Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Láttu mig hafa listann yfir þá staði sem þið skerið niður, hr. Rasmussen, við leggjum aðal
áherslu á sparnað í heilbrigðisgeiranum til að geta sinnt betur utanríkisþjónustunni okkar.
SFR efnir til þinghalds
Tekið á minnk-
andi áhuga
Starfsmannafélag rík-isstofnana, SFR,sem er stærsta
stéttarfélag innan vé-
banda BSRB, efnir til
þings á morgun, laugar-
daginn 17. janúar. Þingið
er ætlað ungum fé-
lagsmönnum og er við-
leitni til að bregðast við
útbreiddum vanda margra
stéttarfélaga víða um lönd
vegna minnkandi áhuga
ungs fólks á þátttöku inn-
an þeirra, eins og fram
kemur í kynningu frá
SFR. Fræðslustjóri SFR
er Sara Hálfdánardóttir
og Morgunbaðið lagði
nokkrar spurningar fyrir
hana í tilefni þinghaldsins
og fara svör hennar hér á
eftir.
Hvar fer umrætt þing fram,
klukkan hvað og hvenær?
„Þingið fer fram í húsakynnum
SFR stéttarfélags á Grettisgötu
89 frá kl. 14–19 og í framhaldinu
verður boðið upp á léttar veit-
ingar.“
Hverjir standa að þinginu og
hver er tilgangur þess?
„SFR stéttarfélag stendur að
þinginu en nefnd á vegum ungra
félagsmanna hefur staðið síðustu
mánuði að undirbúningi þess.
Ungir félagsmenn eru um 1.400
talsins, um 30% af heildarfjölda
félagsmanna. Yfirskrift þingsins
er „Þekkir þú stéttarfélagið
þitt?“ og felur í sér hvatningu til
ungra félagsmanna um aukna
þátttöku innan félagsins í ljósi
þess að nokkuð skortir á að ungt
fólk taki þátt í starfi stéttar-
félaga. Það er vilji SFR að snúa
þessari þróun við með því að
opna umræðuna um vandann og
mynda formlegan vettvang fyrir
umræður og skoðanaskipti þar
sem áhersla verður meðal annars
lögð á þarfir og hagsmuni ungs
fólks.“
Hverjar verða helstu áhersl-
urnar á þinginu?
„Þingið er framhald á starf-
semi ungliða SFR en í maí á síð-
asta ári var haldin ráðstefna í
Iðnó sem markaði grunn að
þeirri vinnu sem nú fer fram á
þinginu. Þar komu fram ýmsar
hugmyndir og skoðanir ungra fé-
lagsmanna á samfélagslegum
málefnum. Dagskrá þingsins er
fjölbreytt og er fyrst og fremst
ætlað að höfða til áhuga, þarfa og
hagsmuna ungra félagsmanna.
Rætt verður meðal annars um
hverjar þarfir ungs fólks eru inn-
an félagsins og hvert hlutverk
stéttarfélaga er í nútíð og fram-
tíð, rætt verður um lífsgæða-
kapphlaupið og hvaða hlutverki
það gegnir nú í lífi ungs fólks auk
þess sem horft verður til fram-
tíðar með því að skoða hvernig
ungir félagsmenn vilja sjá félagið
þróast með tilliti til helstu þátta í
starfsemi þess, svo sem trúnaðar-
mannakerfis og kjara- og
fræðslumála.“
Hverju á þingið að skila?
„Þingið verður von-
andi til þess að efla
starfsemi ungra fé-
lagsmanna innan SFR.
Umhverfi stéttar-
félaga hefur verið að
breytast síðustu ár og í huga
margra af yngri kynslóðinni til-
heyra stéttarfélög og stéttarátök
liðnum tíma. Í ljósi þess hversu
mikilvægu hlutverki stéttarfélög
hafa gegnt og gegna enn er mik-
ilvægt að ungt fólk komi að starfi
stéttarfélaga til að blása í nýja
lúðra í takt við breytta tíma.
Stéttarfélög mega ekki staðna
frekar en umhverfið sem þau búa
við og því er mikilvægt að ungt
fólk komi inn með nýja og ferska
strauma til að hafa áhrif á sitt
nánasta umhverfi. Þingið kemur
því vonandi til með að skila okkur
öflugu fólki með ferskar skoðanir
og hugmyndir um framtíðarsýn
félagsins.“
Hvers vegna telur þú að dofi sé
í þátttöku yngri félaga í stétt-
arfélögum í starfsemi þeirra?
„Í raun höfum við ekki svar við
þeirri spurningu. Við vitum að
þessi þróun hefur átt sér stað víð-
ar, meðal annars á Norðurlönd-
unum, auk þess sem þessi vandi
er víða þekktur í ungliðahreyf-
ingum á borð við stjórnmála- og
íþróttahreyfingar. Engar rann-
sóknir, sem við vitum um, hafa
verið gerðar sem sýna fram á
hvað veldur þessu en við hjá SFR
höfum áhuga á að skoða vandann
og þingið á laugardaginn er með-
al annars haldið til þess að reyna
að glöggva sig á honum. Einnig
virðist sem ungt fólk hafi lítinn
skilning á stéttarfélögum og hlut-
verki þeirra eins og kom fram á
ráðstefnunni í Iðnó í vor. Hugs-
anlega hefur SFR ekki haldið
uppi nægri fræðslu og kynningu
á því sem það er að gera og félag-
ið hefur nú þegar brugðist við
þessu, meðal annars með því að
gefa út þjónustu- og kynningar-
bækling um félagið.“
Telurðu að það eitt að efna til
umræðu með þinghaldi dugi til að
breyta þessu … eða stendur
fleira til í þeim efnum?
Ég hygg að heppilegasta byrj-
unin sé alltaf að hvetja til um-
ræðna og skoðanaskipta um mál-
efni eigi þau að hljóta einhvern
hljómgrunn. Einnig er
mikilvægt að þingið
varpi ljósi á vandann
til þess að unnt sé að
átta sig á hugsanlegri
lausn hans. Vissulega
mun þingið á laugardaginn ekki
leysa til fulls vandamálið er
snertir áhugaleysi ungs fólks á
stéttarfélögum en það mun von-
andi leiða til þess að fólk átti sig
á hlutverki stéttarfélaga og því
að óskað er eftir þátttöku þess
innan stéttarfélagsins. Vonandi
verður þingið unga fólkinu sú
hvatning sem að var stefnt með
þessu þinghaldi.“
Sara Hálfdánardóttir
Sara Hálfdánardóttir fæddist í
Reykjavík 29. júlí 1976, er með
stjórnmálafræðimenntun frá Há-
skóla Íslands og er jafnframt að
ljúka BS-gráðu í viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands. Hún starfar
sem fræðslustjóri hjá SFR,
Starfsmannafélagi ríkisstofnana,
og er í sambúð með Davíð Guð-
jónssyni framkvæmdastjóra. Þau
eiga von á fyrsta barni sínu á
vormánuðum.
… að þingið
varpi ljósi á
vandann
SAMNINGAR um rekstur á Hótel
Örk í Hveragerði eru nú lausir, og
hafa eigendur hótelsins tekið við
rekstri þess eftir að rekstraraðil-
arnir, Grand Ísland ehf., hættu.
Jón Ragnarsson, eigandi Hótels
Arkar, segir að hann hafi sagt upp
samningi við Grand Ísland vegna
vanskila, og segir að nú muni hann
leita eftir samningum við aðra um
rekstur hótelsins. Hann vill ekki
gefa upp hvort hann sé farinn að
ræða við nýja aðila, né hverjir séu
líklegir til að taka við rekstrinum,
en segir að það skýrist væntanlega
á næstu dögum.
Jón segir að gestir muni ekki
finna neina breytingu, allar bókanir
haldi sér og engar breytingar verði
á starfsemi hótelsins.
Stefán Örn Þórisson, einn eig-
enda Grand Ísland, hefur aðra sögu
að segja af þessu máli. Hann segir
að hið rétta sé að samningur um
rekstur hótelsins hafi verið laus um
áramót, og þá hafi verið ljóst að
Grand Ísland hafi ekki haft áhuga á
rekstri hótelsins á meðan það var í
eigu núverandi eigenda. Stefán seg-
ir að rekstrinum hafi þó verið haldið
áfram á meðan beðið var niðurstöðu
söluviðræðna á hótelinu. Þegar þær
viðræður gengu ekki eftir hafi ekki
verið áhugi af hálfu Grand Íslands
til að halda áfram samstarfinu. Öll-
um ásökunum um vanskil vísar
hann heim til föðurhúsanna, og seg-
ist hafa í sínum fórum skjöl frá eig-
endum sem sýni góða stöðu um ára-
mót.
Grand Ísland hefur nú gert samn-
ing um rekstur á öðru hóteli.
Leita samninga um Hótel Örk