Vísir - 02.03.1981, Side 5

Vísir - 02.03.1981, Side 5
Mánudagur 2. mars 1981 5 VÍSIR Tveir Líbanlr handleknir IUSA - ákærðir fyrir vopnasmygl Tveir Libanir voru handteknir i Bandarikjunum um helgina, ákærðir fyrir að reyna að smygla vopnum til Libanon. Bandariskir leynilögreglumenn fundu gám, fullan af skotfærum,-á hafnar- bakka i S-Karólinu og átti að setja hann um borð i skip frá Kýpur og viðtakandi var ónafngreindur maður i Beirut. Mennirnir tveir, sem handtekn- ir voru heita Antoine Bousamara, sem bjó i Charlestone i S- Karólinu, og Andre Ayoub, sem bjó i Mehuen i Massachusetts. Augusto Pinochet, forseti Chile, greiöir sjálfum sér atkvæði. Eitthvað stendur réttarkerfiö á ská hjá honum, blessuðum. Saufli Arabar draga úr oifuframieiðsiu og vísitölubinda olíuverð Rakaras tofan Figaró Laugavegi 51 — Sími 15434 Chun Doo Hwan náöar 5221 fanga. Háðar yfir 5000 manns 1 tilefni af embættistöku Chun Doo Hwan forseta Suður Kóreu i dag, hefur forsetinn tilkynnt að hann muni náða 5221 fanga sem sitja i fangelsum landsins. Meðal þeirra sem fá náðun er Kim Key Won fyrrum helsti ráðgjafi Park fyrrverandi forseta S-Kóreu, en Kim var sá sem myrti Park. 176 manns, sem stóðu fyrir uppreisninni i Kwangju á dögun- um, verða látnir lausir. Hinsvegar er ekki minnst á fyrrum forsetaframbjóðanda Kim Dae Jung, sem var dæmdur i lifstiðarfangelsi fyrir samsæri gegn landsstjórninni. Hann mun sitja áfram i fangelsi. Amnesty International hefur nýlega sent frá sér tilkynningu, þar sem krafist er náðunar og frelsis fyrir 500 pólitiska fanga i landinu. Árás skæruliða á lögreglustöð i Baskahéruðunum á Spáni, sem gerð var i gær, hefur sett strik i reikninginn eftir að aðskilnaðar- menn Baska höfðu boðið upp á vopnahlé án nokkurra skilyrða. Þrir lögreglumenn særðust, einn af þeim mjög mikið, þegar herskáir og róttækir skæruliðar réðust með sprengjum og vél- byssum á lögreglustöðina rétt ut- an við Bilbao. Þetta voru fyrstu vopnavið- skiptin.sem fram hafa farið eftir byltingartilraunina i siðustu viku, en stöðug átök milli skæruliða og lögreglu voru höfð sem afsökun fyrir byltingartilrauninni. Spænsk blöð hafa ásakað að- skilnaðarmenn Baskaum að eiga sök á byltingartilrauninni en i framhaldi af þeim ásökunum hafa foringjar skæruliða lýst yfir vopnaléi, nema herinn reyni bylt- ingu á nýjan leik. Stendur Vatikanið og páfinn að baki skemmdarverkum, sem unnin hafa verið á kaþóiska söfn- uöinum i Kina? Samkvæmt fréttum i timaritinu „Time”, sem út kom i gær, ráðgera Saudi Arabar að draga úr oliuframleiðslu sinni sem nem- ur 500 þús. tunnum á dag. Þetta mun vera gert til að binda oliu- verð við verðbólguvöxtinn á Vest- urlöndum, nokkurs konar visi- tölukerfi. Saudi Arabia, sem er stærsti oliuframleiðandi i heimi, eða með 10,3 milljónir tunna á dag, litur á áætlun sina sem lið i þeirri viðleitni að gera Vestur- löndum kleift að sjá oliu- verðhækkanir fyrir. Chile: Fimm vinstri sinnaðir skæru- liðar, sem eiga dauðadóm yfir höfði sér, hafa verið færðir fyrir dómstóla i Santiago i Chile — án þess að fá að hafa verjanda. Rikissaksóknari Chile hefur þegar farið fram á dauðadóma yfir fimmmenningunum — þrem- ur körlum og tveimur konum. Þau voru handtekin þann átjánda febrúar og réttarhöldin hófust tveimur dögum siðar. Samkvæmt landslögum er ekki hægt að dæma mann til dauða i Chile án þess að ákærði fái verj- anda og þvi er talið liklegt að dómstóllinn skipi fimmmenning- unum verjanda. Spánn: RADIST A L0G- REGLUSTÖÐ Skæruiiðarnir eru sakaöir um að hafa drepið skólastjóra leyni- lögregluskóla hersins, fjóra her- lögreglumenn, tvo varðmenn og stöðumælavörð. fá enga verlendur Krafist dauDadóms Vinnur vatikanið skemmdar- verk á kínverskum söfnuði? Leiðtogi óháðu, kaþósku kirkj- unnar i Kina, sagði i viðtali, sem birtist i gær, að Vatikanið stæði hugsanlega á bak við ótilgreind skemmdarverk, sem reynt væri að vinna á söfnuðinum. „Það hafa verið unnin skemmdarverk — sum hafa kom- ið sér illa”, sagði Michael Fu Tieshan, biskup, i viðtali við Newsweek. „Eg get ekki á þessari stundu sagt hvaða skemmdarverk ég á við, en þau hafa verið unnin á tveimur siðustu árum af útlend- ingum. Ég get ekki útilokað þann möguleika að Vatikanið standi á bak við þau”. Viðtalið við Fu biskup var tekið án leyfis Vatikansins, en kin- verska kaþólska kirkjan klauf sig frá Vatikaninu árið 1957 og hefur verið óháð siðan. „Samruni við Vatikanið getur aðeins átt sér stað ef Vatikanið slitur öll bönd við Taiwan. Það er undir Vatikaninu og páfanum komið að sýna breytta afstöðu til okkar”. Biskupinn lagði áherslu á, að kaþólska kirkjan i Kina yrði áfram óháð og að Vatikanið yrði aðsýna þessuskilning. Kinverska kirkjan klauf sig frá Vatikaninu vegna ágreinings um val á biskup.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.