Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 6
HANDKNATTLEIKUR 6 B MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Gestirnir mættu ákveðnar tilleiks og voru tveimur til þrem- ur mörkum yfir mest allan fyrri hálf- leik. Eyjastúlkur náðu sér engan veg- inn á strik í upphafi leiks og var sóknar- leikur liðsins ekki burðugur. Þegar fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum var jafnt, 12:12, en mínútu áður höfðu Eyjastúlkur náð forystunni í fyrsta skipti í leikn- um. Þær gengu á lagið og hreinlegu völtuðu yfir Haukaliðið á þessum kafla, skoruðu fimm síðustu mörk hálfleiksins og fóru með þægilegt forskot til búningsherbergja á með- an Haukaliðið vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Þær höfðu spilað vel mest allan fyrri hálfleik en einbeit- ingarleysi síðustu mínúturnar kost- aði þær forskotið. Það var svo aldrei spurning hvoru megin sigurinn end- aði í þeim síðari, Eyjastúlkur hrein- lega kafsigldu andlaust Haukaliðið sem treysti allt of mikið á Ramune, stórskyttu þeirra, en hún var tekin úr umferð allan leikinn en var þrátt fyrir það langmarkahæst gestanna. Þrettán marka sigur Eyjastúlkna í höfn, 36:23, en Haukarnir þurfa al- deilis að gera betur ef liðið ætlar að blanda sér í toppbaráttuna. „Þetta var hæg byrjun hjá okkur, það þurfti að slípa aðeins leik okkar saman og koma leikmönnum í stand,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, kampakátur í leikslok. „Við höfum unnið mjög markvisst í okkar málum, höfum verið að laga okkar varnarleik og þá kemur mark- varslan í kjölfarið, síðan fáum við fullt af hraðupphlaupum. Leikmenn- irnir eru bara með hlutverk sín betur á hreinu núna en í byrjun móts.“ Aðalsteinn sagði ennfremur að það hafi bara verið spurning hvenær, ekki hvort, sitt lið næði yfirhöndinni í leiknum. „Við höfðum ekki spilað í tvær vikur. Að sjálfsögðu vorum við bara ryðgaðar í upphafi, við fáum ekki marga æfingaleiki hérna í Vest- mannaeyjum því miður. En leik- mennirnir komu virkilega vel ein- beittir til leiks og af mikilli tilhlökkun að spila þennan leik. Þær sýndu það þegar leið á leikinn að þær voru tilbúnar.“ ÍBV kafsigldi Hauka ÞAÐ var boðið upp á kaflaskipt- an leik í Eyjum þegar liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitl- inn í handknattleik kvenna sl. keppnistímabil, meistarar ÍBV og bikarmeistarar Haukar. Það voru Eyjastúlkurnar sem fögn- uðu öruggum stórsigri, 36:23. Sigursveinn Þórðarson skrifar ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10 Þegar maður kryfur leikinn varvissulega góður möguleiki á að ná betri úrslitum. Við misnotuðum til að mynda þrjú vítaköst og mark- varsla okkar var léleg á meðan sá þýski lokaði marki sínu á köflum. Birkir Ívar virtist eitthvað yfir- spenntur. Ekki vantar keppnisskap- ið né viljann en því miður náði hann sér ekki á strik. Ég gat ekki kvart- að yfir byrjun okkar í leiknum og ég var ánægður með margt í hon- um. Menn voru ekki að hengja haus og við náðum að laga stöðuna undir lokin. Það vann hins vegar ekkert með okkur og það virðist vera að þegar maður er kominn á útivöll hjá stórliðunum vilja reglurnar oft breytast og við vorum sérlega ósáttir við rússnesku dómarana. Mér fannst við líka vera í óheppnari kantinum á meðan allt gekk upp hjá Magdeburg en það kannski skýrir styrkleikamun liðanna. Við gerðum okkur vel grein fyrir því að við vor- um ekki hingað komnir til að sækja sigur enda hefur Magdeburg unnið 22 leiki í röð á heimavelli í deildinni og það segir allt um styrk þess,“ sagði Viggó. Viggó sagði að vörn Magdeburg hafi reynst sínum mönnum erfiður múr að yfirstíga og eins hafi Kretszchmar gert þeim lífið leitt. „Þeirra aðall er vörnin og frábær markvarsla og við ætluðum að reyna að halda hraðanum eins mik- ið niðri og mögulegt var og reyna að verjast hraðaupphlaupunum. Það gekk ágætlega framan af en síðan var eins og stífla hafi brostið. Við fundum engar leiðir framhjá vörn þeirra, Kretszchmar skoraði á okk- ur í kippum og við réðum bók- staflega ekkert við hann.“ Barcelona betra en Magdeburg Spurður út í mun á liði Barcelona og Magdeburg sagði Viggó; „Ég var í viðtali við þýska sjónvarpið fyrir leikinn þar sem ég sagði að Magdeburg ætti ekki möguleika á að vinna Meistaradeildina. Þjóð- verjarnir urðu mjög sárir út af þessum ummælum og sjónvarps- maðurinn spurði mig aftur í beinni útsendingu eftir leikinn um þessi ummæli mín. Ég sagði honum að það væri faglegt mat mitt að ég teldi Barcelona sterkara liðið og hefði miklu meiri breidd en Magde- burg og liðið hefði ekki lengur Ólaf Stefánsson.“ Viggó segir að sínir menn ætli ekkert að hengja haus og hann hef- ur trú á að Haukar vinni næsta leik sinn í keppninni sem er á móti Vardar á Ásvöllum. „Vardar tapaði mjög illa á móti Barcelona og það eitt ætti að auka líkur á að við getum unnið Mak- edóníumenn.“ Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, gerði sér vonir um að ná betri úrslitum gegn Magdeburg Markvarslan og vörnin gerðu gæfumuninn A Franski landsliðsmaðurinn Joel Abati lyftir sér upp fyrir framan vörn Hauka, án þess að Dalius Raskeviciu komi vörnum við, og skorar. Abati sem tekinn er við hlutverki Ólafs Stefánssonar skoraði 6 mörk. „ÉG var að gera mér vonir um að ná betri úrslitum en þetta er eins með Barcelona og lið Magdeburg, þau eru í allt öðrum gæðaflokki en við,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið en hans menn biðu lægri hlut fyrir Magdeburg í Meistaradeildinn með átta marka mun. LIÐSMENN Barcelona fóru heldur betur á kostum gegn Vardar Skopje í B-riðli Meistaradeildar karla í handknattleik en félögin leika í sama riðli og Haukar og Magdeburg. Börsungar hreinlega völtuðu yfir Makedóníumennina og unnu leikinn með 21 marks mun, 41:19, eftir að staðan í hálfleik var 19:8. Iker Romero var atkvæðamestur í liði Barcelona með 7 mörk, Fern- andez skoraði 6, fyrirliðinn Enric Masip skoraði 5, og þeir Lazslo Nagy, Frode Hagen og Jarome Fernandez skoruðu 4 mörk hver. 21 marks sigur Börsunga RÓBERT Gunnarsson, línumaðurinn öflugi hjá danska liðinu Århus GF, fór á kostum með liðinu í tveimur leikjum á móti eist- neska liðinu Kehra Tallinn í EHF-keppninni í handknattleik sem háðir voru í Árósum í Danmörku um helgina. Róbert skoraði 12 mörk í fyrri leiknum á laugardaginn þegar Århus GF sigraði, 38:27, og í gær var Róbert aftur atkvæða- mestur í danska liðinu en hann skoraði 9 mörk í 32:24 sigri þess. Hornamaðurinn Þorvarður Tjörvi Ólafsson stóð sig einnig vel en hann skoraði 4 mörk í leiknum á laug- ardag og 3 í gær en Århus GF vann leikina samanlagt, 70:51.Morgunblaðið/Golli Róbert skoraði 21 mark fyrir Århus GF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.