Vísir - 22.10.1980, Page 14

Vísir - 22.10.1980, Page 14
14 Miðvikudagur 22. október 1980, VÍSIB einstðk útlán 1 Landsbanka Islands er það bankastjórn, .skipuð þremur bankastjórum og tveimur aðstoðarbankastjórum, sem setur reglur um útlán. Þessi sama bankastjórn tekur á fundum sinum ákvörðun um öll einstök útlán, sem máli skipta. Yfirumsjón meö starfsemi bank- ans er i höndum bankaráðs, sem skipaðer fimm mönnum kjörnum af Alþingi og er þvi a.m.k. mánaöarlega gefið itarlegt yfirlit um þróun innlána og útlána og stöðu bankans. Það hlýtur þess vegna að vera fleirum en mér ráðgáta, hvernig einn bankastjóri getur „misnotað Landsbankann af stjórnmálaástæðum”. Um leið langar mig til að spyrja Visi og önnur islenzk dagblöð, hvenær þau ætli að taka upp þann sjálfsagða siö aö birta ekki önnur lesendabréf en þau, sem skrifað er undir fullu nafni? Virðingarfyilst, JónasH. Haralz Ég legg þaö ekki I vana minn að elta ólar við óhróöur og dylgjur. Lesendum Vfsis til upplýsingar vil ég þó taka þetta fram: Jónas H. Haralz bankastjóri Landsbankans. Jónas H. Haralz. bankastlóri: Bankastjórn tekur ákvörðun um öll HætUO með ensku knaitspymuna Knattspyrnuáhuga- maður hringdi Ég er einn þeirra sem er búinn að fá meira en nóg af þessari ensku knattspyrnu i Sjónvarpinu. Þessar myndir eru orðnar ansi leiðinlegar enda enska knatt- spyrnan örugglega ein sú allra þreyttasta i heiminum. Þetta er oröið svo leiöigjarnt efni að maður er farinn að sofna yfir þessum þáttum hvað eftir annaö, enda hver leikur öðrum likur og leiðinlegri. Hvernig er það, er ekki hægt að fara aö sýna okkur myndir af alvöru knattspyrnuleikjum t.d. frá Þýskalandi, Hollandi eða Belgi'u. Þar er leikin knattspyrna sem gleður augað og þótt ekki væri nema að fá tilbreytingu, þá er kominn timi til að skipta um knattspyrnumyndir i Sjón- varpinu. FYRIR HVERJA ERU TEIKNIMYNDIRNAR? MINNIR A LÝS- INGAR Á MEÐFERÐ Ein óánægð með dag- skrá sjónvarpsins fyrir allra minnstu börnin. Hvernig væri að þeir hjá sjón- varpinu færu að hugsa nefi sinu lengra. Já, fýrir hverja eru teiknimyndirnar Tommi og Jenni? Fyrir börnin ekkisatt? En hvað með þau börn sem vakna klukkan6.45eða þar um bil og eru á aldrinum 3-4 ára? Ég er móðir eins sliks barns og það er yfirleitt sofnaö milli 19.-19.30 en er i sifellu að tala um Tomma og Jenna sem talaö er svo mikiö um i leik- skólanum. Ég fæ ekki skilið af hverju þeir hjá sjónvarpinu geta ekki gefiö þeim allra minnstu smátima, eins og t.d. kl. 18 á kvöldin þegar dimmt er oröið úti og foreldrar uppteknir við mat- reiðslu. Skyldi það kosta mikið að sýna þá teiknimyndirnar og endursýna hina stórkostlegu Barbapapa? Þvi þau allra minnstu þreytast aldrei á þeim. Þetta er nú gert á öllum hinum Norðurlöndunum, yfirleitt korter á dag, viö erum jú alltaf aö miða okkur við þau. Ég skora á þá hjá sjónvarpinu aö gera eitthvað i þessu máli. Guðmundur J. Guðmundsson. Söngelskum svarað: HANN HLUSTAR GREINILEGA EKKI A LÖG UNGA FÓLKSINS „Hneyksluð” skrifar Alveg finnst mér þetta fárán- legt bréf frá Söngelskum 16. októ- ber siöastiiðinn. Hann byrjar á þvi aö tala um hvað Björgvin Halldórsson sé frábær og allt það sem ég er alveg sammála. Það er mjög góöur árangur að verða fjórði I söngvakeppninni á Ir- landi. En svo kemur brandarinn. Að ieggja lög unga fólksins undir óperusöngkonur! Þessi Söng- elskur hefur greinilega ekki hlustað á Lög unga fólksins ný- lega. Þar er búið aö grátbiðja for- ráöamenn útvarpsins i langan tima um að lengja þáttinn eða að hafa hann tvisvar i viku, en ekk- ert hefur verið gert. Það sem Söngelskur segir að unga fólkið myndii fegið vilja aö leggja þenn- an þátt niður er svo mikil þvæla að það er engu likt. Svo er það staöreyndin að popp- þættir séu einn eða fleiri á dag. Söngelskur heföi nú getaö lesið útvarpsdagskrána fyrir vikuna áður en hann skrifaði þetta bréf. Poppþættir eru i mesta lagi fimm I viku: Löng unga fólksins, mánu- dags- og fimmtudagssyrpur, Afangar og Bitlaþátturinn nýi. Það er nú allt og sumt. Ég getekkiað þvi gert, en ég er svo yfir mig hneyksluð á þessu lesendabréfiaðégkemstekki yfir það. Og ég bara vona aö það hafi verið skrifað í grini. STRÍ8SFANGA Hvernig er þaö, ætla þessir menn sem talaö er um i „Stattu þig drengur” (bókinni um Sævar Ciesielski) ekki aö svara fyrir sig? Lýsingarnari bókinni minna einna helst á lýsingar á meðferð á striðsföngum nasista i heimstyrj- öldinni siöari. Eftir lestur bókar- innar er ég ekki i nokkrum vafa um að sögurnar um fantaskap lögreglunnar og fangavaröanna séu sannar. Þaö er veriö að taia um aö það hafi veriö misræmi á milli framburðar sakborninga i Geirfinnsmálinu og að þeir hafi dregið fyrri framburö til baka. En þannig er þvf nú lika variö i málum fangavarða og rann- sóknarlögreglumanna. Þeim finnst sjálfsagt best að þegja málið í hel, eða hvað? Ein óhress Sævar Ciesielski. Af Guðmundi heiln- um og Guðmundl J. Guðmundur heitinn Guömunds- son, er lengi var læknir i Stykkis- hólmi, fluttist til Ameriku á gam- als aldri og þá að nokkru kominn út úr heiminum. Sú gamansaga hefir viða flogið, aö þá er Guð- mundur leit New York borg af skipsfjöl, hafi hann heyrst segja: „Ja, það er aldeilis, að þeir eru búnir að byggja hér i Hólmin- um”. Nú vikur sögunni til annars Guðmundar (J.) Guðmundsson- ar. Sá er sagður hafa flúið til Stykkishólms á næstliðnu vori, er núverandi rikisstjórn þurfti að ieggja byröar nokkrar á „al- þýðuna”. Sá hinn sami Guömund- ur hafði og ráögert för til New York, en hefur nú frestaö henni um sinn (alltaf vilja þessir „alla- ballar” ólmir komast i Ameriku- sæluna, ef færi gefst). — Nú er liklegt, að búiö verði aö leggja viðbótar-pinkla á alþýðu manna hér heima, er Guðmundur kemur vestur. — Kannske honum verði þá að orði: „Ja, það er aldeilis að maöur fréttir aftur af drápsklyfj- um hér i Hólminum”? Guðm. Guðmundsson, Flyðrugranda 4, Rvk.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.