Vísir - 26.01.1981, Síða 3

Vísir - 26.01.1981, Síða 3
Nýskipaður sendiherra Beigiu, Jacques A.F. Vermer, afhenti forseta Islands trúnaðarbréf sitt fyrir nokkrum dögum. Viðstaddur athöfnina var óiafur Jóhannesson utanrlkisráðherra. (Ljósm. Gunnar G. Vigfússon) vísnt Starfsfðlk Helgarpóstsins á fundi: „Ahugi á stofnun hlutafélags” „Jú, það er rétt. A fundi f fyrra- dag kom fram áhugi og vilji hjá starfsfólki blaðsins til að athuga stofnun hlutafélags með þátttöku starfsfólks” og nú er verið að at- huga þessa möguleika frekar og það á að koma i ljós alveg á næstu dögum hvort af stofnun þessa hlutafélags verður eða ekki” sagði Árni Þórarinsson annar rit- stjóra Helgarpóstsins er Visir ræddi við hann. — Hverjar geta orðið helstu hindranir ykkar i þessu máli? „Ég skal ekki segja, það er bara spurning um hvort við fáum þá upphæð sem um er talað og þá menn sem við getum sætt okkur við með okkur, þvi það verður ekki nægilegt að starfsfólkið eitt standi af félaginu”. Þá veltur þetta ekki hvað síst á þvi að „samningar takist við forsvars- menn Alþýðublaðsins um að- skilnaðinn”. — ÞU talar um að þið þurfið ákveðna peningaupphæð, hvaðan á hún að koma? „Það er ákveðin upphæð sem þeir i rekstrarstjórninni hafa tal- ið nauðsynlega sem hlutafé i þessu félagi. Ég ætla ekkert að nefna hana”. — Hvaða likur eru á þvi að af þessu verði? „Alveg þokkalegar”. —gk. Spariskírteini fyrir 20 millj. Sala verðtryggðra sparisklr- teina rikissjóðs að upphæð 20 milljónir nýkróna hefst I dag. Skirteinin eru gefin út I fjórum verðgiidum, 500, 1.000, 5.000 og 10.000 nýkrónur. Hér er um að ræða spariskir- teini ríkissjóðs I 1. flokki 1981 og eru kjör þeirra svipuð og I 2. fl. 1980. Höfuðstóll og vextir eru verðtryggðir miðað við þær breytingar sem verða á láns- kjaravlsitölu er tekur gildi 1. febrUar, en hUn er 215 stig. Sklr- teinin eru bundin fyrstu fimm ár- in, en frá 25. janUar 1986 eru þau innleysanleg hvenær sem er næstu 17 árin. Skirteinin eru framtalsskyld og skulu skráð á nafn. Útliti spariskirteinanna sem nU eru gefin Ut hefur verið breytt frá fyrri skirteinum og var talið eðli- legt að breyta útlitinu vegna gjaldmiðilsbreytingarinnar. Eru þau nU prentuð á sérstakan pappir sem I eru vatnsmerki, sem bera mynd af skjaldarmerki Is- lands. — SG lÝ o ŒplvrÍNö’ Verkstæðistiakkar 1-20 tonna fó/ksbí/a- og vörubílatjakkar Póstsendum um /and a/lt 82944 Púströraverkstæði 83466 Bílavörubúðin Skeifunni 2 Fpc fyrir BLANDAÐA HL/Ð Miðja andlits er oft feit (enni/ nef og haka). Tilhneiging fyrir fíla- penslum og bólum. Fíngerð húð kringum augu. Getur verið irriteruð. ROC snyrtivörur fyrir þurra og viðkvæma húð: ofnæmisprófaðar Fyrir nóttina >LAIT HYDRATANT til að hreinsa húðina GEL DEMAQUILLANT eða LOTION DEMAQUILLANT YEUX fyrir augun ROC TONIC 15 fyrir blandaða húð (notist á eftir hreinsikremi) síðan notum við gott and- litskrem sem byggir upp húðina og veitir rétt- an raka meðan við hvilumst CREME HYDRATANTE eða ULTRA EMULSION c Fyrir daginn #ROC TONIC 15 til að vekja upp húðina CREME DE JOUR PEAUX MIXTES eða EMULSION ANTIRIDES (fyrir allar konur sem komnar eru yfir 25 ára aldur) dagkrem BASE ULTRA FINE matt undirlagskrem. • Sérmeðferð: EXTRAIT TISSULAIRE (20 daga kúr) Við sliti (við meðgöngu), hárlosi og hrukkum. MASQUE PURIFIANT andlits- maski/ notist tvisvar í viku. PPC ofnæmisprófuðu frönsku lyktarlausuj snyrtivörurnar — Aðeins í apotekum

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.