Vísir - 06.01.1981, Side 13

Vísir - 06.01.1981, Side 13
VISIR ÞriOjudagur 6. janúar 1981 1 UPPSKRIFTIR Sigriöur Magnúsddttir fram- kvæmdastjdri Feröaskrifstofu stúdenta tekur upp hanskann frá Þorgrlmi Gestssyni blaöamanni á Helgarpóstinum og kemur meö uppskrift aö lambalæri aö frönsk- um hætti og aprikdsufromage úr Kóngsins Kaupinhöfn. Konur hasla sér viöa völl mítildags og hér i áskorunarþætti Vfsis einnig. Asta Bjarnadóttir verslunarkona i Basar mun veija eitthvaö gott úr sinu pokahorni fyrirnæsta þriöju- dag. -ÞG Lambalæri að frönskum hætti Lambalæri 1-2 di Dijon Sinnep salt svartur pipar hvitlauksolia kjötsoö 6-8 tómatar 6-8 stórar kartöflur Læriö er best ef þaö fær aö þiðna róicga, til dæmis meö þvi aö hanga á köldum staö i ca. tvo sólarhringa. Allar himnur eru skornar af lærinu og sömuleiðis öll fita sem næst til. Siöan er nuddaö vel inn i þaö blöndu af salti og pipar (endilega ekki spara piparinn). Sinnepinu smurt jafnt yfir allt læriö og þaö siöan steikt á grind yfir ofnskúffunni. Ofninn á aö vera 250 gráöu heitur þegar læriö er sett inn og þaö á aö steikjast þannig i 20-25 minútur. Þessar mínútur eru notaöar 01 þess að tilreiöa kartöflurnar. Þær eru flysjaöar, skolaöar og þerraöar vel. Siðan er skoriö ofan i þær meö litlu millibili (eins og veriö sé aö skera þær i sneiöar) þannig aö þær re'tt hangi saman aö neöan. Þá er borin á þær örlitil hvitlauksolia og þeim raöaö á grindina meö lærinu. Hítinn lækkaður i 200 gráöur og kartöflurnar látnar steikjast meö lærinu i klukkutima. Kjötsoöinu er helit yfir læriö og kartöflurnar og ágætt er aö ausa yfir þaö ööru hvoru, Tómatarnir cru penslaðir meö hvitlauksollu, svartur pipar malaður yfir-þá og þeir settir meö i ofninn siöasta korteriö. Soöiö úr skúffunni er siaö og notaö I sdsu, sem jöfnuö er meö hveiti, og eins má bæta i hana meira sinnepi, ef þurfa þykir. Auðvitaö má steikja læriö leng- ur eöa skemur cftii' smekk hvers og eins, en á okkar heimili er vin- sælast aö þaö sé aöeins rautt viö beiniö. Meö þessu er afar gott aö bcra soöiö rósinkál eöa til dæmis belgbaunir og heilar, soönar gul- rætur. Þar sem þessi réttur er fremur bragðmikil! og sterkur er rétt aö hafa eitthvað ferskt i eftirrétt, til dæmis mclónusneiöar meö kreistri sitrdnu, eöa ef til vill aprikdsufromage, sem uppskrift fylgir aö. Aprikósufromage 1/2 dós aprikdsur 1/2 dds eplamauk 1 peli rjómi 5 blöö matarlim Byrjaö er á þvi aö stappa apri- kdsumar í mauk. Eplamaukiö er hitaö og matarlimiö brætt l þvi, hrært vel i á meöan. Aprikósunum blandaö saman viö. Kælt. Þegar þetta fer aö stifna er þeyttum rjómanum blandaö varlega sam- an viðog látiö standa i kæliskápn- um þar tilþaö er sett á boröið, þvi þetta þarf aö vera fskalt, þegar þaö er boriö fram. Þetta fromage er lika alveg frábært sem krem i alls konar tertur. Þessi uppskrift á upphaflega ætt sina aö rekja i kokkabækur Grdtu Petcrsen fyrrverandi kökkenchef hjá Margréti Dana- drottningu, en hefur aö visu tekiö þó nokkrum breytingum i gegn um árin, svo ég þori ekki aö treysta aö sú ágæta fröken Petersen myndi vilja kannast viö afkvæmiö I þessari útgáfu. Þar sem ég vil endilega halda uppi mcrki kVcnna I þætti þessum skora ég á Astu Bjarnadóttur, verslunarkonu i Basar, aö sýna snilli sina næsta þriöjudag. Ekki endilega einungis vegna þess aö hún er kona, heldur fyrst og fremst aö ég veit aö hún á ýmis- legt gómsætt til I pokahorninu. DRAUMANOTTIN MIKLA - þrettAndanöttin í dag, 6. janúar, er þrettándinn, siöasti dagur jóla. Hjátrú varð- andi þrettándann hefur löngum fylgt okkur mönnunum. Látum viö nokkur smáatriöi varöandi hjátrú fylgja hér i tilefni dagsins. kölluð draumnóttin mikla, þvi þá átti Austurvegskonunga aö hafa dreymt um fæöingu Krists, og þvi eru allir þeir draumar merkileg- astir og þýöingarfyllstir, sem menn dreymir þá nótt, en einnig eiga draumar á nýársnótt aö vera mjög þýöingarmiklir. Þrettándinn er siöasti dagur jólanna, og var þá oftast nokkuö um dýrðir og vel haldiö til i mat ogdrykk. Var það stundum kallaö aö „rota jólin”. Sem minnir á hiö norræna orötæki „Knut kör Julen ut” en þaö var gjarnan haft um athafnir manna i sambandi við lok jólanna. Þrettándanótt hefur veriö Þrettándanóttin hefur stundum verið kölluö jólanóttin gamla, en þaö viröist mega rekja til munn- mæla eða vitneskju um þaö, að 6. janúar var fyrr haldinn hátið- legur sem fæöingarhátið Krists. En annars mun ein elsta helgi þrettándans vera sprottinn af þvi, aö menn trúðu þvi víöa, aö þá tæki sólin aftur aö hreyfa sig eftir 12 daga hvild. önnur er sú trú, aö kýr tali á nýárs- og þrettándanótt. Erlendis er þvi vlöa trúaö, aö vatn veröi snöggvast aö vini nýárs- eöa þrettándanótt. Almennt er taliö, aö jólasvein- arnir eigi heima uppi á fjöllum. Kemur hinn fyrsti til byggða 13 dögum fyrir jól og siöan einn á dag, hinn siöasti á aöfangadag. Hinn fyrsti fer svo burtu á jóla- dag, en hinn siðasti á þrettándan- um, þaö er sem sagt I dag sem siöasti jólasveinninn heldur á brott. Löngum hefur veriö trú manna aö álfar og ýmsar verur séu á kreiki um jdlaleytiö, og bústaöur álfa sé i stokkum og steinum. Um jólin!,var taliö að álfarnir flyttu búferium og stundum taliö aö sá flutningur hafi átt sér stað á þrettándanótt. Nauðungoruppboð sem auglýst var i 58., 60. og 64. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á hluta i Suðurlandsbraut 12, þingl. eign Skúla Arnasonar fer frant cftir kröfu Sparisj. Rvikur og nágr., Gjaldheimt- unnar i Reykjavik, o.fl. á eigninni sjálfri fimmtudag 8. jaiuiar 1981 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 22., 24. og 27. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á hluta i Laugavegi 49, þingl. eign Gylfa Guðmundssonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 8. janúar 1981 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annaöog siöasta á hluta i Fifuseli 30, þingl. eign Haraldar Sigurðssonar fer fram eftir kröfu Gjaldhcimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 8. janúar 1981 kl. 14.45. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og siöasta á hluta I Flúðaseli 94, þingl. eign Hauks Hallssonar fer fram eftirkröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 8. janúar 1981 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nouðungaruppboð seni auglýst var i 58., 60. og 64. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á hluta i Seljabraut 72, þingl. eign Karls Nikulássonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Veð- deildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtudag 8. janúar 1981 kl. 13.30. Borgarfdgetaembættiði Reykjavik. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hdl. og Búnaöarbanka tslands fer fram opinbert uppboð i dómssal borgarfógeta- embættisins að Reykjanesbraut 6 þriðjudag 13. janúar 1981 kl. 13.30, scld verða veðskuldabréf meö veði i Skipa- sundi 50 og Hciömörk 12 G Hveragerði. Greiðsla viö Hamarshögg. Uppboðshaldarinn i Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á lóö við óseyrarbraut, Hafnarfiröi, þingl. eign Oliumalar h.f. fer fram á eigninni sjálfri föstu- daginn 9. jan. 1981, kl. 14.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi Nauðungaruppboð sem auglýst var i 108. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979 og 1. og 5. tölubl. 1980 á b.v. Jóni Dan GK-141, nú April HF-347 þingl. eign Samherja h.f. fcr fram eftir kröfu Tryggingarstofnunar rikisins við eða um borö i skipinu f Hafnarfjaröarhöfn föstudaginn 9. jan. 1981 kl. 13.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 108., tölublaöi Lögbirtingablaösins 1979 og 1. og 5. tölubl. 1980 á b.v. Guðsteini GK-140, þingl. eign Samherja h.f. fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins viö eða i skipinu i Hafnarfjarðarhöfn föstudaginn 9. jan. 1981 kl. 14.00. Bæjarfógetinn I Ilafnarfirði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.