Morgunblaðið - 08.12.2003, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að eru ekki margir sem
ná því að skora yfir 15
mörk í leik í efstu deild
hér á landi en Arnór hef-
ur afrekað að skora yfir
15 mörk í nokkrum leikjum í röð, flest
gegn erkifjendunum úr liði Þórs, 17
alls á dögunum.
Morgunblaðið sló á þráðinn norður
yfir heiðar þar sem stúdentsefnið og
Evrópumeistarinn frá því í sumar gaf
sér tíma frá erli dagsins til þess að
spjalla um það sem stendur honum
næst, íþróttir og nám.
Arnór er að ljúka námi í vor ef allt
gengur að óskum eins og hann orðar
það. „Ég er nú ekkert efins um það.
Þetta reddast allt saman á endanum.
Það gengur ótrúlega vel að finna tíma
fyrir allt sem maður þarf að gera.
Íþróttirnar taka mikinn tíma og nám-
ið einnig,“ segir Arnór en hann hefur
einnig tíma fyrir unnustuna Guðrúnu
Jónu Guðmundsdóttur sem er einnig í
4. bekk í M.A. og lýkur námi í vor af
félagsfræðibraut.
Oft fjarverandi í MA
„Öll ferðalögin sem fylgja hand-
boltanum taka mikið frá manni hvað
skólann varðar, ég er oft fjarverandi
en þetta hefur gengið vel hingað til.“
Arnór er líkt og aðrir nemendur í
hans sporum ekki viss um hvert leið
hans liggur á menntaveginum eftir að
hann setur upp stúdentshúfuna 17.
júní á næsta ári. „Ég er að velta ýms-
um hlutum fyrir mér og þarf örugg-
lega nokkra mánuði í viðbót til þess að
skoða það nánar. Það er auðvitað erf-
itt að ákveða slíkt. Ég gæti farið í
frekara nám en í hvað veit ég ekki og
það gæti þýtt að ég þyrfti að flytja til
Reykjavíkur. Ekki nema ég fari til út-
landa í nám.“
Er Arnór er spurður að því hvort
atvinnumennska komi til greina er
hann snöggur að svara: „Auðvitað
kemur það til vel til greina, en ég ætla
mér ekki að ana að neinu í þessum
efnum. Ef það kemur eitthvað spenn-
andi upp þá skoða ég það en ég mun
ekki hoppa á fyrsta tilboð sem kæmi
upp í hendurnar á mér.“
Sjaldan fellur eplið…
Arnór fékk áhuga á íþróttum er
hann fór með föður sínum, Atla Hilm-
arssyni, á æfingar hjá liðunum sem
Atli lék með í Þýskalandi og síðar á
Spáni. Atli, sem lék 133 landsleiki og
skoraði 389 mörk í þeim, lék með fjór-
um liðum í Þýskalandi – Hameln,
Günsburg, Bergkamen og Bayer
Leverkusen og á Spáni lék hann með
Granollers.
Arnór flutti til Íslands er hann var
sjö ára gamall.
„Ég byrjaði í atvinnumennskunni,“
segir hann og hlær en er á því að mik-
ill ljómi hafi staðið af handknattleiks-
mönnum þeim sem hann sá etja kappi
við föður hans. „Pabbi tók mig með af
og til á æfingar og maður skrölti með
boltann utan vallar og reyndi að gera
eins og þeir. Í dag man ég helst eftir
fyrirliða Barcelona í dag Masip og
þetta voru allt saman hörkukallar. Ég
fór ekki að æfa reglulega fyrr en ég
kom til Íslands og þá með Fram, sjö
ára gamall. Með þeim lék ég þar til við
fluttum norður á Akureyri sumarið
1997, en þá var ég 13 ára gamall. Ég
hef kunnað vel við gula búningin allt
frá þeim tíma,“ segir Arnór og það er
alveg ljóst að KA-hjartað slær ört í
dag.
Ekki sparkviss
Líkt og hjá mörgum öðrum ung-
lingum var Arnór á kafi í knattspyrnu
á sumrin og lék handknattleik á vet-
urna. Arsenal er hans lið í ensku
knattspyrnunni. „Að sjálfsögðu,“ seg-
ir hann en er ekki viss um að hafa ver-
ið líklegur til afreka sem knatt-
spyrnumaður. Allavega vill hann ekki
líkja sér við nein stórnöfn er leikstíll
hans var settur í kastljósið. „Ég var
ekki mjög lipur með boltann og var
því oftast í baráttunni á miðjunni. Jú,
var ágætur í því að stökkva upp og
vinna skallaeinvígi en líklega er það
þar með upp talið. Ég hætti hinsvegar
í knattspyrnunni er ég fór í fyrstu
landsliðsferðina með yngri landslið-
um HSÍ. Enda er varla hægt að
stunda báðar íþróttirnar þannig að
þær rekist ekki á.“
Samkvæmt hefð íslenskra hand-
knattleiksliða er oftar en ekki hitað
upp fyrir æfingar KA með því að leika
knattspyrnu og þar segir Arnór að
þeir ungu hafi ávallt yfirburði gegn
þeim sem teljast vera eldri og reynd-
ari. Án þess að geta staðfest það með
ítarlegri tölfræði. „Reyndar er staðan
hnífjöfn eins og stendur, en við erum
samt sem áður með mikla yfirburði.“
Skin og skúrir
Arnór hefur þrátt fyrir að vera að-
eins 19 ára gamall þurft að glíma við
erfið meiðsli og hann þekki vel þá til-
finningu sem fylgir því að sitja utan
vallar meiddur og fylgjast með fé-
lögum sínum í leik. Fyrra áfallið átti
sér stað í leik gegn grannaliðinu Þór,
en í þeim leik trosnaði aftara kross-
band í hné. En slík meiðsli eru mjög
óalgeng í íþróttum og þekktara að
fremra krossband slitni. „Ég var að
leika gegn Þór í Íþróttahöllinni fyrir
rúmum tveimur árum þegar þetta
gerðist. Sem betur fer þurfti ég ekki
að fara í aðgerð vegna meiðslanna.
Þetta er gróið í dag og ég finn ekki
fyrir þessu,“ segir Arnór en hann var
klár í slaginn um vorið á ný. „Ég náði
að leika þrjá leiki með KA áður en ég
braut bein í ristinni, og að sjálfsögðu
var það í leik gegn Þór í síðari umferð
Íslandsmótsins. Í marsmánuði. Þetta
var ekki gott ár fyrir mig gegn Þór.“
Arnór segir að hann hafi lært mikið
á þessum tíma enda var hann valinn í
A-landslið Íslands í nóvember áður en
hann meiddist á hné um miðjan nóv-
ember 2001.
„Það skiptast á skin og skúrir í
þessu eins og öðru. Maður er valinn í
landsliðið 17 ára gamall, meiðist
Stórskyttan Arnór Atlason, 19 ára stúdentsefni í Menntaskólanum á
„Ég byrjaði
í atvinnu-
mennsku“
Arnór Atlason, handknattleiksmann úr liði
KA, þarf vart að kynna þeim sem fylgjast
með íþróttinni. Arnór er 19 ára stúdentsefni
í Menntaskólanum á Akureyri en hefur látið
mikið að sér kveða með liði sínu að und-
anförnu. Hann varð Evrópumeistari með 18
ára landsliði Íslands í sumar, en hefur látið
verkin tala á vellinum eftir að hann var ekki
valin í A-landsliðið gegn Pólverjum á dög-
unum. Sigurður Elvar Þórólfsson ræddi við
skyttuna ungu sem hefur ekki miklar
áhyggjur af landsliðsmálunum.
’ Það skiptast á skin og skúrir í þessu einsog öðru. Maður er valinn í landsliðið 17 ára
gamall, meiðist skömmu síðar, er frá í
nokkra mánuði og meiðist á ný. Er frá í
nokkra mánuði á ný. Það er óhætt að segja
að ég hafi ekki verið neitt sérstaklega hátt
uppi á þessum tíma. ‘
Morgunblaðið/Kristján
Arnór fór á kostum með liði sínu gegn Þór fyrir stuttu og skoraði grimmt, 17 mörk alls.