Morgunblaðið - 30.01.2004, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
MEG RYAN
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra
„THE PIANO“
JANE CAMPION
Sýnd kl. 9. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur
frábæra dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Stórskemmtileg og sprenghlægileg
gamanmynd með Eddie Murphy
sem kemst í hann krappann ásamt
fjölskyldu sinni þegar þau gista á
gömlu draugasetri!
Sýnd kl. 5.
VG DV
Roger Ebert
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
Sýnd kl. 5.40. B.i. 16.
Erótísk og örgrandi.
Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin.
Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth.
í i
i l f i .
l l f i ili .
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. b.i. 14 ára.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur
frábæra dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
HEIÐA og heiðingjarnir og Hraun!
munu leggja land undir fót um
helgina og leika á Vestfjörðum.
Nánar tiltekið munu sveitirnar
koma við á Krúsinni á Ísafirði á
föstudagskvöldið og Vagninum á
Flateyri á laugardagskvöldið. Sveit-
irnar hyggjast halda svokallað tón-
leika-partí-ball, sem er þannig hátt-
að að kvöldið byrjar á tónleikum en
þróast smám saman yfir í teiti og
loks yfir í fullskapað ball. Aðal-
sprauta Heiðu og heiðingjanna er
Ragnheiður Eiríksdóttir, söngkona
og lagasmiður, sem hefur gefið
mörg skemmtileg lög og starfar
einnig sem næturvörðurinn á Rás 2.
Að sögn Svavars Knúts Krist-
inssonar, söngvara Hrauns!, er
þetta fyrirkomulag tilraun til að
gefa fólki fjölbreyttari skemmt-
unarmöguleika. „Við erum sjálf-
stæðar hljómsveitir að gera okkar
eigin hluti og það vill bara þannig til
að við höfum bæði gaman að því að
leika okkar eigin tónlist og láta fólk
dansa,“ segir Svavar og bætir við að
allir séu velkomnir á tónleika-partí-
böllin, því góð tónlist fari ekki í
manngreinarálit. „Við erum að spila
fyrir ungt fólk á öllum aldri.“
Því má bæta við að bæði Svavar
og Jón Geir, trommari beggja
hljómsveita, eru Vestfirðingar og
þykir þeim afar gaman að fá að
koma heim í heiðardalinn og leika
fyrir gamla sveitunga sína. „Við er-
um ekki í þessu vegna peninganna,
svo mikið er víst,“ segir Svavar og
hlær.
Tónleika-partí-ball
Morgunblaðið/ÓmarHraun!
Morgunblaðið/Sverrir
Heiða.
Heiðingjarnir og Hraun! leika á
Krúsinni á Ísafirði á föstudags-
kvöld kl. 23.00–03.00 og á
Vagninum á Flateyri á Laug-
ardagskvöld frá 23.00–03.00
til Vestfjarða
Heiða og heiðingjarnir og Hraun!
FYRSTU helgina í mars
verður haldin sannkölluð
þungarokksveisla í Reykja-
vík, í sem víðustum skilningi
þess orðs. Það er Þorsteinn
Kolbeinsson, hjá Resting-
mind Concerts, sem stendur
að hingaðkomu sænsku vík-
ingarokksveitarinnar Amon
Amarth sem mun leika á
tvennum tónleikum 5. og 6.
mars. Ekki nóg með það
heldur koma hingað fulltrúar
frá sex þungarokksblöðum,
hvorki meira né minna, en
einnig starfsmenn frá Metal
Blade-útgáfunni, sem er ein
sú stærsta á þungarokkssviðinu, gef-
ur út Amon Amarth en einnig sveitir
eins og Cannibal Corpse, Bolt Thro-
wer, Manowar, Paradise Lost og gaf
fyrirtækið t.d. út fyrstu plötur Slayer.
Blöðin sem hingað koma eru Rock
Hard (þýska og franska útgáfan),
Close Up (Svíþjóð), Metal Hammer
(ítalska útgáfan), Aardschok
(Holland) og Terrorizer frá
Bretlandi, sem er málgagn
nr. 1 hvað þunga-þungarokk
varðar.
Haldnir verða tvennir tón-
leikar með Amon Amarth.
Hinir fyrri verða föstudaginn
5. mars á Grand Rokk og
þeir seinni 6. mars í Tónlist-
arþróunarmiðstöðinni á
Granda.
Á fyrri tónleikunum sjá
Brain Police, Changer og
Múspell um upphitun en á
þeim síðari eru það Andlát,
Dark Harvest og Sólstafir.
Ekkert aldurstakmark er á seinni
tónleikana.
Aðgangseyrir verður 1.200 krónur
á hvort kvöld.
Amon Amarth spilar á Íslandi í mars
Sex þungarokksblöð með í för
Amon Amarth.