Morgunblaðið - 01.03.2004, Side 8

Morgunblaðið - 01.03.2004, Side 8
HANDKNATTLEIKUR 8 B MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ „ÞETTA var rosalega erfiður og spennandi leikur. Þetta var al- vörubikarleikur þar sem bæði lið koma jöfn til leiksins og það lið sem sýnir meiri baráttu stendur uppi sem sigurvegari. Það var ein- mitt það sem við fengum í þessum leik, baráttu og meiri baráttu. Við vitum að í bikarúrslitaleikjum þarf að leggja sig 110% fram og við gerðum það í dag. Bæði lið gerðu sig sek um mikið af mistökum í dag en þegar upp var staðið gerð- um við færri og það færði okkur sigurinn. Það verður gaman að koma heim til Eyja og fagna sigr- inum,“ sagði Alla Gokorian, leik- maður ÍBV og einn besti leik- maður Íslandsmótsins nokkur síðustu ár. „Þetta var erfitt“ Það var ljóst allt frá byrjun aðbæði lið komu með því hugar- fari að sókn væri besta vörnin, þau keyrðu upp hraðann og voru fljót að ljúka sóknum sínum. Haukar náðu fljót- lega forystunni og höfðu mest þriggja marka forskot, 11:14, þegar um 7 mínútur voru til hálfleiks. Þá tók Aðalsteinn Eyjólfs- son, þjálfari ÍBV, leikhlé og stapp- aði stálinu í lærisveina sína. Það skilaði árangri því ÍBV skoraði 6 mörk gegn tveimur mörkum Hauka og fóru inn í hálfleik með eins marks forskot, 17:16. Eyjastelpur voru ekkert á því að gefa eftir forystu sína í seinni hálf- leiknum, juku við hana smátt og smátt, en náðu þó ekki meira en fjögurra marka mun. Haukar sýndu mikla baráttu og þegar þrjár mín- útur voru til leiksloka náðu þær að minnka muninn í eitt mark og allt gat gerst. En leikmenn ÍBV eru miklir reynsluboltar og hafa í vetur verið að leggja drjúgt inn í reynslu- bankann. Það á ekki síst við um þær Öllu Gokorian og Önnu Yakovu og það var ekki síst framlag þeirra sem tryggði ÍBV 35:32 sigur. Sómi fyrir íslenskan kvennahandknattleik „Ég hef ekki tekið þátt í mörgum bikarúrslitaleikjum en þessi leikur var hraður og skemmtilegur og bæði lið spiluðu mjög vel. Mér fannst Haukaliðið spila vel, það voru margir einstaklingar sem stigu upp í þeirra liði og þær eiga heiður skilinn fyrir skemmtilegan leik. Þetta var frábær leikur og mikill sómi fyrir íslenskan kvennahand- bolta,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, í leikslok og var kampakátur með sigurinn og stelp- urnar sínar. „Leikurinn spilaðist ekki eins og við lögðum upp með. Það var of mik- ill taugatitringur hjá okkur í byrjun, við vorum að missa boltann og gerð- um of marga tæknifeila. Við vorum alltaf að leita að flóknu leiðinni í stað þess að leita að þessu einfalda. Þegar um 7 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum tók ég leikhlé og fór yfir þessa hluti og við náðum að leika ágætlega eftir það. Við fórum reyndar illa með dauðafæri og víta- köst í seinni hálfleik en við hefðum auðveldlega getað sett 40 til 45 mörk í þessum leik, miðað við það hvernig hann þróaðist.“ Hafði þátttaka ykkar í Evrópu- keppninni í síðustu viku einhver áhrif á undirbúning ykkar fyrir þennan leik? „Ég veit ekki hvað skal segja. Mér fannst ósigurinn í bikarúrslit- unum í fyrra eiginlega sitja meira í leikmönnum en Evrópuleikirnir. Stelpurnar voru að pressa sig óþarf- lega mikið upp í stað þess að njóta leiksins. Við fengum góða hvíld í vikunni og náðum að vinna okkur upp í þennan leik. Við eigum Hauka í næsta leik, í Hafnarfirði á miðviku- dag og þá verðum við að afsanna þá kenningu að ef þú vinnur í bikar þá tapar þú næsta leik í deild,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV. Magnaðir leikmenn í báðum liðum Lið ÍBV er óumdeilanlega besta kvennalið á Íslandi í dag og það má mikið vera ef nokkru íslensku liði tekst að stöðva sigurgöngu þess það sem eftir er vetrar. Hvergi er veik- an blett að sjá og leikmenn verða samstilltari í hverjum leiknum sem líður. Alla Gokorian, Anna Yakova og Sylvia Strass bera leik liðsins uppi og sýndu það enn og sönnuðu að þar fara frábærir leikmenn, út- sjónarsamir og klókir. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari liðsins, og þeir sem að liðinu koma, hafa náð að stilla liðið saman sem eina heild og búið til lið sem Vestmannaeyingar geta sannarlega verið stoltir af. Haukar áttu undir högg að sækja í þessum leik, líkurnar voru ekki með þeim enda mótherjarnir með sterkasta móti. Það verður þó ekki af Haukastúlkum tekið að þær léku virkilega vel í leiknum. Ragnheiður Guðmundsdóttir fyrirliði fór fyrir stöllum sínum ásamt Ramuné Pek- arskyté og liðið í heild sýndi mikinn og sterkan karakter í gegnum allan leikinn. Það vantaði aðeins örlítið meiri reynslu til að þeim tækist að stríða Eyjastúlkum enn meir undir lok leiksins en þær geta sannarlega gengið stoltar frá þessari viðureign og líkt og sagt var um Eyjamenn hér áður geta Hafnfirðingar verið stoltir af stúlkunum sínum. Eyjakonur náðu fram hefndum og tryggðu sér bikarinn í frábærum leik „Taugatitringur hjá okkur í byrjun“ VESTMANNAEYINGAR eiga sterkasta kvennalið Íslands í handknattleik um þessar mund- ir. Öll tvímæli voru tekin af um það í Laugardalshöll á laugar- dag þegar ÍBV tók á móti Hauk- um í úrslitaleik bikarkeppninnar í handknattleik. Eyjastúlkur unnu þá, 35:32, í bráðfjörugum leik sem lengi verður í minnum hafður fyrir hraða, spennu og mikla skemmtun. Morgunblaðið/Þorkell Anna Yakova átti mjög góðan leik og hér er eitt átta marka hennar gegn Haukum í fæðingu. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar  STUÐNINGSMENN Hauka voru áberandi á bikarúrslitaleiknum gegn ÍBV á laugardag. Þeir hittust á Ásvöllum kl. 10 um morguninn og hituðu upp fyrir leikinn, æfðu bar- áttusöngva og máluðu sig í framan í Haukalitunum. Þaðan hélt hópur- inn með strætisvagni í Laugardals- höll.  STUÐNINGSMENN ÍBV létu heldur ekki sitt eftir liggja fremur en endranær þegar íþróttalið þeirra komast í úrslit á stórmóti. Eyjamenn komu með Herjólfi að morgni laugardags og brottför ferj- unnar frá Þorlákshöfn var frestað til kl. 17 svo að stuðningsmenn kæmust heim samdægurs.  ALLA Gokorian, leikmaður ÍBV, fagnaði 32 ára afmæli sínu á laug- ardag.  HEIÐURSGESTIR á leiknum voru bæjarstjórar Hafnarfjarðar og Vestmannaeyja, þeir Lúðvík Geirsson og Bergur E. Ágústsson. Þeir heilsuðu upp á leikmenn í byrjun leiks ásamt Guðmundi Ingvarssyni, formanni HSÍ, og Steinþóri Skúlasyni, forstjóra SS.  HARPA Harðardóttir söng ís- lenska þjóðsönginn fyrir úrslitaleik kvenna og karla. Tókst henni það ákaflega vel. Höfðu menn á orði að sjaldan hefði þessi erfiði söngur verið jafn fagurlega fluttur og í Höllinni á laugardag.  STUÐNINGSMENN ÍBV gáfu út veglega leikskrá í tilefni af bikarúr- slitaleiknum þar sem leikmenn voru kynntir og sagt frá ferð stelp- anna til Frakklands í Evrópuleik.  ÍBV lagði FH og Stjörnuna á leið sinni í úrslitaleikinn en Hauka- stelpur sigruðu Fram og Gróttu/ KR.  FYRIR bikarúrslitaleikinn hafði ÍBV aðeins tapað einum leik í vet- ur, þ.e. í deild og bikar, en það var gegn Val 24. september 2003.  RAGNHILDUR Guðmundsdóttir og Björk Hauksdóttir, úr Haukum, og þær Alla Gokorian og Sylvia Strass fóru í lyfjapróf á vegum ÍSÍ eftir bikarúrslitaleikinn.  ÍBV og Haukar höfðu mæst einu sinni á Íslandsmótinu í vetur. ÍBV fékk þá Hauka í heimsókn til Eyja og hreinlega rúllaði þeim upp, 36:23. Liðin mætast að nýju í deild- inni á Ásvöllum í Hafnarfirði á miðvikudag.  KRISTINA Matuzeviciute, mark- vörður Hauka, meiddist í hné í upp- hitun en byrjaði þó leikinn. Hún varði 4 skot á fyrstu 11 mínútum leiksins en fékk þá slink á hnéð að nýju og varð að fara af leikvelli. Harpa Melsted, fyrrum fyrirliði Hauka og sjúkraþjálfari þeirra, sagði að hún hefði verið mjög kval- in en það kæmi ekki í ljós fyrr en eftir helgi hvað amaði að Kristinu. FÓLK „GRUNNURINN að þessum sigri er fyrst og fremst frá- bær mannskapur og umgjörðin í kringum hópinn er al- veg einstök. Mannskapurinn nærvel saman, þó við höf- um kannski ekki sýnt það í þessum leik. Við lékum ekki nógu vel í fyrri hálfleik en það skipti sköpum að við náðum að komast yfir fyrir hálfleik og eftir það var þetta engin spurning. En það verður ekki spurt hvern- ig við lékum í þessum leik heldur hver sigraði. Við lögðum upp með að keyra upp hraðann og halda áfram að leika eins og við höfum verið að gera í vetur,“ sagði Elísa Sigurðardóttir, fyrirliði ÍBV, við Morgunblaðið eftir leikinn. Ekkert sem kom á óvart „Það var ekkert í þeirra leik sem kom okkur á óvart, við vitum alveg hvað þetta Haukalið getur og hraðinn í leik þess kom okkur ekki á óvart. Við erum mjög sáttar við að fara heim með bikarinn og við eigum ekki von á öðru en það verði tekið vel á móti okkur á bakkanum þegar við komum heim,“ sagði Elísa Sigurðardóttir, Morgunblaðið/Þorkell Elísa Sigurðardóttir, fyrirliði ÍBV. „Grunnurinn frá- bær mannskapur“ FJÖLDI fólks tók á móti nýkrýnd- um bikarmeisturum á Básaskers- bryggju í Eyjum þegar Herjólfur lagðist við bryggju á laugardags- kvöldið. Meistararnir fengu af- hend blóm frá bæjarstjórn Vestmannaeyja og flugeldum var skotið á loft þeim til heiðurs. Að því loknu var ÍBV-liðinu boðið í mat á Mánabar og stóð sigurgleðin langt fram eftir nóttu. Bergur Ágústsson, bæjarstjóri í Eyjum, flutti ræðu á sigurhátíð ÍBV- liðsins og þar greindi hann frá því að bærinn ætlaði að létta undir bagga ásamt fyrirtækjum í bænum vegna þátttöku liðsins í Evrópu- keppninni. Mikill fögn- uður við kom- una til Eyja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.