Vísir - 19.02.1981, Qupperneq 4

Vísir - 19.02.1981, Qupperneq 4
•4 SSS Tómstundavörur SS fyiir heimíli og skcia NÁMSKEK) í LEÐURVINNU Leðurvinnunámskeið hefst 20. feb. n.k. á vegum vers/unarinnar. Kennt verður í fjóra daga, þrjár kennslustundir i senn. Tekið er við innritun gegnum síma. HANDÍD Laugavegi 26 og Grettisgötu sími 2 95 95 Hvernig má ver jast streitu Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiós um Hvernig má verjast streitu og veröur þaö haldiö aö Hótel Esju dagana 23. og 24. febrúar n.k. frá kl. 13:30—18:30 hvorn dag. Leiöbeinandi á námskeiðinu er dr. Pétur Guðjónsson, forstööumaður Synthesis Institute í New York, en þaö er stofnun sem sér um fræöslu á þessu sviöi, og hefur Pétur haldiö námskeiö sem þessi víöa í fyrirtækjum vestanhafs. Námskeiöiö er byggt upp á eftirtöld um þáttum: — Þekking á streitu og einkennum hennar. — Slökunartækni til aö minnka streitu í daglegu lífi. — Ákvöröun — þaö er einstaklingur- inn taki staöfasta ákvöröun um aö losa sig viö streitu. — Grundvallarreglur til aö fara eftir, svo streita myndist ekki. — Þekking orsaka streitu og vinna bug á þessum orsökum. — Læra kerfi sem hægt er aö nota í daglegu lífi til aö þjálfa ofangreind atriöi. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. A SIIÓRNUNARFÉLAG ÍSUUIDS ' síOUMÚLA 23 105 REYKJAVlK SÍMI 82930 Laus staða Staöa lektors í ensku i heimspekideild Háskóla tslands er laus til umsóknar. Sérstök áhersla er lögö á nútlmamál og málvisi. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur skuiu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf sln, ritsmiöar og rannsóknir svo og námsferii sinn og störf. L msóknir skuiu sendar menntamáiaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir 20. mars nk. Menntamálaráöuneytiö, 16. febrúar 1981. Breyting á opnunar- tíma skrifstofu Frá 1. mars 1981 verða skrifstofur okkar i Reykjavik opnar á timabiiinu 08.20 - 16.15 Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 — Reykjavík Svíssneskir unglingar í miklum ham ,,Það er ekkert ofbeldi i samfélagi eins og okkar, ” sagði Kurt Furgler, forseti Sviss, i nýársboðskap til landa sinna. Og raunar hafa Svisslendingar lengst af getað hrósað happi yfir þvi að vera lausir við hryðju- verkamenn, verkfallaófrið á vinnumarkaði stúdentaóeirðir eða aðra slika óáran, sem plagað hefur nágrannariki þeirra sum. 1980 verður þeim þvi minnisstætt fyrir þá sök, að þá sóttu unglingaóeirðir, götuuppþot og ofbeldi að hinum friðsælu Svisslendingum. Einkanlega kvað rammt að þvi i Zurich, þar sem unglingar létu uppreisnarhug sinn bitna á rúð- um I verslunar- og bankabygg- ingum. Urðu þeir viðburðir ekki til þess að minnka kynslóðabilið, eða bæta hugarþel hinna óliku aldurshópa i garð hver annars. Þeim eldri þótti, sem ungu villingarnir hefðu spillt orðstir hinnar virðulegu verslunarborg- ar og tóku fálega i tillögur um að setjast að viðræðum við hina óánægðu unglinga. Þeir yngri aft- ur á móti hafa sýnt litla þolin- mæöi til þess að biða eftir Utkom- unniaf „rækilegum athugunum”, sem stjórnvöld hafa lofað á um- kvörtunum þeirra. Ókyrrð i vorlofti Óeirðirnar brutust Ut i fyrra- vor, þegar hópur ungmenna kröfðust skemmti- eða af- þreyingarstaða Ut af fyrir sig. Eins konar tómstundamiðstöð, þar sem þeir gátu verið i friði fyrir afskiptasemi hinna full- orðnu og lögreglu þeirra. Þessari kröfu var komið á framfæri við borgaryfirvöld i Zurich, sem svaraði þvi engu. Þegar svo fréttist, að borgar- stjórnin ætlaði að verja 60 milljón svissneskum frönkum til þess að lappa upp á óperuhöllina, varð fjandinn laus. RUður voru brotn- ar og ýmis hervirki unnin. Kom oft til árekstra milli lögreglu og unglinga, og þá oftast i hinni frægu verslunargötu Bahnhof- strasse. Borgaryfirvöldum var hverft Guðmundur Pétursson, fréttastjóri erlendra frétta. við, og látið var undan ungdómn- um. Þeim var afhent tóm bygging til afnota til eigin menningarlifs, rokkhljómleika, kvikmynda- sýninga, diskódans o.fl. Skammgóður vermir Þessi tómstundahöll var opnuð i jUni I fyrra, en dýrðin stóö ekki lengi. Strax i september lokaði lögreglan hUsinu og stöðvaði reksturinn, þvi að þar þóttu brögð að ffkniefnaneyslu og fundist hafði þjófagóss falið i hUsinu. Þá keyrði alveg um þverbak. Hundruðir unglinga reistu götu- vigi I Bahnhofstrasse og rUðu- brotin þöktu götur. Tjónið var metið til milljóna franka. 300 un^- iingar voru handtekiin Siðan hefur aldrei gróið um heilt og get- ur naumast heitið að friður hafi komist almennilega á ennþá. Meir en 500 ungmenni borgarinn- ar hafa komist á sakaskrá i þess- um skærum. Borgarstjóri Zurich, Sigmund Widmer, ber sig undan þvi, að honum og fjölskyldu hans hafi verið margsinnis hótað öllu illu, jafnvel lifláti. Unglingarnir kvarta undan hroka embættis- manna og harkalegri framgöngu lögreglu. 50 kærur liggja frammi á hendur lögreglunni fyrir mis- þyrmingar. Þannig litur unglingur i Zurich út, þegar mestur móðurinn renn- ur á hann. Misjöfn viðbrögð Hinir eldri bregða misjafnlega við. Sumir ætla, aö öldurnar lægi ef ungdómurinn fær tæki- færi til þess að sinna sinu tóm- stundagamni. Aðrir eru uppvægir og krefjast stofnunar sérstaks varðliðs, sem gæta skuli verð- mæta og borgara fyrir uppi- vöðsluseggjum. En aðrir leggjast undir feld i leit að skýringum á þvi, hvað hlaupið sé i unglingana. Þeim siðustu þykir athyglis- vert, að þessar óeirðir brjótast Ut i hinni ihaldssömu borg Zurich, þar sem ibUar fara sér hægt i að elta hégóma tiskunnar. Á engu hefur hinsvegar borið i Genf, þar sem menn eru írjálslyndari i háttum og hug. Að visu hafa orðið uppþot i Bern, Basel og Laus- anna, en naumast orð á þvi ger- andi i viðmiðun við ósköpin i Zurich. Ekki verður atvinnuleysi kennt um. Og ekki hafa stUdentar eða aðrir langskólanemar i Sviss blandast inn i uppþotin, enda ekki vanir þvi að stofna til vandræða. Ef leitað er til þeirra, sem i eld- linunni hafa staðið, er næsta fátl um svör. Ekki er um að ræða neina skipulagningu og engir for- vigismenn, sem standa upp Ur. Ólátabelgirnir hafa reynst vera jafn róttækir til vinstri eins og til hægri, og siðan allt þar á milli. Helst brýst það fram hjá unga fólkinu, að það vilji risa upp gegn gömlum hefðum og kreddufestu svissnesks samfélags. Svisslendingar, sem hafa gott auga fyrir þvi skoplega i eigin fari, segja Utlendingum til skýr- ingará fyrirbærinu, að það sé svo sem ekki á öðru von. Þaö séu tólf eða þréttán ár, siðan stUdenta- óeirðirnar fóru eins og eldur um sinu i Evrópu og æskan reis upp gegn valdi fullorðinna. NU sé smitunin að brjótast fram i Sviss, enda sé um það bil liðið timabilið sem Svisslendingar séu á eftir sinni samtið. Enn ein loit- belgstilraun Naumast höfðu Bandarlkja- mennirnir tveir fyrr neyðst tii þess að gcfast upp I tilraun til þess aö svlfa umhverfis jörðina I loftbeig. en bresk kona ein og vélamaður meö hénni tilkynntu, að þau ætiuðu að fara umhverfis jörðina i loftbelg. Judith Chisholm setti flugmet i fyrra, sló hraðamet I litilli fiugvél á leiöinni frá Englandi til Astrallu og Nýja Sjálands. Vélamaðurinn, sem meö henni vcrður I þessari nýju flugmetstil- raun — og að þessu sinni I helium- loftbelg — er Julian Nott, sem manna hæst hefur svifiö i loftbelg fylltum af heitu lofti. Hann komst upp í 13.970 m hæö yfir Indlandi 1974. Þau ætla að ljúka hnattflugi slnu á 15 dögum og mestan hlutann svifa I 11 km hæð. ðelrðir l Napóll Lögreglan I Napóli þurfti að beita taragasi og skotvopnum tii þess að dreifa hundruöum at- vinnulausra og heimilislausra mótmælenda, sem efndu til upp- þota þar I víkunni. Mest voru þetta ungmenni, sem vopnast höfðu bareflum og grjóti, hrófiað upp götutálmum og borið eld I tvo strætisvagna, um leið og þeir fdru um göturnar brjótandi flesta glugga, sem á vegi þeirra uröu. Napóll hefur sjaldnast þótt nein allsnægtaborg, en ástandið hefur versnað enn eftir jaröskjálftana i nóvember, þegar um 70 þúsund I- btlar borgarinnar misstu heimili sln. Norðmenn aðstoöa „Einlngu" Norska verkalýðshreyfingin sendi á dögunum „Einingu". hin- um óháðu samtökum I Póllandi,

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.