Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 3

Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. janúar 1981 3 VtSIR Svo sem kunnugt er hefur lög- reglan á Bretlandi nú handtekið mann nokkurn sem grunaður er um aðvera valdur að fjölmörgum kvennamorðum á Mið-Englandi siðustu ár. Mjög viðtæk leit var gerð á öllu Bretlandi að morðingjanum og meðal helstu gagna sem lögreglan notaði voru bréf og segulbandsspólur sem tal- ið var að morðinginn — sem al- mannarómurinn kallaði „York- shire Ripper” — hefði sent. Nú, eftir að Sutcliffe var handtekinn, hefur hins vegar verið hafið sér- stök rannsókn á uppruna þessara bréfa- og spólusendinga og lög- reglan virðist ekki lengur þeirrar skoðunar að þau séu raunveruleg. Misræmi milli raddbeitingar og framburóar Raddsérfræðingur nokkur varaði lögregluna i Yorkshire við þvi fyrir rúmu ári að bréfritarinn kynni að vera annar en morðing- inn. Sérfræðingurinn Jack Wind- sor Lewis, sem rannsakaði bréfin og segulböndin fyrir lögregluna benti á i skýrslu sinni að viða er i máli og skrift bréfritara að finna tilgerðarleg orðtök sem gætu bent til þess að hann væri að likja eftir frægum bréfum sem hinn al- ræmdi „Jack the Ripper” sendi lögreglunni meðan hann gekk ljósum logum i London skömmu fyrir siðustu aldamót. Hann benti einnig á að misræmi virtist vera milli raddbeitingar mannsins sem talaði inn á segul- böndin og svo framburðarins sem mætti túlka svo að hann væri að gera sér upp framburð. Lewis taldi og að er segulböndin voru leikin i útvarpi og sjónvarpi hefði einhver hlotið að bera kennsl á röddina, fyrst svo fór ekki væri varla um eðlilega rödd viðkom- andi að ræða. Lögreglan fór samt sem áður ekki ofan af þvi að maðurinn sem talaði væri morðinginn og þvi var miklum tima og fjármunum eytt i að leita ,,Yorkshire Ripper”: Voru bréfin og segulböndin ekki frá moröingj anum? að manni sem hefði framburð Ári siðar barst annað bréf og ust að þeirri niðurstöðu að bréf- hans. sérfræðingar lögreglunnar kom- ritari væri i B-blóðflokki, beim Bréfritari virtist vita sitt af hverju Lögreglunni var svo sem ekki láandi þó hún hafi haldið fast við kenningu sina. 1 mars 1978 bárust lögreglunni tvö bréf sem sögð voru frá morðingjanum en henni bárust óteljandi slik bréf á ári hverju. Flest þeirra eru óyggj- andi gabb en þessi vöktu sérstaka athyglivegna þess að annars veg- ar upplýsti bréfritari að lögreglan hefði ekki tekið eftir þvi að hann — „Ripper” — hefði myrt Joan Mary Harrison i nóvember 1975 og hins vegar hótaði hann að fremja bráðlega annað morð. Að aflokinni nýrri rannsókn á morði Harrisons komst lögreglan að þeirriniðurstöðu að það væri ekki ósvipað hinum morbunum og þvi gæti verið um sama mann að ræða en það sem vóg þyngst i þvi að tekið var mark á bréfunum var að tveimur mánuðum siðar fannst vændiskona myrt i Liver- pool einmitt þar sem hann hafði hótað að leggja næst til atlögu. Lögreglumenn leiða Sutcliffe I réttarsal. hinum sama og morðingi Harri- sons. 1 þessu nýja bréfi hótaði morðinginn að fremja fljótlega nýtt morð og 11 dögum siðar fannst ungur einkaritari myrtur. í bréfinu var einnig að finna ýms- ar læknisfræðilegar upplýsingar um eitt fyrri fórnarlambanna sem styrkti lögreglumennina enn frekar i trú þeirra á að bréfritari væri sá sem hann segðist vera. Þeim virðist hafa verið ókunnugt um að eiginmaður hinnar iátnu hafði látið blaði nokkru i té upp- lýsingar sem siðan voru birtar. Myrti „Ripper” ekkiJoan Harrison? Tvær grimur fóru aftur á móti að renna á rannsóknarmenn þeg- ar bréfritari sem farinn var að senda fjölda bréfa og jafnframt segulbanda þar sem hann hældist um, minntistekkiá eitt morðið en lik þeirrar stúiku fannst ekki fyrr en tveimur mánuðum eftir að hún var myrt. Þessir menn töldu bréf- ritarann ekki hafa hugmynd um þetta morö, það væri ólikt honum að hafa ekki minnst á það. Ekki var þó tekið mark á þeim i bili og meginþungi rannsóknarinnar hélt áfram að miðast við bréfin og segulböndin. Upp á siðkastið hafa svo æ fleiri lögreglumenn látið i ljós þá skoðun að morðinginn sem drap Joan Mary Harrison hafi hreint ekki framið hin morðin. Rann- sókn á þvi máli er hafin aö nýju, óháð meginrannsókninni. Yfir- maður rannsóknarlögreglunnar i Preston, þar sem Harrison var myrt, Wilf Brooks, sagði blaða- mönnum nýlega að hann hefði aldrei hætt þeirri rannsókn og byggist nú allt eins við þvi að nýj- ar upplýsingar kæmu fram. Það rennir stoðum undir þessar vangaveltur að óstaðfestar heimildir herma að Sutcliffe hafi þegar játað á sig öll morðin sem „Yorkshire Ripper” á að hafa framið — n?ma morðið á Joan Mary Harrison. LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 1-6 Sýndar verða allar 1981 árgerðirnar: Nýi MAZDA 323 sem kosinn var bíll ársins í Japan, MAZDA 626 í nýju útliti með fjölmörgum nýjungum og auknum þægindum og MAZDÁ929 L, lúxusbíllinn sem er í senn aflmikill og ótrúlega spárneytinn, en samt á viðráðanlegu verði. BÍLABORG HF. Smiðshöföa 23.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.