Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 51

Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 51 Rafvirki. getur bætt við sig verkefnum. Stefán Ingi, sími 849 8442. Útsölulok 30% afsláttur af öllum blússum. Grímsbæ, Bústaðavegi. Sími 588 8488. ÁLFA- OG SKRÝMSLAFERÐIR draugaferðir, útilegumenn og tröll, óvissuferðir, þrauta- keppni o.fl. Guðmundur Tyrfingsson ehf., gt@gtyrfingsson.is, sími 568 1410. Tilboð 1 par 1.290 - 2 pör 2.000. Stærðir 35-41, einnig barnastærðir. Margir litir. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 12, sími 562 2466. Hermann Ingi spilar um helgina. Opnun kl. 12, laugard og sunnud. Alpahúfur kr. 990 Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 12, sími 562 2466. Rafstöðvar. Díselrafstöðvar 3 kW dísel, 1.f 126.305 m. vsk. 5 kw dísel 1.f 145.104 m. vsk, m. raf- starti. Bensínrafstöðvar 650W 22.000 m. vsk. 2,5kw bensín 1.f 67.639 m. vsk. 5 kw bensín 3.f 121.000 m. vsk. Loft og raftæki, s. 564 3000. www.loft.is. www.midlarinn.is skráir net og teina, grásleppuleyfi og spil. Skoðaðu á netinu. Upplýsingar í síma 892 0808. Tölvup. midlarinn@midlarinn.is VW Golf CL árg. '94, ek. 131 þús. km. 1400cc, rauður, 3ja dyra, 5 gíra. Skoðaður og vel viðhaldið. Góður bíll í toppstandi. Verð 300 þús. Uppl. í síma 698 8401. Til sölu VW Passat Basic Line, árg. '99, ek. 71 þús., þjónustubók, einn eigandi og ný skoðaður. Bein sala. Verð 1.090 þús. Uppl. á Bílasölu Matthíasar-Bílalíf, s. 562 1717 eða í síma 660 5120. Til sölu Subaru Legacy Station árg. 2003. Sjálfsk. ekinn um 10 þús. km. Frábært eintak. sími 862- 8750 - 462-4300. Til sölu glæsilegur húsbíll. Fiat Dukado, eins og nýr, árg. 2000, ek. 38.000 km. Góður bíll á góðu verði. Uppl. í síma 696 3304. Subaru Legacy árg. '01 ek. 101 þús. km. Til sölu Subaru stw Legacy, árg. 2001, ekinn 101 þús. km. Sjálfskiptur. Aukadekk á felg- um fylgja. Uppl. í síma 867 6125. Nissan Sunny 1,6 SR, árgerð 1994, ekinn 150 þúsund km. Verð 350 þúsund. Upplýsingar í síma 869 4231. MMC Pajero, 2,8 diesel. Turbo Intercooler, sjálfskiptur, ek. 118 þús. Skipti möguleg á ódýrari. Upplýsingar í síma 820 1118. Izuzu Cru Cab Izuz Cru Cab '99, ekinn 170 þús, vél 45 þús, breytt- ur, 33“ sumar- og vetrardekk á felgum, kastarar, cd. Listaverð 1.150 þús. Bein sala. Tilboð óskast. Uppl. í síma 869 7383. Gullmoli VW Vento árg. '97, sjálfsk., ek. aðeins 56 þús., blár. Verð 650 þús. stgr. Uppl. í síma 690 0838. Glæsilegur M. Benz E 230 Avatngarde, árg. 1997, sjálfsk., ABS, ASR spólv., álf., fjarstart, Bose hátalarar, CD og magasín, hraðast., leður, rafm. í öllu, gler- toppl., hleðsluj. o.fl. Ásett v. 2.350 þ., áhv. 750 þ. 28 þ. pr. mán. Til- boð 1.890 þ. stgr. Sími 820 8096. Glæsilegur Patrol 06/00 Ekinn 67.000 km., 35" breyting, ssk., leður, topplúga, Webasto miðsöð, ný dekk og rafmagn í öllu. Einn eigandi. Verð 3.450 þús. Uppýsingar í síma 662 4915. Sími 590 2000 Hratt og örugglega frá Bandaríkjunum, tvisvar í viku Partasala, varahlutir. Mazda, Mitsubishi, Nissan. Bílaviðgerðir. Sími 587 8040, 892 5849 og 897 6897. Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 sérhæfum okkur með varahluti í jeppa og Subaru. Nýrifnir: Pajero '92, Patrol '92, Cherokee '89, Terrano'90 og Vitara '91-'97 Gabríel höggdeyfar, sætaáklæði, ökuljós, spindelkúlur, stýrisendar, vatnsdælur, gormar, handbremsu- barkar og drifliðshlífar. GS varahlutir, Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Sími 590 2000 Rafgeymarnir komnir TOPPGÆÐI Ökukennsla Ökukennsla, endurhæfing, akstursmat og vistakstur. Upplýsingar í símum 892 1422 og 557 6722, Guðbrandur Bogason. Einn með öllu M. Benz Ökukennsla, ökumat, ökuskóli. Kenni á nýjan M. Benz 2003. Eggert Valur Þorkelsson, öku- kennari, s. 893 4744 og 565 3808. Polaris Indy 550 SS vélsleði með tvígengismótor til sölu. Nýr, nánast ókeyrður. Verð 500 þús. Upplýsingar í síma 846 6408, Hörður. Orkuboltarnir Reynsla • Þekking • Árangur Þrífum íbúðir, stigaganga, flutningsþrif, húsgögn, teppi o.fl. Gerum tilboð. Veitum öryrkjum og eldri borgurum afslátt. Sími 557 1988 og 699 8779 Fagþjónustan ehf. Allar almenn- ar utanhússviðgerðir, lekavið- gerðir og breytingar utanhúss sem -innan. Fagþjónustan ehf., sími 860 1180. Tattoo. Tímabundin förðun, jurta- litir. Augabrúnir, varalína, augn- lína og body-tattoo. Tímapantanir í síma 864 9309 eða 517 2829. Lára, tattoofræðingur. Nissan Pathfinder árg. '01, ek. 32 þús. km. Lúxusjeppi með öllu. 3.5 V6, 240 hö. Leðursæti - topp- lúga - ABS - líknarbelgir - sjálf- skiptur. Rafmagn í öllu. 4WD hi/ lo/auto. Þetta er alvöru lúxusbíll. Verð 3.200 þ. Uppl. í s. 694 6337. Peugeot 406 árg. '98, ek. 74 þús. km. Framhjóladrif, beinsk., 5 gíra, 1800cc. Áhv. 525.000, 27.000 afb. á mán. Verðhugm. 350.000 stgr. og yfirtekið lán. Tveir eigendur, reyklaus bíll. S. 664 4332. Til sölu Víkingur 700 með Buck 48 ha vél. Upplýsingar í síma 898 2118. STJÓRN SAMFOK, sambands for- eldrafélaga og foreldraráða í grunn- skólum Reykjavíkur hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir ein- dregnum stuðningi við þá ákvörðun Samfés að hafna samstarfi við hljóm- sveitina Mínus. Í félagsmiðstöðvum landsins eru unglingar á aldrinum 13-15 ára í meirihluta. „Foreldrar fagna því að Samfés, sem gegna mikilvægu uppeldislegu hlutverki, taki ákveðna afstöðu gegn neyslu fíkniefna. Það er ekki vilji for- eldra að hljómsveit sem opinberlega hefur lýst yfir stuðningi við neyslu fíkniefna sé hampað og hún ráðin til að skemmta unglingum í félagsmið- stöðvum landsins. Því fagna foreldr- ar þeim stuðningi í uppeldi barna og unglinga sem Samfés sýnir með þessari afstöðu sinni.“ Heimili og skóli – landssamtök foreldra hefur einnig sent frá sér ályktun um sama efni. „Heimili og skóli – landssamtök foreldra lýsa yfir stuðningi við þá grundvallarstefnu Samfés að allir viðburðir sem þeir standa fyrir séu vímulausir og að allir sem koma fram á þeirra vegum geri sér grein fyrir ábyrgð sinni sem fyrirmyndir. Samtökin fagna því að foreldrar geti verið rólegir um börn sín þegar þau eru á vegum Samfés, hvort held- ur þau eru á samkomum eða í fé- lagsmiðstöð og að Samfés taki alvar- lega það samfélagslega hlutverk sitt að ala upp ábyrgan einstakling.“ SAMFOK styður afstöðu Samfés Fyrirlestur hjá Líffræðistofnun verður í dag, föstudaginn 13. febr- úar, kl. 12.20, í stofu 131, Náttúru- fræðihúsi Háskólans. Ingibjörg Svala Jónsdóttir heldur erindi sem nefnist: Viðbrögð plantna og plöntusamfélaga við loftslags- breytingum á norðurslóðum. Flest loftslagslíkön spá því að aukin losun gróðurhúsaloftteg- unda muni valda hlýnun á næstu áratugum og að hlýnunin verði mest á heimskautasvæðunum. Þar að auki er lofthiti heimskauta- svæðanna í byrjun mjög lágur og því má búast við að hlýnun um nokkrar gráður muni hafa hlut- fallslega mest áhrif þar. Ingibjörg Svala mun gera grein fyrir rann- sóknum á áhrifum hlýnunar á ein- staka plöntur og plöntusamfélög á Íslandi og víðar á heimskauta- svæðunum. Málfundur í tengslum við sósí- alíska fréttablaðið „Militant“ verður í dag, föstudaginn 13. febr- úar, kl. 19.30 í Pathfinder-bók- sölunni, Skólavörðustíg 6b. Yfir- skrift málþingsins er: Byltingin í Rússlandi: aðdragandi valdatöku, áhrif og lærdómar. Fjallað verður um það er uppreisn gegn keisara- veldinu þróaðist til þess að koll- varpa kapítalískum þjóðfélags- aðstæðum. Í DAG Málþing um kynbundinn launa- mun Kvenréttindafélag Íslands stendur fyrir málþingi í Norræna húsinu á morgun, laugardaginn 14. febrúar, kl. 13–16. Fjallað verður um launamun kynjanna frá mismun- andi sjónarhóli en yfirskrifin er „Lækkar ástin laun kvenna?“. Málþingið hefst með ávarpi Bryn- dísar Hlöðversdóttur alþingiskonu. Einnig halda erindi: Bjarni Ár- mannsson, bankastjóri Íslands- banka, Sigrún Viktorsdóttir, starfs- mannastjóri VR, Ingólfur V. Gíslason, sérfræðingur hjá Jafnrétt- isstofu, og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Kristján Kristjánsson, umsjónar- maður Kastljóss. Leikaðstaða fyrir börn og barna- gæsla í boði fyrir börn í fylgd mál- þingsgesta. Ræða um árangur VG í borgar- stjórn Stjórn Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs í Reykjavík heldur félagsfund laugardaginn 14. febrúar kl. 14 á Vesturgötu. Fjallað verður um árangur VG í stjórn Reykjavíkurborgar. Fulltrúar VG í nefndum og ráðum á vegum borgar- innar munu kynna starf sitt og kosið verður í borgarmálaráð, þar sem þar vantar einn fulltrúa. Framboð skulu tilkynnt til fundarstjóra á fundinum. Á MORGUN ÖLGERÐIN Egill Skallagríms- son hf. hefur sent erindi til Sam- keppnisstofnunar vegna auglýs- inga sem Vífilfell hefur undan- farið birt í dagblöðum og sjón- varpi. Er þess krafist að Vífilfelli verði meinað að birta umræddar auglýsingar og ennfremur meinuð birting eðlislíkra auglýsinga. Í tilkynningu Ölgerðarinnar segir að í auglýsingunum hafi ver- ið fullyrt að Víking-bjór væri bruggaður eftir ævafornum eða aldagömlum aðferðum. Vífilfelli sé hins vegar ómögulegt að færa óyggjandi sönnur fyrir þeirri full- yrðingu. Notaður sé sykur og maís til bruggunar á Víking-bjór en notkun slíkra efna samræmist ekki aldagömlum evrópskum hefðum við bruggun bjórs. „Af fyrrgreindum auglýsingum mætti ætla að Víking-bjór hafi verið bruggaður með sama hætti um aldaraðir. Í rökstuðningi með kærunni kemur fram að það sé ekki rétt. Uppskrift og bruggun- araðferð Víking-bjórs sé líklega 20–30 ára gömul, í mesta lagi tæp- lega 70 ára. Samkvæmt evrópsk- um hefðum, sem staðfestar voru í þýskum bjórgerðarlögum á 16. öld, sé bjór bruggaður úr vatni, malti og humlum. Sykur sé hins vegar ekki notaður,“ segir í til- kynningu Ölgerðarinnar. Í tilkynningu frá Vífilfelli hf. segir í auglýsingum Vífellfells sé ýmist talað um „aldagamla“ hefð eða „ævagamla“ hefð. Fyrirtækið segir að í grundvallaratriðum hafi aðferðir við bjórbruggun haldist óbreyttar um aldaraðir. „Víking sækir fyrirmynd sína meðal ann- ars til Pilsner-bjórsins sem fyrst var bruggaður í Tékklandi árið 1842 og til danskra bruggmeist- ara enda aldagömul hefð fyrir bjórframleiðslu í Danmörku. Það var því nokkuð víða leitað fanga þegar grunnurinn var lagður að Víking-léttöli og -bjór til þess að gæði vörunnar yrðu sem mest og ölið félli að bragðsmekk Íslend- inga. Vífilfell stendur því við þær full- yrðingar að bæði aldagamlar og ævagamlar aðferðir séu notaðar við bruggun Víking-léttöls og Vík- ing-bjórs. Sjálf uppskriftin er hins vegar mun yngri enda mikill mun- ur á aðferð og uppskrift.“ Ölgerðin og Vífilfell senda bæði erindi til Samkeppnisstofnunar Klögumálin ganga á víxl www.thjodmenning.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.