Vísir - 07.01.1981, Side 11
Miövikudagur 7. janúar 1981
VtSIR
„Hépéílíægi"aöblándáj
saman lífi og starfl” i
- segir stefán Jets. sem er skðlastlórl Tðnlistarskóians á Raularhðfn ■
„Ég kann alitaf betur og betur
við mig á Raufarhöfn, eftir því
sem ég kynnist fólkinu betur.
Hér er friðsælt, vegalengdir
vegna vinnunnar eru ekki mikl-
ar, og siðast en ekki sist: hér er
hægt að blanda saman lifi og
starfi, en það eru tveir aðskildir
þættirheima i Englandi”, sagði
Stefán Jets, skólastjóri Tón-
listarskólans á Raufarhöfn, i
samtali við Visi.
,,Þú verður að heimsækja
Tónlistarskólann okkar, annaö
er ekki hægt, þvi hann er eitt
helsta stolt okkar”, sagði einn
ónefndur Raufarhafnarbúi, sem
blaðamaður Visis hitti á förnum
vegi á Raufarhöfn. Raunar kom
þessi ábending sér vel, þvl ekki
hafði hvarflað að blaðamannin-
um, að ekki fjölmennara
byggðarlag státaði af tónlistar-
skóla.
Margrét Bóasdóttir kom skól-
anum á fót fyrir 5 árum. Siðan
tók Karl Jónatansson við stjóm-
inni og loks Stefán, sem kennir
nú sinn þriðja vetur á Raufar-
höfn.
,,Ég hafði nýlokiö námi þegar
mér bauðst að koma til Raufar-
hafnará Islandi og kenna þar”,
sagði Stefán. „Þetta var spenn-
andi tilboð, nýtt land, nýtt fólk
og nýtt tungumál. Og ég sló til
og sé ekki eftir þvi”.
Stefán kom frá Suður-
Englandi og annar
Englendingur kennir við skól-
ann. Sá heitir Anna Norman og
kom frá Manchester i haust.
Bæði geta þau tjáð sig á
Islensku. Stefáni gengur það
eðlilega betur, þar sem hann
hefur verið lengur hérlendis, en
Anna hefur náð merkilega góð-
um tökum á málinu, þar sem
hún hefur aðeins dvalið hér i
rúma 3 mánuði.
Auk Stefáns og Onnu kennir
Jóhann Jósepsson við skólann
og sér hann um harmonikkuna,
sem nýtur mikilla vinsælda.
Auk kennslunnar á Raufarhöfn
sér Stefán um tónlistarkennslu
á Þórshöfn. Nemendur eru alls
55 og skiptast þeir nokkuð jafnt
milli staðanna, Þórshafnar og
Raufarhafnar. En hvaða hljóð-
færi er vinsælast.
„Það er orgelið, þvi miður
verð ég að segja, þvi ég er
pianóleikari”, sagði Stefán.,,En
sem betur fer eru nokkrir pianó-
nemendur og þeir eru fleiri á
Raufarhöfn heldur en á Þórs-
höfn, og Anna nýtur þess. Prest-
urinnokkar hér á Raufarhöfn er
meðal 8 fulloröinna nemenda i
skólanum. Hann er að læra á
orgel, en ég verð að fyrirgefa
honum það, þvi hann þarf oft á
þeirri kunnáttu að halda vegna
kirkjuverka”, sagði Stefán
sposkur á svip.
— En hvaðum tónleikahald og
tónlistaráhuga almennt?
„Það er nú nokkuð misjafnt,
en hér eru nokkrar f jölskyldur,
sem eru mjög áhugasamar um
tónlist, og til viðbótar eru
nokkrir, sem þurfa ekki nema
örlitla hvatningu til að fá áhug-
ann. Ég hef alltaf undrað mig á
þvi siðan ég kom, hvaö tón-
listaráhuginn er almennur á
ekki stærri stað. — Við reynum
að halda eins marga nemenda-
tónleika og við getum. Vonandi
tekst okkur að hafa þá ekki
færrien 5 i vetur”, sagði Stefán.
Auk starfa sinna við Tón-
listarskólann stjórnar Stefán
kirkjukór staðarins og einnig
barnakór, en Anna er honum
innan handar við þessi störf.
„Kirkjukórinn á Raufarhöfn
hefur gengið ágætlega og það
hefur gengið vel að fá söngfólk.
Svo eru lika margir, sem ég
veit aö geta sungið, en ekki eru
með okkur i kórnum. Þetta gekk
ekki eins vel á Þórshöfn. Þar er
ekki hefð fyrir kórstarfsemi,
þannig að tilraun til sliks mis-
tókst, en viö höldum áfram að
reyna að byggja þar upp slika
starfsemi”, sagði Stefán.
— En hvað með þig sjálfan,
ert þú ekkert einangraður hér
sem tónlistarmaður?
„Ég finn ekki svo mjög til
þess. Ég hélt hér tónleika i sam-
vinnu við Einar Guömundsson
og Svövu Stefánsdóttur, sem er
mjög góðursöngvari frá náttúr-
unnar hendi. Þeir tókust mjög
vel og voru vel sóttir. Ég met
það mikils aö geta tekið þátt i
sliku, þvi það er helst að ég
sakni þess að geta ekki spilaö
með öðrum listamönnum”.
— Er þetta siðasti veturinn
þinn?
„Éghaföi hugsaö mér þaö.já,
enégkannvel við mig hér og vil
ekki hlaupa frá skólanum, ef
ekki fæst maður i minn stað.
Þess vegna hef ég lofað að vera
einn vetur til”, sagði Stefán i
lokin.
Stefán Jets með einum nemanda sinum I skólanum á Raufarhöfn.
Anna Norman hefur náð merkilega góðum tökum á islensku, þó hún
hafi ekki verið hérlendis nema rúma 3 mánuði.
GS.— AK.
Má bjóöa þér
SUMARHÖLL
eda kannski nýjan
Hver slær hendinni á móti slíku boói?
Hvaö þá, þegar allt sem þarf til þess aö eiga þessa
möguleika, er aó vera áskrifandi aó Vísi?
í AFMÆLISGETRAUN VÍSIS,
sem er í sentt létt og skemmtileg, og er bædi fyrir nýja
og eldri áskrifendur, eru þessir þrtr glæsilegu vinningar:
Aóalvinningurinn er svo auövitaö Vísir sjálfur,
sem nú er oróinn stærri, skemmtilegri og fjölbreyttari
en nokkru sinni fyrr!
Verið með frá byrjun!
Gerixt áskrifendur strax i dag!
Áskriftarsíminn er 86611