Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Co
sta
del Sol
53.942kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
67.830 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 14 nætur á St. Clara, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
LÖGREGLA leitar enn morðingja rúmlega
fertugs manns sem fannst látinn í höfninni í
Neskaupstað í fyrradag. Enn er ekki vitað
hver hinn látni er en lögregla telur þó að hann
sé ekki Íslendingur.
Lögreglan lýsir eftir bíl sem vitni sá við
bryggjuna þar sem líkið fannst aðfaranótt
mánudags, og síðar sömu nótt á Eskifirði. Bíll-
inn er grár Mitsubishi Lancer og biður lög-
regla þá aðila sem í bifreiðinni voru þessa nótt
að hafa samband enda geti þeir gefið mikilvæg-
ar upplýsingar. Jafnframt segja vitni að bíll
hafi verið við bryggjuna um klukkan þrjú að-
faranótt miðvikudagsins en óljóst er um lit og
gerð hans. Þeir eða sá sem þar var á ferð er
einnig beðinn um að hafa samband.
Tveir kafarar leituðu að vísbendingum og
hugsanlegu morðvopni við bryggjuna seinni-
partinn í gær. Mennirnir voru um klukkustund
í kafi en komu tómhentir upp. Lögregla stað-
festi síðar að ekkert hafi fundist í þessari ferð
en ekki var búið að taka ákvörðun um hvort
kafað yrði aftur í dag.
Líkið lá ekki lengur í sjónum en fjóra daga
og hefur því farið í sjóinn í fyrsta lagi á laug-
ardag, segir Jónas Vilhelmsson, yfirlögreglu-
þjónn á Eskifirði, sem stjórnar rannsókninni.
Á laugardeginum var mikill snjór á bryggj-
unni, upp undir handarkrika að sögn starfs-
manna í Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar, og
bryggjan ekki rudd fyrr en á sunnudag.
Enn er ekki ljóst hverrar þjóðar maðurinn
er. Jónas segir mjög ólíklegt að maðurinn sé
heimamaður í Neskaupstað, og telur raunar
ólíklegt að maðurinn sé Íslendingur. Það bygg-
ir lögreglan á því að yfirleitt sé tilkynnt mjög
snemma um mannshvörf hér á landi en ekki
hefur verið tilkynnt um nein mannshvörf und-
anfarið.
Lögreglan hefur haft samband við skip-
stjóra eða útgerðarmenn allra skipa sem hafa
komið í höfnina í Neskaupstað undanfarið og
kannast enginn við að skipverja sé saknað.
Ekkert bendir til að maðurinn
hafi starfað við Kárahnjúka
Lögreglan á Egilsstöðum fór að virkjunar-
svæðinu við Kárahnjúka og fór í gegnum lista
yfir starfsmenn og skoðaði myndir án þess að
sjá nokkur merki um að maðurinn hefði verið
starfsmaður á Kárahnjúkum. Líkið var vafið í
plast og voru bæði keðja og veiðarfæri notuð til
að þyngja líkið, segir Jónas. Meðal þess sem
fest var við líkið var svart gúmmíhjól sem not-
að er á troll, en kar með slíkum hjólum er á
bryggjunni þar sem líkið fannst.
Að sögn starfsmanna í Netagerð Friðriks
Vilhjálmssonar, sem stendur við bryggjuna,
gætu hlutirnir sem notaðir voru til að þyngja
líkið allt eins verið komnir af lóðinni við
bryggjuna. Þó hafi enginn saknað neins, enda
ekki von til þess nema meira magn en það sem
notað var hverfi. Gúmmíhjól af þessari gerð
eru á bilinu 30 til 60 kg að þyngd.
Jónas Vilhelmsson vildi í gær ekki gefa frek-
ari upplýsingar um áverka á líkinu og hvorki
staðfesti né neitaði fregnum um að skotsár
hefðu verið á líkinu, né hvers eðlis aðrir áverk-
ar á líkinu eru. „Það vita bara við og morðing-
inn,“ segir Jónas.
Næsta skrefið í málinu er krufning á líkinu
og var það flutt með flugi til Reykjavíkur um
kl. 16 í gær. Jónas segir að hann vonist til að fá
einhverjar fréttir af krufningunni í dag.
Lögreglumenn úr umdæminu jafnt sem
tæknimenn frá lögreglunni í Reykjavík hafa
fínkembt bryggjuna þar sem líkið fannst en
ekki er gefið upp hvort eitthvað hafi fundist
þar sem kynni að varpa ljósi á málið. Tækni-
mennirnir komu til Neskaupstaðar á síðastliðið
miðvikudagskvöld og eru þar enn við störf.
Rannsóknin nær að sögn Jónasar um alla
Austfirði og Suðausturland og eru lögreglu-
menn að ræða við íbúa, spyrjast fyrir um
gestakomur og athuga hvort einhver hafi ekki
skilað sér til vinnu.
Enginn hefur verið formlega yfirheyrður
vegna málsins en lögreglan hefur rætt við rúm-
lega 100 manns í tengslum við rannsóknina og
fengið ýmsar vísbendingar, að sögn Jónasar.
Ein af vísbendingunum, sem bárust með þess-
um hætti, var um bílinn sem sást við netagerð-
ina.
Lögreglan lýsir eftir
grárri Mitsubishi-bifreið
Enn er óljóst af hverjum líkið
er sem fannst í Norðfjarðar-
höfn á miðvikudag.
Brjánn Jónasson fylgdist
með rannsókninni.
ÍBÚUM í Neskaupstað var mjög brugðið
vegna mannsins sem fannst myrtur í höfninni
á miðvikudagsmorgun og vart um annað talað
þar sem menn komu saman.
„Menn eru svona frekar sjokkeraðir yfir
þessum fréttum. Menn voru mjög slegnir í gær
eftir að þetta fór í loftið, þetta var fljótt að
fréttast hér um bæinn,“
segir Hjörvar O. Jensson,
útibússtjóri Landsbankans í
Neskaupstað.
„Það er mikil óvissa
ríkjandi á meðan ekki tekst
að upplýsa málið með ein-
hverjum hætti. Og verður
það eflaust þar til það er
víst að það eru ekki heima-
menn sem voru þarna að
verki. Þetta er mikið rætt í
bænum, hvar sem maður
hittir fólk, og margar kenn-
ingar í gangi,“ segir Hjörv-
ar.
Í sama streng tekur Sig-
ríður Kristinsdóttir hjúkr-
unarfræðingur. „Fólk er
slegið óhug, mér finnst eins
og margir trúi þessu ekki
almennilega. Ég held að
margir bæjarbúar hafi sofið
illa í nótt. Menn eru miður
sín yfir því að svona hlutir
geti gerst hérna. Mér heyr-
ist það á fólki með börn að
það fari nokkrum sinnum
að útidyrahurðinni sinni í
nótt og athugi hvort það sé
ekki læst.“
Sigríður segir að fólk al-
mennt hafi farið að læsa
útidyrahurðunum eftir að
barni var rænt af heimili
sínu á Seyðisfirði á Þorláks-
messu, en þetta atvik hafi
hugsanlega fengið enn fleiri til að læsa að sér.
Sigurjón M. Badeur bílstjóri segir óhug í
bæjarbúum í Neskaupstað vegna málsins. „Hjá
mér er fólk nýkomið úr Reykjavík sem vill
ekki fara út úr húsi og læsir að sér. Fólk er
slegið yfir þessu, sérstaklega af því menn vita
ekki hver maðurinn er, og ekki heldur hver
morðinginn er. Hvort hann gangi laus í bæn-
um heima, hvort hann hafi verið á einhverju
skipi, ofan af Kárahnjúkum, eða guð má vita
hvað. Þetta er á allra vörum, hér hittir ekki
maður mann án þess að þetta sé rætt. Menn
eru mikið að spá í hvaðan þessi maður geti
verið,“ segir Sigurjón.
Mikil óvissa þar
til upp kemst um
morðingjann
Hjörvar O.
Jensson
Sigríður
Kristinsdóttir
Sigurjón M.
Badeur
LÖGREGLAN á Egilsstöðum
fór í gegnum starfsmannalista
og myndir af starfsmönnum
við Kárahnjúka í gær til að
reyna að bera kennsl á lík
mannsins sem fannst í Nes-
kaupstað á miðvikudag, en for-
svarsmenn virkjunarinnar
segjast ekki sakna nokkurs
manns úr vinnu að vitað sé.
Leó Sigurðsson, öryggis- og
umhverfisstjóri á Kárahnjúka-
svæðinu, segir að ólíklegt sé að
menn af svæðinu fari til Nes-
kaupstaðar til að skemmta sér,
enda aðrir staðir mun nærtæk-
ari. Hann útilokar þó ekkert í
þeim málum, enda mönnum
frjálst að gera það sem þeir
vilja í sínum frítíma.
„Við erum að vinna að því að
veita lögreglunni þær upplýs-
ingar sem þeir biðja um, segir
Leó, en segir málið ekki í hönd-
um sínum að öðru leyti. Hann
segir ljóst að einhverjir menn
séu alltaf í leyfum og því sé
ekki hægt að útiloka að líkið sé
af manni sem vinni á Kára-
hnjúkum.
Leó segir að ekki hafi verið
haft samband við menn sem
eru í fríi. „Útlendingar sem eru
í leyfi héðan fara yfirleitt langt
í burtu, þeir taka ekki sín frí á
Íslandi. Þeir sem fara af svæð-
inu fara oft í skipulegum rútu-
ferðum og þá sé talið inn í rút-
urnar til að menn séu síður
skildir eftir.“Morgunblaðið/RAX
Einskis saknað frá Kárahnjúkum
ÞAÐ var fyrir hreina tilviljun að líkið í höfn-
inni í Neskaupstað fannst á miðvikudags-
morgun en bryggjan sem það fannst við er
við netagerð, og er nær eingöngu notuð þeg-
ar skip taka eða skila af sér veiðarfærum.
Þorgeir Jónsson kafari fann líkið þar sem
hann var að kanna skemmdir sem urðu á
bryggjunni eftir að skip skall á henni í óveðri.
Einnig var hann að kanna hvort mikið af
dekkjum hefði losnað af bryggjunni.
„Það var alger tilviljun að þetta fannst. Ég
var búinn að vera í kafi í svona korter þegar
ég kom að líkinu, en um leið og ég kom út í
varð ég var við eitthvert dót á botninum sem
ég var ekkert að velta mér upp úr hvað væri,“
segir Þorgeir.
„Það er ekki fyrr en ég syndi fram á þetta
þegar ég er að leita að dekkjum á botninum
sem ég átta mig á hvað þetta er. Þá er þetta
það fyrsta sem ég kem að. Ég sé eitthvað
liggja á botninum, vafið inn í plast,“ segir
Þorgeir, en hann er ófús til að lýsa því sem
hann sá nánar vegna lögreglurannsóknarinn-
ar.
„Manni dauðbregður náttúrlega við þetta,
en svo fór ég bara upp og lét vita af þessu.
Þetta var vægt sjokk sem ég fékk. Ég held ég
muni ekki einu sinni allt sem fór í gegnum
hausinn á mér þarna niðri,“ segir Þorgeir.
Hann fór upp og lét hafnarvörðinn, sem
var á bryggjunni, vita. Því næst fór hann nið-
ur aftur og tók myndir og sýndi lögreglunni.
Þá var ákveðið að ná líkinu upp og fór Þor-
geir þá aftur niður að líkinu.
„Ég kom þessu í líkpoka þarna niðri og svo
var það híft upp,“ segir Þorgeir.
Hann segir að ekki hafi verið mikið mál að
koma líkinu í poka, en það var hvorki fast við
botn né bryggju.
Hefur áður fundið lík
Þetta er ekki fyrsta mannslíkið sem Þor-
geir finnur í sjó, en hann hefur kafað í 16 ár.
„Ég hef lent í nokkrum leitum áður og fann
lík þegar við vorum að leita fjórir saman á
Seyðisfirði fyrir nokkrum árum. En það er
náttúrlega allt annað að eiga von á því heldur
en að synda fram á svona lagað óvænt,“ segir
Þorgeir.
Þessi fundur hefur þó ekki dregið úr Þor-
geiri þó að það hafi vissulega komið skrekkur
í hann. Í gær kafaði hann aftur að staðnum
þar sem líkið fannst ásamt bróður sínum,
Ólafi Jóni, og leituðu þeir að vísbendingum,
svo sem morðvopninu sjálfu. Ekkert fannst
þó við klukkutíma leit og ekki búið að taka
ákvörðun um frekari leit á sjávarbotni. Þor-
geir segir aðstæður ágætar til leitar, gott
skyggni og ekki mikinn straum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Þorgeir (til hægri) og Ólafur Jón, bróðir hans, leituðu sönnunargagna í höfninni í gær.
Fékk áfall við að finna líkið
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var kall-
að að skólabyggingu við Hlíðasmára í Kópavogi í
gærkvöldi, en þar hafði kona bakkað af miklu
afli í gegnum rúðu á skólabyggingunni og endaði
bíllinn inn í skólastofu. Fólk var inni í stofunni
og varð einn fyrir bílnum. Hlaut hann minni-
háttar meiðsl á mjöðm og var fluttur á sjúkra-
hús en aðrir fengu skrámur af glerbrotum sem
þeyttust um stofuna.
Líklegt þykir að konan sem ók bílnum hafi
fengið krampa af einhverju tagi og misst við það
stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum.
Bakkaði inn
í skólastofu
♦♦♦