Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 6

Vísir - 17.01.1981, Blaðsíða 6
6 VÍSIR La'ugardagur '17. jaríúár l981 * fréttaijésinu 99Skáklistinni ekki areidi aeröur með því að sundra FIDE — Norskur skákmaður kvað upp úr um það fyrir skömmu/ að þú værir of eftirgefanlegur gagnvart Sovétmönnum/ og að for- maður skáksambands Filippseyja væri raun- verulega hinn sterki mað- ur FIDE. Hverju svar- arðu þessu? „Ég skil nú ekki hvað maður- inn meinar með þessu. Þótt ég hafi gott samstarf við Kampomanes, sem er einn af varaforsetum FIDE, þýðir það ekki að ég sé eitthvert hand- bendi hans. Norðmaðurinn á kannski við að ég ætti ekki að hafa samstarf við neina menn utan Evrópu, — það eru margir sem sjá ekkert nema þann heimshluta. Vaðandi afstöðuna til Sovét- manna getur hann varla átt við annað en málefni Kortsnoja, en það virðast sumir vera á þeirri skoðun, að ef maður getur ekki gert einhver töfrabrögð i sam- bandi við hann, þá sé maður of linur”. — Kortsnoj sjálfur hef- ur gagnrýnt þig opinber- lega fyrir slælega frammistööu í hans mál- um, — hefurðu gert eitt- hvað til þess að hjálpa honum? ,,Ég hef gert það, en ekki á þann hátt sem Kortsnoj óskar eftir. Hann vill að ég sé með yfirlýsingar, áskoranir og ádeil- ur á sovésk stjórnvöld opinber- lega, en ég hef ekki viljað láta hafa mig til þess, enda yrði þaö sist til hjálpar Kortsnoj. Hann vill lika að þetta mál veröi tekiö fyrir i FIDE, sem auðvitað er eins og hver annar barnaskapur. Mitt sjónarmið er það, að ef ég færi að hleypa hörícu i þetta mál, þá missi ég bara þá aðstöðu sem ég hef til þess að geta orðið að liði. Setj- um svo aö þetta mál yröi tekið fyrir hjá FIDE, — það er alls- endis óvist að meirihluti fengist fyrir þvi að lýsa vanþóknun á sovéskum stjórnvöldum, og ég býst við þvi að margir myndu sitja hjá á þeirri forsendu, að FIDE hefði ekkert með þetta mál að gera vegna þess að það er pólitiskt. bað hafa rikis- sUórnir og þjóðhöföingjar skor- að á sovésk yfirvöld að hleypa ^fjölskyldu Kortsnojs úr landi án 'þess að það hafi boriö hinn minnsta árangur. Mér finnst dálitið ankannalegt að ég skuli svo vera stimplaður rússa- dindill fyrir að fá þessum hlut- um ekki áorkað með hótunum um að setja Sovétmönnum stól- inn fyrir dyrnar.” — En er ekki eðlilegt að FIDE skipti séraf málinu þegar það er farið að hafa áhrif á skákmóta- hald á þann veg, að Sovétmenn neita þátttöku á þeim mótum þar sem Kortsnoj er boðið til leiks? „Þetta er auðvitað hlutur sem maður er mjög óánægður með, en það er bara ákaflega erfitt aö gera nokkuð við þessu. Sovét- menn segja einfaldlega, að þetta sé á valdi hinn einstöku skákmanna, og þeir ráða þvi auðvitað hvar þeir tefla. Þaö er ljóst að Rússarnir tefla ekki þar sem Kortsnoj er boðin þátttaka og þetta er hlutur sem móts- haldarar verða að gera upp við sig, — vilja þeir fá Karpov og aðra Sovétmenn eða vilja þeir Kortsnoj.FIDEgeturekki skipað mótshöldurum að láta einn eða annan tefla, en þetta er auðvitað mjög slæmt ástand, eins og ég hef oft lýst yfir, og þetta striðir á móti grundvallarreglum FIDE. Ef þetta væri yfirlýst stefna sovéska skáksambands- ins myndi FIDE taka hart á málinu, en það er ekkert hægt að sanna i þessum efnum. Sá böggull fylgir lika skammrifi, að ef einhver vill halda sterkt mót, þá kemst hann ekki hjá þvi að hafa Sovétmenn með”. — Nú hefur annar sovéskur stórmeistari, Boris Gulko, leitað ásjár hjá FIDE. Muntu gera eitthvað til þess að að- stoða hann? „Við reynum það sem við get- um. Við höfum skrifað bréf bæði til sovéska iþróttamálaráðherr- ans og Karpovs vegna þessa máls, en ekkert svar fengið. Við höfum llka verið i sambandi við Gulko sjálfan og sent honum afrit af þessum bréfum”. ^ Texti: Páli Magnússon — En hvað um stöðu þess- ara mála almennt, — er að myndast einhverskon- ar járntjald, sem skiptir skákheiminum í austur og vestur? „Það eru margir sem vilja skapa ólgu og vilja að skák- heimurinn klofni. Þeir segja einfaldlega sem svo, að rússar séu vondir menn og það beri að virða þá að vettugi. Það virðist vera vilji þessara manna að sundra FIDE og ég mun vinna gegn þvi, enda get ég ekki séð að skáklistinni væri greiði gerður með þvi að svo færi. bað er best fyrir skákheiminn og FIDE, að skákin verði ekki sá vettvangur, þar sem menn fá útrás fyrir hatur sitt eða dálæti á ákveðnum löndum eða stjórn- málastefnum”. — Hefur starfið sem for- seti FIDE reynst þess eðlis, sem þú áttir von á? „Ég satt að segja vissi varla hvað ég var að fara út i, en ég er þeirrar skoðunar að menn eigi ekki að vera hræddir við að tak- ast á við ný verkefni. Ég vissi náttúrulega að hverju ég gekk á skáksviðinu, en varðandi ýmislegt annað hef- ur maður þurft að læra af reynslunni og óneitanlega hefur þetta verið mikil lifsreynsla”. —Ætlarðu að gefa kost á þér aftur í embættið? „Ég ætla að sjá til, — það eru ennþá tvö ár til stefnu. Hitt er svo annað mál, að eitt kjörtima- bil er engan veginn nægilegur timi til þess að koma fram þeim málum sem maður telur æski- legt að fái afgreiðslu.” —Hvaða mál eru það helst sem þú hefur beitt þér fyrir? „Ég hef lagt mikla áherslu á að sinna verði þeim löndum þar sem skáklistin er skammt á veg komin og hjálpa þeim af stað. Það eru 114 lönd i FIDE og i mörgum þeirra á skákin mjög erfitt uppdráttar. Ég get einnig nefnt, að nú hef- ur FIDE sett lágmarkskröfur um aðbúnað og aðstæður á skákmótum, en I þeim efnum var viða pottur brotinn. Þetta eru dæmi um það sem lögð hef- ur verið áhersla á að undan- förnu”. — Nú hefur mikið verið rætt um möguleikana á því, að halda næsta heimsmeistaraeinvigi í skák hér á landi. Eigum við meiri möguleika á því að fá þetta einvígi vegna þess að forseti FIDE er íslendingur, eða er því kannski þveröfugt farið? „Það fer auðvitað mest eftir þvi i hvaða landi skákmennirnir sjálfir vilja tefla, en ég gæti óneitanlega komist i mjög óþægilega aðstöðu ef þeir kæmu sér ekki saman um keppnisstað- inn og ísland væri inni i mynd- inni. Ég reyni auðvitað að gæta fyllsta hlutleysis, en ég held að Island ætti að hafa góða mögu- leika I þessu sambandi ef það yrði sambærilegt við aðra hvað snertir verðlaunaféð”. —Það hefur stundum verið talað um að tima- bært væri að gera breyt- ingar á heimsmeistara- keppninni á þann veg, að áskorendaeinvígin verði lögð niður, en í staðinn verði haldið mót þar sem sigurvegarinn fær rétt til þess að skora á heims- meistarann. Er eitthvað slikt á döfinni? „Fyrir einu og hálfu ári siðan var ég að ræða þessi mál við ýmsa skákmeistara, og þá virt- ist mér að flestir vildu frekar að haldin yrðu mót i þessa veru. Við bjuggum þvi út tillögur þar sem gert var ráð fyrir þvi að mót kæmu i staðinn fyrir ein- vigi, en þegar þær voru kynntar skákmeisturunum kom i ljós, að þeir voru flestir mótfallnir " þessu þegar þeir sáu svart á hvitu hvernig þetta yrði. Við drógum þvi þessar hugmyndir til baka, en endurbættum i stað- inn gömlu lögin um einvigin. Aðalorsökin fyrir þvi, að menn voru andvigir .að halda mót um réttinn til þess að skora á heimsmeistaranna, var sú hætta sem er á þvi að ein þjóð ætti marga keppendur og gæti þvi hugsanlega ráðið ferðinni að nokkru leyti. Þetta er það sama og Fisher hélt fram á sinum tima”. Stundum hefur veriðsagt, að hvergi sé skákáhugi jafn almennur og — annars vegar möguleikarnir á því að halda næsta heimsmeistara- hér á íslandi, og vist er að margir eru seinþreyttir á því að ræða þau einvigi hér á landi, og hins vegar sú gagnrýni á störf Friðriks ólafs- málefni, sem tengjast þessari göfugu íþrótt. sonar, forseta FIDE, sem höfð hefur verið í frammi. Það er einkum tvennt sem hefur verið í umræðunni aö undanförnu, Friðrik er í Fréttaljósinu í dag og svarar spurningum um þessi mál. Friðrik Ólafsson, forseti FIDE:

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.