Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 56
HANDKNATTLEIKUR 56 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ REIKNAÐ er með að Baltiska Hall- en í Malmö í Svíþjóð verði þéttsetin í kvöld þegar Svíar taka þar á móti Íslendingum í annarri umferð al- þjóðlega handknattleiksmótsins, LK-bikarsins. Þetta er síðasti leik- ur Svía á heimavelli áður en þeir fara til Slóveníu þar sem Evr- ópukeppnin hefst á fimmtudaginn. Svíar leika í riðli með Rússlandi, Úkraínu og Sviss. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri Handknattleiks- sambands Íslands, sagði við Morg- unblaðið í Kaupmannahöfn í gær að það hefði reynst snúið að útvega miða á leikinn í kvöld, bæði fyrir áhugasama Íslendinga í nágrenn- inu og fyrir styrktaraðila HSÍ. Búist við fullri höll í Malmö Dagur með gegn Svíum DAGUR Sigurðsson lék ekki með íslenska landsliðinu gegn Dönum í Farum í gær- kvöld, en er á góðum bata- vegi. Hann tók þátt í æfingu liðsins í Farum-höllinni í gærmorgun, þó ekki af full- um krafti. Líklegt er að hann verið eitthvað með í leiknum gegn Svíum í Malmö í kvöld. Dagur hefur verið meiddur í læri. „Þetta er allt að koma og ég er bjartsýnn,“ sagði Dagur við Morgunblaðið. Hann og Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, hvíldu sig í gær Guðmundur kvaðst mjög ánægð-ur með liðið, nánast í alla staði, og óttaðist ekkert að fá svona góðan leik á þessum tíma, viku fyrir fyrsta leik í Slóven- íu. „Við spiluðum vel og skynsamlega og sóknarleikurinn var góður allan leikinn. Ég er ekki hræddur við að við séum of snemma á ferðinni fyrir Evrópumótið. Ef lið- ið væri of þungt núna, væri það að mínu mati gífurleg áhætta. Aðrir þættir eru afar mikilvægir og spila inn í, ekki síst þeir andlegu. Nú vit- um við að við getum sigrað þetta danska lið, og í sjálfu sér hvaða lið sem er, og þurfum ekki að óttast neitt. Fyrir tveimur árum spiluðum við mjög vel skömmu fyrir EM, sigruðum þá Þjóðverja tvisvar heima, og samkvæmt því hefðum við átt að vera á toppnum of snemma. Þessi leikur var mjög jákvæður og er eitthvað sem við getum byggt á í framhaldinu. Við vitum líka að þetta eru æfingaleikir sem við spilum á þessu móti og munum ekki fara á neitt flug yfir þessum úrslitum. Á morgun mætum við öðru alvöruliði, Svíum, og förum yfirvegaðir í þann slag og sjáum hvað við fáum útúr því.“ Guðmundur sagði að hann hefði fengið mikið út úr varnarleiknum gegn Dönum. „Þar fékk ég geysilega góða svör- un. Við byrjuðum að pressa Danina mjög stíft og slógum þá útaf laginu með því þar sem þeir komust ekki inn í sinn leik í byrjun. Ólafur og Guðjón Valur komu vel út á móti þeim og þetta gekk mjög vel fyrstu fimmtán mínúturnar, en þá fórum við að gefa aðeins eftir. Í síðari hálf- leik ákváðum við að bakka niður í 6/0 vörn og hún var ótrúlega góð. Þegar örfáar mínútur voru eftir höfðu Danir aðeins skorað sjö mörk allan hálfleikinn. Þá hjálpaði mark- varslan okkur verulega, Reynir Þór kom sérstaklega vel inn í síðari hálf- leikinn og varði mörg erfið skot.“ Guðmundur taldi afar ólíklegt að hann færi með alla 18 leikmennina til Slóveníu og býst við að senda einn eða tvo heim að mótinu loknu. „Ég fer aldrei með 18 menn nema staðan verði sérstaklega erfið vegna meiðsla. Mögulega 17, annars vil ég ekki fara of mikið út í það á þessari stundu. Sigfús virðist vera tilbúinn, ég vona að hann sé alveg búinn að jafna sig. Hann kom inn í liðið með mjög góða hluti, þó hann væri reyndar dálítið þungur, enda verið meiddur í viku,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðs- þjálfari. Þetta mót er okkar generalprufa „Það er langt síðan við höfum tek- ið Dani og það var svo sannarlega kominn tími til þess,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði Íslands og íþróttamaður ársins 2003, við Morg- unblaðið eftir sigurinn í Farum. „Ég er mjög sáttur við okkar leik, veit kannski ekki hvort við vorum svona góðir eða þeir svona lélegir, en við vorum allavega betri en Dan- ir í kvöld og það er þó alltaf eitt- hvað. Kannski hafa þeir verið í erf- iðu prógrammi en það höfum við líka verið, við æfðum í morgun, og við æfðum í gær, svo það er svipað á komið með liðunum. Sóknarleikur okkar var góður og hraðaupphlaupin fín. Vörnin var sérstaklega góð framan af fyrri hálfleiknum og svo aftur í þeim síð- ari, markvarslan kom með og við náðum að keyra vel á Danina. Það gekk flest upp hjá okkur. Þetta mót er okkar generalprufa, við ætlum að keyra í gegnum þessa þrjá leiki eins og þeir væru í stórkeppni, og síðan höfum við nokkra daga til að hvíla okkur aftur fyrir átökin í Slóveníu. Þar verðum við síðan aftur á réttu róli,“ sagði Ólafur Stefánsson sem skoraði 9 mörk í leiknum við Dani. Scanpix Nordfoto Sigfús Sigurðsson lék með íslenska liðinu á ný eftir meiðsli. Hann tók Joachim Boldsen, leik- stjórnanda Dana, ekki neinum vettlingatökum enda fór svo að Sigfús var rekinn af leikvelli í þrí- gang í fyrri hálfleik og lék því ekkert í þeim síðari. „DANIR eru með mjög gott lið, það velkist enginn í vafa um það, en við höfðum viljann okkar megin að þessu sinni og varnarleikurinn var frábær í síðari hálfleiknum,“ sagði Guðmundur Þórður Guð- mundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir glæsilegan sigur íslenska liðsins á Dönum í Farum í gærkvöld, 33:28. Víðir Sigurðsson skrifar frá Farum     "#$% &'#()*% "+"(,,-."(, %# /#" /0 2# 4  1  ! 2 !  3 4  3 5 6 2 2# 4  1 :> :(  '< '?  =: (> 6! - - .. :< :?  '< '@  =( =< 5! 7"#)8$ ."#9 0#(."#9.'0$(   *C  D0  &+& „Við förum ekki á neitt flug“ 435 433 43: 434 4: 4: 4: 4:! 4:2 4:6 4:5 4:3 4:: 4:4 44 44 44 44! 442 446 445 443 44: 444       !  2       !  " # # $"# %"& ' () * +""& ,-. ## ;$ < '# %=;/$>(#() / %$=( ! >./ 4:5 0(+( ".( ='0#%# .;$ )'+ ."#9.0+0#( 3    " /)"*0.0? !5 .'0$0   2  : 6  5 !! 3 5 3 6 !   3 : 2   2 6 !4 5  2 4 6 ! : 2 4  6 2 @A( ' ')% ".( 7%)(#9 '.% /$ '0+"*.0$  ".( %9-%# B%#=' C%#"( () * +"" ,-. ## (- #* * /0 * "'1## /,2 ## &(+)(#9( "#$'.%# >8.90 ."#9.'0$>" ;.".0+ 0(+( ".( ='0#%# >8.90 ."#9.'0$>" -='  ;.".0+  D'0) /)" GUÐMUNDUR Hrafnkels- son, landsliðsmarkvörður í handknattleik, lék sinn 378. landsleik í gærkvöldi. Hann hefur leikið samfleytt í 19 ár með landsliðinu síðan hann lék sinn fyrsta landsleik í Moskvu 1986. Guðmundur er sá Íslendingur sem hefur leikið flesta landsleiki, leik- ið lengst samfleytt með landsliðinu og tekið þátt í flestum stórmótum – fimm heimsmeistaramótum, tvennum Ólympíuleikum, tveimur B-keppnum og hann er á leiðinni á sitt þriðja Evrópumót. Sigurður Valur Sveinsson hefur leikið með landsliðinu í 17 keppnisár á 20 ára tíma- bili, eins og sést hér á kort- inu fyrir neðan. Hann lék sinn fyrsta leik gegn Dönum 18. desember 1976, en síðan lék hann hann næstu lands- leiki sína þremur árum síð- ar – gegn Bandaríkjamönn- um 28. og 29. desember 1979. Eftir það lék hann samfleytt með liðinu til 1995, að undanskildu árinu 1985, er hann lék ekki vegna meiðsla. Guðmundur á vaktinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.