Vísir - 19.02.1981, Blaðsíða 7

Vísir - 19.02.1981, Blaðsíða 7
Svona á aö gera öaö, Guðrún Hreinn Halldórsson, islands- methafi i kdluvarpi karla, er hér ásamt nýja félaganum f KR, Guö- riinu Ingólfsdóttur, islandsmet- hafa í kiíluvarpi kvenna, á æfingu i KR-heimilinu. Meö þeim er gamla kempan Valbjörn Þorláks- son, þjálfari KR-inga I frjálsum iþróttum. Guörún fær þarna til-, sögn hjá Hreini I hvernig best sé aö kastakúlunnien hún og Hreinn hafa veriö aö æfa kúluvarp af miklum krafti i KR-heimilinu aö undanförnu. Þar eru menn óspar- ir á aö gefa Guörúnu hoil og góö ráö og veröur gaman aö vita, hvort ekki veröa miklar framfar- ir hjá henni I sumar eftir þau öil. — klp/Visism. Friöþjófur... Fram bankar á „úrvalsdyrnar” - eltir 86:75 siður yfir Kefiavík i 1. deildinni í körfuknatlleik „Þetta er ekki búið enn hjá okk- ur, þótt viö höfum unnið sætan sigur i þetta sinn. Viö eigum eftir tvo erfiöa útileiki viö liðin, sem berjast um fallið i 2. deild, Grindavík og Borgarnes og þeir geta orðið okkur erfiðir”, sagði Þorvaldur Geirsson fyrirliði Fram, eftir að hann og félagar hans höfðu sigrað Keflvikinga i 1. deildinni i körfuknattleik i gær- kvöldi. Með sigri i þeim leik komust Framarar með annan fótinn inn i úrvalsdeildina næsta ár, en Keíl- vikingar voru þeir einu sem virt- ust geta komið i veg fyrir að Fram fengi þar sæti. Þeir geta það enn en til þess verða þeir að fá aðstoð hjá Grindvikingum eða Borgnesingum, sem verða þá að Irwin gðður í Hawai open Hale Irving frá Bandarikjunum varð sigurvegari i stóru atvinnu- mannakeppninni i golfi sem lauk um siðustu helgi en það var „Hawaian Open” i Honululu. Irwin lék 72 holurnar á 265 höggum eða 23 höggum undir pari. Var hann fimm höggum á undan næsta manni en það var Don January, en siðan komu þeir Ben Grenschaw og John Schröeder. Atrúnaðargoð Englendinga Nick Faldo var bestur eftir 36 holurnar, lék á 70:62 en siðari 36 lék hann á 72:77 og hafnaði við það i fertugasta sæti... —klp— Fá biKaríiiif! á föstudag ; Ármenningar hafa samþykkt að færa til leik sinn við Njarðvik i úr- | valsdeildinni, seni vera . átti i Hagaskólanum n.k. 1 laugardag. Mun leikur- inn, sem er siðasti ieikur Njarðvikinga i deildinni, verða i Njarðvikum ' annað kvöld. Að honum loknum verður Njarðvik- ingum afhentur tslands- meistarabikarinn og leik- menn liðsins fá sinn eftir- sótta meistarapening. Lokahóf verður siðan um kvöldið I Stapa... —klp— karla f gærkvðldl leggja Framarana að velli i siðustu leikjunum. Leikur Fram og Keflavikur i gærkvöldi var bráðskemmtilegur og stemmningin i húsinu eins og hún var hér i fyrra og árið þar áður, þegar mest gekk á i úrvals- deildinni. Bæði liðin léku fast og vel og þau skiptust á um að vera yfir i stigaskorun þar til alveg undir lok fyrri hálfleiks að Fram komst fram úr og var 5 stigum yfir i leikhléi 41:36. Barceiona í mikium ham Stórliðiö Barcelona hefur þotiö upp eftir stigatöflunni i 1. deild- inni i knattspyrnu á Spáni siöan gamli framkvæmdarstjórinn var rekinn frá félaginu i haust og þaö festi kaup á vestur-þýska lands- liösmanninum Bernd Schuster. Barcelona hefur varla tapað leik síðan, og rokið úr einu af neðsta sætinu upp i annað efsta sætið. Er liðið nú aöeins einu stigi á eftir Atletico Madrid, sem hefur haft forustu ídeildinni i nær allan vetur. Ekki hefur gengið alveg eins vel hjá hinu stórliðinu i spænsku knattspyrnunni, Real Madrid. Liðið er i 6. til 9. sæti I deildinni með 27 stig, eða 6 stigum á eftir óvininum númer tvö — Atletico Madrid — og 5 stigum á eftir óvini númer eitt — Barcelona — og það er nokkuð sem aðdáendur liðsins kunna engan veginn að meta... — klp — 1 byrjun siðari hálfleiksins komust Framarar enn betur yfir —10 til 13 stig — og náðu Keflvik- ingar aldrei að brúa það bil. Framararnir héldu þeim allan timann i skefjum — jafnvel þótt þeir væru með þrjá menn inn á nær allan siðari hálíleikinn sem voru með 4 villur og máttu þvi ekkért brjóta af sér til a fá þá 5tu og vera þar með visað útaf. Var sigur þeirra upp á 86:75 íyllilega verðskuldaður og menn almennt á þvi i salnum, að beta liðið hefði sigrað. Val Brazy var hreint stórkost- legur i liði Fram. Hann skoraði 29 stig og átti hverja sendinguna á fætur annarri, sem samherjar hans gátu ekki annað en skorað úr. Þá var Viðar Þorkelsson mjög góður og skoraði 17 stig og sömu- leiðis Simon Ólafsson sem sá um að gera 22 fyrir Fram. Keflvikingarnir voru sprækir en þó ekki eins og Framararnir. Þeirra timi kemur og sjálfsagt verða þeir komnir upp eftir eitt til tvö ár — enda liðið ungt. Axel Nikulásson og Björn Vikingur’ voru bestu menn IBK i þessum leik.en stigahæstur i liðinu var Terry Read með 27 stig. Axel skoraði 18 og Jón Kr. Gislason 9 stig, sem er óvenju litið úr þeirri átt... —klp— STAÐAN Fram ... Keflavik Þór..... Skallagr Grindavik.. 14 .. 14 12 2 1304:1092 24 .. 14 11 3 1174:1094 22 ..14 5 9 1113:1232 10 .. 14 4 10 1146:1189 8 3 11 1133:1205 6 l. deiidin i körluknattleik kvenna: Verða KR-sielpurnar melslarar í kvöld? Mikið verður um að vera i 1. deildinni i körfuknattleik kvenna i kvöld, þegar tS og KR mætast i iþróttahúsi Kennaraháskólans. i þeim leik geta nefnilega úrslitin i islandsmótinu ráðist og þvi mikið i húfi eins og gefur að skilja. Staöan i deildinni er þannig, að KR er efst með 8 stig og á tvo leiki eftir, en ÍS og iR eru meö 6 stig og eiga einn leik eftir hvort. Ef KR sigrar i leiknum í kvöld er liðiö orðið islandsmeistari, en tapi KR, fær liðið annað tækifæri á sunnudaginn, þegar það mætir ÍR. Tapi KR þeim lcik lika, eru öll þrjú liðin jöfn og verður þá áð fara fram aukakeppni á milli þeirra. Leikurinn i kvöld hefst um kl. 21.30, eða aðloknum leik ÍS og KR i úrvalsdeildinni, sem á að byrja kl. 20.000... -klp- Bandarikjamaðurinn i Fram, Val Brazy, var frábær i leiknum viö Keflavik i gærkvöldi og skoraöi þar á alla vegu. Hér má sjá hann „troða” knettinum niður um körfuna hjá Keflvikingum meö miklum lilþrifum og við mikinn fögnuð hinna fjöimörgu áhorfenda... Visismynd Friöþjófur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.