Morgunblaðið - 30.01.2004, Blaðsíða 14
NÚ fær kristið fólk loksins stað til að stripl-
ast á því fyrsta kristilega nektarnýlendan
verður opnuð á Flórída í apríl. Í nýlendunni
verða 500 heimili, hótel, vatnsrenni-
brautagarður og kirkja. Þrátt fyrir að það
sé skylda að vera alltaf nakinn mega íbú-
arnir klæðast fötum í messu ef þeir vilja, að
sögn Bill Martin, eins stofnanda nýlend-
unnar. Hann segir að í Biblíunni sé víða tal-
að um nekt og söguleg fordæmi séu fyrir
því að kristnir striplist t.d. hafi Guð skipað
Jesaja að dvelja nakinn í óbyggðum í þrjú
ár. „Kristnir bókstafstrúarmenn og Suð-
urríkja-babtistar verða ef til vill ósáttir við
okkur, en ég er sko til í að hitta þá hvenær
sem er og ræða við þá um nekt.“
Áhrifarík súpa
DÓMSTÓLL í Palm Beach á Flórída hefur
hafnað kröfu manns sem krafðist 3,8 millj-
óna króna bóta vegna óþæginda sem hann
sagðist hafa orðið fyrir eftir að hafa fengið
ranga súpu á veitingastað árið 1995. Mað-
urinn, Donald Johnson, kvaðst hafa þurft að
leita sér læknishjálpar vegna ofnæm-
isviðbragða eftir að hann borðaði skel-
fisksúpu í stað kartöflusúpunnar sem hann
pantaði. Segist hann hafa haft svefntruflanir
og átt við sálræn vandamál að stríða síðan
hann át súpuna.
Sígarettuverk-
smiðjan dulbúin
KÍNVERSKA lögreglan varð heldur betur
undrandi á dögunum er hún fann sígar-
ettuverksmiðju sem var dulbúin sem fang-
elsi. Á skilti sem var við bygginguna stóð að
þetta væri fangelsi og þeir sem færu þang-
að inn fengju ekki að fara aftur út. Þar var
líka ritað nafn fangelsis sem er raunveru-
lega til en er annars staðar í héraðinu. Inni
fór hins vegar fram stórfelld framleiðsla á
sviknum sígarettum sem seldar voru undir
merkjum þekktra framleiðenda.
Brenndist á rassi í
farsímasprengingu
MALASÍSKUR maður brenndist á rass-
kinnunum þegar farsíminn hans sprakk á
meðan hann svaf, á þriðjudag. Mohamed
Radzuan Yasin var að hlaða símann sinn,
lagði hann á rúmið sitt og fékk sér blund.
Um þremur tímum síðar vaknaði hann við
lítinn sprengihvell. „Ég brenndist á rass-
kinnunum í sprengingunni og brunamerki
voru á dýnunni og veggjunum. Ég vissi í
fyrstu ekki hvað hafði sprungið en svo sá ég
símann minn í tætlum.“ Radzuan sem er raf-
virki í Kuala Lumpur hafði keypt nýja raf-
hlöðu í símann viku áður.
Vilja úfinn Saddam
ANDLITSGRÍMUR með Saddam Hussein
skeggjuðum og úfnum, eins og hann leit út
eftir að hann var dreginn upp úr holunni í
desember, rokseljast í Ríó de Janero þessa
dagana þar sem verið er að undirbúa hina
árlegu kjötkveðjuhátíð. „Ræfilslegur Sadd-
am er dýrasta gríman því það þarf mikið
hár á hana,“ segir Armando Valles sem á
grímugerðarverksmiðju í Ríó. Þeir sem
vilja spara verða að láta sér lynda grímur
þar sem einræðisherrann er virðulegri, og
meira í ætt við myndir frá forsetatíð hans.
Osama bin Laden er einnig vinsæll en þetta
árið seljast grímur með þeim kumpánum
mun betur en hefðbundnar varúlfa-, djöfla-
og King Kong-grímur, að sögn Valles.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Kristileg
nektarnýlenda
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
PALESTÍNSKUR tilræðismaður varð sjálfum
sér og tíu öðrum að bana með öflugri sprengju
í strætisvagni skammt frá embættisbústað Ar-
iels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, í Jerú-
salem í gærmorgun. 48 til viðbótar særðust,
þar af þrettán alvarlega.
Árásin var gerð skömmu fyrir kl. níu að
staðartíma, kl. sjö að íslenskum tíma, um
hundrað metra frá embættisbústað Sharons
við Gaza-stræti í Jerúsalem. „Þetta var mjög
stór og öflug sprengja,“ sagði Gil Kleiman,
talsmaður lögreglu borgarinnar. „Stykki úr
þaki strætisvagnsins fundust á þaki tveggja
hæða byggingar og líkamshlutar feyktust inn á
heimili fólks.“
Um helmingur þaks strætisvagnsins rifnaði
af og afturhlutinn eyðilagðist, aðeins grindin
var eftir. „Fólk feyktist mjög langt í burtu, út
um glugga eða þakið,“ sagði Eli Beer, sem
stjórnaði björgunarstarfinu.
Sharon var ekki í embættisbústaðnum og
talið var að hann hefði dvalið á búgarði sínum í
Negev-eyðimörkinni. Ranaan Gissin, talsmað-
ur forsætisráðherrans, sagði að tilræðið sýndi
þörfina á umdeildum aðskilnaðarmúr sem Ísr-
aelar eru að reisa á Vesturbakkanum. „Þetta
hryðjuverk er besta röksemdin sem við getum
notað til að verja rétt okkar til sjálfsvarnar,“
sagði Gissin.
David Baker, embættismaður í forsætis-
ráðuneytinu, sagði að árásin sannaði að palest-
ínska heimastjórnin hefði „alls ekkert gert til
að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi“. „Ísr-
aelar eiga einskis annars úrkosti en að vera
óhagganlegir í stríðinu gegn hryðjuverkastarf-
semi.“
Al Aqsa píslarvottasveitirnar, sem tengjast
Fatah-hreyfingu Yassers Arafats, leiðtoga Pal-
estínumanna, lýstu tilræðinu á hendur sér. 24
ára lögreglumaður í Ayda-flóttamannabúðun-
um á Betlehem-svæðinu er sagður hafa gert
árásina.
Daginn áður biðu átta Palestínumenn bana í
árás ísraelskra hermanna í Al-Zeitun, nálægt
Gaza-borg. Sumir Palestínumannanna virtust
hafa verið skotnir í hnakkann með einu skoti af
stuttu færi, að sögn lækna sem skoðuðu líkin.
Einn forystumanna samtakanna Íslamskt jí-
had, Mohammad al-Hindi, sagði að Ísraelar
bæru ábyrgð á sprengjutilræðinu í Jerúsalem.
„Enginn fordæmdi fjöldamorðið í Al-Zeitun en
í dag heyrum við fordæmingar úr öllum áttum
og kröfur um að ráðist verði á andspyrnu-
hreyfingarnar,“ sagði al-Hindi.
Einn leiðtoga Hamas-samtakanna sagði að
tilræðismaðurinn í Jerúsalem hefði verið að
„verja réttindi palestínsku þjóðarinnar“.
„Þessi árás er lögmætt svar við fjöldamorðum
Ísraela, meðal annars í Al-Zeitun.“
Ahmed Qorei, forsætisráðherra Palestínu-
manna, fordæmdi sprengjutilræðið en gagn-
rýndi einnig „ofbeldið sem beinist að palest-
ínsku þjóðinni“.
Að minnsta kosti 3.727 manns, flestir þeirra
Palestínumenn, hafa látið lífið í átökum Ísraela
og Palestínumanna frá september 2000.
Mannskæð sprengjuárás
nálægt bústað Sharons
Jerúsalem. AFP.
Reuters
Ísraelar við flak strætisvagns sem eyðilagðist í sprengjutilræði Palestínumanns í Jerúsalem.
!
8
$
!
& "9
4
9
:
4
.
BRIAN Hutton lávarður sætti í
gær harkalegri gagnrýni úr mörg-
um áttum fyrir að hafa „hvítþveg-
ið“ ríkisstjórn Tonys Blairs, for-
sætisráðherra Bretlands, en fundið
alvarlega bresti í starfsaðferðum
breska ríkisútvarpsins, BBC, þeg-
ar hann vann skýrslu sína um at-
burðarásina sem leiddi til sjálfsvígs
vopnasérfræðingsins Davids
Kellys í fyrra.
Á miðvikudaginn birti Hutton
niðurstöður sínar og segir í þeim að
Blair og aðstoðarmenn hans hafi
ekki aðhafst neitt aðfinnsluvert en
BBC hafi farið rangt með þegar
sagði í frétt þess í maí í fyrra að
breska stjórnin hefði breytt
skýrslu um meinta gereyðingar-
vopnaeign Íraka til að gera hana
„meira æsandi“ og réttlæta þannig
aðild Breta að herförinni til Íraks.
Kelly var sagður heimildarmaður
útvarpsins fyrir fréttinni.
Sjálfur var Hutton í gær ýmist
gagnrýndur fyrir að hafa skilgreint
hlutverk sitt of þröngt eða að hafa
ekki gætt jafnræðis. Robin Cook,
fyrrverandi ráðherra í stjórn
Blairs, sem sagði af sér vegna
þeirrar ákvörðunar stjórnarinnar
að taka þátt í herförinni, sagði
gamansamur við blaðið The Indep-
endent: „Verði ég einhverntíma
ákærður fyrir alvarlegan glæp ætla
ég að panta Hutton lávarð sem
dómara.“
Cook sagði ennfremur, að Hutt-
on, sem væri „ávallt vandfýsinn“,
hefði haft „svo óaðfinnanlega sönn-
unarviðmiðun“ að óhjákvæmilegt
hefði verið að hann hreinsaði for-
sætisráðherrann af öllum ásökun-
um.
„Bjarnargreiði“
Ýmis bresk dagblöð tóku niður-
stöðum Huttons háðslega. „Heilag-
ur Tony – Hutton skrúbbar Blair
hvítari en hvítt,“ sagði á forsíðu
Daily Express, þar sem einnig var
mynd af forsætisráðherranum með
geislabaug yfir höfðinu.
Í Daily Mail sagði íhaldssinnaður
dálkahöfundur, Max Hastings, að
skýrsla Huttons væri „mikill bjarn-
argreiði við bresku þjóðina“. Hutt-
on hefði lagt fram „328 blaðsíður af
ástæðum fyrir því að færa forsætis-
ráðherranum aftur uppáhalds höf-
uðfatið hans, kórónu siðapostul-
ans“.
Boris Johnson, þingmaður
Íhaldsflokksins og ritstjóri tíma-
ritsins Spectator, sagði: „Þetta er
alveg ótrúlegt. Blair er eins og
blanda af Harry Houdini og olíu-
bornum grís … Að ætla sér að hafa
hendur í hári hans er eins og að
reyna að negla búðing upp á vegg.“
Í grein sem blaðamaðurinn Paul
Routledge skrifaði í Daily Mirror
var Hutton m.a. sakaður um að
hafa „hvítþvegið valdastéttina“ svo
„dauninn legði af“. Niðurstaða
Huttons „veldur mér flökurleika,
líkt og manni sem brotið hefur ver-
ið á en veit að réttlætið nær aldrei
fram að ganga“.
Daily Express sagði að með
„hvítþvotti“ sínum hefði Hutton
látið ýmsum spurningum ósvarað,
eins og til dæmis þeirri hvort það
hafi verið réttmætt af stjórn Blairs
að taka þátt í herförinni í ljósi þess
að engin gereyðingarvopn séu í
Írak.
Í forsíðugrein með hvítri eyðu
þar sem undir venjulegum kring-
umstæðum hefði verið ljósmynd
spurði The Independent hvort
skýrsla Huttons hefði verið „hvít-
þvottur á valdastéttinni“. Sagði
blaðið það „athyglisvert hve ein-
hliða“ niðurstöður lávarðarins
væru, og þær hefðu rennt frekari
stoðum undir réttmæti kröfunnar
um „óháða rannsókn á þeim brest-
um í leyniþjónustu er urðu til þess
að landið var dregið út í óréttmætt
stríð“.
The Guardian sagði að frétta-
maður BBC, Andrew Gilligan,
hefði „oftar en ekki“ hitt naglann á
höfuðið í fréttaflutningi sínum, og
nú yrði að tryggja að ekki myndu
allir innan stofnunarinnar missa
móðinn. „Fréttamenn BBC verða
að halda rannsóknum sínum áfram,
spyrja áfram óþægilegra spurn-
inga – og halda áfram að valda
vandræðum,“ sagði blaðið.
The Times, Daily Telegraph og
Sun, sem allt eru hægrisinnuð blöð,
hvöttu til afsagnar stjórnanda
BBC, Gregs Dykes, og síðdegis í
gær varð þeim að ósk sinni. Mörg
blöð voru sammála um að Hutton
hefði afhjúpað alvarlega bresti inn-
an BBC, og sagði Sun lávarðinn
hafa leitt í ljós „slóðaskapinn, van-
hæfnina og hrokann“ innan stofn-
unarinnar.
Hutton lávarður harðlega
gagnrýndur fyrir „hvítþvott“
London. AFP.
AP
Skýrsla Huttons lávarðar um nið-
urstöður rannsóknar hans á at-
burðarásinni er leiddi til dauða
dr. Davids Kellys í fyrra.
AP
ÞÁ ER bara að velja sér ræfilslegan
Saddam eða reffilegan Saddam.
Úfinn einræðisherra