- ersburg, 2:1, í austurrísku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Kärnten er í næst neðsta sæti deildarinnar.  ÍSLENSKA 19 ára landslið pilta í knattspyrnu tapaði fyrir Ísraels- mönnum, 2:1, í undankeppni Evrópu- mótsins en riðillinn sem Íslendingar leika í er spilaður í Moldavíu. Hjálm- ar Þórarinsson, Þrótti, skoraði mark íslenska liðsins.  ÁSTHILDUR Helgadóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins skoraði fyrsta mark sitt fyrir Malmö þegar liðið sigraði Melbacken, 4:2, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Ásthildur og stöllur hennar eru í þriðja sæti deildarinnar þegar einni umferð er ólokið.  DANÍEL Hjaltason, einn besti leik- maður Víkings í 1. deildinni í knatt- spyrnu í sumar, skrifaði um helgina undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Samningur Daníels við Vík- ing var útrunninn og eftir því sem fram kemur á heimasíðu Víkings reyndu Íslandsmeistarar KR-inga að fá hann í sínar raðir en án árangurs.  LOGI Gunnarsson skoraði 7 stig fyrir þýska körfuknattleiksliðið Giessen 46’ers er liðið tapaði gegn Artland Dragons, 64:91, á heimavelli sínum. Stigahæstur í liði Giessen var John Thomas með 12 stig. Liðið hefur leikið tvo leiki á keppnistímabilinu og sigraði í þeim fyrsta.  HEIÐMAR Felixson skoraði 2 mörk fyrir Bidasoa sem tapaði fyrir Cantabria, 25:23, í spænsku 1. deild- inni í handknattleik. Patrekur Jó- hannesson lék ekki með Bidasoa en hann er frá vegna aðgerðar á hné sem hann gekkst undir fyrir helgina.  RAGNAR Óskarsson skoraði 8 mörk fyrir Dunkerque sem tapaði fyrir Selestat, 19:18, í frönsku 1. deildinni í handknattlek. Dunkerque er í fjórða sæti, átta stigum á eftir toppliði Montpellier. FÓLK EINAR Örn Jónsson, lands- liðsmaður í handknattleik, átti góðan leik með Wallau Mass- enheim sem vann góðan úti- sigur á Gummersbach. Einar Örn skoraði sex mörk í leikn- um en Rúnar Sigtryggsson náði ekki að skora en hann lék samkvæmt venju að mestu í vörninni. Gunnar Berg Viktorsson skoraði 4 mörk fyrir Wetzlar en Róbert Sighvatsson ekki neitt þegar liðið lá fyrir Mind- en á útivelli, 31:26. Guðmundur Hrafnkelsson og félgar hans í Kronau/ Östringen sótti íslenski lands- liðsmarkvörðurinn ekki gull í greipar Eisenach en Kronau/ Östringen tapaði með átta marka mun, 37:29. Einar Örn með sex mörk Þjálfarinn sagði sína menn byrjavel. „Okkur gekk vel fram í síðari hálfleik þegar kemur slæmur kafli. Strákarnir orðnir þreyttir, auk þess að það mæddi mikið á Augustas, sem spilaði lykilhlut- verk í vörn og sókn. Við gátum eig- inlega ekki hvílt hann því Vilhelm er ekki alveg orðinn góður af sínum meiðslum og fyrir vikið var ekki óeðlilegt að detta aðeins niður. Við vorum komnir í vænlega stöðu með frábærum stuðningi áhorfenda, en síðan misstum við einbeitinguna og hættu að spila sóknina eins og rætt var um – að taka langar sóknir og vera klókir. Við fórum að hugsa um að gera ekki mistök og reyndum því ekki hluti sem átti að reyna. Þegar ekki er farið af fullum krafti í sókn- ina er auðvelt að stöðva hana. Við misstum einbeitinguna og Rússarn- ir lokuðu á okkur með hörkugóðri vörn svo að við vorum komnir undir. Það var þá sem við sýndum að það er nóg keppnisskap í okkar liði – það var frábært að sjá til strákanna. Mér finnst Rússar vera vél, sem heldur alltaf áfram og lætur ekki trufla sig þó staðan sé ekki góð. Þeir halda áfram og klóra alltaf í bakkann,“ sagði Árni, sem telur að bæði liðin hafi lært mikið af fyrri leiknum í Rússlandi. „Þessi leikur þróaðist svipað og hinn fyrri í Rússlandi. Bæði lið spiluðu mjög góða vörn en nú náð- um við ekki að spila sóknina nógu vel þegar þeir lögðu alla áherslu á að stöðva Litháana okkar, sem léku mjög vel í fyrri leiknum. Ólafur Víðir spilaði mjög vel þrátt fyrir að vera nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum en hann á enn eftir að ná sér að fullu. Svo gerðu hornamenn- irnir Elías Már og Davíð góða hluti, en við vinnum á góðri vörn og markvörslu Björgvins Páls. Hann er einn af bestu markvörðum lands- ins, varð Evrópumeistari með ís- lenska nítján ára landsliðinu og þrátt fyrir að vera aðeins átján ára er hann með mesta alþjóðlega reynslu í liðinu.“ Vill fá lið frá Belgíu, Búlgaríu eða Finnlandi HK-menn geta ekki ornað sér lengi við þennan glæsta sigur. „Nú er leikur upp á líf og dauða við FH á miðvikudaginn, það er einn af úr- slitaleikjunum um að komast í úr- valsdeildina því við höfum sjálfir komið okkur í þá stöðu að þurfa að- vinna alla leikina til komast í úrvals- deildina. Við verðum að átta okkur á því að deildin er aðalatriðið, Evr- ópukeppnin er bara bónus. Við get- um verið ánægðir núna en ég get lofaði því að á mánudaginn mun ég henda þeim af stað,“ sagði þjálf- arinn. Dregið verður í næstu um- ferð á mánudaginn og síðan leikið 9. og 16. nóvember. „Í hattinum er mörg góð lið en ég vil fá lið frá Belgíu, Búlgaríu eða Finnlandi því ég vil ná lengra. Auðvitað væri gaman að fá stór lið hingað því það er miður hvað lítið er af Evrópu- leikjum á Íslandi. Það er að vísu dýrt en umgjörðin hjá okkur er frá- bær og vinnan við þessa Evrópu- leiki ótrúleg. Við erum með menn í stjórn til að safna peningum því ein umferð kostar rúmar tvær milljónir og strákarnir í liðinu þurfa ekki að sinna því, geta einbeitt sér að hand- boltanum. Slík vinnubrögð eru frá- bær og sýna að það er hægt. Þessir leikir gefa strákunum líka mjög mikið því að spila í svona leik gefur mikla reynslu, til dæmis eins og bik- arúrslitaleikurinn í fyrra. Þeir end- ast í boltanum og ég man eftir því þegar ég var hjá KA á Akureyri og við spiluðum í Meistaradeildinni að strákar eins og Halldór Sigfússon og fleiri ungir strákar, tóku út mik- inn þroska á einum svoleiðis vetri. Það er líka mjög mikil samkeppni um að komast í lið. Ég er með sautján menn svo að það eru alltaf einhverjir, sem komast ekki að. Það er því mjög erfitt fyrir mig að velja aðeins fjórtán í leikmannahópinn og skilja hina eftir,“ sagði Árni Stef- ánsson. Árni Stefánsson, þjálfari HK, segir að keppnisskapið hafi verið frábært ÞUNGU fargi var létt af Árna Stefánssyni þjálfara HK eftir leikinn. „Ég er verulega ánægður með að hafa komist í gegnum þessa þraut. Þetta hefur verið erfið vika því alla vikuna hafa allir sem maður hittir sagt þetta frábært hjá okkur og gott að við erum komn- ir áfram í keppninni. Við vitum sjálfir að svo var ekki en þegar það er alltaf verið að troða þessu í hausinn á manni fer maður jafnvel að trúa því að einhverju leyti. Ég hamraði á því við strákana að þetta væri ekki búið og sem betur fer vorum við klárir í þennan leik.“ Árni Stefánsson, þjálfari HK. Ánægður að vera kominn í gegnum þessa þraut Eftir Stefán Stefánsson Morgunblaðið/Þorkell Augustas Strazdas átti stórleik með HK og var öflugur í vörn og sókn. Hér sækir hann að marki Rússanna og nær að senda knöttinn í netið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.