Vísir - 07.01.1981, Page 19
Mik Magnússon
til Afríku
Mik Magnússon, sem
undanfariö hefur starfað
sem blaöafulltrúi á Kefla-
víkurflugvelli lagöi um
siðustu helgi upp í för til
Afríku á vegum Rauöa
Kross islands. Hann mun
næstu þrjá mánuði dvelja í
Kenya og Uganda þar sem
hann mun starfa sem upp-
lýsingaf ulltrúí.
Eitt meginverkefni hans verður
að fylgjast með hjálparstarfi á
þessum slóðum, og um leið efla
starfsemi Rauða Krossins i
Uganda og i Kenya. Mik Magnús-
son hefur áður starfað i Afriku.
Hann var um skeið fréttamaöur
hjá breska útvarpinu i Lundúnum
(BBC) og áður en hann hóf störf
hjá Menningarstofnun Banda-
rikjanna i Reykjavik, annaðist
hann meðal annars fréttaþátt á
ensku hjá Rikisútvarpinu.
Nú eru einnig starfandi á veg-
um Rauða Kross tslands Sigriður
Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, sem verður i Somaliu
næstu 5 mánuði, og Anna óskars-
dóttir og Ingibjörg Nilsen,
hjúkrunarfræðingar, sem verða i
Thailandi til 31. janúar.
Mik Magnússon við kort af Afriku þar sem hann mun starfa næstu þrjá
mánuði á vegum Rauða Kross tslands.
Konan sem hér sést i fylgd með Andrew prins er ekki ein af vinkonum hans heldur móðir hans, Elisabet
II. Bretadrottning.
Kvensami prinsinn
Asgeir hafði nóg aö gera við aö árita bókina sina hvar sem hann
kom i heimabæ sinum.
ÁSGEIR
Á HEIMA-
SLÓÐUM
Þar sem kjaftasögur um bresku
konungsfjölskylduna eru til um-
ræðu hér á siðunni er vel við hæfi
að viðra hér umfjöllun breskra
blaða um kvennamál Andrew
prins, sem er annar i röðinni um
tilkall til krúnunnar. Ef marka
má sögusagnir um kvensemi
Filipusar föður hans má segja að
Andrew kippi i kynið og segja
blöðin að á sama tima og eldri
bróðir hans, Charles prins, beini
athygli sinni að einni konu, sé
Andrew með að minnsta kosti
þrjár fastar vinkonur i takinu og
grunur leiki á, að hann eigi vin-
konur i hverri höfn i Evrópu.
Gemma hefur hliðrað til i fullri
vinsemd.
Ein þeirra, sem nafngreindar
eru, er Gemma Curry, 21 árs
gömul fyrirsæta en hún var i
fylgd með Andrew i afmælis-
veislu Margrétar móðursystur
hans ekki alls fyrir löngu og vakti
þar mikla athygli fyrir sakir feg-
urðar og fallegs limaburðar.
önnur sem nefnd er til sög-
unnar er Kim Deas. Hún er einnig
21 árs gömul fyrirsæta og að auki
náfrænka Gemmu. Raunar var
það Gemma sem kynnti frænku
sina fyrir prinsinum og hefur i
fullri vinsemd hliðrað til fyrir
henni i kapphlaupinu um athygli
prinsins.
En til að flækja málið hefur
þriðja stúlkan komið inn i umræð-
una sem er Carolyn Biddle. Hún
er komin af rikri ameriskri fjöl-
skyldu og faðir hennar Richard á
meðal annars stóra villu i South
Kensington þar sem fjölskyldan
dvelur oft á ári. Carolyn hefur
orðið mjög tiðrætt um samband
sitt og prinsins og er hreykin af.
Andrew prins er hins vegar fá-
máll enda hefur hann i mörg horn
að lita ef marka má sögusagnir
um vinkonur hans i öllum heims-
hornum.
Jól og áramót er sá
timi, sem menn sækja
helst á bernskuslóðir, séu
þeirá annaö borð búsettir
annars staðar. Knatt-
spyrnukappinn Ásgeir
Sigurvinsson, sem bú-
settur er í Belgiu hefur
haldið þessum góða sið og
heldur jafnan jólin hátið-
leg í Eyjum þar sem hann
er alinn upp, og var svo
um þessi jól.
Að venju brá Ásgeir sér
i fótbolta með gömlu
félögunum i I.B.V. og að
auki hafði hann i nógu að
Kim er 21 árs fyrirsæta eins og
frænkan Gemma.
Carolyn gumar mjög af sambandi
sínu við prinsinn.
Umsjón:
Sveinn
Guðjónsson.
snúast við að árita bókina
um knattspyrnuferil sinn,
sem þeir Sigmundur ó.
Steinarsson og Róbert A-
gústsson sendu frá sér nú
fyrir jólin. Meðfylgjandi
myndir tók Ijósmyndari
Vísis i Vestmannaeyjum
nú um hátiðirnar.