Vísir - 19.11.1980, Blaðsíða 18

Vísir - 19.11.1980, Blaðsíða 18
18_ mrrnnlíf VÍSIR Miövikudagur 19. nóvember 1980 Ski Inaðardrama t kúrekastíí eiginkonu John, Ann og fjölskyldu George. Fyrir þremur árum hófst ástarsamband Ann og George og var John grandalaus þar til i sumar. A6 sögn mun honum hafa brugöiðmjög við tiðindin og orða- laust lét hann söðla hest sinn og hlóð skammbyssuna. Siðan reið hann út i hestagirðingu, þar sem elskhuginn var að sýsla við hross- in. John skaut tveimur skotum að George og særði hann litilsháttar á handlegg. Siðan reið eigin- maðurinn heim og visaði konu sinni á dyr. Þau Ann og George fluttu i úti- hús þar á landareigninni og hófu umsvifalaust að byggja múrvegg á milli Ibúðarvillunnar og úti- hússins. Nú hafa málin komist á hreint og John er skilinn við Ann og samstarfi þeirra Geórge er lokið. George hefur yfirgefið konu sina og þrjú börn en tvö börn þeirra John og Ann búa hjá móð- ur sinni. Elskhuginn George McAuley á uppáhaldshrossi sinu. Bresk blöð skýrðu ný- lega frá skilnaðarmáli þar i landi þar sem að- dragandi virðist hafa verið í reifarakenndum kúrekastil og ekki spillir að málið snýst um þekktar persónur þar i landi. Við sögu koma tveir milljónamæring- ar, sem reka saman stóðhestabúgarð og kona annars þeirra, eða réttara sagt fyrrverandi kona. Þeir John Ffitch-Heyes og Ge- orge McAuley hafa um árabil stundað stóðhestarækt á glæsileg- um búgarði sinum Blayhill I Surr- ey oghafa búið þar saman ásamt I Múrveggurinn milli elskendanna og eiginmannsins. Eiginkonan Ann Fiftch-Heyes l reiðklæðum. Eiginmaðurinn John Fiftch-Heyes með „viöhaldi” sfnu, sjaldgæfum amerískum sportbll. Halli og Laddi í hnattferð — á nýrri hljómplötu Rólegheit I Dean Martin hefurl tekiö lífinu meö ró að 1 undanförnu og er nú orðið langt síðan hann | hefur komið fram opin- berlega. Jafnvel Las Vegas hefur orðið að sjá jaf kappanum en þar var '1 hann vanur að koma 1 fram a.m.k. tvisvar á ári. — „ Ég hef staðið : mína pligt sem leikari i og skilað ríflegu lifs- j starfi og mun því taka í ; lífinu rólega framveg is", — sagði Dean að- spurður, um leið og hann fékk sér i glas... Bræðurnir Halli og Laddi brugðu sér I stúdió i lok júli- mánaöar sl., án vitundar og vilja Islensku þjóðarinnar. Þar bauk- uðu þeir við iðju sina og kúnstir út júli og fram eftir öllum ágúst ásamt Tómasi Tómassyni pönk- ara. Útkoman úr þessu brambolti varö hljómskifa, sem hlotið hefur nafnið „Umhverfis jörðina á 45 minútum”. A plötunni taka bræðurnir sér faF með loftbelg og fljúga um- hverfis hnöttinn. Fyrsti viðkomu- staðurinn er Færeyjar, þar sem Halli og Laddi þiggja skerpukjöt, tevatn og brauö af þarlendum. Síöan fljúga þeir yfir til Kaup- mannahafnar, flækjast um Evrópu, koma við i Sovétrikjun- um og'enda loks i Japan. Þá eru hrakningarnir orðnir sllkir að þeir pakka saman loftbelgnum og taka Flugleiðaþotu beinustu leið heim. Þetta er i stuttu máli innihald textanna á þessari nýju plötu, en þeir eru allir eftir Halla og Ladda. Lögin á plötunni eru er- lend að undanskildum tveimur sem Laddi hefur samið. Hljóð- færaleikarar á plötunni eru As- geir óskarsson trommuleikari, Þórður Arnason gitarleikari, Kristinn Svavarsson sem leikur á saxófóna, Magnús Ingimarsson leikur á planó og harmónikku, nafni hans Kjartansson leikur á sömu hljóðfæri að viðbættum trompett. Tómas Tómasson ber ábyrgð á öðrum hljóðfærum en hann stjórnaði einnig upptöku og sá um útsetningar. „Umhverfis jöröina á 45 minút- um” er gefin út af Hljómplötuút- gáfunni h.f. og er þriðja L.P. plat- an sem útgáfan sendir frá sér á þessu ári. Þeir bræður lenda f miklum hrakningum á ferð sinni um heiminn .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.