Vísir - 02.03.1981, Síða 14
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
í póstkröfu.
Altikabúðin
Hverfisgötu 72. S. 22677
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Rakarastofan
Klapparstíg
PANTANIR 13010
Kr. 600 útborgun og
kr. 600 pr. mánuð.
nai
Bíldshöföa 20, Reykjavik
Simar: 81410 og 81199
Gorn* og
honnyrðovörur
í mikiu úrvoli
mí tvTTr- l * * á "'l
r t Ír- * PTSTi
\ - b 1* í* 11 I | L wj J
’, \
■1» ‘h- . r i
vtsm
Mánudagur 2. mars 1981
„Litlu” flugskýlin eru of Iftíl:
TVÆR PHANTOM-ÞOTUR
KOMAST EKKI FYRIR
Samkvæmt upplýsingum
Visis er nánast ómögulegt að
koma tveimur Phantom þotum i
eigu varnarliösins inn i fyrir-
huguð flugskýli sem reist verða
á þessu ári á Keflavikurflug-
velli, þar sem skýlin eru of litil.
Bandarikjamenn hafa gert ráð
fyrir að skýlin væru um 750 fer-
metrar að flatarmáli, en utan-
rikisráðherra segist aðeins hafa
gefiö heimild fyrir 345 fermetra
flugskýlum. Talið er vist að um
reikningsskekkju sé að ræða,
þar sem gerö flugskýlanna er
þannig að gólfflötur sem er 345
fermetrar nýtist mjög illa.
Flugskýlin, sem heimild er
fyrir að reisa, eru þrjú. Þau eru
80fetá breidd og 150 fet á iengd.
Þar sem þau eru sprengjuheld,
erlag þeirra þannig að hvolfþak
er á skýlunum, og nýtist þvi
gólfflötur mjög illa.
Phantom þoturnar sem ætlað
er að séu tvær i hverju skýli
þurfa 38x58 feta gólfflöt, sé
miðað við lóðrétta veggi. Miöað
við slika veggi væri hægt að
koma tveimur vélum fyrir i
flugskýli með svipaðan gólfflöt,
þótt ekki væri sérlega rúmt um
vélarnar. Meö þvi lagi sem á aö
vera á skýlunum er nánast
óhugsandi að vélarnar tvær geti
veriö i viðbragösstöðu inni i
flugskýlunum. Þá ber einnig að
athuga, að vélarnar eru með
sprengjubúnað, og aðstaða fyrir
hann verður að vera i
skýlunum. Hægt er að brjóta
vængi vélanna upp, en við það
nýtist veggjaplássiö verr, svo
hvernig sem litiö er á mál þessi,
er ljóst að 345 fermetra
sprengjuheld flugskýli reynast
of litil fyrir tvær vélar af
Phantom F-4E gerð, eins og eru
staðsettar á Keflavikurflug-
velli. _AS
Þotur varnarliösinsaf geröinni McConnel Douglas F-4E Phantom. A mynd þessari sést hvernig hægt er
aö brjóta vængi vélanna upp. Þá ætti einnig aö vera ljóst aö ýmsan búnaö þarf viö féiarnar, sem aöstaða
þarf að vera fyrir i flugskýlunum.
(Vísismynd Baldur Sveinsson)
Fvrrveranúl siarlsmenn Aðalbðls:
Slnfna nýtt bygg-
ingasamvinnufélag
Stofnað hefur verið nýtt
byggingasamvinnufélag i
Reykjavik. Heiti félagsins er
Byggingasamvinnufélagið Skjól.
Félagið var formlega stofnað 18.
nóv. siðast liðinn og félagsmála-
ráðuneytið samþykkti lög þess 20.
febr. ’81. Fyrir stofnfund höfðu
yfir hundrað manns látið skrá sig
Verkakvennaléiagið
Snðl:
Mótmæiir
klaraskerö-
ingunnl
Fundur stjórnar og trúnaðar-
ráðs Verkakvennafélagsins
Snótar i Vestmannaeyjum, sem
haldinn var 20. febrúar 1981, mót-
mælir harölega 7% visitöluskerð-
ingu, sem rikisstjórnin lögfesti
um siðustu áramót en koma til
framkvæmda 1. mars n.k. og
þegar tillit er tekið til launahækk-
unar B.S.R.B. sem orsakar enn
meiri launamismun hjá starfs-
fólki sem vinnur við sambærileg
störf.álitur stjórn og trúnaðarráð
„Snótar” þessar aögerðir óverj-
andi.
Snótarkonur hvetja þvi forystu
A.S.l. til dáöa i baráttu verka-
fólks fyrir mannsæmandi kjörum
og fylgja fast eftir að þau visitölu
stig sem nú veröa af tekin, verði
að fullu bætt eins og loforð hafa
veriö gefin um.
sem stofnendur félagsins. Á
stofnfundinum rikti einhugur
félagsmanna um að gera veg
félagsins sem mestan. En megin-
tilgangur félagsins er að reisa
ibúðarhús fyrir félagsmenn sina á
kostnaðarverði i samræmi við
gerða byggingarsamninga.
Frumkvöðlar að stofnun félags-
ins eru fyrrverandi starfsmenn
Byggingasamvinnufélagsins
Aðalbóls ('B.S.A.B.) sem sagt var
upp störfum frá og með siðustu
áramótum. Þessir starfsmenn
hafa margir hverjir starfað
saman s.l. sextán ár fyrir
B.S.A.B.
Hið nýja félag treystir mikið á
samheldni og verkkunnáttu þess-
ara manna i starfi.
Byggingafélagið Skjól hefur
þegar sent borgarráði Reykja-
vikur lóðaumsókn undir f jölbýlis-
hús fyrir félagsmenn sina.
Þeir sem áhuga hafa á að gerast
félagsmenn i Byggingafélaginu
Skjól hafi samband við Öskar
Jónsson i sima 33387.
Þórshalnarmálið:
..Áfram í
biöstöðu”
„Svar rikisstjórnarinnar er
óljóst og ófullnægjandi. Engar
nýjar tillögur eða bókanir liggja
hér fyrir á þessum fundi. Málið
þarfnast nánari viðræðna við
stjórnvöld. Það er þvi áfram i
biðstöðu og óafgreitt af hálfu
þessarar stofnunar”.
Þetta lét Eggert Haukdal,
stjórnarformaður Framkvæmda-
stofnunar, færa til bókar á sér-
stökum fundi i stjórn stofnunar-
innar á föstudaginn, þar sem
tekin var til umfjöllunar sú
ákvörðun rikisstjórnarinnar, að
endursenda stofnuninni Þórs-
hafnarmálið margumtalaða.
Eftir að þetta hafði verið bókað
sleit Eggert fundinum.
1 samtali við blaðamann sagði
Eggert Haukdal að engin niður-
staða hefði orðið á þessum fundi
og engar samþykktir gerðar.
Einnig var haft samband við
Sverri Hermannsson, en hann
vildi ekkert um málið segja.
—P.M.
J.H. Hinríksson meö
i400.toghlerann
Fyrirtækið J. Hinriksson
hefur nú afgreitt frá sér fjórtán
hunduðasta toghlerann, sem
fyrirtækið hefur framleitt. Það
hóf starfsemi sina árið 1963,
sem jafngildir þvi að meðaltali
aö fyrirtækið hafi framleitt 7
toghlera á mánuði.
Framleiðsla fyrirt'ækisins
stendur aðallega saman af tog-
hierum og togblökkum. Siðast
liðin 8 ár hefur hluti framleiðsl-
unnar verið sendur á erlendan
markað og var um 15% fram-
leiðslunnar á siöasta ári.