Vísir - 22.12.1980, Síða 24
Eftir innrás Þjóðverja í Noreg og þegar norski herinn hafði gefist
upp fyrir ofureflinu, sameinuðust Norðmenn um að gera óvin-
inum hersetuna sem erfiðasta. Einn þessara hraustu föðurlands-
vina var Leif Larsen. Hann.yfirgaf Noreg og fór til Bretlands.
Þar komst hann í hina frægu Shetlandseyja-herdeild, sem hafði
aðsetur á Shetlandseyjum, og var að mestu skipuð landflótta
Norðmónnum, en undir stjóm Breta Verkefni herdeildarinnar
var að aðstoða neðanjarðarhreyfinguna i Noregi. Þeir flultu
vopn og njósnara til Noregs og landflótta Norðmenn frá Noregi.
Þeir hófðu aðeins til afnota litla fiskibáta, sem þeir urðu að
sigla á yfir Norðursjó í gegnum víglínu óvinanna að ströndum
Noregs. Þeir urðu fyrir árásum flugvéla og varðbáta og margir
týndu lifinu.
Þessi bók segir frá Norðmanni, sem varð ein mesta striðs-
hetja síns föðurlands, ofurhuganum Leif Larsen, sem hlaut fleiri
bresk heiðursmerki en nokkur annar erlendur hermaður í siðari
heimsstyrjöldinni.
Bók þessi hefur náð metsölu hvarvetna sem hún hefur verið
gefin út, enda sönn og ógnþrungin lýsing á þrekraunum Norð-
manna í heimsstyrjöldinni síðari.
I EINSTÖK 1
1MEÐAL GÆÐAÚRA... I
fýrir nákvæmni, fjölbreytt úrval og gott verð.
{§ MICROMA SWISS úrin geta fáir keppt við. Hvort sem þú j§
f§ vilthörku karlmannsúreðatölvuúrmeð 14 mismunandi
upplýsingum fyrir unglinginn. Það finna allir sitt
MICROMA úr — því er hægt að treysta.
Alþjóða ábyrgð. örugg þjónusta fagmanna.
Myndalisti. Póstsendum um land allt.
IFRANCH MICHELSENI
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI39 SÍM113462 1
Sanitas