Morgunblaðið - 10.12.2003, Page 12

Morgunblaðið - 10.12.2003, Page 12
Aukin sala á mótorhjólum ÞAÐ sem af er árinu, eða öllu heldur fram til 7. desember, höfðu selst 2.745 bifhjól á landinu öllu. Þar af höfðu 1.588 þeirra selst á höfuðborgarsvæðinu, 203 á Suðurnesjum, 130 á Vesturlandi, 69 á Vest- fjörðum, 88 á Norðurlandi vestra, 222 á Norðurlandi eystra, 100 á Austurlandi og 265 á Suðurlandi. Það sem af er árinu hafa selst tæp- lega 160 fleiri hjól en á öllu árinu í fyrra. 12 B MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar HONUM gekk ekki sem best síð- astliðið sumar á einhverju aflmesta götuhjóli landsins, Suzuki Haya- busa, og segir hann ástæðuna þá að hann hafi aðeins haft eina gerð af keppnisdekkjum sem virkuðu ekki vel í bleytu og auk þess var kúp- lingin ekki rétt sett upp. En hann ætlar sér stóra hluti næsta sumar og hefur í því skyni breytt hjólinu á ýmsa lund og ætlar sér meðal ann- ars að setja í það nítró-kerfi sem hækkar hestaflatöluna úr 182 í yfir 300. Hjólið er 2001 árgerð og fékk Viðar það í sínar hendur í júní það ár. Það er búið að breyta í hjólinu loftsíuboxinu og það er komin önn- ur sía í það, annar heili og svo er búið að létta það um 12,5 kg. „Pústinu var skipt út og sett í hana púst úr títaníum, sem er mun léttara efni. Við það léttist hjólið um 11 kg. Pústið kostaði 1.330 doll- ara í Bandaríkjunum. Hingað kom- ið hefur það lagt sig á nálægt 200.000 krónum,“ segir Viðar. Hann segir að einnig hafi heddið hafa verið portað. „Ég á í hjólið 100 hestafla nítró-kit sem ég ætla að setja í það. Þá verður það rúm 300 hestöfl út í hjól, en núna er það 182 hestöfl.“ Þá er verið að tala um hrein hestöfl áður en tillit er tekið til loftþjöppukerfisins, sem virkar þannig að vélin tekur inn á sig meira loft eftir því sem hraðinn eykst. Hjólið er því líklega að skila nálægt 200 hestöflum út í hjól þeg- ar það er komið á ferð. Hjólið er líklega aflmesta götu- hjólið á Íslandi í dag þótt eitt ann- að hjól sé reyndar 5 hestöflum kraftmeira, en það togar ekki jafn- mikið og Súkkan hans Viðars. Tog- ið var mælt í bekk og reyndist vera 144 Nm en hitt hjólið togar 136 Nm. Hjólið vegur ekki nema 194 kg og það verða því rúmlega 1,54 hest- öfl til að knýja hvert kg af hreinum málmi, en tæplega 1,10 hestöfl ef reiknað er með 80 kg þungum öku- manni. Viðar segir að hjólið sé u.þ.b. 17 sekúndur að ná 300 km hraða eins og það er í dag. Hann hefur komist hraðast á 246 km hraða á 9,6 sek- úndum, „en ég náði ekki að bakka það upp vegna þess að það kvikn- aði í rafkerfinu,“ segir Viðar. Súkkan er undir tveimur sekúnd- um í hundraðið. Viðar notar hjólið dags daglega og hefur nú þegar keyrt það 30.600 km frá því hann fékk það. Verður á 300 hestafla hjóli næsta sumar Dýrasta púströr landsins? Gert úr títaníum-málmi og kostaði um 200.000 kr. Það fer lítið fyrir nítró-kittinu en það gefur samt auka 118 hestöfl. Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðar við Súkkuna sem verður langaflmesta mótorhjól landsins. Viðar Finnsson er einhver magnaðasti mótorhjólamaður landsins og er á kafi í Kvart- míluklúbbnum. Hann er að undirbúa Suzuki Hayabusa- götuhjól sitt fyrir kvartmíluna næsta sumar. Í undirbún- ingnum felst meðal annars það að bæta við nítró-kerfi sem eykur hestaflafjöldann úr 182 í 300. MITSUBISHI Motors Corporation og Mitsubishi Motors North America Inc. frumsýna á heimsvísu hinn nýja hugmyndabíl Eclipse Concept-E á bandarísku bílasýningunni í Detroit 2004, sem haldin verður 4. til 19. janúar 2004 í Cobo-miðstöðinni í Detroit í Michigan. Eclipse var fyrst kynntur í Banda- ríkjunum árið 1989. Sama ár hlaut bíllinn „Industrial Design Excellence Award“ frá Iðnhönnunarsamtökum Bandaríkjanna. Þrjár kynslóðir Eclipse hafa síðan öðlast almennar vinsældir fyrir nútímalega hönnun sína og heillandi aksturseiginleika. Nú er stigið einu skrefi lengra með hugmyndabílinn Eclipse Conc- ept-E 2004. Tengslin við forfeðurna í Eclipse-línunni eru ótvíræð og framsækin hönnunin byggist á hefð- um Mitsubishi Motors á sviði bíla- íþrótta. Mitsubishi frumsýnir Eclipse Concept-E Ef marka má teikninguna má búast við kraftalegum en litlum sportbíl. Hugmyndabíll byggður á Mitsubishi Eclipse verður sýndur í Detroit. TOYOTA Yaris hefur verið í hópi söluhæstu bíla hér á landi alveg frá því hann kom fyrst á markað seint á síðustu öld. Bíllinn hefur verið fram- leiddur í nánast óbreyttri mynd síðan hann kom á markað en nú er ráðgert að kynna splunkunýjan Yaris til sög- unnar, en þó ekki fyrr en á næsta ári og salan hefst þá ekki fyrr en 2005. Fyrstu myndir hafa birst af nýja bíln- um og þær bera með sér að Toyota fylgir tilhneigingum bílaframleiðenda til að gera bílana hærri og meira í lag- inu eins og fjölnotabíla. Myndirnar sýna líka að Yaris fær ekki síður svip af nýjum Avensis. Yaris keppir auð- vitað við bíla eins og VW Polo, Honda Jazz og Nissan Micra. Hann mun fá enn meira úrval af vélum og meiri fjölbreytileika í innréttingum en áður. Fimm dyra bíllinn er engu að síður fremur hefðbundinn á að líta en sagt er að hönnuðum Toyota hafi verið gefinn laus taumurinn þegar þeir teiknuðu þrennra dyra bílinn, sem verður sportlegri og með rennihurð á annarri hliðinni til þess að bæta að- gengi að aftursætunum. Eins og myndin sýnir breytist Yaris umtalsvert í útliti. Nýr Yaris 2005

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.