Morgunblaðið - 01.03.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 01.03.2004, Síða 12
 ÞÓRÐUR Guðjónsson lék síðasta stundarfjórðunginn í liði Bochum sem gerði markalaust jafntefli við Hansa Rostock á heimavelli sínum í þýsku Bundesligunni í knattpyrnu.  ÍVAR Ingimarsson lék allan leik- inn fyrir Reading sem vann Shef- field United, 2:1, í ensku 1. deildinni.  BJARNI Guðjónsson átti góðan leik með Coventry sem sigraði Derby, 2:0, í 1. deildinni. Síðara mark Coventry kom eftir horn- spyrnu Bjarna en hann þótti mjög líflegur í leiknum og var maðurinn á bakvið margar sóknir Coventry-liðs- ins. Þá kom Bjarni sínum mönnum til bjargar í síðari hálfleik þegar hann bjargaði skoti leikmanns Derby af marklínunni.  HEIÐAR Helguson tók út leik- bann í liði Watford sem burstaði Wimbledon, 4:0. Lárus Orri Sig- urðsson var ekki í leikmannahópi WBA sem tapaði óvænt á heimavelli fyrir Rotherham.  BRYNJAR Björn Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Nottingham Forest í leiknum við Bradford í ensku 1. deildinni.  JÓHANNES Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Úlfanna í falls- lagnum gegn Leicester á Walker Stadium í Leicester.  HELGI Sigurðsson lék ekki með danska liðinu AGF sem gerði marka- laust jafntefli við Krasnodar í æf- ingaleik á Kýpur um helgina.  PÉTUR Hrafn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Körfuknattleikssam- bandsins, var í Ungverjalandi um helgina þar sem hann sat ráðstefnu fyrir alþjóðlega eftirlitsmenn í körfuknattleik.  KRISTINN Ingi Valsson varð í 19. sæti í risasvigi á FIS-móti í Oppdahl í Noregi á laugardaginn. Hann fékk 75,65 FIS-stig fyrir árangurinn en hann skíðaði brautina á 1.12,89.  EMMA Furuvik, skíðakona úr Ár- manni, keppti í heimsbikarmóti í Levi í Finnlandi um helgina. Í gær varð hún í 36. sæti í fyrri ferðinni í svigi og var þar með úr leik. Á laug- ardaginn keppti hún einnig en náði ekki að ljúka fyrri ferðinni. FÓLK GAIL Devers, hlaupadrottn- ingin bandaríska, var í miklu stuði á bandaríska meist- aramótinu innanhúss um helgina. Hún sigraði bæði í 60 metra hlaupi og 60 metra grindahlaupi og varð þar með fyrst bandarískra kvenna til að sigra í báðum greinunum á þessu móti. Keppnin í 60 metrunum var spennandi þar sem hún og Torri Edwards komu báðar í mark á 7,12 sek- úndum, en Devers var úr- skurðuð sigurvegari eftir að menn höfðu legið yfir tölvu- myndum af því þegar stúlk- urnar fóru yfir endalínuna. Maurice Greene komst í úrslit 60 metra hlaups karla á 6,61 sekúndu en mætti ekki í úrslitahlaupið vegna smá- vægilegrar tognunar. Þetta nýtti Shawn Crawford sér og vann á 6,47 sekúndum. Allen Johnson hélt titl- inum í 60 metra grinda- hlaupi, vann auðveldlega á 7,44 sekúndum. Devers í stuði inn- andyra SKAGAMAÐURINN Jóhannes Þór Harðarson skrifaði um helgina und- ir þriggja ára samning við norska 1. deildarliðið Start. Jóhannes hefur verið í herbúðum Groningen í Hol- landi frá árinu 2001 en hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig með liðinu og var á síðustu leiktíð leigður til hollenska 1. deildarliðsins Veendam þar sem hann lék 12 leiki. Að sögn Ólafs Garðarssonar, um- boðsmanns knattspyrnumanna, munaði litlu að Jóhannes færi til Gautaborgar í Svíþjóð en þegar fé- lagið endurheimti Niclas Alexand- ersson frá Everton varð ekkert úr því að Jóhannes færi til liðsins. „Það var ekki létt að landa þess- um samningi enda leikmaðurinn á mála hjá toppliði í Hollandi þar sem launin eru miklu hærri en við höfum ráð á að greiða. En eftir tólf klukku- stunda samningaviðræður tókst okkur að ná saman og við væntum góðs af honum í framtíðinni,“ sagði Harald Andersson, framkvæmda- stjóri Start, í samtali við norska blaðið Fædrelandsvennen. Start frá Kristianstad féll úr norsku úrvalsdeildinni haustið 2002 en Guðjón Þórðarson tók við liðinu í vonlausri stöðu og tókst ekki að bjarga því frá falli. Start fékk Jóhannes á frjálsri sölu en hann átti fjóra mánuði eftir af samningi sínum við Groningen. „Ég er mjög ánægður með að þessi mál skuli vera kominn á hreint og nú fæ ég tækifæri í öðru landi til koma mér af stað á nýjan leik,“ sagði Jóhannes við norska blaðið Fædrelandsvennen. Jóhannes Harðar- son samdi við Start STJÓRN Alþjóða knattspyrnu- sambandsins ákvað á fundi sínum um helgina að afnema svokallað gull- og silfurmörk frá og með næstu leiktíð. Gamla reglan verð- ur tekin aftur upp þannig að ef lið standa enn jöfn eftir framleng- ingu verður gripið til framleng- ingar. Breytingar munu eiga sér stað eftir Evrópumót landsliða í Portúgal í sumar.  Þá ákvað FIFA að heimila að- eins sex innáskiptingar í vin- áttulandsleikjum en skiptingar hafa undanfarin ár verið frjálsar og hefur Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, ásamt fleiri þjálfurum notað þær óspart í leikjum enska landsliðs- ins, mörgum til mikils ama.  Leikmenn verða áminntir ef þeir fara úr keppnistreyjum sín- um á meðan leik stendur og skipt- ir þá engu máli þótt þeir séu að fagna mörkum.  Ekki verður leyfilegt fyrir þjálfara að vera í talstöðv- arsambandi við leikmenn á meðan leik stendur líkt og átti sér stað í leik í belgísku deildinni á dög- unum þegar þjálfari kom skila- boðum til markvarðar síns með þeim hætti. Gull- og silfurmörk verða afnumin Við vorum bara ekki vaknaðir ogþað er óhætt að segja að við höfum vaknað upp við vondan draum,“ sagði Hermann við Morg- unblaðið eftir leikinn við Arsenal. „Það var skelfilegt að lenda 2:0 und- ir eftir tæplega fjögurra mínútna leik en við sýndum karakter og með smá heppni hefðum við getað stolið stigi þegar Jonatan skaut í stöngina undir lokin. Það er fullmikið af því góða að gefa liði eins og Arsenal tvö mörk í forskot og við blæddum ein- faldlega fyrir það. Úr því sem kom- ið var þá held ég að við getum verið þokkalega sáttir við úrslitin. Manni leist ekkert á blikuna þegar maður sá á ljósatöflunni 2:0 og leikurinn vart byrjaður en við náðum að lag- færa leik okkar og þá sérstaklega í síðari hálfleik og hleypa smá spennu í leikinn. Það greip um sig smá taugaveiklun hjá Arsenal undir lokin en ég held að ég geti ekki sagt annað en að Arsenal hafi átt sig- urinn skilinn,“ sagði Hermann. Hermann segir að enginn vafi leiki á að Arsenal sé með besta liðið á Bretlandseyjum og hann spáir því að liðið hampi meistaratitlinum í vor. Spurður út í eigin frammistöðu sagði Hermann: „Ég var tiltölulega sáttur við minn leik en ég var ekki alveg nógu sáttur við varnarleik minn í aðdraganda fyrsta marksins sem Pires skoraði. Ljungberg lék þríhyrningsspil við Henry og ég var ekki nægilega vel á verði. Að öðru leyti fannst mér ég komast klakk- laust frá leiknum. Það er mikil hreyfing á leikmönnum Arsenal og Henry er engum líkur og erfitt við hann að eiga. Við höfum gefið eftir í síðustu leikjum en það er enn mikið eftir af mótinu og stefnan hjá okkur er að ná fjórða sætinu sem gefur sæti í Meistaradeildinni. Það lítur allt út fyrir það að Ars- enal vinni deildina og mér finnst af- ar hæpið að liðið glutri niður níu stiga forskoti. Ef ég ber toppliðin saman þá leikur enginn vafi í mín- um huga að Arsenal er með sterk- asta liðið. Það segir sig sjálft að lið- ið hefur enn ekki tapað leik á meðan Manchester United og Chelsea hafa bæði tapað fimm leikj- um. Það hafa komið leikir inn á milli sem Arsenal hefur ekkert verið að leika neitt sérstaklega vel en samt tekst liðinu alltaf að vinna. Það er gífurlegt sjálfstraust í liðinu og það virðist ekki koma að sök þótt ein- hverjar breytingar séu gerðar á lið- inu.“ Hermann Hreiðarsson eftir tap Charlton gegn Arsenal á Highbury Gengur ekki að gefa tvö mörk í forskot HERMANN Hreiðarsson hafði í nógu að snúast í vörn Charlton sem tapaði fyrir Arsenal, 2:1, í Highbury í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu. Hermann stóð fyrir sínu í Lundúna- slagnum og var með betri leik- mönnum Charlton sem vissu vart hvaðan á sig veðrið stóð í upphafi leiks. AP Thierry Henry sækir að marki Charlton, þar sem Hermann Hreiðarsson er til varnar. ■ Arsenal færist/B4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.