Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 8
8 vísnt Laugardagur 17. janúar 1981 VÍSIR utgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig- fússon, Frlða Astvaldsdóttlr, Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sig- þórsdóttir, Kristtn Þorsteinsdóttir, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson, Þórunn Gestsdóttir, Blaðamaður á Akureyri: Gfsll Sigurgelrsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Safn- vörður: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúli 14, sími 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, Simar 86611 og82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 4 nýkrónur eintakið. Visir er prentaður i Ðlaðaprenti, Síðumúla 14. Ríkisútvarpið Sú deila, sem risin er milli útvarpsráös og útvarpsstjóra er ekki deila um formsatriði. Hún snýr ekki aö þessum tveim aöilum. Hér er tekist á um rétt almannavaldsins til aö hafa áhrif i þessum rikisrekna fjölmiöli. Akvörðun útvarpsstjóra um skipan tveggja fréttamanna í hljóðvarpi hefur vissulega vakið athygli. Útvarpsstjóri hefur skipunarvald við slíkar manna- ráðningar, en að fengnum tillög- um útvarpsráðs. Sú venja hefur myndast og er fyrir löngu orðin viðurkennd hefð, að útvarps- stjóri taki tillit til vilja útvarps- ráðs, eins og nú átti sér stað. Þessa hefð hefur útvarpsstjóri skyndilega og óvænt rofið, og skipað annan umsækjanda, sem aðeins fékk eitt atkvæði í út- varpsráði og er nýgræðingur í f jölmiðlastarfi. Upplýst er að útvarpsstjóri hafði skrifað upp á meðmæli frá fréttastjóra hljóðvarps með þeim umsækjendum, sem endanlega voru skipaðir, áður en útvarps- ráðgaf umsögn sína. Þetta þýðir að útvarpsstjóri var ráðinn í þvi að hafa umsögn útvarpsráðs að engu, sem auðvitað stríðir gegn lögum og starfsreglum. Fljótt á litið mætti ætla að hér væri risin upp deila milli út- varpsstjóra og útvarpsráðs. Svo einfalt er málið ekki. Útvarpsráð er kosið af alþingi og á að gæta hagsmuna almannavaldsins. Hér er verið að takast á um þann rétt og þá möguleika, sem fólkið í landinu hefur til afskipta af þessum ríkisrekna fjölmiðli. Ríkisútvarpið hef ur einkarétt á útvarpsrekstri i landinu. Sam- kvæmt lögum stofnunarinnar á hún að gæta hlutleysis í hvívetna. Lengi var hlutleysið framkvæmt á þann háttað útiloka nverskonar pólitískar skoðanir. Hlutleysið var fólgið í þögn, sem leiddi til þess að útvarpið var fyrir ofan og utan við þær hræringar sem áttu sér stað á vettvangi stjórn- málanna. A síðari árum hefur verið sveigt frá þessari stefnu. Nú leyfist mönnum að hafa skoðan- ir, jafnvel rammpólitískar, en þess gætt að jafnvægi haldist. Um það hefur verið þegjandi samkomulag, nánast óskráð lög, og hefur yfirmönnum Ríkisút- varpsins tekist aðdáunarlega að þræða þann krákustíg af víðsýni og umburðarlyndi. Engum getur dulist, hversu mikilvægt það er að Ríkisútvarp- ið dragi ekki taum ákveðinna stjórnmálaafla. Aldrei má það gerast að neinn stjórnmálaflokk- ur misnoti útvarpið einhliða sér til framdráttar og áróðurs. í þeim ef num hvílir mikil ábyrgð á herðum starfsmanna stofnunar- innar. Þeir verða að gæta sann- girni og réttlætis í meðferð sinni á mönnum og málefnum. Auð- vitaðgetur enginn bannað starfs- mönnum Ríkisútvarpsins að hafa pólitískar skoðanir, en þá kröfu verður að gera að persónuleg af- staða þeirra hafi ekki áhrif á fréttir eða aðra umfjöllun. Það er rétt að útvarpsráð er kosið pólitískri kosningu á alþingi. út- varpsmenn eru hinsvegar ekki pólitiskir varðhundar, fjar- stýrðir af sínum flokkum. Þeir eru útverðir almannavaldsins, fulltrúar ólíkra lífsskoðanna landsmanna. Skipan útvarpsráðs og kjör þess, er besta tryggingin fyrir því, að jafnvægi haldist, að engin pólitísk skoðun verði úti- lokuð né yfirspiluð í útvarpi. Sú tillitssemi og jafnvægislist, sem útvarpsráð starfar eftir kemur fram í mannaráðningum, dagskrá og efnisvali, að svo miklu leyti sem stjórnmál koma við sögu. Venjur og hefðir hafa myndast í rás tímans, þannig að sjaldnast hefur komið til ágreinings í seinni tíð. Ef nú á að taka upp ný vinnubrögð, ganga fram hjá út- varpsráði og láta geðþótta og annarlegan pólitískan þrýsting raska þeim starfsreglum, sem viðurkenndar hafa verið, þá er Ríkisútvarpið komið út á hálan ís. Þá verður lítill friður um þá stofnun, sem fram til þessa hef- ur þjónað landsmönnum öllum. Kínversk stjörnuspá Ár hanans er upprunniö. Eins og menn ef til vill vita er kln- versk stjörnumerkjafræöi dálit- ið ööruvisi en sú sem viö þekkj- um hér á landi og á Vesturlönd- um, hér aö neðan eru spár fyrir árið 1981. Fæðingarár, en ekki mánaðardagur, skiptir megin- mitli en tekiö skal fram aö þeir sem fæddir eru i janúar og snemma i febrúar skulu teljast meö næsta ári á undan raun- verulegu fæöingarári. Þaö er svoieiðis i Kina. Rottan: 1900, 1912, 1924, 1936, 1948, 1960, 1972. Flestar rottur eru miklar til- finningaverur en jafnframt tækifærissinnaöar i eðli sinu. Þær beita huganum betur en höndinni. Flestar rottur munu liklega gera það gott á árinu 1981 og þær sem eru á lausum kili geta búist viö einhverri rómantik fyrir september. Þekktar rottur eru Carter, Nix- on, Callaghan, Churshill og ég. Buffalóinn: 1901, 1913, 1925. 1937, 1949, 1961, 1973. Buffalóar eru fæddir til for- ingja, svo er annaö mál hvort þeir eignast nokkra fyglissveina — Napoleon, Hitler, Thatcher. Tilfinningasljóir buffalóar ættu að minnast þess að japanskir buffalóar sverja og sárt viö leggja að með þvi að nudda háls elskunnar sinnar komist tilfinn- ingarnar á tjá og tundur. Ann- ars ættu buffalóar að einbeita sér að þvi að komast til metorða i starfi þetta árið. Tígurinn: 1902, 1914, 1926, 1938, 1950, 1962, 1974. Tigrar eru kynþokkafullir og magnetiskir en ákaflega erfiðir i umgengni (Marilyn Monroe, de Gaulleog Marx), sérstaklega ef þeir eru fæddir um hádegis- bil. Þeir eru hæfileikarikir en ættu að minnast þess aö tigris- bein eru i Austurlöndum notuð til að lækna getuleysi og tauga- veiklun. Kynlif tigurs er árang- ursrikastmeð hesti en hann ætti að gæta sin á snákum. Kötturinn: 1903, 1915, 1927, 1939, 1951, 1963, 1975 Lifiö veröur ánægjulegt fyrir ketti I ár þó ár hanans fari vana- lega dálitiö i tagarnar á þeim. Köttum veitist létt að umgang- ast fólk (David Frost, Eva Per- ón, Ali McGraw). Þeir ættu að leita menningarlegs félags- skapar i ár fremur en að breima lostafullir i húsagöröum. Drekinn: 1904, 1916, 1928, 1940, 1952, 1964, 1976. Drekar eru áhrifamiklir heppnir og mikilvægir (Freud, Dali og Teddi Heath). Þó þeir séu oftlega elskaðir elska þeir sjálfir sjaldan og valda öllum nema hönum, öpum og öðrum drekum vonbrigðum. 1981 ættu drekar aö hafa hægt um sig og biða næsta árs sem verður i stakasta lagi. Snákurinn: 1905,1917, 1929, 1941, 1953, 1965, 1977 A Vesturlöndum óttst menn snáka en I Austurlöndum eru þeir dýrkaðir vegna gáfna sinna þeir eru aðlaðandi og hafa rika kimnigáfu (J.F.Kennedy, Brahms og Picasso). Faliegir kvenkynssnákargeta þetta árið vafið öllu karlkyns um halann á sér en annars verða snákar að leggja hart að sér i ár. Hesturinn: 1906, 1918, 1930, 1942, 1954, 1966, 1978 Hestar eru hlaðnir kynþokka, þeir eru úthverfir og góðir fé- lagar en innra með þeim er allt i óvissu, þeir eiga það til að brosa út á við en fella tár unnra með sér, Lifið með hesti, sérstaklega fyrir geit, er eins og að búa á eldfjalli og engin leið að vita hvenærþað gýs. Eldhestar (sér- stak fyrirbæri, fæddir 1906 og 1966) eru ótrúlega öfgakenndir þegar þeir elska. (Eichmann, Paul McCartney og Rem- brandt). Geitin: 1907, 1919, 1931, 1943, 1955, 1967, 1979 Geitur eru duttlungafullar og erfiðar, reka oftar en ekki vini sina á vit vinguðsins. Þær eru að miklu leyti timaskynslausar og eru gefnar fyrir að láta smjaðra fyrir sér (Mick Jagger, Douglas Fairbanks, Cervantes). Geitur eru fullkomnir hirðmenn, elsk- endur, eöa auglýsingastjórar. Sambönd viö ketti, hesta og svin geta gengiö ef nóg er af aurum. Apinn: 1908, 1920, 1932, 1944, 1956, 1968, 1980 Siðasta ár var ár apans. Þeir eru sjálfselskir og hégómlegir, hafa skarpan heila en eru of kaldrifjaðir til aö lukkast vel sem elskendur, tapa sér sjaldan i Sátriöublossa þó þeir eigi þaö til aö lenda i mestu ævintýrum. (Omar Sjariff, Fellini og Byr- on). Apar gera það oftast gott á ári hanans. Haninn: 1909, 1921, 1933, 1945, 1957, 1969, 1981 Vel ætti hönum að ganga aö gala á sinu eigin ári. Þeir hafa gaman af þvi að slá um sig,. ágengni þeirra er oft talin vera sérviska en þeir eru stórkost- legir i dögun eða troðfylltu her- bergi (Wagner, Kipling, Col- etta, Jacqueline Susann og Err- ol Flynn). Hanar eru góðir sem löggur, þjónar og dansfélagar, hænur ágætar sem hárgreiðslu- konur, gengilbeinur og hefðar- kettir. Hundurinn: 1910, 1922, 1934, 1946, 1958, 1970. Hundum likar illa við ár han- ans en 1982 verður ár hundsins svo þeir ættu að biða sins tima. Þeir eru trygglyndir en ef ein- hver svikur þá um eitthvað þá finna þeir hann i fjöru. Birgitta Bardot er gott dæmi um hund, aörir eru m.a. Lisa Minelli, Lúðvik 16. og Lenin. Svínið: 1911, 1923, 1935, 1947, 1959, 1971 Ronnie Reagan er svin, þaö var fyrsti Rockefellerinn lika, Ford og Rothschild. Svin eru góðir vinir, þeir eru traustvekj- andi, tryggir og heiöarlegir en láta gjarnan blekkjast, ekki sist i peningamálum. Svin eru býsna tilfinningarik og gengur oft vel sem rithöfundar eða söngvarar. Þetta verður gott ár fyrir beik- onið, sérstaklega fjárhagslega.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.