Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Nuka Arctica kemur og
fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Kl.15.
Anna Þrúður Þorkels-
dóttir, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands,
segir frá dvöl sinni í
Afríku í máli og mynd-
um. Hársnyrting, fóta-
aðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 vefn-
aður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13–16 vefnaður
og frjálst að spila í sal,
kl. 13.30 félagsvist.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og hár-
greiðslustofan opin, kl.
14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa, kl. 9–16.30,
gönguhópur, kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Ullarþæfing
kl. 13.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó spilað í Gull-
smára 13, kl. 14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, brids kl 13, biljard
kl. 13.30. Dansleikur í
kvöld kl 20.30 Cabrí
Tríó leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fræðslu-
nefnd FEB stendur
fyrir leikhúskynningu í
Borgarleikhúsið undir
yfirskriftinni: „Hvað er
á fjölunum“? Umsjón,
Sigrún Valbergsdóttir
frá Leikfélagi Reykja-
víkur. Gefst tækifæri að
ganga um húsakynni
leikhússins og kynnast
því sem liggur að baki
misfellulausum kvöld-
sýningum. Meðal ann-
ars æfingar nýrra
verka á leiksviðum
hússins. Mæting í
Borgarleikhúsið kl. 14.
Skráning á skrifstofu
félagsins í síma
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10 létt ganga,
spilasalur opinn frá há-
degi, kl. 13.30 kóræfing.
S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist, kl. 10
ganga, kl. 13 brids-
kennsla, kl. 14 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
11 spurt og spjallað, kl.
14 bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrýdans.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir,
kl. 13.30 bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Seyðfirðingafélagið.
Sólarkaffi í Gjábakka,
Kópavogi, sunnudaginn
15. febrúar kl. 15.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík. Spiluð fé-
lagsvist á morgun, 14.
febrúar kl. 14 að Síðu-
múla 37. Aðalfundur
eftir félagsvist.
Framsóknarfélags
Mosfellsbæjar. Fé-
lagsvist verður spiluð í
Háholti 14, 2. hæðí
kvöld. Fyrsta gjöf hefst
klukkan 20.30. Spiluð
verða átta föstudags-
kvöld í röð. Ferðavinn-
ingur fyrir þann sem er
efstur fimm kvöld af
átta.
Minningarkort
Minningakort Breið-
firðingafélagsins, eru
til sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni s. 555 0383
eða 899 1161.
Í dag er föstudagur 13. febrúar,
44. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Gjörið þetta því heldur sem
þér þekkið tímann, að yður er
mál að rísa af svefni, því að nú
er oss hjálpræðið nær en
þá er vér tókum trú.
(Rm. 13, 11.)
Jón Steinsson deilir ámálflutning þeirra sem
finna hnattvæðingunni
flest til foráttu í pistli á
vefritinu Deiglunni.
Jón vísar í nýlega greineftir dálkahöfundinn
Nicholas Kristof hjá New
York Times, sem skorar á
gagnrýnendur hnattvæð-
ingar að koma til Kambó-
díu, þar sem hann var þá
staddur, og ræða frjálsa
verslun við innfædda.
„[Kristof] sagði frá
sautján ára stúlku sem
hann hafði rætt við. Hún
vann allan daginn alla
daga vikunnar við að tína
rusl á ruslahaugunum
fyrir utan Phnom Penh.
Upp úr krafsinu hafði
hún að meðaltali 50 kr. á
dag. Fyrir henni var til-
hugsunin um vinnu í fata-
verksmiðju í eigu vest-
ræns stórfyrirtækis – þar
sem hún fengi 150 kr. á
dag í kaup, þyrfti aðeins
að vinna 6 daga vikunnar
og fengi að vera innan-
dyra í stað þess að vera
undir brennheitri sólinni
allan liðlangan daginn –
draumi líkust. Í Kambó-
díu er eftirspurn eftir
verksmiðjustörfum mun
meiri en framboð. Eft-
irspurnin er raunar svo
mikil að það er ekki óal-
gengt að umsækjendur
þurfi að múta yfirmanni í
verksmiðjunni til þess að
þeir fái vinnu. Kristof
segir frá því að bygg-
ingaverkamenn í Kambó-
díu hafi sagt honum að
þeir vildu miklu frekar
vinna í verksmiðju vegna
þess að slík vinna er ekki
nærri því jafn hættuleg
og einnig vegna þess að
þá myndu þeir ekki svitna
jafn mikið. Það er ákveð-
in kaldhæðni í því að
Bandaríkjamenn skuli
kalla slíkar verksmiðjur
„sweatshops“.
Alþjóðasamningar seminnihalda ákvæði um
aukinn rétt launafólks og
skyldur atvinnurekenda
leggja stein í götu fyr-
irtækja sem hafa áhuga á
því að byggja verk-
smiðjur í fátækum lönd-
um og munu leiða til þess
að færri slíkar verk-
smiðjur verða reistar.
Eftir að hafa rætt málin
við innfædda kemst Krist-
of að þeirri niðurstöðu að
vandamálið í Afríku og
Asíu sé ekki að of margir
innfæddir séu misnotaðir
af vestrænum stórfyr-
irtækjum í gróðaskyni.
Þvert á móti eru allt of fá-
ar „svitasjoppur“ í þriðja
heiminum. Þeim mun
fleiri verksmiðjur þeim
mun betra. Því önnur úr-
ræði þessa fólks eru enn
verri,“ segir í pistli Jóns.
Pennarnir á vefritinuMúrnum eru síst
þekktir fyrir aðdáun á
hnattvæðingu. Stefán
Pálsson líkir þar mál-
flutningi Kristofs við rök
sem færð voru fyrir
þrælahaldi á 19. öld. En
Stefán leiðir hjá sér þann
algjöra eðlismun sem er á
hlutskipti nauðugra
þræla og frjálsra manna
sem sækjast sjálfviljugir
eftir ákveðnum störfum
umfram önnur.
STAKSTEINAR
Hnattvæðingarmýtan
Víkverji skrifar...
Víkverji lagði með sérlítraflösku af íslensku
brennivíni í lítið þorrablót
sem hann tók þátt í fyrir
stuttu. Viss vonbrigði urðu
með veigarnar þegar flaskan
var tekin upp úr frystikist-
unni og opnuð með viðhöfn
fyrir framan gestina.
Brennivínið var frosið.
Víkverji drekkur ekki ís-
lenskt brennivín oft, helst
með kæstum hákarli í
tengslum við þorrablót. Vín-
ið hefur krapað en aldrei áð-
ur hefur það frosið þótt sömu
kælingaraðferðir hafi verið
notaðar. Gengið var úr skugga um að
frystikistan var rétt stillt.
Ýmsar hugsanir vöknuðu þegar
reynt var að kreista smá vökva í
staupin sem biðu tilbúin við hliðina á
þorrabakkanum. Tókst að ná einum
eða tveimur einföldum í upphafi en
þegar leið á kvöldið gátu menn kreist
út það vín sem þeir töldu sig þurfa.
Varla er hægt að trúa því að þetta sé
sami drykkurinn og venjulega. Alkó-
hól á ekki að frjósa. Er þetta ný
blöndunaraðferð til að minnka
brennivínsdrykkju á þorrablótum
eða hefur þarna komist út á mark-
aðinn flaska með gallaðri vöru? Hver
gæti skýringin annars verið?
x x x
Meira um áfenga drykki, fyrstVíkverji er byrjaður á annað
borð: Þessa dagana gengur á með
kærumálum á milli íslensku ölgerð-
anna, Egils og Víking, vegna bjór-
auglýsinga - eða kannski ætti Vík-
verji frekar að segja pilsner-
auglýsinga. Víkverja finnst raunar
algert aukaatriði hvort auglýsingar
annars hvors fyrirtækisins eða
beggja brjóta í bága við samkeppn-
islögin vegna hæpinna full-
yrðinga um gæði eigin vöru
eða keppinautarins. Aðal-
málið er að samkvæmt
áfengislögunum eru áfeng-
isauglýsingar bannaðar, en
ölgerðirnar komast engu að
síður upp með að auglýsa af
krafti. Þær geta alltaf vísað
til þess að þær séu bara að
auglýsa óáfenga léttölið
sitt.
Nú er léttölið komið í af-
ar svipaðar umbúðir og
sterka ölið, þannig að það
er engin leið að hanka öl-
gerðirnar á þessu, jafnvel
þótt þær birti myndir af pilsn-
erdósum, sem líta eiginlega alveg
eins út og bjórdósir - nú heitir meira
að segja áfengur bjór frá sumum
framleiðendum pilsner í ríkinu og
ekki er heldur hægt að hanka neinn á
því; Norðmenn kalla t.d. ljósan bjór
yfirleitt pilsner, þótt hann sé sterk-
ur. Hvenær ætli stjórnmálamenn-
irnir átti sig á því hvað áfeng-
isauglýsingabannið er gagnslaust og
bjánalegt og afnemi það í eitt skipti
fyrir öll? Bann, sem auðvelt er að
fara í kringum á löglegan hátt, þjón-
ar nákvæmlega engum tilgangi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sammála
Illuga
MIKIÐ er ég sammála Ill-
uga Jökulssyni sem skrif-
ar um fegrunaraðgerð
Rutar Reginalds í DV 9.
febrúar.
Þurfum við virkilega að
apa allt eftir þeim í Banda-
ríkjunum hversu vitlaust
sem það er? Hver eru skila-
boðin til ungu stúlknanna í
landinu og okkar hinna sem
erum orðnar aðeins eldri?
Á bara að fara og láta
breyta sér ef maður er ekki
ánægður með sig? Er ekki
betra að finna hamingjuna
með því að efla sjálfstraust-
ið og njóta þess að vera ein-
stök/einstakur eins og mað-
ur er?
Mér þætti miklu betra
að setja peninga í að
byggja upp sjálfstraust
unga fólksins en að vera að
halda endalausar fegurð-
arsamkeppnir sem gera
marga ungu stúlkuna/kon-
una óánægða með sjálfa
sig.
Við þurfum ekki á þessu
skrumi að halda heldur al-
vöru lífi og lífsfyllingu.
Anna.
Sjónvarpið –
fyrirspurn
HVENÆR ætlar Sjón-
varpið að sýna seinni hlut-
ann af sögu Forsythe-ætt-
arinnar?
Edda Valvesdóttir.
Siðleysi
MÉR finnst gengið út í sið-
leysi hvernig hægt er að
tala um æðstu embættis-
menn þjóðarinnar í fjöl-
miðlum þar sem fólk virðist
geta látið hvað sem er út úr
sér.
Siðað fólk talar ekki
svona á opinberum vett-
vangi. Svo er verið að tala
um að börn og unglingar
eigi að vanda orðaval sitt en
fullorðna fólkið er ekki til
fyrirmyndar í fjölmiðlum.
Hneykslaður
áhorfandi.
Dýrahald
Köttur í óskilum
í Gnoðarvogi
HVÍTUR og brúnbröndótt-
ur fress hefur verið í óskil-
um í Gnoðarvogi 62 frá því í
nóvember. Þetta er ljúfur
og góður köttur, greinilega
heimilisköttur. Þeir sem
kannast við eða eiga þenn-
an kött eru beðnir að hafa
samband í síma 588 6304
eða 691 0550.
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR yndislegir kett-
lingar fást gefins. Kassa-
vanir, fjörugir og sprækir.
Uppl. í síma 568 3198.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 9 vikna kettlingar
fást gefins. Kassavanir og
skemmtilegir. Upplýsingar
í síma 587 3356.
Tapað/fundið
Svört taska
týndist
SVÖRT taska tapaðist á
Hlíðarvegi í Kópavogi 22.
janúar. Í töskunni voru
íþróttaskór. Töskunnar er
sárt saknað. Ef það vill svo
heppilega til að þú hafir
fundið töskuna, þá endilega
hafðu samband í síma
554 1935.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 augljós, 8 grútarlamp-
inn, 9 ysta brún, 10 flana,
11 fíflið, 13 híma, 15 hör-
unds, 18 bangin, 21 glöð,
22 tæla, 23 reiður, 24
margoft.
LÓÐRÉTT
2 lítil flugvél, 3 út, 4
starfið, 5 svardagi, 6
skortur, 7 þrjóska, 12
ferskur, 14 snák, 15
tuddi, 16 æskir, 17 kven-
vargur, 18 stíf, 19 styrkti,
20 vindur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 valda, 4 fossa, 7 gyðja, 8 sólin, 9 rós, 11 rönd,
13 frúr, 14 ungar, 15 röng, 17 álag, 20 hné, 22 sægur, 23
tunna, 24 senda, 25 runna.
Lóðrétt: 1 vegur, 2 liðin, 3 anar, 4 foss, 5 selur, 6 arnar,
10 ólgan, 12 dug, 13 frá, 15 rasps, 16 nægan, 18 linan, 19
grafa, 20 hráa, 21 étur.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16