Vísir - 06.01.1981, Page 18
18
Þriðjudagur 6. janúar 1981
VÍSIR
manniíf
Fyrstu
sporin
Svo virðist sem John
Lennon hafi haft fyrir-
boða um að hann myndi
láta lifið með voveifleg-
um hætti. Þetta kemur
m.a. fram i frásögn
breska blaðsins Sunday
Mirror, þar sem leiddur
er til vitnis Chris Hut-
chins, sem var náinn
vinur Bitlanna og þá
einkanlega Lennons i
tuttugu ár. í frásögninni
segir Hutchins m.a.:
— Lennon ræddi oft viö mig og
aöra vini sina um ótta sinn við aö
hann myndi deyja meö voveifleg
um hætti. Hann virtist haldinn
eins konar þráhyggju um að hann
yrði myrtur. Fyrir tveimur árum
sagði hann við mig á götu i New
York, að þessi ótti sinn um morð,
væri ein af ástæðunum fyrir þvi
að Bitlarnir hættu. — „Við vorum
ekki orðnir leiðir hver á öðrum og
ekki skorti okkur efni”, sagði
hann. „Hins vegar var ég miður
min af ótta við að einhver
brjálæðingur myndi vinna okkur
mein og þess vegna vildi ég að við
leystum hljómsveitina upp til að
draga úr þessari hættu”, segir
Chris að John hafi sagt við sig.
Og Chris heldur áfram frásögn
sinni: „Þessi ótti hvildi á John
eins og martröð allan sjöunda
áratuginn, þegar bitlaæðið stóð
sem hæst. Ég heyrði hann tala um
þetta i hvert skipti sem lagt var
upp i hljómleikaíerð, ég heyrði
hann ræða þetta hugboð sitt við
Elvis Presley og sá hann gráta
þegar hann frétti að fyrrum að-
stoðarmaður Bitlanna hefði verið
skotinn af lögreglunni i Los Ange-
les. „Ég verð næstur,
ég er viss um það”,
sagði hann aftur
og aftur.
Lennon kappkostaöi aö gera konu sina Yoko og fimm ára son þeirra Sean, hamingjusöm.
Meðfylgjandi mynd er tekin i haust er þau eyddu nokkrum fridögum á Palm Beach
á Florida, en John haföi á oröi aö þar væri ákjósanlegt að ala udd hnrn
spor 1
<onur j
Þær eru orönar nokkuð
marqar, ungu þokkadisirnar,
sem stigiðhaía sin fyrstu spor
á hvíta tjaldinu sem fylgikonur
njósnaransJames Bond. Einþeirra
er hin tvítuga LallaDean, sem við
sjaum á meðfylgjandi mynd, en
hun hefur fengið aukahlutverk í
nýrri 007 mynd sem ber heitið
,,For Your Eyes Only". Við
skulum vona, að þessi fyrstu spor
Lallu i kvikmyndunum verði ekki
jafnframt þau síðustu eins oq i
rauninhefur oft orðið á hjá A
morgum, sem byrjað hafa Æ
feril sinn i Bond-myndum....
Umsjón:
Sveinn
Guöjónsson.
1 fyrsta skipti sem ég heyrði
hann tala um, að hann óttaðist um
lif sitt, var i Amerikuferð Bitl-
anna árið 1963. Flugvélin sem
ílutti hljómsveitina hafði lent i
Dallas og hafði stoppað fyrir
framan flugstöðvarbygginguna
þar sem lögreglan reyndi að
halda aftur af 20 þúsund aðdáend-
um. Mannfjöldinn braust i gegn
og hljóp út á brautina. Sumir
klifruðu upp á vængina og hróp-
uðu inn um gluggana.
Ég sat við hliðina á John þegar
hann sagði: „Ef einhver gerir
ekki eitthvað róttækt strax, mun-
um við allir deyja. Þaö þarf ekki
nema einn með logandi sigarettu
og við munum syngja „She loves
you” i himnari'ki eftir nokkrar
minútur”.
Nokkrum mánuðum seinna
ræddi ég við hann um þetta atvik
á heimili hans i Waybridge,
Surreyogþá sagöiJohn: „Dallas,
þar skaut Lee Harvey Oswald
Kennedy forseta. Kennedy var
myrtur á föstudegi, svo var einn-
ig um Lincoln. Þeir voru báðir
skotnir aftan frá i höfuðið, á
föstudegi og að viðstöddum eigin-
konum sinum”.
John skrifaði eitthvað á bréf-
miöa og hélt siðan áfram: „Morð-
ingi Lincolns skaut hann i leikhúsi
og hljóp i vöruhús. Oswald skaut
Kennedy úr vöruhúsi og hljóp sið-
an i leikhús. Ég er að velta þvi
fyrir mér hvort Kennedy hafi
nokkru sinni hugsað út i, að þetta
gæti komið fyrir sig....”
Árið eftir fór ég með Bitlunum
er þeir heimsóttu Elvis Presley i
fyrsta skiptið en Elvis var þá
staddur á heimili sinu i Beverley
Hills i Hollywood. John og Pres-
ley ræddu saman um þessi mál og
Elvis sagðihonum frá þeim hætt-
um sem biðu hans sjálfs, viö
hvert fótmál.
Ariö 1965 léku Bitlarnir á hljóm
leikum i Atlanta i Georgiufylki.
Lögreglan hafði þá fyrr um dag-
inn tekið riffla af tveimur mönn-
um nálægt flugvellinum. Það
þurfti miklar fortölur til að fá
John upp á sviðið þetta kvöld.
Þegar Mal Evan, fyrrum að-
stoðarmaður Bitlanna var skot-
inn i Los Angeles áriö 1976 fékk
það m jög á John og gaf honum á-
stæðu til að rifja upp dauðsföll
manna sem tengdust Bitlunum,
s.s. Stuart Sutcliffe, sem lék með
hljómsveitinni i upphafi en lést úr
heilablóðfalli árið 1962, Brian Ep-
stein, umboðsmaður Bitlanna,
sem lést af ofneyslu eiturlyfja
1967, David Jacobs lögfræðing
hljómsveitarinnarsem hengdi sig
árið 1968, o.fl.
En siðast þegar þegar ég hitti
John var hann kátur og hress og
hann var greinilega þeirrar skoð-
unar að þessi hætta væri liðin hjá
og hann var kominn yfir þennan
ótta við að hann yrði myrtur, —
en þar skjátlaðist honum, þvi
miður”, segir fornvinur Lennons,
Chris Hutchins i áðurgreindri frá-
sögn Sunday Mirror.