Vísir - 26.01.1981, Qupperneq 6
vtsm
Guðmundur J. Guömundsson og
Stefán Ulugason höföu um
ýmislegt aö ræöa saman, en
Stefán vann lengi hjá Rikisskip.
Meöal þeirra félaga er hlutu peningagjafir frá Dagsbrún var
Blindrafélagiö. Halldór Rafnar veitir hér gjöfinni viötöku úr hendi
Eövarös Sigurössonar. formanns. (Visismyndir EÞS)
DagsDrun 75 ára í dag:
Gaf 250 búsund nýkr.
styrktarfélaga
til sex
Verkamannafélagiö Dags-
brún héltupp á stórafmæli sitt I
Lindarbæ i gær, en félagið var
stofnaö 26. janúar 1906 og er því
75 ára í dag.
t tilefni dagsins færöi formaö-
ur félagsins, Eðvarð Sigurös-
son, sex styrktarfélögum stór-
gjafir fyrir hönd félagsins.
Eftirtalin félög hlutu 50 þús-
und nýkrónur hvert: Sjálfs-
björg, Landsamband fatlaðra
—, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaöra, Elliheimiliö að Hrafn-
istu og Elliheimilið að Grund.
Þá hlutu Hjúkrunarheimili
aldraðra í Kópavogi 25 þúsund
nýkrónur og Blindrafélagiö
einnig, auk minningargjafar um
fyrsta formann félagsins,
Hannes M. Stephensen. Alls eru
þetta því 250 þúsund nýkrónur
eða 25 milljónir gamalla króna,
sem Ðagsbrún gefur á þessum
timamótum.
„Við gátum valið um að hald-
in yrði hérna dýrindis veisla eða
leggjaféðiannað, og viö völdum
frekar að gefa það”, sagði Eð-
varö Sigurðsson i samtali viö
blaðamann VIsis, um ofan-
greindar gjafir.
t Lindarbæ var margt um
manninn, þar sátu hlið við hlið
ráðherrar og verkamenn og
undu sér vel. A boðstólum var
kaffi og góðgerðir, og ekki var
að sjá að góögerðirnar væru af
skornum skammti, þrátt fyrir
höfðinglegar gjafir þeirra
Dagsbrúnarmanna.
— AS
Mánudagur 26. janúar 1981.
................1
Fjöldi ávarpa var fluttur á afmælinu, þar á meöal flutti Theodór A.
Jónsson formaöur Sjálfsbjargar þakkir fyrir gjöf Dagsbrúnar, en
hér sést Stefán i góöum félagsskap.
Færri fengu sæti en vildu á afmæliskaffi Dagsbrúnarmanna. Veitt
var af islenskri gestrisni, kaffi og meölæti.
HEITT VATN FANNST í GLERÁRDAL
OG KYNDISTÖÐ TEKIN I NOTKUN
„Kyndistööin kemur i góöar
þarfir núna á kaldasta tima árs-
ins, en hér er þó fyrst og fremst
um varaafl aö ræöa, sem ég
vona aö viö þurfum sem sjaidn-
ast aö gripa til I framtföinni”,
sagöi Viihelm V. Steindórsson,
hitaveitustjóri á Akureyri, þeg-
ar ný kyndistöö veitunnar var
gangsett á laugardaginn.
Kyndistöðiner 12 mw og getur
á hverri sekúndu aukið hitastig
55 1 af vatni um 50 gráður C.
Upphaflega var ráðgert, að
leggja einfalt dreifikerfi fyrir
hitaveituna til neytenda á Akur-
eyri, þar sem reiknað var með
nægu vatni. En þegar dráttur
varð á aö nægilegt vatn fengist,
þá var ákveðið að leggja tvöfalt
kerfi I vatnsfrekustu hverfin.
Þetta gerir Hitaveitunni mögu-
legt að taka um þriðjung af þvi
vatni sem sent er inn á kerfið til
baka aftur, þá um 40-45 gráðu
heitt. Siðan er skerpt á vatninu
upp I 80 gráður og það sent inn á
dreifikerfið aftur. Lætur þvi
nærri að kyndistöðin samsvari
borholu, sem gæfi 40 sek.l. af 80
gráðu heitu vatni.
1 vetur hefur Hitaveita Akur-
Sænskir sérfræöingar frá framleiöendum kynditækjanna, sem
gangsettu kyndistööina.
„Heilög þrenning” hitaveitunnar, Vilhelm V. Steindórsson, hitaveitustjóri, Þorsteinn Sigurösson,
tæknifulltrúi og Ingi Þór Jóhannsson, fjármálafulltrúi.
eyrar oft verið aðþrengd meö
vatn á köldustu timabilunum.
Ekki hefur þó komið til
skömmtunar, þótt oft hafi legiö
nærri, samkvæmt upplýsingum
Vilhelms. Veröur kyndistööin
þvi fullnýtt fyrst um sinn, ekki
sist vegna þess aö þörf er á að
létta á borholunum aö Lauga-
landi og Tjörnum, þar sem
nærri þeim hefur verið gengið
undanfarið.
1 húsi kyndistöövarinnar er
gert ráð fyrir að hægt sé að bæta
við öðrum katli og auk þess
tveim rafskautskötlum. Orku-
geta stöövarinnar verður þá um
50 mw, en að viðbættum borhol-
um Hitaveitunnar lætur nærri
aö Hitaveita Akureyrar sam-
svari 110-120 mw orkuveri.
Tilraunaboranir standa nú yf-
ir fyrir Hitaveituna á Glerárdal,
skammt fyrir ofan Akureyri.
Þar kom borinn Ýmir niður á
vatn á um 100 m dýpi I sl. viku.
Gefur holan sjálfrennandi 5
sek.l. af 56 gráðu heitu vatni á
þessu svæði. Sagði Vilhelm aö
ætlunin væri að bora holuna nið-
ur á um 300 m, en þá ætti að
vera búið ab varpa ljósi á mis-
gengi og hitastig á þessu svæði.
Með hliösjón af þeim niöurstöð-
um yrðu teknar ákvaröanir um
vinnsluboranir. Vatnið af
Glerárdal er að likindum ekki
nægilega heitt til að faia beint
inn á dreifikerfið. Taldi Vilhelm
þvi liklegt, að þaö yrði tengt viö
bakrennslisæö veitunnar i
Lundahverfi, en eftir henni færi
vatnið f kyndistöðina, þar sem
þaö veröur hitaö í 80 gráður C.
Fjórum sinnum hefur verið
borað eftir heitu vatni á Glérár-
dal, fyrst 1930, en alltaf án
árangurs. Hins vegar virkjuðu
ungmennafélagar á sinum tima
sjálfrennandi lindir við Laugar-
hól, skammt frá núverandi bor-
stað. Leiddu þeir vatniö i sjálf-
boðaliðsvinnu i Sundlaug Akur-
eyrar, sem nýtur þessa fram-
taks ungmennafélaganna enn
þann dag i dag.
G.S./Akureyri.
MINNINGARTONLEIKAR UM JOHN
LENNON í AUSTURDÆJARDÍÖI
„Mér fannst einhvern veginn
að það væri ástæða til að minnast
Lennons og færöi það i tal viö
Gunnar Þórðarson og Rúnar
JUliusson að halda minningartón-
leika sem þeirtóku mjög vel I”, —
sagði Öttar Felix Hauksson i
samtali við VIsi, en hann hefur I
félagi við nokkra islenska hljóm-
listarmenn hafist handa við aö
undirbúa tónleika til minningar
um John Lennon. Hljómleikarnir
verða haldnir i Austurbæjarbiói,
þriöjudaginn 3. febrúar n.k.
— „Eftir aö viö höfðum fengið
þessa hugmynd ræddum við við
nokkra hljómlistarmenn sem
hafa hvaö mest tengst tónlist Bitl-
anna, s.s. Björgvin Halldórsson,
Pálma Gunnarsson, Ara Jónsson,
Magnús og Jóhann og fleiri góöa
menn sem allir tóku vel i þessa
hugmynd” — sagði Óttar enn-
fremur.
„Þetta verður sem sagt rjóm-
inn af islenska poppliöinu og allir
gefa sina vinnu en tekjurnar af
hljómleikunum renna óskiptar til
Geðverndarfélags tslands enda
má segja aö dauða Lennons megi
tengja við geöveiki þessa ógæfu-
manns sem varð honum að
bana”, — sagði óttar.
A hljómleikunum munu tón-
listarmennirnir leika lög Lennons
i sögulegu samhengi, Auk þeirra
koma fram Þorgeir Astvalds-
son, sem verður kynnir og Sigurð-
ur Skúlason leikari, sem mun lesa
ljóð eftir Lennon.
—Sv.G
John Lennon ásamt konu sinni
Yoko