Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 8
Áttu vini í Færeyjum?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
EH
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
19
66
3
04
/2
00
4
Innifalið: Flug til Færeyja, flugvallarskattur og tryggingargjald.
Takmarkað sætaframboð
Sími: 570 3030
Tengiflug, 50% afsláttur með FÍ frá Akureyri, Ísafirði og
Egilsstöðum vegna Færeyjaferðar (hafið samband við
sölufulltrúa þegar flug til Færeyja hefur verið bókað á netinu).
Einstakt tilboð á flugi,
aðeins 7.500 kr.
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Haltu bara áfram að punta þig, Dorrit mín, einhverntímann hringir einhver og býður okkur
hlutverk, elskan.
Stærðfræðidagur í KHÍ
Að reikna með
stærðfræðinni
Á morgun, laugar-daginn 14. febr-úar, standa Kenn-
araháskóli Íslands,
Námsgagnastofnun og
menntamálaráðuneytið
fyrir kynningu á stærð-
fræði í grunnskólum í
Kennaraháskólanum við
Stakkahlíð. Að sögn Guð-
mundar K. Birgissonar,
lektors í stærðfræði-
menntun við KHÍ, er meg-
inmarkmiðið með deginum
að kynna nýjar áherslur í
stærðfræðikennslu og ný-
legt námsefni í stærðfræði
í grunnskólum landsins,
svo og að opna fyrir frek-
ari umræður um málefnið.
Morgunblaðið ræddi við
Guðmund í tilefni þessa.
– Hvert er tilefni þessa
stærðfræðidags Guð-
mundur?
„Undanfarin ár hefur verið
mikil umræða um stærðfræði-
menntun víða um lönd og hafa
margar vestrænar þjóðir gert
breytingar á skipulagi og
áherslum í skólastærðfræði. Í
námskrá 1999 voru þessar breyt-
ingar komnar hingað til lands og
síðasta haust urðu nokkuð fjörleg-
ar umræður um þær í þjóðfélag-
inu. En þær voru jafnframt heldur
stuttaralegar að okkar mati og því
viljum við með þessum stærð-
fræðidegi leggja okkar af mörk-
um, opna dyrnar hjá okkur og
koma af stað nauðsynlegri um-
ræðu um þessi mál, því enn eru
þau ný af nálinni og þessar nýju
áherslur og breytingar eru auk
þess umdeildar.“
– Er hægt að útskýra í tiltölu-
lega stuttu máli í hverju þessar
breytingar eru fólgnar?
„Þetta eru alls ekki svo róttæk
umskipti í grundvallaratriðum, en
hér er vissulega um aðra nálgun
að ræða og víðara sjónarhorn.
Taka t.d. með í reikninginn
framþróun í upplýsingatækni,
þekkingarfræði, námssálfræði
sem og niðurstöður rannsókna á
stærðfræðinámi barna, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
– En þú segir að þetta sé jafn-
framt umdeilt?
„Já, vissulega eru skiptar skoð-
anir á því hvort þessar breytingar
séu til bóta. Ýmsir telja að of langt
sé gengið í að víkka út hugtakið
stærðfræði og vilja að einbeitingin
verði meiri á reikningskennslu.“
– Hver er þín skoðun?
„Mín skoðun er sú að þetta sé
afar jákvæð stefna og þessar
breytingar muni styrkja mjög
stærðfræðikennslu í landinu. Ég
skal hins vegar fyrstur manna við-
urkenna að auka þarf skilninginn í
þjóðfélaginu á því hvað hér er á
ferðinni og til þess er m.a. um-
ræddur kynningardagur haldinn í
KHÍ.“
– Fyrir hverja er þessi kynn-
ing?
„Ljóst er að auka þarf verulega
fræðslu fyrir foreldra á þessum
nýju áherslum, enda hafa þeir
löngum þurft að vera
börnum stoð og stytta
heima fyrir í náminu og
slæmt ef sá stuðningur
minnkar heima fyrir.
Þetta er því fyrir for-
eldra og jafnframt
börnin líka.“
– Geturðu ekki sagt
okkur aðeins meira frá þessari
nýju stærðfræði?
„Í nýju aðalnámskránni er lögð
aukin áhersla á samræður, rök-
semdafærslu og lausnir verkefna
og þrauta sem endurspeglast í
nýju námsbókunum. Þær gömlu
höfðu runnið sitt skeið á enda,
enda sumar skrifaðar fyrir þrjátíu
árum. Þá er mikil áhersla á að
nemendur skilji uppbyggingu
talnakerfisins og rithátt talna,
ennfremur að þeir skilji til fulln-
ustu grundvallarreikniaðgerðir og
þroski með sér eigin aðferðir til að
vinna með þær.“
– Þörf fyrir svona kynningu er
því ótvíræð?
„Algerlega, því stærðfræðinám
er viðamikill þáttur í lífi grunn-
skólabarna, auk þess sem stærð-
fræðileg viðfangsefni verða á vegi
fólks á hverjum degi. Þegar
breytingar verða á skólastærð-
fræðinni þurfa allir að leggjast á
eitt til þess að breytingarnar skili
tilætluðum árangri.“
– Þarf ekki meira að koma til í
svo stóru máli?
„Þessi kynningardagur er bara
byrjunin og með honum erum við
að koma út þeim skilaboðum að
dyr okkar standi öllum opnar. Við
í KHÍ höldum fjölda námskeiða
fyrir kennara og vel kemur til
greina að bjóða upp á slíkt fyrir
foreldra að auki í framtíðinni.“
– Segðu okkur eitthvað í lokin
frá dagskránni …
„Dagskráin hefst klukkan 11 og
stendur til 4. Stúdentar á stærð-
fræðikjörsviði KHÍ munu kynna
skemmtileg stærðfræðiverkefni,
leiki, þrautir og forrit sem börn-
um og foreldrum gefst tækifæri til
að spreyta sig á. Námsgagna-
stofnun mun sýna kennslubækur
og forrit sem notuð eru við stærð-
fræðikennslu í grunn-
skólum og fulltrúi frá
menntamálaráðuneyt-
inu mun svara fyrir-
spurnum um námskrá í
stærðfræði og ýmsir
aðrir aðilar munu sýna
gögn til stærðfræði-
kennslu, s.s. kubba,
spil, forrit, bækur og fleira. Þá
verður Taflfélagið Hrókurinn á
staðnum og gefst fólki tækifæri til
að kynna sér skáklistina. Síðast en
ekki síst má nefna Flöt, félag
stærðfræðikennara, sem mun
kynna starfsemi sína og kennslu-
forrit.“
Guðmundur K. Birgisson
Guðmundur K. Birgisson
fæddist í Reykjavík 16. júlí
1967. Hann er BA í heimspeki
frá Háskóla Íslands 1993 og
lauk doktorsprófi í stærðfræði-
menntun við Indiana University
í Bandaríkjunum árið 2002.
Hann kenndi stærðfræði við
framhaldsskóla hér á landi
1988–95 og var skipaður lektor
á sviði stærðfræðimenntunar við
Kennaraháskóla Íslands árið
1998. Guðmundur er kvæntur
Kristínu Tómasdóttur og eiga
þau hjónin tvö börn.
Stærð-
fræðinám er
viðamikill
þáttur í lífi
grunnskóla-
barna
ASÍ og landssambönd sem eiga að-
ild að virkjunarsamningi krefjast
tafarlausra lagfæringa á svefnskál-
um starfsmanna við Kárahnjúka-
virkjun og öðrum búnaði. Gerir
verkalýðshreyfingin þá kröfu til
Landsvirkjunar og stjórnvalda að
grípa nú þegar inn í „þessar að-
stæður“ og vitnar þar m.a. til leka
og hruns millilofta í svefnskálunum
undanfarið.
ASÍ og Starfsgreinasambandið,
Samiðn, Rafiðnaðarsambandið og
MATVÍS segjast hafa bent Imp-
regilo á það í ágúst í fyrra að svefn-
skálarnir, sem þá var byrjað að
reisa, hentuðu ekki íslenskum að-
stæðum.
Gagnrýna Impregilo
Fagmenn hafi ekki verið fengnir
til verksins, auk þess sem bygging-
arfræðileg úttekt hafi ekki farið
fram á gæðum og öryggi vinnubúð-
anna. Impregilo hafi látið þessar at-
hugasemdir sem vind um eyrun
þjóta og því komi ástandið í dag í
sjálfu sér ekki á óvart.
„Það er afdráttarlaus krafa
verkalýðshreyfingarinnar að svefn-
skálar sem settir eru upp við þær
erfiðu veðurfarslegu aðstæður sem
ríkja á þessu svæði séu með þeim
hætti að tryggt sé að heilsu manna
og öryggi sé ekki stefnt í hættu og
að starfsmenn þurfi ekki að búa við
vosbúð og kulda,“ segir m.a. í til-
kynningu frá landssamböndunum
og ASÍ.
Krefst lagfæringa á skálum