Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 25
Verðlaun
veitt fyrir
snyrti-
mennsku
Meðalland | Jólin eru nýliðin,
hvít jól eins og flestum þykir
viðeigandi. Nokkuð góð veðr-
átta. Á jólunum var messað í öll-
um kirkjum sveitarinnar sem
eru 5 í Skaftárhreppi. Einnig
var aðventukvöld og jólatrés-
skemmtanir.
Í fyrsta skipti veitti Skaftár-
hreppur viðurkenningu fyrir
snyrtilegasta býlið og snyrtileg-
ustu lóðina á Klaustri. Snyrti-
legasta sveitabýlið var Syðri
Fljótar í Meðallandi en þar hafa
búið síðan 1998 þau Kristín Lár-
usdóttir og Guðbrandur Magn-
ússon. Tel ég þau vel að því
komin. Þar hafa verið endurnýj-
aðar byggingar og girðingar og
er verið að leggja lokahönd á
byggingu hesthúss. Meira að
segja eru ljósker á uppistöðum
við gangstéttarbrúnir á tvo vegu
kringum íbúðarhúsið líkt og
komið sé í álfheima samkvæmt
gömlum lýsingum.
Jóhanna Friðriksdóttir og
Ragnar Pálsson Skerjavöllum 4
á Kirkjubæjarklaustri fengu
viðurkenningu fyrir snyrtileg-
asta garðinn og góða umgengni.
Þau hafa búið þar frá 1977.
Nýir vegir lagðir
Í nóvember var gerður vegur
sem á að vera fær fólksbílum
suður að Alviðruhamravita í
Álftaveri. Einnig má geta þess
að í fyrra var lagfærður jeppa-
vegur að Skarðsfjöruvita í Með-
allandi. Vantar lítið á að hann sé
fær öllum fjórhjóladrifsbílum en
það er nauðsynleg að jepplingar
komist á fjörurnar. Eitt af því
vinsælasta hjá ferðafólki er að
komast á fjörurnar í góðu veðri.
Stykkishólmur | Tónleikar voru
nýlega haldnir í Stykkishólms-
kirkju undir yfirskriftinni „Ég
söng þar út öll jól“. Það voru kór
Stykkishólmskirkju og Tónlist-
arskólinn í Stykkishólmi sem
stóðu fyrir tónleikunum. Eins og
yfirskriftin ber með sér vísuðu
lögin til jólanna og þrettándans.
Friðrik Stefánsson orgelleikari
kom úr Grundarfirði og lék org-
elverk Johanns Sebastians Bach.
Að öðru leyti var dagskráin flutt
af heimamönnum.
Öflugt tónlistarlíf
í Stykkishólmi
Í Stykkishólmi er öflugt tónlist-
arlíf sem skilaði sér í fjölbreyttri
og skemmtilegri dagskrá. Kór
Stykkishólmskirkju söng undir
stjórn Jóhönnu Guðmundsdóttur
og eldri barnakórinn, Þrumurnar,
söng undir stjórn Sigrúnar Jóns-
dóttur. Dúett sungu Sigrún Jóns-
dóttir og Hólmfríður Friðjóns-
dóttir og einnig söng kvartettinn
Smaladrengirnir nokkur lög.
Leikin voru verk á þverflautur og
píanó.
Tónleikarnir voru haldnir til að
afla fjár fyrir orgelsjóð kirkj-
unnar. Í Stykkishólmskirkju er
gamalt orgel, sem var áður notað
í gömlu kirkjunni. Það er von
Hólmara að áður en langt um líð-
ur verði hægt velja nýtt orgel
sem hæfir nýrri og stórri kirkju
sem hefur góðan hljómburð.
Þennan dag var kórstjórinn Jó-
hanna Guðmundsdóttir fimmtug
og fékk hún þessa tónleika sem
ábót á afmælisdaginn. Jóhanna
hefur búið í Stykkishólmi frá
árinu 1977 og hefur verið öflug í
tónlistarlífi bæjarins.
Tónleikar fyrir orgelsjóð kirkjunnar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Kór Stykkishólmskirkju og barnakórinn Þrumurnar á tónleikum til styrktar orgelsjóði kirkjunnar.
Vestmannaeyjar | Íþróttamaður
ársins í Vestmannaeyjum árið 2003
hefur verið valinn. Fyrir valinu
varð fyrrverandi fyrirliði ÍBV í
handknattleik kvenna, Ingibjörg
Jónsdóttir. Er þetta í annað skiptið
sem hún verður fyrir valinu.
Ingibjörg var fyrirliði ÍBV á síð-
asta tímabili, sem var eitt glæsileg-
asta í sögu kvennahandknattleiks í
Eyjum þar sem liðið varð Íslands-
meistari, meistarar meistaranna,
deildarmeistarar og komust í úrslit
bikarkeppninnar. Var hún sterkur
leiðtogi bæði innan vallar og utan
og afburða leikmaður. Var hún
meðal annars kosin varnarmaður
ársins á síðasta tímabili á lokahófi
HSÍ.
Hin unga og bráðefnilega knatt-
spyrnukona Margrét Lára Viðars-
dóttir var kjörin íþróttamaður æsk-
unnar í Eyjum og var þetta í fyrsta
sinn sem sá titill var afhentur.
Eygló Kristinsdóttir var valin
starfsmaður ársins en hún hefur
um árabil staðið í fremstu röð í ráð-
um kvennahandknattleiks.
Önnur verðlaun voru:
Robert Bognar – handknattleiks-
maður ársins, Ingibjörg Jónsdóttir
– handknattleikskona ársins, Birkir
Kristinsson – knattspyrnumaður
ársins, Karen Burke – knattspyrnu-
kona ársins, Birgitta Ósk Valdi-
marsdóttir – fimleikamaður ársins,
Eva Ösp Örnólfsdóttir – sundmaður
ársins, Tryggvi Hjaltason – frjáls-
íþróttamaður ársins, Hlynur Stef-
ánsson – knattspyrnumaður ársins
hjá KFS, Páll Sigurðsson – hnefa-
leikamaður ársins og Guðríður
Haraldsdóttir – íþróttamaður árs-
ins hjá Rán, íþróttafélagi fatlaðra.
Ingibjörg Jóns-
dóttir íþróttamað-
ur ársins í Eyjum
Leiðtogi: Ingibjörg Jónsdóttir
hlaðin verðlaunum á upp-
skeruhátíð í Eyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Föngulegur hópur: Íþróttamennirnir sem hlutu verðlaun í Vestmannaeyjum fyr-
ir framgöngu sína í hinum ýmsu greinum á síðasta ári.