Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 35
lega vel. Það leit í svona i færst meira n ljósmyndari Morgunblaðsins á vettvangi sagði aðkomuna hafa verið afar slæma og aðstæður hinar verstu. „Þakið og þrír veggir voru tugum metra frá bæjarstæðinu. Hvarvetna var spýtnabrak og aðeins sást í einn út- vegg því hinir voru undir snjó eða þaki hússins,“ sagði Kristján. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað gert verður við féð á Bakka. yrnu í Ólafsfirði féll á íbúðarhúsið að Bakka ar hræðileg“ Morgunblaðið/Kristján óflóðið hreif með sér stóra dráttarvél sem lá á hvolfi í skafli er að var komið. 7      , 8, ,  " 1         $" , Morgunblaðið/Helgi Jónsson ið inn að Bakka. Gríðarleg ófærð og blindbylur tafði menn í björgunarleiðangrinum sem unda komust á staðinn og fannst hinn látni undir flóðinu í gærmorgun. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 35 GeimvísindastofnunBandaríkjanna,NASA, fagnaði þeimáfanga í gær að ómannaða geimfarið Spirit, sem lenti á reikistjörnunni Mars 3. janúar síðastliðinn, losnaði af lendingarstað til að rannsaka yf- irborð plánetunnar nánar. Þá er beðið eftir því að geimfar sömu tegundar, Opportunity, lendi á Mars, sem áætlað er að gerist 24. janúar næstkomandi. Þegar geimförin fara á stjá kemur m.a. til kasta gervigreindarforrits sem Ari hefur tekið þátt í að hanna og þróa. Ari er sérfræð- ingur í gervigreind og hefur starfað hjá NASA í bráðum sjö ár. Undirbúningur geimferðanna hefur verið eitt helsta verkefni Ara undanfarin þrjú ár. Hefur hann stýrt hönnun og hugbún- aðarþróun vegna þessa forrits og unnið í hópi starfsmanna NASA á sviði gervigreindar. Ari segir í samtali við Morg- unblaðið að starfsmenn stofnun- arinnar hafi beðið þess óþreyju- fullir, ekki síst hans nánustu samstarfsmenn, að sjá Spirit komast af stað. Vonast hann til þess að fá tækifæri til að fylgj- ast með því á staðnum, þaðan sem geimförunum er stjórnað, hvernig ferðalagið á yfirborði reikistjörnunnar tekst og hvern- ig forritið virkar við notkun geimfaranna ómönnuðu. Sömu- leiðis verði spennandi að fylgj- ast með Opportunity, sem á að lenda á allt öðrum stað á Mars en Spirit. Skilar vonandi betri gögnum Forritið sem Ari tók þátt í að hanna nefnist á frummálinu „Mixed-initiative activity plan generator“, skammstafað MAG- PEN, og er byggt á tveimur öðr- um forritum. Annað er notenda- viðmót til að búa til og breyta áætlunum fyrir geimför og hitt er gervigreindarforrit sem get- ur sjálfvirkt búið til og unnið með áætlanir. Ari segir að grunnhugmyndin á bak við MAGPEN sé að nota gervi- greindina til að hjálpa sérfræð- ingum NASA að setja saman betri aðgerðaáætlanir, sem skili vonandi meiri og betri gögnum í geimferðinni. Forritið verði not- að til að hjálpa til við að ákveða hvaða aðgerðir geimförin eigi að framkvæma næsta dag, í hvaða röð og hvenær. „Eftir að óskalisti vísinda- manna þann daginn er tilbúinn, og ljóst er hver staðan er um borð í geimfarinu, er forritið notað til að búa til fyrstu útgáfu af áætluðum aðgerðum fyrir geimfarið. Það sem er nýstár- legt í þessu ferli er að gervi- greindartækni er notuð til að hjálpa til á ýmsan hátt. Forritið getur stungið upp á áætlunum sem uppfylla eins mikið og hægt er af óskalistanum, án þess að stofna geimfarinu í hættu. Sér- fræðingarnir geta síðan breytt áætluninni en látið forritið fylgj- ast með og passa að breyting- arnar uppfylli skilyrði um ör- yggi og tengsl milli aðgerða,“ segir Ari. Hann hefur sem fyrr segir starfað hjá NASA í tæp sjö ár, eða frá 29 ára aldri. Ari lauk BS- prófi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 1990 og BS-prófi í tölvunarfræði við sama skóla ári síðar, með hæstu einkunn frá stofnun námsbrautarinnar. Hann fór svo í framhaldsnám til Bandaríkjanna og lauk MS-prófi í tölvunarfræði frá Stanford-há- skólanum árið 1995. Tveimur ár- um síðar lauk Ari doktorsprófi frá sama skóla og fjallaði loka- ritgerð hans einmitt um gervi- greind. Strax að námi loknu sótti hann um starf hjá NASA á þessu sviði tölvunarfræðinnar og fékk ráðningu án tafar. Var geimferðastofnunin á þeim tíma að leita að sérfræðingum í gervi- greind til rannsóknastarfa og hagnýtra verkefna. Spennandi tímar framundan Fljótlega eftir að Spirit hafði lent á reikistjörnunni rauðu spurðust þær fréttir út í Banda- ríkjunum að Bush forseti hefði uppi áætlanir um að reisa geim- stöð á tunglinu og senda þaðan mannaða geimflaug til Mars. Nú á miðvikudag tilkynnti Bush að þetta myndi gerast á árunum 2015 til 2020. Þegar Ari er spurður um viðbrögð við þessum tíðindum segist hann ekki getað tjáð sig sem starfsmaður NASA. Persónulega telji hann að þessi áform, ef þau rætist, eigi eftir að blása nýju lífi í geimferðir og áhuga fólks á vísindum og tækniþróun. „Það er brýn þörf á verkefni sem gerir það,“ segir Ari, sem á von á spennandi tím- um framundan hjá NASA og næg verkefni blasi við. Þannig sé stefnt að því að senda ómann- að geimfar næst til Mars árið 2009. Hann segir það hins vegar óráðið hvort fjölskylda hans ætli sér að dvelja áfram í Kaliforníu, eða leita jafnvel á heimaslóðir til Íslands, en Ari og eiginkona hans, Sarah, eignuðust nýlega sitt fyrsta barn, soninn Jón Ei- rík, sem ættingjar hér á landi bíða spenntir eftir að fá að sjá. Hannaði forrit fyrir geimfarið á Mars Dr. Ari Kristinn Jónsson starfar á rannsóknastöð NASA í Kaliforníu og fylgist spenntur með gangi mála á Mars. Björn Jóhann Björnsson sló á þráðinn til Ara og forvitnaðist um þátt hans í geimferðunum. bjb@mbl.is Reuters Svona líta ómönnuðu geimförin út, Spirit og Opportunity, sem eiga að ferðast um reikistjörnuna Mars næstu vikurnar og safna upplýsingum fyrir vísindamenn NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar. Á VÍSINDAVEF Háskóla Ís- lands svarar dr. Ari Kristinn m.a. þessu við spurningu ungs manns um hvað gervigreind sé: „Í tölvunarfræði er gervi- greind rannsóknarsvið þar sem leitast er við að þróa aðferðir sem gera tölvum kleift að skilja upplýsingar og nota þær til að taka ákvarðanir, svipað og mannfólkið gerir. Í grófum dráttum má skipta grunnrannsóknum í gervigreind í tvo hluta sem eru þó nátengdir. Annar, sem segja má að samsvari rök- rænni hugsun, snýst um hvernig sé best að geyma þekkingu í tölvum þannig að þær geti notað þessa þekkingu til að leysa verkefni, taka ákvarðanir og bæta við þekkinguna. Hinn snýst um það hvernig tölva getur skynjað umhverfi sitt, þar með tal- ið mannfólk, og bætt þannig við þekkingu sína.“ Dr. Ari Kristinn Jónsson Hvað er gervigreind? Ljósmynd/Jón Karl Snorrason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.