Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 2
2 B SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ EITTHVAÐ er það í íslenskri dæg- urtónlist sem Frakkar kunna að meta eins og sést af því að Björk Guðmundsdóttir er hvergi vinsælli en í Frakklandi, Emilíana Torrini náði líka einna lengst þar í landi og Bang Gang er í metum. Barði Jó- hannsson er fremstur meðal jafn- ingja í Bang Gang, eini liðsmaður hljómsveitarinnar þegar grannt er skoðað, og hann á að baki litríkan feril. Fyrir skemmstu kom út í Frakklandi, og hér á landi líka, ný Bang Gang-plata, Something Wrong, sem á sér sérkennilegan aðdraganda, en ólíkt því sem geng- ur og gerist er Barði ekki bara lagasmiður á plötunni og helsti hljóðfæraleikari og söngvari, held- ur sá hann um flest annað sem að gerð plötunnar kom og á að auki út- gáfuréttinn sjálfur sem er ekki al- gengt þegar gefið er út á millj- ónamarkaði. Barði Jóhannsson er fæddur og upp alinn í Hlíðunum þó að sú saga hafi snemma farið af stað að hann væri af Seltjarnarnesinu, „óskilj- anlegt“, segir Barði og rifjar upp að þegar hann var í Menntaskólanum í Reykjavík hafi það verið almenn trú manna að hann væri af Nesinu. „Ég hlýt að vera eitthvað nesleg- ur,“ segir hann og kímir. Barði var í Æfinga- og tilraunadeild Kenn- araskóla Íslands og segir að það hafi legið beinast við að fara í Menntaskólann við Hamrahlíð. Hann langaði aftur á móti að fara í skóla með bekkjakerfi og einnig að kynnast nýju fólki. „Ég vissi að ef ég færi í MH myndi ég halda mig í sama vinahópnum og því vildi ég breyta til. Ég man aftur á móti ekki af hverju mig langaði í skóla með bekkjakerfi, það hefur sýnst heilla- ráð á sínum tíma, en óskiljanlegt í dag, þó að ég hafi reyndar kunnað afskaplega vel við mig í MR.“ Þegar Barði kom í MR var hann kominn vel af stað í tónlistinni, enda byrjaði hann að músísera sem barn. „Það voru píanó, gítar og harmonikka heima hjá afa mínum og ömmu, en ég var mikið hjá þeim. Ég fór snemma að reyna að spila á píanóið og svo gítar og fjölskyldan tók því vel, var dugleg við að styðja mig og gefa mér hljóðfæri. Það hjálpaði kannski einna mest hvað þau voru þolinmóð varðandi hávað- ann.“ Ester Thalíu Casey segist Barði hafa þekkt frá því hann átti lagið Falskur á barnaplötunni Ekkert mál, en hún söng einnig lag á þeirri plötu. Þetta var 1989 þegar Barði var fjórtán ára og lagið var tekið upp í stúdíói sem Sverrir Storm- sker vandi komur sínar í. Eitt sinn tókst Barða að herða svo upp hug- ann að hann gat beðið Sverri að syngja með sér í laginu, enda var hann mikill aðdáandi hans, en ann- ars flutti hann lagið með Hildi Guð- nýju Þórhallsdóttur undir nafninu Vandamál, sem mótvægi við söng- hópinn Ekkert mál sem platan dró nafn sitt af. Barði vill þó ekki tala mikið um þetta fyrsta lag sitt, segir að það hafi verið svo slæmt að hann hafi bannað að það yrði á plötunni þegar hún var endurútgefin á geisladisk. „Ég bið þá sem þetta lesa að eyða þeim plötum sem þeir finna með þessu lagi, enda er það eitt versta lag sem samið hefur ver- ið og illa sungið.“ Gítarinn varð aðalhljóðfærið Barði byrjaði að læra á píanó, lærði í eitt ár, en gítarinn varð snemma aðalhljóðfæri Barða og hann fór meðal annars í Gítarskóla Ólafs Gauks og stundaði vís- indalegt rafgítarnám. „Ég man ekki hvort ég lærði nokkuð, en ef- laust hefur það gagnast mér, ég held að allt gagnist manni þegar upp er staðið.“ Eftir Gítarskóla Ólafs Gauks lá leiðin í Tónlistar- skóla FÍH þar sem hann lærði á gítar undir handleiðslu Stefáns Hjörleifssonar og tók þar þrjú stig. „Mér fannst aftur á móti leiðinlegt að spila coverefni eftir Mozart og Bach og endalausa skala, ég vildi frekar semja mín eigin lög og spila þau.“ Fimmtán ára gamall stofnaði Barði sína fyrstu hljómsveit, Öpp Jors, með félaga sínum Lárusi Magnússyni. Öpp Jors sendi frá sér þrjár snældur, Mongolian Bobo, Plan-B Dauði og Görn (breskur skemmtistaður). Á síðast- nefndu snældunni, sem gefin var út í viðhafnarumbúðum með ítarleg- um upplýsingum um hvert lag, ljóðablaði og áritaðri mynd af þeim Barða og Lárusi, bregður fyrir aukasjálfinu Barði Fokken, sem Barði segist hafa notað í útvarps- þáttum sem hann var með í grunn- skólaútvarpi. „Mér fannst það gott á sínum tíma, en í dag finnst mér það lélegt,“ segir Barði og heldur svo áfram eftir smáþögn: „Ég hef gert mjög margt lélegt um dagana, en það er nú bara til að læra af því, maður þarf að gera lélegt til að geta gert gott.“ Barði segist aldrei líta í þetta gamla lagasafn þó að inni á milli leynist sjálfsagt góðar hugmyndir sem mætti nýta betur. „Það endar nú samt alltaf með því að ég geri nýtt, ég á fullt af hugmyndum sem verða aldrei að neinu, sumar góðar en aðrar ömurlegar,“ segir Barði og veltir enn fyrir sér hugmyndinni um að læra af hinu slæma: „Mér finnst gaman að fara á lélega tón- leika, því það gefur mér sjálfs- traust, kennir mér hvað á ekki að gera og líka að meta betur það sem er gott; ef maður sér bara það sem er gott brenglast fegurðarskynið.“ Marsipan og Bang Gang Barði átti víðar lög á þessum tíma, því hann samdi lög á árshátíð- arplötur sem gefnar voru út í skól- anum og svo tók hann upp nokkur lög með hljómsveitinni Marsipan sem hann starfaði með um tíma og lék á tvennum tónleikum, en þess má geta að Esther Talía Casey söng með Marsipani, en Barði hafði kynnst Esther þegar Ekkert mál var tekin upp. Þegar Marsipan lagði upp laupana varð Bang Gang til og hefur starfað upp frá því. „Einn af helstu kostum við það að fara í MR var að kynnast Henrik Baldvin Björnssyni sem ég stofnaði með Bang Gang,“ segir Barði. Hljómsveitin Bang Gang var skipuð þeim tveim til að byrjað með og þeir eru einir nefndir á smáskífunni Listen Baby með The Bang Gang sem kom út haustið 1996. Síðan slógust í hópinn Esther Talía og tveir til viðbótar og þannig skipuð lék sveitin á tónleikum. Hún tók upp tvö lög til viðbótar sem Henrik og Esther Talía syngja saman en fór síðan hljómsveitin í frí. „Ég hélt þó áfram að vinna lög með Esther Talíu og sendi inn lög í samkeppni um að komast á geisladisk með ungum tónlistarmönnum sem fyr- irtækið Sproti stóð fyrir. Mér bauðst svo að vera með lög á safn- plötunni, sem hét Spírur, en þá vantaði mig nafn. Ég fékk því leyfi frá Henrik að nota Bang Gang og hef notað það síðan.“ Þess má svo geta að Henrik er nú höfuðpaur hljómsveitarinnar Singapore Sling. „Skemmtilega nýstárleg“ Þessi fyrstu lög Bang Gang voru talsvert frábrugðin því sem Barði hafði áður gert, því þó hann léki enn á gítar var hann farinn að nota tölv- ur við tónsmíðar og undirleik. „Ég kunni svo vel að meta að vera eng- um háður, að geta gert hlutina þeg- ar mér hentaði.“ Spírur komu út haustið 1997 og var vel tekið; í gagnrýni í Morg- unblaðinu í nóvember 1997 eru Bang Gang lögin tvö sögð: „skemmtilega nýstárleg, tölvu- popp með myrkum blæ“. Snemma árs 1998 hélt Steinar Berg, sem fyrirtæki hans, Spor, var móðurfyrirtæki Sprota, á Midem tónlistarhátíðina í Frakk- landi með tvöfaldan kynning- ardisk í fórum sínum, Ice and Fire, en á þeim disk, sem gerður var í samvinnu íslenskra útgef- enda, voru 33 lög íslenskra flytj- enda. Þar var Bang Gang lagið Sleep af Spíruplötunni og út- sendari Warner í Frakklandi hreifst af, vildi endilega fá meira af Bang Gang. Á endanum var samið um að gefa lagið út á smá- skífu í Frakklandi haustið 1998 og hugsanlega stóra plötu, en áhuginn frá Frakklandi varð til þess að ákveðið var að gera plötu til að gefa út hér heima þó sölu- plön hafi víst ekki verið nema upp á 300–500 eintök. Um sumarið vann Barði því að stórri plötu, segist hafa samið lögin nánast jafnóðum og þau voru tekin upp, en Bang Gang átti lag á annarri safnplötu Sprota, Kvistir hét sú, sem kom út í júlí 1998. Stóra platan You kom svo út í nóvember 1998 og í dómi um hana í Morgunblaðinu féllu þessi orð: „Barði og Ester hafa náð að setja saman fram- úrskarandi plötu sem er með því besta sem komið hefur út á árinu og markar módernísku íslensku poppi nýja stefnu.“ Útgáfa í Frakklandi Þrátt fyrir miklar væntingar um útgáfu ytra tók allt mun lengri tíma en ætlað var í upp- hafi. „Það tekur reyndar allt langan tíma þegar maður er að vinna með stórfyrirtækjum í út- löndum en ég veit ekki af hverju þetta gekk svo hægt. Ég hafði á tilfinningunni á þessum tíma að menn væru ekki að sinna þessu nógu vel innan Skífunna sem fékk útgáfuréttinn þegar Spor rann inn í hana. Svo var ráðinn þangað maður að nafni Björn Steinbekk og þá fór allt að ganga miklu betur, hann stóð sig afar vel.“ You kom svo út í Frakk- landi og Þýskalandi í byrjun nóv- ember 2000. Þó tekist hafi að koma plötunni út ytra segir Barði að sér hafi fundist sem ekki ríkti skilningur á því hvað væri rétt að gera í framhaldinu og einnig hafi sér fundist að menn væru of upp- teknir við að reyna að koma á framfæri öðrum listamönnum. „Það var vissulega áhugi fyrir því að gera aðra Bang Gang- plötu, menn voru æstir í það, en hún mátti ekkert kosta; fjárhags- áætlun fyrir plötuna var þriðj- ungur af því sem kostaði að gera eitt myndband við lag af You. Mér fannst líka áherslur í samn- ingamálum úti ver skringilegar og ekki líklegar til að bera árang- ur. Á endanum ákvað ég því að best væri að gera þetta sjálfur og 2001 ákvað ég að rifta samn- ingnum við Skífuna, borgaði tæp- ar tvær milljónir króna til að losna.“ Barði segir að þeir tónlist- Barði og söngkonan Keren Ann Zeidel hafa verið áberandi í frönskum tónlistarblöðum undanfarið. rfitt að eiga sér einkalíf ’ Ég kunni svovel að meta að vera engum háður, að geta gert hlutina þegar mér hentaði. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.