Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 27
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 27
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Erum að taka upp fullt
af nýjum vörum
Útsalan stendur enn, verðhrun
Stærðir 36—60
Sykurskertar
- en sætar!
Örfáar
hitaeiningar
fiú getur alltaf fengi› flér
gómsæta kökusnei› úr
sykurskerta bökunarduftinu frá
- einfaldlega létt og gott!
Au›vita› Kathi
Allt á léttu nótunum
Auðvelt að baka
Engin rotvarnarefni
Engin litarefni
Söluaðilar: Verslanir Hagkaupa
- Fræið, Fjarðarkaupum - Gripið og greitt
- Vöruval, Vestmannaeyjum - Hlíðarkaup,
Sauðárkróki - Nesbakki, Neskaupstað.
Í tilefni vorkomunnar,Valentínusarmessu ogkonudagsins, aðógleymdum giftingum,
sem fylgja hækkandi sól, hafa
fjórir gullsmiðir, þær Tína Jez-
orski hjá Jezorski, Ása Gunn-
laugsdóttir og Guðbjörg Kr. Ingv-
arsdóttir hjá Aurum og Sigríður
Anna Sigurðardóttir hjá Siggu og
Timo, tekið höndum saman og
hannað hver sína útgáfuna af
skartgripum, þar sem hjartað er
meginþema. Eftir að þær komu
heim frá námi í Finnlandi, Þýska-
landi og Danmörku drekka þær
stundum saman kaffi og ræða um
verk sín og á einum slíkum fundi
fæddist þessi hugmynd, að hanna
skart í tilefni vorsins. Eins og sjá
má leika þær sér með hjarta-
formið á ýmsa vegu í hálsfestum,
hálsmenum og hringum og jafnvel
armböndum og er efnisval og
meðferð vinkvennanna afar fjöl-
breytt. Verð gripanna er frá
10.000 til 50.000 krónur og ræður
efnið þar mestu.
Hálsmen eftir þær Ásu og Guð-
björgu í Aurum.
Morgunblaðið/Þorkell
Gullsmiðir: Tína Jezorski, Ása Gunnlaugsdóttir, Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir og Sigríður Anna Sigurðardóttir
hönnuðu skartgripi í tilefni vorkomunnar.
Ástartákn
allra tíma Hálsfesti: Skartið er eftir Tínu.
HÖNNUN
Hjartahringur:
Eftir Siggu hjá
Siggu og Timo.
Áður var talið að tvenns konarsálfræðileg próf þyrfti til aðmæla jafnólíka þætti og lík-
legan árangur í starfi og líklegan ár-
angur í námi. Bandarískir vís-
indamenn hafa sýnt fram á að próf
sem löngum hefur verið notað til að
mæla námsframa gefst alveg jafnvel
til að mæla frama í starfi.
Goðsögnin kveður á um að dugn-
aður einstaklings í skóla segi ekkert
til um hvernig honum muni vegna í
atvinnulífinu. Aðrar sálargáfur þurfi
til að standa sig vel í vinnu, en í
fræðasamfélagi.
Miller Analogies Test eða MAT-
prófið sem hannað var árið 1960 spá-
ir fyrir um hvaða nemendur verði
efnilegir háskólanemendur. Prófið
hefur verið lagt fyrir bandaríska
grunnskólanemendur allt frá árinu
1962 og hefur mælt almenna þekk-
ingu þeirra í vísindum, bók-
menntum, listum, sögu og tungu-
máli, svo nokkuð sé nefnt, alls 18
þætti.
Ástæðan fyrir goðsögninni
Prófið sjálft var nú kannað í viða-
mikilli gagnagreiningu til að skoða
hvort það segði ef til vill fyrir um
fleiri þætti en góða námshæfileika
og líklegan frama í háskólasamfé-
laginu. Niðurstöðurnar voru einnig
settar í samhengi við önnur sál-
fræðileg próf. Útkoman kom á óvart.
Andstætt því sem oftast er talið, spá
sömu þættirnir fyrir um árangur í
háskólanámi og starfi. Þessir þættir
eru eins og almennar námsgáfur,
heilsusamlegt líferni, félagsleg
færni, vinnusemi og sköpunargáfa.
Tilgátan sem sífellt hefur verið
klifað á; að að frami og árangur í
skólastofunni byggist á öðrum hæfi-
leikum og persónuleikaþáttum en
frami og árangur í skóla lífsins – var
þó ekki reist á vísindalegum mæl-
ingum eða byggð á fræðilegum
grunni.
Ástæðan fyrir goðsögninni um að
um tvenns konar hæfileika sé að
ræða er sennilega falin í hefð-
bundnum mælitækjum. Annars veg-
ar eru mælitæki sem mæla náms-
hæfileika, og hins vegar eru
mælitæki sem mæla áhuga og hæfi-
leika til starfa. Þeim sem mæla hug-
kvæmdist ekki að rannsaka hvort
samband væri þarna á milli.
Svipaðar aðstæður
á ólíkum vinnustöðum
Í grein í Journal of Personality
and Social Psychology (2204. Vol. 86.
No. 1) gera, Nathan R. Kuncel og
Sarah A. Hezlett kennarar við Há-
skólanum Í Illinoi, og Daniz S. Ones
við Háskólann í Minnesota, grein
fyrir rannsókn sinni á þessari goð-
sögn.
Í niðurstöðum þeirra kemur á
daginn að mælingar á almennum
gáfum einstaklinga geti spáð um lík-
legan árangur þeirra hvort sem er
við nám eða störf. Ekki þurfi að
mæla sérgáfur á hvoru sviði fyrir
sig. Góður árangur í MAT-prófinu
spáir því fyrir um góðan mögulegan
árangur á ýmsum ólíkum sviðum.
Goðsögnin hefur átt þátt í því að
þeir sem standa sig vel í vinnunni,
hika við að reyna sig í skóla. Skóla-
menn hika svo við að reyna sig á hin-
um almenna vinnumarkaði sökum
þessarar ranghugmyndar. Sterkt
samband hefur ævinlega mælst milli
almennra greindraþátta sem MAT-
prófið mælir og árangurs í námi. En
nú benda gögnin eindregið til þess
að sambandið sé jafnsterkt milli
þeirra og árangurs í vinnu.
Úrtakið í rannsókninni er rúm-
lega 20 þúsund einstaklingar sem
tóku samtals þátt í 127 rannsóknum
á síðustu öld.
MENNTUN|Sömu hæfileikar ráða árangri í skóla og starfi
Fílabeinsturninn fellur
Morgunblaðið/Kristján
Rannsókn: Sömu þættir spá fyrir um árangur í starfi og námi.
guhe@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
http://www.apa.org/journals/psp/
press_releases/january_2004/
psp861148.pdf.
EVRA er nafnið á nýrri tegund
getnaðarvarna í plástursformi.
Plásturinn gagnast sérstaklega
þeim konum sem hafa átt í erf-
iðleikum með að muna eftir
p-pillunni
sinni. Að
sögn Krist-
ínar And-
ersen
kvensjúk-
dómalæknis
virkar plást-
urinn á
sama hátt
og pillan
gerir.
„Plásturinn
inniheldur
sama estró-
genmagn
og vægustu
getnaðarvarnarpillurnar. Hann er
límdur á líkamann og hafður á í viku.
Svo er honum skipt út fyrir nýjan.
Plásturinn er notaður í þrjár vikur í
senn og þegar þriðji plásturinn er
tekinn af tekur viðkomandi hvíld í
eina viku. Þá koma blæðingar þann-
ig að þetta virkar eins og pillan.“
Gleymi viðkomandi að skipta út
plástrinum virkar efnið í honum í
tvo daga til viðbótar.
Hægt að fara í sund
Plásturinn má setja á magann,
rasskinnar, efri hluta líkamans að
brjóstunum undanskildum og á ut-
anverðan upphandlegg. Hann á að
setja á hreina, þurra og hárlausa
húð. „Það þarf að vera einhvers
staðar þar sem hann límist vel,“ seg-
ir Kristín. „Það eina sem konur
þurfa að hafa í huga er að setja hann
ekki á sig þegar þær eru nýkomnar
úr baði og kannski búnar að bera á
sig líkamskrem. Þá límist hann illa
því húðin er feit. Sé hann hins vegar
settur á þurra húð límist hann vel og
það er t.d. vel hægt að fara með
hann í sund.“
Kristín segir aðalverkunarmáta
plástursins vera þann að hann komi í
veg fyrir egglos. „Að auki verða
breytingar á slími í leghálsinum
þannig að sæðisfrumurnar eiga erf-
itt með að komast í gegn en fyrst og
fremst hindrar plásturinn egglos,
rétt eins og pillurnar gera. Hvort
tveggja er jafn örugg getnaðarvörn
en maður á helst ekki að ávísa
plástrinum á konur sem eru 90 kíló
eða meira. Rannsóknir hafa sýnt að
hættan á þungun er meiri hjá kon-
um sem eru þetta þungar. Að öðru
leyti gilda sömu frábendingar fyrir
þennan plástur og fyrir pilluna.“
Þannig eru aukaverkanir plásturs-
ins og pillunnar svipaðar, t.d. hætta
á svolítilli
þyngd-
araukn-
ingu, höf-
uðverkjum,
ógleði,
blettablæð-
ingum og
brjósta-
spennu. Að
auki geta
komið fram
viðbrögð á
plást-
urstað. Al-
gengast er
að auka-
verkananna verði vart í upphafi
meðferðar.
Sem fyrr segir er plásturinn ný-
kominn á markað hér á landi og seg-
ir Kristín hann hægt og rólega vera
að sækja í sig veðrið. Hann er þó
heldur dýrari en pillan þannig að
enn sem komið er hentar hann
kannski helst þeim sem eiga erfitt
með að muna eftir pillunni. „En það
er líka gott að hafa valmöguleik-
ann,“ segir Kristín að lokum.
GETNAÐARVARNIR | Hugsanleg lausn fyrir
þær sem stundum gleyma
Plástur einu
sinni í viku
Líkamsrækt: Plásturinn má blotna og það má
t.d. fara með hann í sund.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ást og umhyggja
Barnavörur
www.chicco.com