Morgunblaðið - 30.01.2004, Side 54
ÍÞRÓTTIR
54 FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
EGGERT Stefánsson, varnarmaðurinn
sterki í úrvalsdeildarliði Fram í knatt-
spyrnu, er kominn til Danmerkur þar sem
hann verður til reynslu hjá danska úrvals-
deildarliðinu OB í Óðinsvéum. Eggert
mætir á sína fyrstu æfingu hjá OB í dag en
liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 34
stig, tólf stigum á eftir toppliði Bröndby.
Til stóð að Eggert færi til OB í byrjun
janúar en þjálfaraskipti hjá félaginu urðu
til þess að för hans var slegið á frest. Egg-
ert hefur mikinn hug á að reyna fyrir sér á erlendri grundu.
Eggert var til reynslu hjá Barnsley, sem Guðjón Þórðarson
er knattspyrnustjóri hjá, í síðasta mánuði og þá hefur hann
verið í sömu erindagjörðum hjá Stoke og Ipswich.
Eggert, sem er 24 ára gamall og hefur leikið 45 leiki með
Fram í úrvalsdeildinni og með yngri landsliðum Íslands, er
bróðir Ólafs Stefánssonar atvinnumanns hjá spænska hand-
knattleiksliðinu Ciudad Real og Jóns Arnórs Stefánssonar
körfuknattleikskappa hjá Dallas.
Eggert til skoðunar
hjá OB í Danmörku
Eggert
GUÐRÚN Jóhannsdóttir og Þorbjörg Ágústs-
dóttir úr Skylmingafélagi Reykjavíkur komust
báðar í átta manna úrslit á alþjóðlegu kvenna-
móti í skylmingum með höggsverði sem haldið
var í Brentwood í Englandi um síðustu helgi.
Guðrún hafnaði í sjötta sæti og Þorbjörg í því
áttunda. Sigríður María Sigmarsdóttir úr
Skylmingafélagi Seltjarnarness endaði í 17. sæti
en þessar þrjár skipa landslið Íslands í greininni.
Allar náðu þær það góðum árangri í riðla-
keppni mótsins að þær sátu hjá í 64 manna úrslit-
um.
Karlalandsliðið keppti á heimsbikarmóti á
sama stað og komust allir þrír íslensku keppend-
urnir, Ragnar Ingi Sigurðsson úr FH og þeir
Andri H. Kristinsson og Hróar Hugosson úr
Skylmingafélagi Reykjavíkur, áfram úr riðla-
keppninni en töpuðu síðan allir í 64 manna úr-
slitum. Ragnar hafnaði í 40. sæti, Andri í 42. og
Hróar í 55. sæti.
Tvær í átta
manna úrslit
26 LEIKJA sigurgöngu Banda-
ríkjamannsins Andre Agassi á opna
ástralska meistaramótinu í tennis
lauk í gær þegar Agassi varð að
játa sig sigraðan gegn Rússanum
unga, Marat Safin, í maraþonvið-
ureign kappanna í undanúrslit-
unum í Melbourne. Viðureignin var
löng og ströng en eftir tæplega
fjögurra klukkustunda leik fagnaði
Rússinn sigri í fimm settum. Hann
vann tvö fyrstu, 7:6 og 7:6, Agassi
hafði betur í næstu tveimur 7:5 og
6:1 en í oddasettinu var Safin sterk-
ari og sigraði, 6:3.
Agassi fagnaði sigri á mótinu ár-
in 2000, 2001 og 2003 en hann gat
ekki keppt árið 2002 vegna meiðsla.
Safin, sem hélt upp á 24 ára af-
mæli sitt á þriðjudaginn með því að
leggja stigahæsta keppenda móts-
ins, Bandaríkjamanninn Andy Rod-
dick gat ekki leynt gleði sinni eftir
að hafa lagt hinn 33 ára gamla
Agassi að velli.
„Ég á varla til orð til að lýsa
hvernig mér líður. Ég trúi þessu
vart ennþá. Sigur minn á Roddick
gaf mér ótrúlegt sjálfstraust og það
hjálpaði mér gríðarlega í leiknum
við Agassi,“ sagði Safin eftir sigur-
inn.
Það verður belgískur úrslita-
leikur í einliðaleik kvenna á morg-
un þegar Justin-Henin Hardanne
og Kim Clijsters leiða saman hesta
sína. Hardenne bar í gær sigurorð
af Fabiolu Zuluaga frá Kólumbíu
6:2 og 6:2 í undanúrslitunum og
Clijsters sigraði Patty Schnyder frá
Bandaríkjunum 6:2 og 7:6. Þetta
verður í þriðja sinn sem þær belg-
ísku eigast við í úrslitaleik á stór-
móti en á opna franska mótinu og á
US Open hafði Hardenne betur.
Sigurganga Agassi stöðvuð
Boðið var upp á sérkennilegar að-stæður þegar Haukar sóttu ÍR-
inga heim í Seljaskóla í gærkvöldi.
Stigataflan virkaði
ekki sem skyldi og
þurftu áhorfendur
og leikmenn því að
sætta sig við að vera
tíma- og skotklukkulausir. Vallar-
starfsmenn kölluðu svo upp stigin
með reglulegu millibili. Þessar að-
stæður virtust falla vel að leik
heimamanna sem náðu góðu forskoti
seint í öðrum fjórðung, voru tíu stig-
um yfir í hálfleik, 48:38, og létu ekki
deigan síga í þeim síðari - öruggur
sigur í höfn, 89:76.
Haukar komust aldrei almenni-
lega í takt við leikinn og bjuggust
greinilega ekki við svo mikilli mót-
spyrnu frá liði ÍR-inga sem vaxið
hefur með hverjum leik. Lykilmenn í
liði Hauka náðu sér ekki á strik og
mikið var um slök skot - af þrjátíu og
tveimur reyndum þriggja stiga skot-
um fóru sex rétta leið.
Eugene Christopher var stiga-
hæstur heimamanna með 23 stig og
næstur kom Ómar Örn Sævarsson
með 20 stig og 10 fráköst. ÍR-ingar
tefldu fram nýjum leikmanni, Maur-
ice Ingram, og skoraði hann fimmtán
stig og tók tólf fráköst - missti bolt-
ann reyndar nokkuð oft en vantar
kannski leikæfingu. Hjá gestunum
stóð einn upp úr slöku liði, Michael
Manciel skoraði 27 stig.
„Við gerðum það sem lagt var upp
með og náðum í tvö dýrmæt stig.
Ingram stóð sig vel, styrkir okkur
vissulega í teignum og losar vel um
framherjana í sókninni. Þannig að ég
er mjög sáttur. Við erum komnir
með alla leikmenn heila á ný og erum
loks á beinni braut. Sigurinn var
okkur nauðsynlegur og við gerðum
vel í kvöld,“ sagði Eggert Maríuson,
þjálfari ÍR-liðsins.
Reynir Kristjánsson, þjálfari
Hauka, var ekki sáttur, hvort sem
var með leikmenn sína eða aðstæð-
urnar.
„Ég bjóst við erfiðum leik, þeir
hafa verið að bæta við sig mannskap
og eru á góðu róli. Við hinsvegar vor-
um ekki tilbúnir í leikinn, vantaði
kraft og áræði. Töpuðum aragrúa af
boltum og gerðum mikið af ódýrum
mistökum. Fengum líka alltof mörg
stig á okkur í fyrri hálfleik, það er
óafsakanlegt að leyfa þeim að skora
næstum fimmtíu stig í einum hálf-
leik. Þeir eru með stórt lið í teignum
og við vorum fullfljótir að skjóta fyr-
ir utan - kannski vegna þess að það
vantaði skotklukku,“ sagði Reynir
Kristjánsson.
Hamar lagði Blika
Hamar lagði Breiðablik, 85:82 íHveragerði í gærkvöldi. Fram-
an af var leikurinn nokkuð jafn en
þegar seig á hann,
náðu heimamenn um
10 stiga forskoti,
sem gestirnir lögðu
hart að sér við að
minnka eftir það. Undir lokin slök-
uðu Hamarsmenn á klónni og Blikar
hleyptu smá spennu í leikinn þegar
þeir minnkuðu muninn í 83:81 þegar
um mínúta var eftir, lengra komust
þeir hins vegar ekki.
„Við spiluðum þennan leik ágæt-
lega en vorum heldur passífir í lokin,
það þýðir ekkert að reyna að halda í
12 stiga forystu og láta það gott
heita. Þá kom nýi Kaninn okkar vel
út, Lavell Owens. Hann er sterkur í
fráköstum, mataði okkur vel og á eft-
ir að auka breidd liðsins til mikilla
muna. Ég held samt að það hafi vant-
að Pétur í lokin til að taka af skarið.
Einnig var gaman að sjá til Faheems
sem var einn besti maður okkar í
kvöld. Við eigum næst við Njarðvík á
útivelli, en ég vona bara að þessari
lægð sem við vorum í í síðustu tveim-
ur leikjum sé lokið og ég efast ekki
um að við séum komnir á beinu
brautina,“ sagði Lárus Jónsson, leik-
stjórnandi og fyrirliði Hamars, en
hann átti mjög góðan leik, skoraði 18
stig og var með 7 stoðsendingar.
Pétur Ingvarsson, þjálfari liðsins
lagði skóna á hilluna fyrir leiknum,
en það varð hann að gera svo að
Hamarsmenn færu ekki yfir launa-
þak KKÍ með tilkomu nýja Banda-
ríkjamannsins. Ekki er hægt að
segja annað en að hann hafi tekið sig
vel út í sparifötunum.
„Við spiluðum lengst af illa í þess-
um leik, ekki nógu vel til að vinna lið
eins og Hamar. Við sýndum hins
vegar karakter og gáfumst ekki upp
og það skilaði okkur því að við áttum
smá möguleika í lokin. Sóknarleikur
okkar var stirður og við gerðum of
mikið af mistökum og spiluðum ekki
saman. Mistök okkar urðu oft til
þess að þeir fengu ódýrar körfur og
það var aðalmunurinn á þessum lið-
um í kvöld,“ sagði Jón Arnar Ingv-
arsson, þjálfari Breiðabliks eftir
leikinn.
Hjá gestunum var Mirko Virijevic
þeirra langbesti maður með 26 stig
og 12 fráköst. Þá stóð Loftur Ein-
arsson vaktina vel í vörn en varð fyr-
ir því að fara út með 5 villur rétt fyrir
leikslok. Hjá Hamar var Lárus
þeirra besti maður, og Faheem Nel-
son náði sér loksins á strik undir
körfunni, tók alls 16 fráköst og skor-
aði 13 stig. Þá áttu þeir Marvin
Valdimarsson og Chris Dade einnig
góðan dag með sín 17 stig hvor.
„Erum loks á
beinni braut“
HAMARSMENN úr Hveragerði skelltu sér upp við hlið Hauka í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik karla, Intersportdeildinni, í gærkvöldi
þegar þeir lögðu Breiðablik 85:82 í Hveragerði á sama tíma og ÍR-
ingar lögðu Haukamenn 89:76 í Seljaskóla. Leik KR og KFÍ var
frestað vegna ófærðar, en Ísfirðingar komust ekki suður.
Andri
Karl
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Grindavík: UMFG - Tindastóll.............19.15
Keflavík: Keflavík - UMFN .................19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. - Snæfell...............19.15
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan - Valur ..................19.15
Grindavík: ÍG - Þór A............................21.15
KNATTSPYRNA
Iceland Express Cup:
Egilshöll: Keflavík - ÍA..............................18
Egilshöll: KR - Örgryte .............................20
BLAK
1. deild kvenna:
KA-heimili: KA - HK.............................20.30
Í KVÖLD
HANDKNATTLEIKUR
EM karla í Slóveníu
MILLIRIÐILL 1
Sviss - Danmörk ............................... 20:34
Svíþjóð - Spánn................................. 29:28
Rússland - Króatía ........................... 24:24
Lokastaðan:
Króatía 5 4 1 0 138:131 9
Danmörk 5 4 0 1 153:125 8
Rússland 5 3 1 1 149:137 7
Svíþjóð 5 2 0 3 145:144 4
Spánn 5 1 0 4 134:142 2
Sviss 5 0 0 5 115:153 0
MILLIRIÐILL 2
Tékkland - Serbía-Svartfjallaland .. 30:37
Ungverjaland - Þýskaland............... 23:28
Slóvenía - Frakkland........................ 27:22
Lokastaðan:
Þýskaland 5 3 1 1 151:131 7
Slóvenía 5 3 1 1 144:135 7
Frakkland 5 2 1 2 134:129 5
Serbía-Svartfj. 5 2 1 2 134:135 5
Ungverjaland 5 1 2 2 132:140 4
Tékkland 5 1 0 4 147:172 2
Undanúrslit á morgun:
Danmörk - Þýskaland ........................... 14
Krótatía - Slóvenía ........................... 16.30
Frakkar og Rússar leika um 5. sætið á
sunnudaginn kl. 11.30, en Svíar og Serb-
ía-Svartfjallaland um 7. sætið á morgun
kl. 11.30.
Markahæstir:
Robbie Kostadinovich, Sviss ................ 40
Florian Kehrmann, Þýskalandi............ 36
Daniel Stephan, Þýskalandi ................. 33
Eduard Koksharov, Rússlandi ............. 33
Michael Knudsen, Danmörku............... 32
David Juricek, Tékklandi ..................... 32
Alex Rastvortsev, Rússlandi ................ 30
Mirza Dzomba, Króatíu ........................ 29
Vid Kavticnik, Slóveníu ........................ 29
Alexander Tutschkin, Rússlandi .......... 28
Nikola Karabatic, Frakklandi .............. 28
Stefan Lövgren, Svíþjóð ....................... 27
Ivo Diaz, Ungverjalandi ....................... 27
Renato Vugrinec, Slóveníu ................... 27
Ivan Garcia, Spáni................................. 26
Lars K. Jeppesen, Danmörku.............. 25
Sören Stryger, Danmörku.................... 25
Pascal Hens, Þýskalandi....................... 25
Zoran Jovicic, Slóveníu......................... 25
Yuriy Kostetskiy, Úkraínu ................... 24
Jon Belaustegui, Spáni ......................... 24
Daniel Buday, Ungverjalandi............... 24
Torsten Jansen, Þýskalandi ................. 24
Jan Filip, Tékklandi.............................. 24
Nenad Maksic, Serbíu .......................... 24
Christian Schwarzer, Þýskalandi......... 23
Blazenko Lackovic, Króatíu ................. 23
Vitali Ivanov, Rússlandi........................ 23
Danijel Andjelkovic, Serbíu ................. 23
Ivano Balic, Króatíu.............................. 21
Laszlo Nagy, Ungverjalandi ................ 21
Zikica Milosavljevic, Serbíu ................. 21
Ólafur Stefánsson, Íslandi ................... 20
Martin Boquist, Svíþjóð........................ 21
Grzegorz Tkaczyk, Póllandi ................. 20
Zoran Lubej, Slóveníu .......................... 20
Mikhail Chipurin, Rússlandi ................ 19
Lars Christiansen, Danmörku ............. 19
Johan Pettersson, Svíþjóð .................... 19
Markus Baur, Þýskalandi..................... 18
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla
B-RIÐILL:
Víkingur - Fjölnir................................ 5:1
Viktor Arnarson 5., Daníel Hjaltason 9.,
32., Jón Guðbrandsson 33. (víti ), Einar
Guðnason 65. - Ívar Björnsson 19. (víti).
Fram - Fylkir ....................................... 1:2
Viðar Guðjónsson 65. (víti) - Haukur Ingi
Guðnason 56., Ólafur Stígsson 58.
Lokastaðan:
Fylkir 3 3 0 0 9:3 9
Víkingur 3 2 0 1 10:4 6
Fram 3 1 0 2 4:6 3
Fjölnir 3 0 0 3 2:12 0
Fylkir og Víkingur fara í undanúrslit
ásamt Val og annað hvort KR eða Þrótti.
Spánn
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, síðari leik-
ur:
Zaragoza - Barcelona........................... 1:1
Zaragoza vann 2:1 samanlagt og leikur
í undanúrslitum ásamt Real Madrid, Se-
villa og Alavés.
Barcelona komst yfir í leiknum í gær á
13. mínút með marki Luis Garcia og allt
útlit var fyrir að Börsungar kæmust
áfram í bikarkeppninni. En varamaður-
inn Yordi var ekki búinn að vera lengi
inná þegar hann jafnaði á 84. mínútu og
tryggði Zaragoza áframhaldandi keppni.
Afríkukeppnin
Kamerún - Zimbabwe .......................... 5:3
Alsír - Egyptaland ............................... 2:1
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÍR - Haukar 89:76
Seljaskóli, Reykjavík, úrvalsdeild karla,
Intersport-deildin, fimmtudaginn 29.
janúar 2004.
Gangur leiksins: 2:0, 6:2, 13:7, 15:14,
17:21, 24:25, 29:25, 31:32, 36:35, 45:35,
48:38, 50:46, 58:48, 61:50, 67:50, 69:54,
72:60, 76:62, 78:67, 85:71, 89:76.
Stig ÍR: Eugene Christopher 23, Ómar
Örn Sævarsson 20, Maurice Ingram 15,
Ólafur Þórisson 11, Kevin Grandberg 9,
Eiríkur Önundarson 7, Fannar Helgason
4.
Fráköst: 23 í vörn - 14 í sókn.
Stig Hauka: Michael Manciel 27, Predr-
ag Bojovic 13, Sigurður Einarsson 11,
Þórður Gunnþórsson 8, Whitney Rob-
inson 8, Kristinn Jónasson 6, Marel Guð-
laugsson 3.
Fráköst: 18 í vörn - 18 í sókn.
Villur: ÍR 19 - Haukar 21.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og
Helgi Bragason.
Áhorfendur: Um 115.
Hamar - Breiðablik 85:82
Hveragerði:
Gangur leiksins: 5:5, 13:13, 16:19, 24:25,
33:28, 40:30, 42:35, 50:42, 54:46, 57:51,
60:51, 60:53, 62:53, 68:57, 68:62, 73:64,
73:69, 77:69, 79:71, 83:76, 83:81, 85:82.
Stig Hamars: Lárus Jónsson 18, Chris
Dade 17, Marvin Valdimarsson 17, Fah-
eem Nelson 13, Svavar Páll Pálsson 8,
Lavell Owens 6, Hallgrímur Brynjólfs-
son 6.
Fráköst: 24 í vörn - 9 í sókn.
Stig Breiðabliks: Mirko Virjevic 26, Kyle
Williams 18, Uros Pilipovic 15, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 12, Loftur Einars-
son 7, Ágúst Angantýrsson 2, Þórarinn
Ö. Andrésson 2.
Fráköst: 21 í vörn - 15 í sókn.
Villur: Hamar 19 - Breiðablik 21.
Dómarar: Sigmundur M. Herbertsson og
Guðmundur Stefán Maríasson.
Áhorfendur: Um 370.
Jóhannes Hauksson var í byrjunarliði
Breiðabliks í gærkvöldi, en hann varð
fyrir því óhappi að meiðast á ökkla fljót-
lega í fyrsta leikhluta. Jón Arnar Ingv-
arsson, þjálfari Kópavogsliðsins sagði að
meiðslin litu ekki vel út og taldi og taldi
Jóhannes ekki spila næstu leiki með lið-
inu, það ætti þó allt eftir að koma í ljós.
KR - KFÍ frestað
Staðan:
Grindavík 14 12 2 1268:1185 24
Snæfell 14 11 3 1180:1124 22
Njarðvík 14 10 4 1309:1187 20
Keflavík 13 9 4 1281:1100 18
KR 14 9 5 1283:1212 18
Haukar 15 8 7 1215:1201 16
Hamar 15 8 7 1264:1281 16
Tindastóll 14 7 7 1301:1246 14
ÍR 15 4 11 1283:1379 8
Breiðablik 14 3 11 1130:1230 6
KFÍ 14 2 12 1285:1456 4
Þór Þorl. 14 2 12 1134:1332 4
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Orlando - Washington ...................104:100
Toronto - Philadelphia ......................94:84
New Orleans - Milwaukee.............101:100
Portland - Memphis...........................88:76
Utah - Dallas......................................91:88
Denver - Chicago .............................115:99
Sacramento - Houston.......................99:94
LA Lakers - Seattle ..........................96:82
Detroit - Boston .............................106:103
Cleveland - Miami .............................94:93
Golden State - Minnesota .................97:90
Indiana - Phoenix ............................101:79
TENNIS
Opna ástralska meistara-
mótið í Melbourne Park
Einliðaleikur karla, undanúrslit:
Marat Safin, Rússlandi vann (4) Andre
Agassi, Bandaríkjunum 7-6 (8-6) 7-6
(8-6) 5-7 1-6 6-3.
Einliðaleikur kvenna, undanúrslit:
(1) Justine Henin-Hardenne, Belgíu
vann (32) Fabiola Zuluaga, Kólumbíu 6-2
6-2.
(2) Kim Clijsters, Belgíu vann (22) Patty
Schnyder, Sviss 6-2 7-6 (7-2).
Tvíliðaleikur karla, undanúrslit:
(5) Michael Llodra og Fabrice Santoro,
Frakklandi unnu (9) Gaston Etlis og
Martin Rodriguez, Argentínu 6-2 7-5.+
(1) Bob Bryan og Michael Bryan, Banda-
ríkjunum unnu (3) Jonas Bjorkman, Sví-
þjóð og Todd Woodbridge, Ástralíu 6-1
6-2.
LEIÐRÉTTING
Maríanna Eva Sævarsdóttir var sögð
Sæmundsdóttir í myndatexta á bls. 53 á
íþróttasíðu í gær. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.