Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 11
GRUNNDRÆTTIR samningsins
milli sérgreinalækna og heilbrigðis-
yfirvalda, sem skrifað var undir á
þriðjudag og samþykktur var í at-
kvæðagreiðslu í Læknafélagi
Reykjavíkur síðar um kvöldið, eru
frá árinu 1998. Hann hefur síðan ver-
ið framlengdur nokkrum sinnum,
síðast í ágúst árið 2002 og gilti það
samkomulag til loka síðasta árs. Í
samningaviðræðunum við lækna var
hart tekist á um heimildir lækna til
þess að meðhöndla sjúklinga utan al-
mannatryggingakerfisins og þá um
leið við hvaða verði sú þjónusta yrði
seld. Þá hafa menn sömuleiðis velt
vöngum yfir því hvað það muni þýða
að sérgreinalæknar geti nú sagt sig
af samningi við TR með eins mán-
aðar fyrirvara til að starfa í tvo mán-
uði utan kerfisins.
Í sem stystu máli, og eins og fram
kemur í rammanum hér til hægri, má
segja að fjórar meginbreytingar hafi
verið gerðar á samningnum við sér-
greinalækna. En auk þess voru sett
skýr samningsákvæði um það þegar
læknir tekur sjúkling utan kerfis. Þá
er kveðið á um að ein samráðsnefnd
verði starfandi í stað samráðsnefnd-
ar fyrir hverja sérgrein eins og áður
var.
Einingaverð hækkað
um 29% frá árinu 1998
Árið 1998 var svokallað eininga-
verð fyrir þjónustu sérfræðilækna
160 krónur, það var komið í 194 krón-
ur árið 2002, 200 krónur í fyrra en
verður 206 krónur á þessu ári.
Hækkunin frá 1998 er tæp 29% en á
sama tímabili hækkaði launavísitalan
um ca 44% og vísitala neysluverðs
um liðlega 26%. Að þessu leyti hafa
sérgreinalæknar ekki náð fram
hækkunum til jafns við aðra á vinnu-
markaði en rétt er að taka fram að
gengið er út frá því að helmingur ein-
ingaverðs sé vegna launakostnaðar
lækna. Þá er rétt að hafa í huga að
með lækkun tekjuskatts á fyrirtæki
og með breytingum sem gerðu
mönnum auðveldara um vik að færa
einkarekstur undir merki einka-
hlutafélaga hefur skattbyrði lækna
lækkað. Fyrir liggur að TR semur nú
við mun fleiri aðila sem bera eftir-
nafnið ehf. og læknar draga ekki dul
á að skattaumhverfið sé þeim hag-
felldara. Aftur á móti er nokkuð ljóst
að rekstur læknastöðva, sem eru
með marga heilbrigðisstarfsmenn í
vinnu, hefur orðið þyngri þar sem
einingaverðið hefur hækkað mun
minna en laun starfsmannanna.
Óánægja hóps lækna með 3%
hækkun á einingaverðinu skýrist
m.a. af þessu.
Í fyrri samningi var sameiginlegur
afsláttur fyrir hverja sérgrein sem
kom illa við þá lækna sem voru með
tiltölulegan lítinn rekstur en lentu í
að greiða afslátt vegna aukinna um-
svifa annarra sérfræðinga í sömu
grein. Þetta lá oft ekki fyrir fyrr en
nokkru eftir hver áramót og gátu
þessir læknar því lent í að fá sendan
reikning frá TR í febrúar. Í samn-
ingnum nú var sameiginlegi afslátt-
urinn felldur út þannig að nú greiða
læknar persónubund-
inn afslátt eftir magni.
Er í því miðað við um-
svifin árin á undan.
Kemur þetta væntan-
lega einkum þeim
læknum til góða sem
eru með svipaðan
rekstur frá ári til árs en
þeir sem auka umsvifin
lenda þá einkum í af-
slætti. Sérstakt ákvæði
er þó um að TR geti
beitt heildarafslætti ef
útlit er fyrir að heildar-
einingafjöldi fari fram
úr því sem samið var
um.
TR greiðir 80% af
sjúklingatryggingu
Læknar hafa til þessa greitt svo-
kallaða sjúklingatryggingu sem
tryggir sjúklinga ef upp koma afleið-
ingar af sjúkdómsmeðferð sem ekki
er hægt að kenna neinum um.
Læknar hafa ekki verið alls kostar
ánægðir með þetta og vísað til þess
að læknar sem starfi á spítölunum
þurfi ekki að greiða slíka tryggingu,
ríkið sé þar í ábyrgð. Heilbrigðisyf-
irvöld hafa fram til þessa talið þetta
eðlilegan hluta af rekstrarkostnaði
læknanna.
Í samningnum nú er kveðið á um
að TR greiði 80% af iðgjöldum þess-
ara trygginga og eftir því sem næst
verður komist hleypur kostnaður TR
vegna þessa á bilinu 20 til 25 millj-
ónir króna. Í síðasta en ekki sísta lagi
er svo ákvæðið um að læknar geti
sagt sig af samningi með mánaðar
fyrirvara til að starfa í tvo mánuði ut-
an kerfis, þ.e. útgönguákvæði. Sam-
kvæmt samningnum geta þeir síðan
komið aftur inn í kerfið án þess að
þurfa að lenda á biðlista með sér-
greinalæknum sem vilja komast á
samning við TR. Uppsagnarfrestur
TR gagnvart læknum verður hins
vegar áfram þrír mánuðir.
Eins og greina má af ummælum
formanns Læknafélagsins og skrif-
stofustjóra heilbrigðisráðuneytisins
ríkir töluverð óvissa um að hve miklu
leyti læknar muni eða geti nýtt sér
þetta ákvæði. Greinilegt virðist að
læknar gera sér meiri væntingar í
því sambandi en heilbrigðisyfirvöld.
Skýr skilyrði fyrir að taka
sjúkling utan kerfis
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
skrifstofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, sem sat í
samninganefnd heilbrigðisyfirvalda,
segir að sem fyrr sé kveðið á um að
sjúkratryggðum einstaklingi sé
heimilt að óska eftir því að læknir
taki hann til meðferðar án greiðslu-
þátttöku ríkisins. Mörg rök liggi til
þess að halda þeim möguleika opn-
um. En Jón segir að breytingin frá
ákvæðinu um þetta atriði í fyrri
samningi, sem m.a. Hæstiréttur hafi
fjallað um, sé sú að nú sé búið að
setja í samningsákvæðið mjög skýr
skilyrði fyrir því þegar læknir taki
sjúkling til meðferðar á þennan hátt.
Mjög skýrt sé kveðið á um skilyrði
fyrir því að læknir á samningi taki
við fullum greiðslum sjúklings fyrir
meðferð.
„Það er kveðið á um það að þetta
megi einungis gera að ósk sjúklings
og þá skriflega, þetta megi ekki gera
til þess að taka sjúklinga fram fyrir í
biðröð. Eins að ekki megi nota aðrar
upphæðir í greiðslu milli læknis og
sjúklings en þær sem samið hefur
verið um milli TR og Læknafélagsins
auk þess sem læknirinn verður jafn-
framt að bjóða sjúklingnum upp á
læknismeðferð með greiðsluþátttöku
TR. Þessi atriði voru öll afar mik-
ilvæg að okkar mati,“ segir Jón Sæ-
mundur.
Ekki ástæða til að ætla að
margir segi sig af samningi
Spurður um eins mánaðar upp-
sagnarákvæði sérgreinalækna á
samningi til að starfa utan kerfis seg-
ist Jón Sæmundur ekki telja ástæðu
til að hafa áhyggjur af því að það
muni gerast í stórum stíl.
„Við erum með tvö mikilvæg
ákvæði í samningnum vegna upp-
sagna á samningi. Í fyrsta lagi að
tryggt sé að hægt sé að þjóna sjúk-
lingum innan almannatrygginga-
kerfisins í þeirri grein sem læknir
sem vill segja sig af samningi starfar.
Það verður samráðsnefnd lækna-
félagsins og TR að meta hverju sinni
en í henni sitja tveir menn frá hvor-
um aðila. Í þessu felst veruleg trygg-
ing. Ég tel að girðingarnar hvað
þetta atriði varðar séu það sterkar að
heilbrigðisráðherra geti með sanni
sagt að kerfið er eitt.“
Spurður um breytingar á afslátt-
arkjörum sérgreinalækna segir Jón
Sæmundur að áherslan hafi fram til
þessa einkum verið á „kollektífan“
afslátt eða heildarafslátt. Hann sé
helsta vörn heilbrigðisyfirvalda fyrir
því að halda sig innan ramma fjár-
laga.
„Þessi aðferð hefur þó haft þau
áhrif á þá lækna sem eru með tiltölu-
legan lítinn rekstur að þeir hafa lent í
afslætti vegna þeirra sem eru af-
kastamiklir. Þess vegna var orðið við
þeirri kröfu lækna að miða afsláttinn
við hvern lækni fyrir sig en við erum
enn með þær girðingar að ef við
sjáum að það stefnir greinilega í um-
framútgjöld höfum við heimild til að
beita heildarafslættinum. Aðilar hafa
samt skuldbundið sig til að vinna að
afsláttarkerfi sem verði eingöngu
persónubundið án þess að þjónustu-
kaup TR fari fram úr fjárveitingum,“
segir Jón Sæmundur.
Útgönguákvæði og persónu-
bundinn afsláttur réðu úrslitum
Gunnar Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Læknafélags Íslands,
segir samspilið á milli uppsagnar-
tíma eða útgönguákvæðis, þ.e. að
menn geti farið út fyrir kerfið með
mánaðar fyrirvara, og þær breyting-
ar sem gerðar voru á afsláttar-
kerfinu hafa ráðið úrslitum.
„Í reynd var það þetta sem varð til
þess að menn náðu saman.“
Gunnar segir lækna ekki hafa ver-
ið yfir sig káta með 3% hækkun, hafi
fundist hún vera frekar lág.
Hann segir að þar sem afsláttur
verði nú persónubundinn verði út-
gönguákvæðið möguleiki fyrir lækna
sem sjá fram á að þurfa að greiða
mikinn afslátt, t.d. í lok árs, þeir geti
nú valið um það að fara út fyrir kerf-
ið. „Þá hefur sjúklingurinn val um
það að fylgja lækninum og fara út
fyrir kerfið og greiða úr eigin vasa
eða bíða eftir því að læknirinn komi
aftur inn í kerfið eftir tvo mánuði eða
að leita til annars sérfræðings í sömu
sérgrein.“
Gunnar segir að með því að taka
upp persónubundinn afslátt eigi sú
staða ekki að þurfa að koma upp að
heil sérgrein vilji eða þurfi að fara út
fyrir kerfið heldur bara þeir læknar
sem komnir eru í hærri afsláttar-
mörk. Þeir sem eru á lægri afslátt-
arkjörum verði áfram inni í kerfinu.
Gunnar segir nær ómögulegt að
segja fyrir um það hversu margir
læknar muni nýta sér útgöngu-
ákvæðið, það ráðist m.a. af eftir-
spurn eftir þjónustu einstakra sér-
greina.
„Það góða í þessu samkomulagi er
að það ná allir fram eitthvað af sínum
áhersluatriðum. Ráðherra verndar
almannatryggingakerfið og að ekki
sé í gangi tvöfalt kerfi, þ.e. að menn
séu ekki að veita þjónustu bæði inn-
an og utan kerfis á sama tíma.
Læknar hafa tiltölulega einfalda leið
til að fara út fyrir kerfið og geta kom-
ið inn í það aftur og sjúklingar hafa
þá raunverulegt val,“ segir Gunnar.
Fréttaskýring | Afsláttur sérgreinalækna persónubundinn og þeim mögulegt að starfa utan kerfis
Óvissa um hve marg-
ir læknar muni nota
sér útgönguákvæði
Jón Sæmundur
Sigurjónsson
Gunnar
Ármannsson
+ *&
,
%
&
-
%
&
!
&
.
%
&
/
*
.
/0
"
&
Samningur sérgreinalækna við TR liggur fyrir. Arnór Gísli Ólafs-
son kynnti sér helstu breytingarnar og ræddi við Jón Sæmund Sig-
urjónsson, skrifstofustjóra í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu,
og Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóra Læknafélags Íslands.
HAGDEILD ASÍ gerir ráð fyrir
góðum hagvexti í ár og á næsta ári
eða 5,7% og 4,6% árið 2005 og segir
því nokkuð bjart vera framundan á
næstu tveimur árum.
Það er hins vegar mat ASÍ að ekki
séu horfur á að rofa muni verulega til
á vinnumarkaði; í spánni er raunar
reiknað með að atvinnuleysi verði ör-
litlu meira í ár en í fyrra eða 3,7% á
móti 3,5% í fyrra.
Einstaklingum án atvinnu mun
fjölga árin 2004 og 2005
Á morgunverðarfundi ASÍ þar
sem spáin var kynnt sagði Gylfi Arn-
björnsson, framkvæmdastjóri sam-
takanna að 3,5–3,7% atvinnuleysi á
næstu þremur árum reiknaðist af
stærri vinnumarkaði, m.a. vegna
innkomu fjölmargra erlendra starfs-
manna. „Við erum að spá því að það
verði fleiri einstaklingar atvinnu-
lausir á árinu 2004 en 2003 og líka ár-
ið 2005 miðað við árið 2004,“ sagði
Gylfi.
ASÍ telur, öfugt við t.d. Seðla-
banka og fjármálaráðuneytið, að
ekki verði nein veruleg breyting til
batnaðar á árinu 2005 og að atvinnu-
leysi verði þá meira en í fyrra eða
3,6%. Ástæða þessa er að mati ASÍ
m.a. aukin ruðningsáhrif af styrk-
ingu krónunnar og háum vöxtum. Þá
bendir ASÍ á að í nýlegri könnun
Samtaka atvinnulífsins hafi komið
fram að þorri fyrirtækja hyggist
halda að sér höndum við mannaráðn-
ingar á næstu mánuðum og 26%
stærri fyrirtækja ráðgeri að fækka
starfsfólki. Þá bendir Hagdeild ASÍ
einnig á að hlutfall erlendra starfs-
manna við stóriðjuframkvæmdir
verði hærra en upphaflega var gert
ráð fyrir og því verði áhrif fram-
kvæmdanna á vinnumarkaðinn
minni en vonir stóðu til.
Ganga út frá stækkun
Norðuráls
Þegar fjárlagafrumvarp þessa árs
var kynnt var gert ráð fyrir að at-
vinnuleysi myndi verða 2,5% í ár og
minnka enn frekar árið 2005. Í þessu
sambandi ber að hafa í huga að mun-
urinn á spá ASÍ og fjármálaráðu-
neytisins er þeim mun meiri þar sem
ASÍ gerir ráð fyrir stækkun Norður-
áls en ráðuneytið gerir það ekki í
langtímaspá sinni en spáir engu að
síður mun minna atvinnuleysi.
Í nýrri þjóðhagsspá, sem fjár-
málaráðuneytið birti í gær, er gert
ráð fyrir að atvinuleysið verði um 3%
að meðaltali í ár og fari minnnkandi
og verði 2,75% 2005 og er sem fyrr
ekki gengið út frá stækkun Norður-
áls.
Seðlabankinn taldi í spá sinni í
nóvember að atvinnuleysið myndi
fara niður fyrir 3% í ár og niður fyrir
2,5% árið 2005 og tók þá heldur ekki
mið af stækkun Norðuráls.
Hagdeild ASÍ áætlar að skamm-
tímavextir verði að meðaltali 6,6% í
ár og segir að gera megi ráð fyrir
hækkun stýrivaxta Seðlabankans
þegar á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Vegna innstreymis erlends fjár í
tengslum við stóriðjuframkvæmdir
en eins vegna fyrirséðra vaxtahækk-
ana Seðlabankans megi gera ráð fyr-
ir að gengi íslensku krónunnar
styrkist nokkuð á árinu en draga
muni úr styrkingunni og krónan
muni heldur veikjast á síðasta fjórð-
ungi ársins.
!
"
#
$
%&'
%%'
&('
)%%
&'
Spá viðvarandi atvinnu-
leysi á hagvaxtartímum