Morgunblaðið - 01.03.2004, Page 7
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 B 7
„ÞAÐ er bara eitthvað við þessa
bikarleiki, þegar maður kemur í
toppleik þá sýnir maður sínar bestu
hliðar,“ sagði Hafþór Einarsson,
markvörður KA, sem átti stórleik í
marki KA, varði 23 skot, og reynd-
ist Fram-liðinu svo sannarlega
einkar óþægur ljár í þúfu.
„Við lékum frábæra vörn og þar
af leiðandi var markvarslan góð. Þá
var sóknarleikurinn eins og best
verður á kosið. Þegar þetta kemur
saman þá þarf ekki að spyrja að
leikslokum,“ sagði Hafþór sem nú
varð bikarmeistari í fyrsta sinn í
meistaraflokki eins og svo margir
leikmenn KA-liðsins.
„Það var alveg á hreinu að frá
fyrstu mínútu voru við staðráðnir í
að vinna. Undirbúningur okkar var
góður. Við komum suður í gær
[föstudag] og stilltum þá endanlega
saman alla okkar strengi, vorum
með allt á hreinu fyrir leikinn. Það
sýndi sig þegar á hólminn var kom-
ið, allir þekktu sín hlutverk, stíg-
andinn var góður og við hreinlega
keyrðum yfir Fram-liðið,“ sagði
Hafþór sem ekki vildi gera mikið úr
því að hann hefði lagst yfir upp-
tökur af Fram-liðinu fyrir leikinn,
og spáð í hvar og hvernig leikmenn
köstuðu á markið. „Þetta var hefð-
bundið hjá mér og Hansa fyrir leik-
inn [Hans Hreinssyni varamark-
verði].
Við vorum staðráðnir í því allir
sem einn að vinna. Menn komast
ekki oft á ferlinum í þennan stærsta
leik leiktíðarinnar.“
Vorum staðráðnir í því
allir sem einn að vinna
„ÉG og Valdi [Þorvaldur Þor-
valdsson] erum þeir einu sem
voru í liðinu síðast þegar KA lék
til úrslita í bikarnum gegn Hauk-
um fyrir sjö árum. Enda er það
ekkert skrýtið að Valdi er kall-
aður afi innan hópsins og ég
langafi,“ sagði Sævar Árnason,
hinn þrautreyndi leikmaður KA,
sem fagnaði sigri í fyrsta sinn í
bikarkeppninni á laugardaginn
eftir að hafa lengi spilað með lið-
inu. Sævar miðlaði af reynslu
sinni í síðari hálfleik þegar hann
kom til leiks þegar Framarar
tóku tvo leikmenn KA úr umferð í
sókninni. Þá fór Sævar á kostum,
lék félaga sína uppi og skoraði
auk þess mikilvæg mörk.
„Þetta var það eina sem ég átti
eftir að vinna með KA, en hvort
það er merki um að nú geti ég
hætt skal ég ekki um segja. Ég
lofaði því reyndar fyrir tveimur
árum að ég myndihætta, en stóð
ekki við það. Hvað gerist í vor
ætla ég ekki að fullyrða neitt um
á þessari sigurstund,“ segir Sæv-
ar sem var afar ánægður með
leikinn í heild.
„Við hefðum getað haft stærra
forskot í hálfleik, en þegar kom
fram í síðari hálfleik þá lék aldrei
vafi á hvort liðið var sterkara.
Þótt við séum frægir fyrir að
missa niður gott forskot þá féllum
við ekki í þá gryfju að þessu sinni
heldur héldum haus allt til leiks-
loka. Við vorum svo vel einbeittir
í því markmiði okkar að vinna
þennan blessaðan bikar,“ sagði
Sævar sem vildi einnig þakka
stuðningsmönnum KA kærlega
fyrir ómetanlegan stuðning.
Vorum geysi-
lega einbeittir
AÐEINS tveir leikmenn KA voru í
liði félagsins sem lék síðast þegar
það spilaði úrslitaleik í bikarkeppn-
inni, gegn Haukum 1997. Þetta eru
Sævar Árnason og Þorvaldur Þor-
valdsson. Þá var Atli Hilmarsson,
faðir Arnórs Atlasonar, þjálfari KA.
Atli sat á meðal stuðningsmanna KA
að þessu sinni og hvatti son sinn og
félaga hans til dáða.
KA tapaði fyrrgreindum leik við
Hauka, en árið áður vann KA Víking
og var Þorvaldur einnig í liði KA og
var hann því eini leikmaður liðsins
sem lék á laugardaginn sem hafði
orðið bikarmeistari með liðinu í
meistaraflokki.
EGIDIJUS Petkevicius, mark-
vörður Fram, meiddist á ökkla hægri
fótar á 48. mínútu úrslitaleiksins, en
þá var staðan 22:17, fyrir Fram. Pet-
kevicius kom til leiks á ný undir
leikslok en var greinilega ekki orð-
inn góður í ökklanum og fór skömmu
síðar af leikvelli á ný, skipti við Sig-
urjón Þórðarson, varamarkvörð.
PETKEVICIUS lék á síðustu leik-
tíð með KA en flutti suður á síðasta
sumri. Þegar hann fór meiddur af
leikvelli komu margir gamlir félagar
hans hjá KA og hvöttu hann til dáða
og sýndu af sér íþróttamannslega
framkomu.
KA-menn fengu hlýjar mótttökur
við komuna til Akureyrar á laugar-
dagskvöld. Þó nokkur fjöldi var
mættur á flugvöllinn til að hylla
meistarana.
FÓLK
það okkur enn frekar að Hafþór varði
eins og berserkur í markinu.
Þá má heldur ekki gleyma því að Ing-
ólfur [Axelsson] og Sævar [Árnason]
komu ferskir til leiks þegar á leið síðari
hálfleik og skoruðu mikilvæg mörk.
Við þekkjum það vel að fara í gegnum
úrslitaleiki, vitum hvernig það er að
vinna þá og eins hvernig það er að tapa
þeim. Viljinn var fyrir hendi hjá okkur að
þessu sinni og þegar við bættist frábær
stuðningur reyndist þetta vera auðveldur
sigur.
Þá má heldur ekki gleyma því að
reynslan úr þessum leik getur nýst okkur
vel í vor því við ætlum okkur að komast
alla leið í úrslitin um Íslandsbikarinn.
Eftir þennan sigur er ekkert annað uppi
á borðinu en halda áfram að leika eins við
vorum að gera að þessu sinni og ljúka
þannig Íslandsmótinu,“ sagði ákveðinn
fyrirliði KA, Jónatan Magnússon.
kkur meira
Morgunblaðið/Þorkell
Bikarmeistarar KA fagna eftir sigurinn á Fram.
ði KA, sækir að marki Fram.
Munurinn lá að mínu mati í þvíað sóknarleikur okkar var
óyfirvegaður. Fyrir leikinn vorum
við búnir að fara
mjög vel yfir það,
hvernig við ætluð-
um að leika en þeg-
ar á hólminn var
komið tókst það ekki. Strax frá
fyrstu mínútu tóku leikmenn mínir
óyfirveguð og illa ígrunduð skot.
Því héldum við áfram nær allan
leikinn og þar með færðum við
leikmönnum KA boltann á ódýran
hátt og var að sjálfsögðu refsað
fyrir.
KA-menn voru klárlega betur
undir leikinn búnir en við og það
er leiðinlegt að enda keppnina með
þessum hætti eftir að hafa átt frá-
bæra leiki í keppninni fram að úr-
slitaleiknum,“ sagði Heimir.
Ætlaðir þú að halda hraðanum
niðri?
„Nei, við ætluðum það ekkert
frekar. Það er ekki svo mikill hraði
í KA-liðinu ef vörnin nær að stilla
sér upp gegn því. Þá gengur leikur
þess út á að stimpla fram og til
baka og freista þess að koma bolt-
anum inn á línuna á Andrius
Stelmokas. Síðan rífa Arnór [Atla-
son] og fleiri sig upp þess á milli.
Vorum ekki tilbúnir
Því miður var meinið fyrst og
fremst það að við vorum ekki til-
búnir í þennan leik, það er þunga-
miðjan að mínu mati, í því lá mun-
urinn á liðunum fyrst og fremst.
Það virtist vera sem einhverjir af
mínum mönnum hafi ekki haft trú
á að þeir gætu unnið. Okkur tókst
stundum að minnka muninn í eitt
mark en um leið og við misstum
KA-liðið þremur til fjórum mörk-
um framúr okkur þá hættu menn
mínir, sumir lögðu hreinlega árar í
bát og KA-menn gengu á lagið.
KA-liðið var í allt öðrum gír en
við og því verðugur sigurvegari og
bikarmeistari að þessu sinni.
Það er mikill misskilningur hjá
mönnum ef þeir halda að þeir geti
mætt í bikarúrslitaleik og hvílt sig
síðasta korterið af leiktímanum.
Það gerðist því miður hjá okkur og
það er hreinlega ömurlegt að horfa
upp á það eiga sér stað,“ sagði
Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari Fram, ekki ánægður með liðið
Vorum ekki
klárir í slaginn
„ÉG vil í upphafi óska KA-
mönnum til hamingju með sig-
urinn. Þeir léku mjög vel á sama
tíma og við lékum einstaklega
illa,“ sagði Heimir Ríkarðsson,
þjálfari Fram, eftir að hafa tekið
við silfurverðlaunapeningnum í
leikslok á laugardag.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Morgunblaðið/Golli
Heimir Ríkharðsson, þjálfari
Fram, var ekki ánægður
með leik sinna drengja.