Vísir - 22.12.1980, Blaðsíða 3

Vísir - 22.12.1980, Blaðsíða 3
Mánudagur 22. desember 1980 3 Míufélögin fá leyn tll að selja trésplra „Þaö þótt ekki fært að standa gegn þvi að oliufélögin gætu selt metanól til notkunar á flugför,” sagði Ingimar Sigurðsson hjá Heilbrigðis- og tryggingarráðu- neytinu. i spjalli við Visi. Tilefni spjallsins var auglýsing frá ráðuneytinu um undanþágu frá lögum um innflutning og sölu á metanóli, eða tréspira eins og menn þekkja það betur, en það flokkast undir eiturefni i lögun- um. „Metanól var flutt á svokall- aðan eiturefnalista árið 1974,” sagði Ingimar, „en var áður talið hættulegt leysiefni. Eitur- efnin lúta strangari reglum, þau eru undantekningarlaust talin hættuleg. Samkvæmt þvi var öll sala á metanóli bundin við þá aðila, sem lögin taka til. Þeir eru framleiðendur eitur- efna, sem til þess hafa fengið leyfi, forstöðumenn efnagerða og verksmiðja, sem þurfa efnin i framleiðslu sina,Lyfjaverslun rikisins, lyfjagerðir, lyfjaheild- verslanir, lyfjabúðir og læknar, sem hafa lyfsöluleyfi og síðan sérstakar verslanir, sem þurfa leyfi ráðherra til að selja eitur og hættileg efni til nota i land- búnaði og garðyrkju og til að útrýma meindýrum, siðan eru það spitalar og viðurkenndar rannsóknarstofnanir, og að lokum einstaklingar, 18 ára og eldri, sem fá úthlutað svokall- aða eiturbeiðni, sem gefin er út i hverju einstöku tilviki. Þetta eru þeir, sem leyfi hafa til að veita þessum efnum viðtöku. Siðan kemur i ljós að nauð- synlegt er að nota metanól- blöndu á flugför, einkum i flug- taki, og það er talið að aðrir en oliuinnflytjendur geti ekki ann- ast sölu þess til þeirra nota. A þeirri forsendu er undanþágan á sölu metanóls veitt,”sagði Ingi- mar Sigurðsson. Iðnaöarframlelðsia á slðasta ársfjórðunai 1980: Mlnnkun mannafla Likur eru á þvi að iðnaðarfram- leiðsla hér á landi aukist fremur á siðasta ársfjórðungi 1980. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs jókst iðnaðarframleiðsla nokkuð miðað við sama timabil i fyrra. Þetta eru niðurstöður Hagsveiflu- vogar iðnaðarins, á könnun á ástandi og horfum i iðnaði. Við samanburð á 2. og 3. ársfjórðungi kemur i ljós að á þessum tima hefur átt sér stað 2,6% fram- leiðsluminnkum, en iðnaðarstarf- semi er að jafnaði minni á 3. árs- fjórðungi en á öðrum árstima. í könnuninni er gert ráð fyrir fækkun manna á 4. ársfjórö- ungi en fækkun varð einnig á 3. ársfjórðungi. Þegar allar þessar upplýsingar eru bornar saman við árið i' fyrra, kemur i ljós.að ástandið á 3. árs- fjórðungi i ár er slæmt, og litur ekki vel út á siðasta fjórðungi ársins. Könnun þess náði til 23 iðngreina. — AS vísm Cv' f V,’ ‘ , I ’ ] Dire Straits — Making Movies Making Movies er þriðja plata Mark Knoplers og félaga hans í hljómsveitinni Dire Straits. Þetta er án efa besta hljómplata þeirra og það er almennt mál manna að Making Movies sé ein alvandaðasta plata þessa árs, og hún á tvímælalaust erindi til allra sem vilja vandaða og þægilega rokktónlist. Fæst í verslunum um land allt. FÁLKENN Suðurlandsbraut 8 — sími 84670 Laugavegi 24 — sími 18670 Austurveri — sími 33360

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.