Vísir - 26.01.1981, Blaðsíða 2
2
Mánudagur 26. janúar 1981.
vtsm
„Menn eiga að
vera léftúðugír
f starfsvall,”
- segir Einar örn Stefáns-
son i viðtaii dagsins
,,Ég get varla kallaö mig Reyk-
viking, ég er fæddur i Vest-
mannaeyjum, ættaður þaöan og
frá Húsavik”. Þaö er Einar örn
Stefánsson nýráöinn afleysinga-
fréttamaöur hjá útvarpinu I hálft
ár, sem kynnir sig i viðtali dags-
ins.
,,Ég er að visu alinn upp að
mestu i Reykjavik, en var stund-
um á sumrin i Vestmannaeyjum
og fluttist aftur til Eyja, þegar ég
var 15 ára, þar átti ég heima til
tvitugs. Mér finnst ég alltaf vera
Vestmannaeyingur, það er þessi
einkennilega þjóðerniskennd
okkar Eyjamanna.
Jú, maður tók auðvitað þátt i
öllu eins og Eyjapeyjar gera, en
ég held ég hafi ekki verið neinn
snillingur i spranginu”.
Það var 24. júli 1949 að Einar
örn fæddist i Vestmannaeyjum
og grundvöllurinn að þeirri
merkilegu þjóðerniskennd var
lagður, hvað hann áhrærir.
Laugavatnsskóli varð fyrir val-
inu og þaöan lauk Einar Orn
stúdentsprófi 1970. „Siðan fór ég i
blessaöa félagsfræðina i Háskól-
anum og kláraöi hana um ára-
mótin 1974/75”.
Með skólanum vann hann hin
sundurleitustu störf. „Það mundi
æra óstöðugan að telja það allt
upp. Það má segja að ég hafi
unnið alla almenna vinnu til sjós
og lands. Til dæmis náöi ég aðeins
i skottið á sildarárunum, ég
hjálpaði til að þurrka upp leif-
arnar við Svalbarða og Jan
Mayen. Ég vann lika um tima
á teiknistofu landsimans, var hjá
Sjónvarpinu i bókun — það er, að
skipuleggja starfið innanhúss- og
ég var textahöfundur um tima hjá
Auglýsingastofu Kristinar, auk
ótalmargs annars”.
— Hvenær byrjar þú svo I
blaðamennsku?
„Ég var ritstjóri skólablaðsins
á Laugarvatni og svo ritstjóri
Stúdentablaðsins i eitt ár. Ég
byrjaði með Stúdentablaðið i þvi
formi, sem það hefur verið siðan.
Aður varþaðeins konar magasin,
sem kom út kannski tvisvar til
þrisvar á ári á glanspappir, en við
breyttum þvi i mánaðarblað i
dagblaðsformi”.
Að náminu loknu kenndi Einar
örn við gagnfræðaskólann á
Hellu i tvo vetur. Siðan lá leiðin
aftur til Reykjavikur og hann fór
að vinna við Þjóðviljann. Það var
voriö 1976. Þar vann hann sem út-
litsteiknari og blaðamaður fyrst
og siðar eingöngu sem blaða-
maður. Siðan hefur blaða-
mennskan verið aðalstarf hans.
En svo er það þularstarfið i út-
varpinu. „Ég byrjaöi á þvi
haustið 1979 og það var allt Baldri
Pálmasyni að kenna. Hann
hringdi i mig og bað mig að koma
i prufu. Við vorum þá útvaldir við
Einar örn Stefánsson fréttamaöur.
Kristján Róbertsson. Siðan hef ég
verið i þessu i afleysingum. Ég
held aö það sé ekki svo vitlaust
uppá fréttamannsstarfið að hafa
veriö þulur, maður sér betur
hvernig gengið er frá fréttunum
og hvernig þarf að ganga frá
þeim”.
— Hvers vegna sækist þú
fremur eftir að verða frétta-
maður hjá útvarpi, heldur en
blaði?
„Ég vil bara breyta til, ég tel að
menn eigi aö gera þaö öðru
hverju, vera svolitið léttúðugir i
starfsvali. Ég var búinn að vera
fjögur og hálft ár hjá Þjóðviljan-
um og fannst kominn timi til að
breyta til. Reyndar gerði ég það i
sumar, þegar ég fór i leiðsögu-
mannsstarf i fjóra mánuöi”.
— Fjölskyldan?
„Konan min er Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir og börnin
eru tvö, Ragna Björt, átta ára og
Ingvi Snær, fjögra ára”.
SV
Er þriggja milljóna króna
(300 milljóna gkr.) virði að
fá heimsmeistaraeinvigið í
skák til islands?
Þröstur ólafsson hagfræöingur.
Nei.
Höröur Sveinsson, forstjóri. Nei.
Steinn A. Jóhannesson, sjómaður.
Nei, það tel ég ekki.
Helga Sigurðardóttir, nemi. Já,
mér finnst þaö allt i lagi.
Jðhann
ungur enn
1 sandkorni á föstudag-
inn var minnst á sögu-
sagnir um að Frjálst
framtak hyggöist taka viö
rekstri Helgarpóstsins.
Jafnframt var greint frá
svari Jóhanns Briem við
spurningum Timans um
þetta mál. Meö klausunni
átti aö birtast mynd af
Jóhanni Briem, forstjóra
Frjáls framtaks. ÞegaF
ég sá myndina sýndist
mér Jóhann hafa elst um
nokkra áratugi á einni
nóttu og til aö foröa öllum
frekari misskilningi er
rétt aö taka þaö fram aö
Jóhann er alltaf jafn ung-
ur og hress eins og þessi
mynd ber með sér.
•
Rikisaðstoð
handa Kök?
Sú stefna Alþýöubanda-
lagsins að koma einka-
rekstrinum á kaldan
klaka er farin aö bera á-
vöxt. Gosfabrikkur lands-
manna scgja nú upp
starfsfólki i hrönnum og
fleiri fyrirtæki munu
fylgja á cftir. Ekki veröur
lengur risiö undir þeim á-
lögum og höftum sem á
cinkaíyrirtæki eru lögð.
Alþýðubandalagsmenn
cru auövitaö alveg for-
viöa á þvi að fyrirtæki
skuli segja upp starfsfólki
og telja þaö makalausa ó-
svifni. En varla fer þaö
svo aö gosfabrikkur hætti
störfum og öllum veröi
sagt upp. Þegar atvinna
30 flugmanna var i hættu
rauk rikiö upp til handa
og fóta og kraföist þess aö
áfram yröi flogiö fram I
rauöan dauöann svo fiug-
mennirnir misstu ekki
vinnu. Varla veröur fariö
verr meö verkafólkið svo
efiaust fær Pétur i Kók
tilboð um rikisaöstoö i
einhverju formi.
Slórlap á
Listahátið
Borgarendurskoöun
hefur veriö meö reikn-
inga Listahátiöar i
kritiskri cndurskoöun tog
Helgarpósturinn hefur
það eftir borgarendur-
skoöenda aö sennilega
muni tapiö nema 70-80
milljónum króna.
Framkvæmdastjóri
Listahátiöar vill ekkert
við þessar tölur kannast,
enda kanski ekki viö þvi
aö búast. A siðastliðnu
hausti voru birtar lausa-
fregnir þess efnis aö tap á
Listahátiö næmi 35-40
milljónum króna, en þá
taidi framkvæmdastjór-
inn þær tölur vera út i
loftiö og alltof háar.
Auövitaö dettur engum
i hug að reka hér Listahá-
tiö mcö gróöa, en hins
vegar fer þaö ekki milli
mála, aö sum atriðin sem
boðið hefur veriö uppá
hafa vakiö litinn áhuga
almennings, enda ekki
nóg aö segja fólki aö
eitthvaö sé list. Sagan
um nýju fötin keisarans
er enn i fuilu gildi.
nesti
Nestaður i
slræló
Ungur maöur stökk inn
i Hafnarfjaröarvagninn
meö pylsu I annarri hendi
og kókflösku I hinni.
— Þaö er enginn matar-
vagn hér, sagöi bilstjór-
inn snúöugt.
— Einmitt þaö sem ég
vissi. Þess vegna tók ég
ineö mér nesti, svaraöi
hinn.
Ertitt verkefni
— Ég ætla að biðja þig
aö sópa gólfiö hérna fyrst,
sagði skrifstofustjórinn
viö þann nýráöna.
— En ég er nýútskrifað-
ur úr lláskólanum.
— Já, alveg rétt. Þvi
hafði ég gleymt. Réttu
mér þá sópinn og ég skal
sýna þér hvernig maöur
gerir.
Hilmar Helgason, forstjóri. Já,
þaö er þess virði.
Það er aiit
á lloti...
Fyrir skömmu var lok-
iö viö byggingu á glæsi-
legu húsi fyrir starfsemi
fyrirtækis eins hér I borg.
Húsiö var byggt meö flötu
þaki, en þeir sem húsiö
teiknuöu fullvissuðu eig-
endur um aö cngin hætta
væri á leka. Þeir heföu
komið i veg fyrir þaö meö
snilldarlegum búnaöi.
Þessi pottþétta vörn
gegn leka átti aö vera
fólgin í stokkum sem sett-
ir voru ofan á þakiö og
náöu op þeirra út fyrir
þakbrún. Samkvæmt
kenningu sérfræöinganna
átti snjór og önnur úr-
koma aö sópast inn i
stokkana þeim megin
sem að áttinni sneri, þyrl-
ast i gegnum um stokk-
ana og út hinum megin.
Aldrei myndi þvi fcsta
snjó á þakinu fina.
Þvi miöur fórst það
fyrir aö tilkynna veöur-
guðunum til.hvers þessir
stokkar væru. Snjórinn
fyllti þá og stiflaöi, si-
felldur leki hefur veriö of-
an á þakið og þaöan á-
fram niður i húsiö. Munu
vera nokkrir fáleíkar
meö eigendum hússins og
þaksérfræðingum um
þessar mundir.
Leikrit Jóns
á dönsku
Jón Laxdal leikari, sem
við sáum seinast I hlut-
verki Steinars bónda I
Paradisarheinit, er bú-
settur i svissneskum
smábæ sem heitir Kaiscr-
stuhl og býr i 800 ára
gömlu húsi.
Fyrir skömmu fékk Jón
nýjan nágranna sem eru
Dietmar Schönherr, sem
lék kónginn i Paradisar-
heimt, og kona hans,
danska leikkonan Vivi
Bak. Hún hefur þýtt leik-
rit Jóns, Heimsöngvar-
inn, yfir á dönsku en hlut-
verk i leiknum er aöcins
citt. Eru Danir nú aö
bollaleggja aö sýna þetta
verk Jóns I danska'sjón-
varpinu.
Semundur Guövinsson
ólaöamaöur sjkrifar