Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
PEUGEOT 307 SW er mjög sérstak-
ur bíll og greinir sig frá fjöldanum.
Peugeot segir okkur að þetta sé lang-
bakur, station-bíll, en allur umgang-
ur um bílinn og notkun segir að þetta
sé fjölnotabíll. Við prófuðum bílinn
með dísilvélinni á dögunum. 307 SW
er 20 cm lengri en sjálfur fólksbíllinn,
sem svo víða hefur fengið góða dóma
fyrir skemmtilega aksturseiginleika
og mikið innanrými, og var reyndar
valinn Bíll ársins 2002 í Evrópu.
5 fermetrar af gleri
Og það eru sömu flæðandi línurnar
í SW. Stórir, krómaðir hurðarhúnar
virka traustvekjandi og stór aftur-
hlerinn opnast hátt upp svo þægilegt
er að hlaða bílinn að aftanverðu. Far-
angursrýmið er líka mikið í fimm
sæta útfærslu.
En hvað er helst sérstakt við 307
SW? Fyrir það fyrsta er hann með
meira gleryfirborð en flestir aðrir
bílar; samtals um 5 fermetra. Það er
ekki aðeins stór framrúðan og hlið-
arrúðurnar sem leggja sitt af mörk-
um heldur er samlímt gler í þakinu
yfir fyrstu og annarri sætaröð; gler
sem sagt er þola högg sem kemur ef
bíllinn veltur. Fyrir vikið er bíllinn
afar bjartur að innan en fari sterkt
sólarljós að angra ökumann er raf-
drifin hlíf sem birgir fyrir þakglugg-
ann.
Mikill búnaður
307 SW er í staðalgerðinni fimm
sæta en hægt er að bæta við tveimur
sætum aftast í bílinn þannig að hann
verði sjö sæta. Hvert aukasæti kost-
ar á bilinu 60–70.000 kr. Ókosturinn
er hins vegar sá að aukasætin er ekki
niðurfellanleg ofan í gólf bílsins, líkt
og í Opel Zafira og VW Touran, held-
ur verður að fjarlægja þau með öllu
úr bílnum ef koma þarf fyrir meiri
farangri.
Peugeot hefur hugsað
fyrir ýmsum smáatrið-
um sem gleðja notand-
ann. Til að mynda falla
hliðarspeglarnir sjálf-
krafa að hliðum bílsins
þegar honum er læst og
hann yfirgefinn. Þetta
dregur úr hættu á því að
speglarnir verði fyrir
hnjaski, t.d. á þröngum
bílastæðum. Þeir drag-
ast síðan sjálfvirkt út
þegar bíllinn er settur í
gang á ný. Þá verður að
minnast á það að bíllinn
er vel búinn í staðalgerðinni, m.a.
með loftkælingu, kælingu í hanska-
hólfi, skriðstilli, aksturstölvu og
ESP-stöðugleikastýringu.
307 SW sver sig í ætt fjölnotabíla
og þarf ekki annað en að velta fyrir
sér hinni margbreytilegu uppröðun á
sætum sem kostur er á. Fyrir það
fyrsta eru fremstu sætin með hæð-
arstillingu auk annarra stillimögu-
leika. Þegar svo stýrið er líka með að-
drætti og veltu finnur ökumaður
strax sína kjörstöðu undir stýri.
Stjórntækin leika öll í höndunum og
mælar eru auðlesanlegir. Voldugar
armhvílur eru við framsætin. Fyrir
aftan framsætin er tveggja fermetra
rými og hægt er að fjarlægja öll sæt-
in úr bílnum og breyta honum í sann-
kallaðan sendibíl á augabragði. En
einnig er hægt að breyta staðsetn-
ingu á miðjusætum á ýmsa vegu.
Þýðgeng dísilvél
307 SW er fáanlegur í nokkrum
gerðum hér á landi en mest hefur
hann selst með 1,6 lítra bensínvél-
inni. Að auki fæst hann með 2ja lítra
bensínvél og 2ja lítra dísilvél með for-
þjöppu, sem varð fyrir valinu í
reynsluakstrinum.
Dísilvélar eru ekki algengur kost-
ur hjá bílkaupendum hér á landi
vegna þungaskattskerfisins, sem
þýðir að menn þurfa að aka mun
meira en meðaltalið segir til um til
þess að það borgi sig. Það hafa því
aðallega verið leigubílstjórar sem
hafa séð sér hag í því að nota dísilbíla
en líklega er SW í það minnsta til
þeirra nota. Peugeot hefur lengi ver-
ið leiðandi meðal evrópskra framleið-
anda í smíði dísilvéla og framleiðir
vélar fyrir marga aðra bílaframleið-
endur. 2.0 HDi forþjöppudísilvélin er
með allri nýjustu tækni. Hún er með
samrásarinnsprautun (common-rail)
og háþrýstingsforþjöppu. Vélin skil-
ar 110 hestöflum að hámarki og
eyðslan er sögð 7,2 lítrar að jafnaði í
borgarakstri. Vélin er með nýjustu
gerð af sótagnasíu, þannig að einnig
er tekið tillit til umhverfisins.
Dísilvélin í 307 SW er afar þýð-
geng og eins og vænta mátti er togið
allverulegt; 250 Nm að hámarki við
1.750 snúninga á mínútu. Með dís-
ilvélinni fæst bíllinn eingöngu með
fimm gíra beinskiptingu.
Peugeot 307 SW 2.0 HDi er bíll
sem hefur upp á marga góða kosti að
bjóða. Hann hefur fjölbreytilegt og
bjart innanrými, góða aksturseigin-
leika og aflmikla dísilvél. En hann er
ekki heldur ódýr; tæpar 2,5 milljónir
króna, og þá vantar ennþá sjálfskipt-
inguna. En á hitt ber líka að líta að
margt fylgir bílnum í búnaði, eins og
áður var minnst á. Peugeot 307 SW á
sér marga keppinauta og má þar
helsta telja VW Touran, Opel Zafira,
Renault Scénic, Toyota Corolla
Verso og Ford C-Max svo nokkrir
séu nefndir.
Morgunblaðið/Eggert
Laglegar línur eru í 307 SW og þakið er að stórum hluta úr gleri.
Öðruvísi fjölnota-
bíll frá Peugeot
Hér er bíllinn sýndur með sex sætum en hægt er að bæta því sjöunda við.
Tveggja lítra dísilvélin er með forþjöppu og togar mikið.
Fremur hefðbundin uppstilling er á stjórntækjum
og frágangur vandaður.
Sætastaðan er há og gott að umgangast bílinn.
REYNSLUAKSTUR
Peugeot 307 SW 2,0 HDi
Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
Vél: 1.997 rúmsenti-
metrar, fjórir strokkar,
common-rail, forþjappa.
Afl: 110 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 250 Nm við 1.750
snúninga á mínútu.
Gírskipting: 5 gíra,
handskiptur.
Lengd: 4.419 mm.
Breidd: 1.757 mm.
Hæð: 1.536 mm.
Sætafjöldi: 5 sæti, (hægt
að bæta við 1-2 sætum).
Eigin þyngd: 1.350 kg.
Hemlar: Diskar, kældir að
framan, ABS og EBD.
Farangursrými:
503/1.673 lítrar.
Hröðun: 13,4 sekúndur
úr kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði:
183 km/klst.
Eyðsla: 7,2 l innanbæjar,
5,4 l í blönduðum akstri.
Verð: 2.489.000 kr.
Umboð: Bernhard hf.
Peugeot 307
SW 2,0 HDi