Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 40

Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Rut Bergsteins-dóttir fæddist í Reykjavík 25. sept- ember 1957. Hún lést á heimili sínu 27. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þórunn Andrésdótt- ir, talsímavörður, f. 2. desember 1925, og Bergsteinn Ólason, húsasmíðameistari, f. 14. mars 1926. Hún var einkabarn for- eldra sinna. Maki Rutar var Kristján Kristjáns- son, f. 6. september 1955. Þau hófu sambúð 1990 og giftu sig 2. febrúar 2002. Foreldar hans voru Lars Kristján Sveinlaugsson, sím- ritari, f. 11. september 1922, d. 19. ágúst 1981, og Guðný Björnsdótt- ir, húsmóðir, f. 20. júlí 1925. Rut átti þrjú börn, Rán, f. 1. október 1986, með Einari Bachmann, og tvö börn með Krist- jáni, Steinunni, f. 18. september 1993, og Andrés Lars, f. 2. mars 1995. Rut lauk lands- prófi frá Kvenna- skólanum1973. Hún fór einn vetur í frönskunám til Aix en Provence, varð stúdent frá MR 1978, starfaði hjá Talsam- bandi við útlönd frá 1978–1981, fór þá sem skiptinemi til Ghana í Afríku og dvaldi síðan eitt ár á Fílabeins- ströndinni. Rut rak verslunina Garn og gaman í nokkur ár. Hún tók próf frá Kennaraháskólanum 1993. Frá 1999 var hún handa- vinnukennari í Landakotsskóla. Útför Rutar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku Rut mín, þá er víst komið að kveðjustund eftir næstum 15 ár. Karlmenn dansa ekki, en við döns- uðum þó oft saman, en kannski sagði ég ekki nógu oft hvað ég elskaði þig. Þessi 15 ár voru ekki alltaf dans og rauðar rósir, en alltaf náðum við sátt- um. Því eins og þú sagðir var hvers- dagslífið svo gott hjá okkur. Það er svo skrítið að það síðasta sem ég gerði fyrir þig var að fara út í búð og kaupa sódavatn. Ósköp hversdags- legt. Eftir sitjum við, ég þinn elsk- andi eiginmaður, Rán, unglingurinn sem næstum er fullorðin, kona með skap. Steinunn, stúlkan sem strax er búin að ákveða hvað hún ætlar að verða þegar hún er orðin stór. Lassi, grallarinn með freyjukoppana. Við vitum að þú munt láta fylgjast með okkur. Fyrir næstum fimmtán árum hittumst við á krá. Saman við gengum út í lífið, byrjaði brauðstritið þá. Ár og dagar mega líða, kannski full af kvíða og eftirsjá. Ef til vill liggja leiðir okkar saman aftur á einhverri krá. Hvíl í friði. Þinn eiginmaður og börn. Elsku mamma. Ég trúi þessu varla ennþá. Mig langar að vakna upp af þessari martröð, ég klíp mig af og til bara til að vera viss um að ég sé vak- andi. Þegar þú sagðir bæ við mig um morguninn datt mér engan veginn í hug að þetta myndu vera síðustu orð þín við mig. En mikið er ég fegin að þú hafir sagt bæ, því á ákveðinn hátt varstu búin að kveðja, þótt þú hafir örugglega ekki vitað að það væri í síð- asta sinn sem þú myndir hitta mig í þessu lífi. Um daginn hlustaði ég á lag sem ég sýndi þér einhvern tímann. Meðan ég hlustaði á lagið, sá ég þig svo greinilega í huganum að það var eins og þú værir hér syngjandi og dans- andi með laginu. Eins og þú oft gerð- ir, að dansa og syngja. Þetta var góð minning en samt sársaukafull, því eina sem ég gat hugsað um var hversu mikið mig vantaði þig. Vant- aði að faðma þig og tala við þig, þótt það væri bara um hvað væri í matinn. En eitt máttu vita að þú fórst með reynslu í kistuna. Þú gerðir meira, fórst meira en margur maðurinn á eldri árum. En það sem fæðist deyr og ein- hvern daginn mun ég hitta þig aftur og við munum eiga góða stund saman þá. En þangað til skaltu hvíla í friði svo þú verðir hress og kát eins og þú varst alltaf, þegar við hittumst aftur. Þín elsta dóttir, Rán. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Úr Spámanninum.) Það er erfitt og sárt að ætla að koma orðum á blað í minningu um elskulega konu, sem hrifin var í burt í miðri önn dagsins frá manni, börnum og foreldrum. Þetta er allt svo óraun- verulegt og sorglegt, en svo brjótast fram minningarnar, allar svo ljúfar og góðar um þessa elskulegu konu. Það var í september 1957 að svil- kona mín og mágur eignuðust dóttur. Ég var þá nýlega komin inn í fjöl- skylduna, gift Jóhanni bróður Berg- steins. Þegar dóttirin var borin til skírnar fékk ég það virðulega hlut- verk að vera skírnarvottur, sem kall- að er að vera guðmóðir, og oft var tal- að um þær skyldur, sem þeirri nafnbót fylgdu. Skyldurnar veittust mér þó ekki erfiðar. Litla stúlkan fékk nafnið Rut. Dafnaði hún og þroskaðist vel og var sannkallaður gleðigjafi í þessum litlu fjölskyldum. Þegar Rut var tveggja ára þurfti móðir hennar að fara í stóra aðgerð, og fékk þá guðmóðirin að hjálpa til við uppeldið í nokkra mánuði. Það var mér til mikillar gleði, því hún var svo einstaklega skýr og skemmtileg, snemma sjálfstæð og dugleg. Mynd- irnar koma upp í hugann hver af ann- ari, Rut að fara á róló, að fara í skól- ann, í skólagarðana, og þá hún kom hún heim með fangið fullt af gulrót- um, hafði lent á mynd hjá blaðaljós- myndara, af því að gulræturnar fóru svo vel við rauða hárið hennar. Tólf ára gömul fór hún sem barn- fóstra til Egilsstaða, þá fékk Gúa, eins og hún kallaði mig, bréf og frétt- ir að austan. Svo fór hún í Kvennó og menntaskóla, alltaf glöð og hress, síð- an til Frakklands og Afríku og þaðan komu svo skemmtileg bréf, og allt var svo gaman og Gúa fékk að fylgjast með. Árin liðu. Rut kom heim og setti upp verslun og vann að hugðarefnum sínum, hannyrðum, og hélt svo í nám í Kennaraháskólanum til þess að verða handavinnukennari. Það sem meðal annars einkenndi Rut var vinnusemi hennar, víðsýni og sköpunargleði, enda lék allt í höndunum á henni. Hún eignaðist fallegt heimili, mann og þrjú elskuleg börn. Stundirnar til að hittast urðu eðlilega strjálli, enda nóg að starfa, en sambandið og vin- áttan hélst óbreytt. Að endingu þakka ég Rut minni allar ánægjustundirnar. Elsku Þórunn, Bergsteinn, Krist- ján, Rán, Steinunn og Andrés Lars. Við Guttormur vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hugur okkar verður hjá ykkur á kveðjustundinni. Elsku Rut mín, ég trúi því að það hafi verið tekið vel á móti þér á þeim stað þar sem þú ert nú og bið þér guðs blessunar. Þín Guðrún Guðbrandsdóttir (Gúa). Rut mágkona okkar er dáin aðeins 46 ára gömul. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 27. janúar sl., langt um aldur fram. Kiddi bróðir og Rut hófu sambúð 1990 og vorum við systkinin ánægð þegar Kiddi festi loks ráð sitt og flutti til Rutar og Ránar á Boða- grandann. Ekki leið á löngu þar til Steinunn og Lassi bættust í hópinn sem kallaði á stærra húsnæði, fyrst á Sólvallagötu og síðan í Rauðagerði. Þegar Rut, einkabarnið, kynntist Kidda og hóf sambúð með honum hefur hún sjálfsagt ekki gert sér grein fyrir að því fylgdi að kynnast hópi sem Kiddi tilheyrði, fimm systk- inum, þremur mágkonum og síðar mági, svo ekki sé minnst á barnaskar- ann. Það kom fljótt í ljós að þetta verkefni óx ekki Rut yfir höfuð. Hún aðlagaðist fljótt og var komin í viku- legt sunnudagskaffi til mömmu fyrr en varði. Því fylgdi síðan árlegar sumarbústaðaferðir, jólaboð, bollu- kaffi og fleira. Rut var fljót að komast inn í hópinn. Hún hafði gaman af rök- ræðum og lét sjaldnast í minni pok- ann. Rut hélt fast við sína skoðun og hafði ekkert á móti því ef henni tæk- ist að fá aðra á þá skoðun. Bestu eig- inleikar Rutar að öðrum ólöstuðum voru frásagnarhæfileikar hennar. Hún sagði mjög skemmtilega frá og með miklum tilburðum svo nálægir máttu vara sig að verða ekki fyrir. Rut hafði ferðast mjög víða og upp- lifað margt. Oft sátum við og ekki síð- ur börnin heilluð þegar hún sagði sögur frá Ghana og Fílabeinsströnd- inni. Rut var listakona. Allt efni lék í höndum hennar og skipti engu hvort það var timbur, garn eða annað. Þá skorti hana ekki hugmyndir. Hún var snillingur að búa til ótrúlegustu hluti úr engu. Það sem aðrir sáu sem ónýtt efni eða drasl sá hún tækifæri og möguleika. Hún hafði gaman að inn- rétta híbýli sín og fór ekki troðnar slóðir við þá hönnun. Rutar verður sárt saknað en minningin lifir. Elsku Kiddi bróðir, Rán, Steinunn, Lassi, Þórunn og Bergsteinn, við, fjölskyldur okkar og mamma, hugs- um til ykkar á þessum erfiðu tímum og biðjum Guð að gefa ykkur styrk. Björn, Sveinlaugur, Gunnar, Guðrún og María. Þegar mamma hringdi í mig og sagðist vera með sorgarfréttir, bjóst ég auðvitað ekki við að það væri hún Rut frænka mín sem væri farin, svona ung kona og móðir í blóma lífs- ins og full af lífsþrótti. Okkar tímar lágu mest saman þeg- ar við vorum litlar, svo að ég fer strax aftur í tímann til æskustöðvanna, á Dunhagann og í Álfheimana. Ég man að þegar ég þorði fyrst að fara alein í strætó þá var það á Dunhagann til ykkar, mér leið alltaf svo yndislega vel hjá ykkur. Við lékum okkur m.a. í Barbie leik og ég man að þú varst ekki mjög gömul þegar þú byrjaðir að sauma og prjóna föt á Barbie, hug- myndaflugið vantaði þig ekki, strax þá. Okkur fannst báðum gaman að gera handavinnu og saumuðum mikið út, klukkustrengi, myndir og púða (frá Evu Rosestand í Danm.) og vor- um oft í kappi hver gæti komist lengst. Það fengu allir útsaumaðar jólagjafir frá okkur. Þegar við vorum enn í barnaskóla vorum við sendar í Málaskólann Mími til að læra ensku og það var Breti sem kenndi okkur. Hann var mjög skemmtilegur og spil- aði stundum á gítar í tímum og söng. Fjölskyldur okkar voru alltaf mikið saman, og þegar mamma og pabbi byggðu sumarbústaðinn við Elliða- vatn var það svo heppilegt að það var lítill sætur bústaður til sölu sem var beint fyrir neðan okkar og þið keypt- uð hann. Þá var stutt að hlaupa á milli og voru margir rannsóknarleiðangr- arnir farnir niður að vatni og í bústað- ina í kring. Síðar á unglingsárunum fórum við sín í hvora áttina eins og gengur og þú fórst síðan að kanna meira heim- inn, fórst m.a. til Frakklands að læra frönsku og til Afríku. Síðar réðstu í að opna þína eigin garnverslun og fluttir sjálf inn franskt garn og þar nutu listhæfileikar þínir sín vel sem ég hef alltaf dáðst að. Þegar þú eign- aðist Rán, þá vildi svo vel til að ég gat unnið hjá þér í búðinni. Þá áttum við gott ár saman og prjónuðum margar peysurnar. Síðastliðið sumar heimsóttum við mamma þig í sæta húsið ykkar í Rauðagerðinu og við dáðumst að nýja sólpallinum og öllu handverkinu þínu, það var fátt sem þú réðst ekki í að gera. Ég hef alltaf dáðst að dugnaði þínum og krafti, elsku Rut frænka mín. Ég man ekki eftir þér öðruvísi en glaðlegri og þínum smitandi dill- andi hlátri. En nú ert þú farin langt fyrir aldur fram yfir móðuna miklu og við sem eftir erum verðum að læra að lifa með því. Ég kveð þig með söknuð í hjarta með barnasálminum: Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. (Þýð. Steingr. Thorst.) Elsku Kiddi, Rán, Steinunn og Andrés Lars og Tóta og Steini, megi góður Guð hugga ykkur í sorginni. Ása Hildur. Ég hefði frekar búist við að frosk- um rigndi af himnum ofan en að fregna andlát elsku Rutu minnar. Daginn áður sátum við yfir kaffibolla og spjölluðum og hún kenndi sér einskis meins.Ég sé hana fyrir mér sitjandi á eldhússtólnum alla á iði eins og venjulega, veifandi höndum til að leggja áherslu á orð sín og stikandi um. Þannig var hún þessi sterka og óvenjulega kona. Við kynntumst á unglingsárum, þegar Rut var í Kvennaskólanum með æskuvinkonum mínum Þóru og Svönu. Við vorum eins og aðrir ung- lingar, ýmist í krampaköstum af hlátri eða lesandi ljóð með upphöfn- um svip, íhugandi hið kosmíska sam- hengi allra hluta. Þar fór Rut fremst meðal jafningja með sinn snarpa húmor. Leiðir skildu um tíma. Rut fór til Frakklands til að jafna sig á náms- leiða. Það gekk eftir, hún kom fílefld heim og kláraði stúdentsprófið. Á ný lagði hún af stað í ferðalag, í þetta skiptið til Ghana sem skiptinemi, framlengdi síðan dvöl sína og fékk vinnu á Fílabeinsströndinni. Þegar heim kom fannst okkur vinkonunum hún bera öll merki heimskonu, þar sem hún lá á parduspúðunum sínum og sagði okkur ævintýralegar sögur af dvöl sinni á framandi slóðum. Mörgum fannst nánast óþarfi að lesa Karen Blixen á eftir, hún virkaði eitt- hvað svo hversdagsleg. Rut var einstök smekkmanneskja og vandaði vel til klæðaburðar síns. Mér er minnisstætt tímabilið þegar „leggings“ voru í tísku og allar konur, sama hvernig þær voru í laginu, gengu í leggings. Lagði ég það bara einu sinni á vinkonu mína að koma að mér í einum slíkum. Rut var sérfræðingur í að safna að sér gömlum hlutum, notuðum efnum sem aðrir töldu hafa lokið hlutverki sínu en í hennar meðförum öðluðust líf og ekki ósjaldan listrænan tilgang. Hana var gott heim að sækja og ber heimili hennar og Kidda hagleiks- höndum hennar fagurt vitni. Það er ekki orðum aukið að segja að hún hafi verið snillingur í prjóna- og sauma- skap, nægir þar að benda á peysurn- ar og púðana sem eftir hana liggja. Það var ekki ónýtt að eiga Rut mína að þegar ég flutti síðastliðið sumar og mátti ég hafa mig alla við að halda í við hana, slíkur dugnaðarfork- ur var hún. Margs er að minnast, margs er að sakna. Elsku Tóta, Steini, Kiddi, Rán Steinunn og Lassi, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Minningin um Rut mun lifa. Svana. Enginn lifir endalaust, bróðir minn, og ekkert varir nema skamma stund. Þess skalt þú fagnandi minnast. (R. Tagore) Enginn á sér tryggan morgundag, hvorki ungur né gamall. Í dag kveðj- um við góða vinkonu langt fyrir aldur fram. Minningarnar hrannast upp, allt sem hún kenndi okkur situr eftir. Í hugum þeirra sem hana þekktu þá var hún kennari af guðs náð. Það var aðdáunarvert hvernig hún virtist hafa náð þessu fullkomna jafnvægi á milli sanngirni og aga í uppeldinu á börnunum sínum. Í fyrrasumar vor- um við stödd í sumarbústað á Flúðum og börnin okkar voru saman í heita pottinum, eitthvað slettist upp á vin- skapinn og Rut gerði sér lítið fyrir og trítlaði út í pottinn á milli þeirra í öll- um fötunum. Rifrildi barnanna gleymdist á stundinni og hún hafði at- hygli þeirra óskipta. Þannig var Rut, náði til þeirra strax og vissi alltaf hvað passaði best. Hún var vinur barnanna sinna og kom fram við þau sem jafningja og þetta kenndi hún öðrum. Við munum heldur aldrei gleyma stundunum við eldhúsborðið eða á sólpallinum í Rauðagerði, þegar við í sameiningu leystum heimsmálin og önnur mál. Rut kunni ráð við öllu. Það var alltaf stutt í hláturinn og létt- leikann. Fyrir henni var lífið til þess að skapa, njóta og hafa gaman af því að vera til. Heimili hennar bar þess vott, alltaf eitthvað að dytta að, smíða, sauma, mála, bæta og breyta. Þúsundþjalasmiður og skapari, þann- ig var Rut, perla sem alla snerti. Allt sem hún tók sér fyrir hendur ein- kenndist af einlægni og því að vera sjálfri sér samkvæm. Hún var eitt af þessum jarðarblómum draumsjón- anna. Hlý, brosmild, jákvæð og örlát. Kær vinkona hefur nú lagt aftur aug- un í hinsta sinn. Elsku Rut við hittumst aftur fyrir hinum megin. Elsku Kiddi, Rán, Steinunn og Andrés Lars, foreldrar Rutar, vanda- menn, vinir, krakkarnir og kennarar í Landakotsskóla, megi æðri máttur styrkja alla í sorg sinni og söknuði. Allt er gjört og fullkomnað í eilífð himnanna. En dauðinn er sá, sem heldur jarðarblómum draumsjónanna ungum að eilífu. Þess skaltu bróðir minn, fagnandi minnast. (R. Tagore) Svanfríður A. Lárusdóttir, Helga Guðmundsdóttir. Við vorum svo lánsamar að vera með Rut Bergsteinsdóttur í bekk í Kennó og lágu leiðir okkar saman haustið 1990. Næstu þremur náms- árum eyddum við saman í blíðu og stríðu í F-bekknum. Rut gerði líf okk- ar allra auðugra með nærveru sinni og hér verður aðeins fátt eitt talið af því sem hún gaf okkur. Í þessum bekk var samansafn ólíkra einstaklinga sem flestir höfðu valið sér list- og verkgrein sem sér- grein og voru fæst okkar að koma í háskólanám beint eftir stúdentspróf. Fyrsta nafnið sem margir tóku eftir var Rut. Rut var ófeimin og sagði strax deili á sér, og okkur varð ljóst um leið hversu litrík og óvenjuleg hún var. Klingjandi risastórir antik- skartgripir í bland við flóamarkaðs- rafperlur óaðfinnanlega samansett, handprjónaðar peysur úr alls kyns framandlegu garni og öðru sem við sumar kunnum ekki einu sinni að nefna. Hún var listamaður yst sem innst, frá toppi til táar. Eftir því sem við kynntumst betur, kom í ljós hversu fjölhæf, greind og dugleg Rut var. Allt lék í höndunum á henni hvort sem það var textíll, mál- un, mósaík, eða að gera upp gömul húsgögn svo fátt eitt sé nefnt. Í ný- stárlegri efnissamsetningu, gömlu í bland við nýtt og gamalt gert að nýju, var Rut sérfræðingur. Hún gat tekið gamlar gardínur eða náttbuxur og breytt þeim í konungleg listaverk. Rut bjó yfir fjölbreyttri lífsreynslu sem hún hafði notað til að þroska sjálfa sig. Hún virtist taka hverju því sem lífið rétti henni og breyta því í já- kvæðan lífsreynslumola sem hún deildi með okkur hinum. Hún hafði einstakt lag á að gera vandamál að lausn og þar með að skemmtilegri sögu. Þær eru ófáar sögurnar hennar Rutar sem við eigum eftir að minnast oft og lengi. Rut var algerlega for- dómalaus og hafði til að bera um- burðarlyndi gagnvart flestu því sem tengist mannlegri tilveru og breysk- leika. Hún var algjörlega hrein og bein og skóf ekki utan af neinu. Hún sagði frá eigin reynslu, sárri jafnt sem fagurri, á hispurslausan hátt þannig að manni fannst sem maður hefði fengið hlutdeild í fjársjóði. Með fordæmi sínu hvatti hún okk- ur til víðsýni og fékk okkur einatt til að sjá aðstæður og málefni í nýju ljósi. Rut kunni bæði vel þá list að hlusta og að segja frá. Hún kunni að gefa ráð og hafði lag á að segja manni til, án þess að setja sig á háan hest. Hún hafði upplifað svo margt og gat miðl- að okkur fyrirhafnar- og yfirlætis- laust af reynslu sinni. Það var alltaf gaman að hitta Rut hvort sem kring- RUT BERG- STEINSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.