Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA 4 B MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNES Karl Guðjónsson lék allan tímann á miðjunni í liði Wolves sem gerði markalaust jafntefli við Fulham í Lund- únum. Úlfarnir eru þar með ósigraðir í síðstu þremur leikjum sínum og sagði Dave Jones, knattspyrnustjóri nýliðanna, að sjálftraustið væri vonandi komið hjá sínum mönnum. „Ég finn að sjálftraustið er á uppleið. Við höfum lagt hart að okkur að und- anförnu og við ætlum svo sannarlega að berjast duglega fyrir lífi okkar í deildinni. Ég var ánægður með leik liðsins sem spil- aði á köflum mjög góða knattspyrnu,“ sagði Jones. Ívar Ingimarsson var í fyrsta sinn í lang- an tíma í leikmannahópi Wolves en hann sat á varamannabekknum allan tímann. Jóhannes Karl í liði Úlfanna Jóhannes Karl FÓLK EIÐUR Smári Guðjohnsen varekki í leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal á Highbury, en hann er fjórði miðherjinn í liði Chelsea – á eftir Hernan Crspo, Adrian Mutu og Jimmy Floyd Hasselbaink. Enn er kominn upp sá orðrómur í blöðum í Englandi að hann sé á förum frá Chelsea og sagði götublaðið Sunday Express frá því í gær að líklegast væri að Eiður Smári færi til Middlesbrough. Blaðið rifjaði einnig upp gaml- ar vangaveltur um áhuga Man- chester United og sagt er að markahrókinn Ruud van Nist- elrooy vantaði illilega sókn- arleikmann sér við hlið. Eiður Smári orðaður við „Boro“ Arsenal heldur þar með enn helj-artaki sínu á Chelsea sem aldrei hefur tekist að sigra á Highbury frá því úrvalsdeildin var sett á laggirnar fyrir tólf árum. Edu kom Arsenal yfir á 5. mínútu með 700. úrvalsdeildar- marki Arsenal en Crespo jafnaði fjór- um mínútum síðar með frábæru skoti sem Jens Lehmann átti ekki mögu- leika á að verja. „Mér fannst við vera á handbrems- unni í fyrri hálfleik og þurftum að keyra upp hraðann sem við og gerð- um í síðari hálfleik. Mér fannst eins og Chelsea væri sátt við jafntefli en það vorum við ekki og líklega gerði það gæfumuninn. Við unnum leikinn á mistakamarki en rétt áður hefðum við átt að skora tvö mörk,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, en hans menn eru eina taplausa liðið í deildinni. Verðskuldaður sigur „Arsenal verðskuldaði öll stigin eins og það lék í síðari hálfleik. Ég finn til með Cudicini og ég sagði við hann eftir leikinn: Hafðu ekki áhyggjur. Þú hefur bjargað oft fyrir Chelsea en í dag varst þú óheppinn. Carlo er mjög leiður yfir þessu en flestir markverðir gera mistök og Carlo er mannlegur. En ég vona að þau verði ekki fleiri. Ég held að við höfum séð að Chelsea er ekki í sama gæðaflokki og Arsenal og Manchest- er United,“ sagði Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea. Roy Keane fyrirliði Manchester United var hetja sinna manna en hann skoraði eina mark liðsins þegar það sótti Leeds heima á Elland Road. Keane skoraði sigurmarkið 10 mín- útum fyrir leikslok með skalla eftir góða fyrirgjöf frá Gary Neville. Ferdinand frábær Allra augu á Elland Road beindust að fyrrverandi leikmanni Leeds, Rio Ferdinand, en hann hefur heldur bet- ur verið í kastljósi fjölmiðlanna eftir upplýst var að hann hefði skrópað í lyfjaprófi og var í kjölfarið ekki valinn í enska landsliðið í leikinn við Tyrki. „Það kom aldrei til greina hjá mér að velja hann ekki í liðið þrátt fyrir þá pressu sem hann þurfti að takast á við. Ferdinand stóðst álagið og hann var hreint frábær í leiknum. Við feng- um harða mótspyrnu frá Leeds og ég verð að hrósa þeirra liði fyrir góða baráttu og vel skipulagðan leik,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Unit- ed, sem hrósaði fyrirliða sínum. „Hann átti skilið að skora. Hann var að vinna út um allan völl.“ „Ég get ekki kvartað yfir leik minna manna. Þeir lögðu sig alla fram og þrátt fyrir að United hafi að mestu ráðið ferðinni þá fannst mér við verðskulda stig. En lið eins og Manchester United refsar andstæð- ingum sínum fyrir mistök og það gerðu meistararnir svo sannarlega. Ég var ánægður með varnarleikinn og ég sá margt jákvætt við leik liðsins sem ég get vonandi byggt ofan á,“ sagði Peter Reid, stjóri Leeds en hann færi tækifæri til að hefna ófar- anna en liðin eigast við eftir átta daga í deildabikarkeppninni. Given hetja Newcastle Sir Bobby Robson knattspyrnu- stjóri Newcastle hrósaði varnarleik sinna manna og markvörslu í leiknum við Middlesbrough en lærisveinar Robsons unnu 1:0 útisigur með marki Shola Ameobi. „Shay Given var líklega maðurinn á bakvið sigur okkar. Hann varði í þrígang hreint meistaralega og ég get ekki látið hjá því líða að nefna Tit- us Brambel sem átti stórleik í vörn- inni,“ sagði Robson. Þriðji ósigur Liverpool í röð Patrick Berger launaði sínum gömlu félögum í Liverpool lambið gráa en hann skoraði eina mark leiks- ins þegar nýliðar Portsmouth lögðu Liverpool að velli. Þetta var þriðji ósigur Liverpool í röð í deildinni en það hefur ekki gerst áður síðan Frakkinn Gerard Houllier tók við stjórn liðsins fyrir fimm árum. „Munurinn á milli liðanna fólst í ferskleika. Leikmenn Portsmouth voru miklu frískari og það er greini- legt að Evrópuleikurinn og þátttaka margra leikmanna minna með lands- liðum sinna þjóða hefur tekið toll. Við vorum ekki nógu líflegir en ég verð að hrósa Portsmouth fyrir góðan varn- arleik,“ sagði Houllier. Reuters Thierry Henry, miðherji Arsenal, fagnar sigurmarkinu gegn Chelsea á Highbury. Cudicini færði Arsenal sigur- mark á silfurfati ÍTALINN Carlo Cudicini markvörður Chelsea hefur væntanlega átt erfitt með svefn á laugardagskvöld en hræðileg mistök hans í leikn- um við Arsenal kostuðu Chelsea fyrsta ósigurinn á leiktíðinni. Stundarfjórðungi fyrir leikslok missti Cudicini knöttinn á milli fóta sér þegar hann hugðist taka hann upp, boltinn hrökk í fætur Thierry Henry og þaðan í netið. Arsenal sigraði, 2:1, og skaust í toppsætið sem Manchester United hafði verið í tveimur tímum áður. ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10  MANCHESTER City fór á kostum gegn Bolton en 6:2 urðu lokatölur í leik liðanna á heimavelli City. Nicolas Anelka og Shaun Wright Phillips skoruðu tvö mörk hver fyrir Man- chester City en Phillips fékk að auki að líta rauða spjaldið þegar hálftími lifði leiksins.  TOTTENHAM vann sætan sigur á Leicester á Walker Stadium vellinum í Leicester í gær. Skoski landsliðs- maðurinn Paul Dickov kom Leicester yfir í fyrri hálfleik en en Tottenham tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu 12 mínútunum. Mbulelo Mabizela jafnaði með þrumufleyg og Frederic Kanoute skoraði sigurmarkið í blálokin.  MATEJE Kezman, 24 ára, miðherji hollenska liðsins PSV Eindhoven seg- ir að það sé draumur hans að komast til Arsenal. Kezman, sem skoraði 35 mörk og var markahæstur í Hollandi, er metinn á átta millj. punda.  FREDDY Shepherd, stjórnarfor- maður Newcastle, fór til Barcelona á laugardaginn til að ræða við forráða- menn Barcelona um hollenska mið- herjann Patrick Kluivert, 27 ára, sem Newcastle vill fá til sín í janúar, þegar leikmannamarkaðurinn verður opn- aður á ný í Englandi.  HERMANN Hreiðarsson mun leika með Chalton á ný í kvöld er liðið mætir Blackburn í ensku úrvalsdeild- arkeppninni. Það gæti svo farið að hann þurfi að eiga í höggi við Andy Cole, sem leikur líklega á ný í fremstu víglínu Blackburn, eftir að hafa verið frá vegna meiðsla á hálsi.  KRIS Commons, 20 ára útherji hjá Stoke, er nú efstur á óskalistanum yf- ir leikmenn sem Everton vill fá til sín. Rætt er um að kaupverð hans sé 400 þús. pund, en samningur Commons við Stoke rennur út eftir þetta keppn- istímabil.  LIVERPOOL hefur augastað á varnarmanninum Ibrahima Sonko, sem leikur með Brentford. Sonko er 22 ára landsliðsmaður frá Senegal.  ENN eru ýmsar sögusagnir komn- ar upp um leikmenn sem Chelsea hef- ur áhuga á að fá til sín. Sagt er að liðið sé tilbúið að borga Manchester Unit- ed 20 millj. punda fyrir varnarmann- inn Rio Ferdinand, sem er kominn með heimþrá – vill fara aftur til Lond- on. Enski landsliðsmiðvörðurinn á þriggja mánuða bann yfir höfði sér fyrir að hafa ekki mætt í lyfjapróf, sem hann var boðaður í. Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, legg- ur hart að enska knattspyrnusam- bandinu að það taki hart á málinu, en það er litið alvarlegum augum þegar menn mæta ekki í lyfjapróf.  ÞÁ er sagt að Chelsea vilji frá tékkneska landsliðsmanninn Pavel Nedved, leikmann Juventus, til að stjórna miðjunni hjá sér. Nedved er metinn á 28 millj. punda. Þess má geta að Chelsea hefur þegar keypt leikmenn fyrir 110 millj. punda á keppnistímabilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.