Vísir - 06.01.1981, Blaðsíða 17

Vísir - 06.01.1981, Blaðsíða 17
Spennum beltin ALLTAF - eKKi stundum ? V_ ||U^JFHROAR Merkja frá Alsír hefur ekki veriðgetið hér en ný- lega kom út merki þar til styrktar nauðstöddum vegna jarðskjálftanna, sem lögðu borgina El Asnam i rúst auk þess að valda margvíslegu öðru tjóni. Þriöjudagur 6. janúar 1981 VÍSIR Frimerki 50. Oállur Umsjón: Hálfdan Helgason. VIKINGAR 0G GOD ÞEIRRA Frá Sviþjóö hafa þær upplýsingar borist aö Þórsdag- inn 29. jan. n.k. (sá dagur heitir vist fimmtudagur núna) veröi gefiö út 10 merkja hefti meö 5 mismunandi myndefnum en þau eru sótt i norræna goða- fræöi. Mán þar sjá Öðinn, æðstan allra guða, riðandi á hin- um áttfætta Sleipni en förunaut- ar þeirra eru hrafnarnir Huginn og Muninn. Frjósemis- og ástar- gyðjan Freyja er á einu merkj- anna en hún ræður yfir lifi manna og dauða. Ekur hún i vagni, sem dreginn er af köttum þrem. Eins og vera ber er þrumuguðinn Þór á einu merkj- anna en þar sést er hann á veiði- ferð sinni ásamt jötninum Hymi hafði dregið sjálfan Miðgarðs- orminn upp að borðstokk báts- kænunnar er þeir réru á. Þór spyrnti svo fast við fótum er hann reiddi hamarinn Mjölni til höggs og hugðist keyra i ó- freskjuna að hann gekk niður úr bátnum en Hymir skelfdist svo mjög að hann skar á færið og rann þar Miðgarðsormur úr greipum Þórs. Freyr, friðar- og frjósemisguð er á einu merkj- anna en hann ræður regni og sólu. Fimmta myndin sýnir Heimdall en hann gætir brúar- innar Bifrastar, sem tengir mannheima og goðheima. Heimdallur hefur heyrn svo góða að hann heyrir gras gróa. Vafalaust verða þessi fri- merki vinsæl meðal safnara á Norðurlöndum, svo virðulegan sess skipa goöin enn meðal manna þótt sárafáir séu þeir nú, sem játa vilja átrúnað á þau þúsund árum eftir kristnitöku. Væri ekki annars tilvalið að nota tækifærið við útkomu þess- ara sænsku merkja og hefja söfnun frimerkja þar sem myndefnið tengist timabili þvi sem kennt er við vikinga. Fjöldamörg merki hafa verið gefin út á Norðurlöndum, sem tengjast þessu efni og héðan frá Islandi höfum við nokkur, sem sóma sér vel i sliku safni. Má þar nefna merki úr Alþingishá- tiðarsettinu frá 1930, Orkina með Leifi heppna frá 1938, Þor- finn karlsefni og fleiri. Já, hvaða merki eru það önnur, sem gefin hafa verið út hér á landi, sem tengjast þessu söfnunar- sviði?? Sendið þættinum linu! Ekki er hægt að hugsa sér mótifsafn um vikinga án þess að sérstakur þáttur þess fjalli um feröir þeirra austur til Garöa- rikis, suður til Miklagarös, inn- rásina i England eða ránsferðir þeirra til Miöjarðarhafslanda og bætast þá fjöldamörg merki i safnið og sé heppnin með má finna skemmtilega stimpla, sem falla vel aö frásögninni. Daglegt lif þeirra verður einnig aö fá sina umfjöllun og má þar nefna landbúnaöarstörf og veiö- ar, klæðabúnað, menningu, t.d. rúnaletrið, og listir og margt fleira. Til þess aö safn af þessu tagi verði skemmtilegt verður safnarinn að ráða yfir tölu- veröri þekkingu á viðfangsefn- inu. Hún fæst vitanlega ekki nema meö lestri um þetta tima- bil auk þess sem nauðsynlegt er að gaumgæfa frimerkjalista en þá má fá i frimerkjaverslunum og einnig liggja þeir frammi i herbergi Félags frimerkja- safnara að Amtmannsstig 2. Þar er opið á laugardögum frá kl. 15 til kl. 18. WE’RE READY FOR YOUR ar INvASION Nýjar útgáfur Auk goðamerkjanna, sem getið er hér að ofan, kemur út i Svíþjóð 29. janúarS króna merki ítil- efni af því að liðin eru eitt hundrað ár frá fæðingu málf ræðingsins og stjórnmálamannsins Ernst Wigforss. Á eynni Mön verða gef- in út 24. febrúar n.k. 5 merki í tilefni af ári fiskimannsins. Sýna þau fiskibáta af ýmsum gerð- um, sem notaðir voru við eyna á síðustu öld og reyndar fram á okkar daga. Á einu merkjanna sést báturinn „Flakkar- inn", sem var nærstaddur þegar risaskipið „Lusi- tania" varð fyrir árás þýsks kafbáts árið 1915 og yfir eitt þúsund manns hvarf með þvi í djúpið. Á- höfn „Wanderer" tókst að tina saman og bjarga til lands 160 manns en auk þeirra björguðust tæp- lega 800 af skipinu, sem sökk á aðeins 15 minút- um. Arið 1981 hefur verið nefntár fatlaðra af Sam- einuðu þjóðunum og örugglega munu margir útgáfuaðilar gefa út frí- merki af þvi tilefni. islenska póststjórnin mun fylla þann flokk en ekki er enn vitað hvernig það merki verður eða hvenær það sér dagsins Ijós en hér fylgir hins vegar með mynd af merki vestur-þýsku póst- stjórnarinnar, sem kem- ur út 15. janúar. Þess má geta aðtalið er að yfir 400 milljónir manna í heimin- um teljist fatlaðir á ein- hvern hátt. urraiiOn.URíi Frímerki Islensk og erlend, notuÖ, ónotuð og umslög Albúm, tangir, stcekkunar - gler o.fl. ávallt fyrirliggjandi. Póstsendum. * FRÍMERKJAMIÐITÖÐIN ™ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 21A, PÓSTHÓLF 78. 121 RVK. SfMI 21170 Vissir þú að ejc»e|r»ei!-»ö!íi»-» us býður mesta úrva/ ung/inga- húsgagna á /ægsta verði og á hagkvæm- ustu afborgunar kjörunum ? iOICiarycXyc>]\hry Bndshöföa 20, Reykjavik CJ CT Simar: 81410 og 81199 Miðvikudag 7. janúar kl. 20:30. Sigriður EHa Magnúsdóttir syngur lög eftir íslensk tónskáld, m.a. Pál Is- ólfsson, Árna Thorsteinsson, Sigfús Einars- son, Emil Thoroddsen, Jórunni Viðar, Karl O. Runólfsson o.fI. Undirleikari er ólafur Vignir Albertsson. Verið velkomin Norræna húsið Umboðsmaður óskast W a Hvammstanga Upplýsingar i simum 86611 og 28383

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.