Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 1

Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 1
Hornsteinar flautuverka Kolbeinn Bjarnason og Geoffrey D. Madge á Tíbrártónleikum | Listir 24 STOFNAÐ 1913 61. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Hólmarar í sigurvímu Án körfuboltans væri bæjarbragur í Stykkishólmi annar | Íþróttir 44 Hilmir heim með 11 Óskara Hringadróttinssagan jafnaði met Ben Hur og Titanic | Fólk 50 VARÐSKIPIÐ Ægir kom til Nes- kaupstaðar í gær um kl. 13.30 að beiðni lögregluyfirvalda í tengslum við rannsókn lögreglunnar á lík- fundinum í Neskaupstað hinn 11. febrúar. Rannsökuð eru tildrög þess að líki af 27 ára gömlum Litháa, Vaidas Jucevicius, var sökkt í sjóinn við netabryggjuna í Nes- kaupstað. Eitt af hlutverkum Landhelgis- gæslunnar er að aðstoða við lög- reglurannsóknir og leggja liðsmenn Landhelgisgæslunnar nú fram að- stoð vegna dýptarmælinga nærri bryggjunni þar sem hinn látni fannst. Leita kafarar, sem vera munu um fjórir talsins, að hugs- anlegum sönnunargögnum á af- mörkuðu svæði þar í kring, á um 15- 20 m dýpi og í um 38 faðma frá bryggjunni. Leitin bar ekki árang- ur. Rannsókn málsins miðar vel en meðal þess sem leitað er að er áhald, væntanlega hnífur, sem stungið var í líkið en talið er að áhaldið sé í sjónum nálægt bryggj- unni. Gæsluvarðhald yfir mönnunum þremur, einum Litháa og tveimur Íslendingum, sem grunaðir eru um aðild að málinu, rennur út á morg- un, miðvikudag. Ekki lá fyrir í gær hvort til stæði að krefjast fyrir dómi framlengingar á gæsluvarðhaldinu. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Kafarar Landhelgisgæsl- unnar leita sönnunargagna Gæsluvarðhald yfir hinum grunuðu rennur út á morgun ÁHRIF stóriðjuframkvæmda virð- ast hafa verið mögnuð upp í huga fólks langt umfram það sem staðist getur þjóðhagslegan veruleika og fjölmargir hafa tekið erlend lán, m.a. til að fjármagna hlutabréfa- kaup, í þeirri fullvissu að gengi krónunnar haldist hátt á næstu ár- um segja sérfræðingar KB banka. Þannig verður hlutabréfamarkaður- inn til þess að hækka gengi krón- unnar en sú spurning er hins vegar orðin mjög áleitin hvort sú stund sé ekki í nánd að væntingarnar muni rekast á raunveruleikann þegar nú- verandi hækkunarhrina á hluta- bréfamarkaðinum er á enda. Það gæti þýtt að fjármagnsstraumar til landsins þornuðu og gengi krónunn- ar lækkaði snögglega um leið og hlutabréfaverð færi að lækka. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka en þar er bent á að sterk tengsl séu á milli verðþró- unar á hlutabréfamarkaði og er- lendrar lántöku sem aftur hafi áhrif á gengi krónunnar. Lækki hlutabréf í verði dragi stórlega úr erlendri lántöku og innstreymi fjár sem aftur geti þýtt að gengi krónunnar falli snögglega. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands, telur tækifæri til mikilla verðhækkana á hluta- bréfamarkaði vera takmörkuð en álítur heldur ekki vera hættu á mik- illi verðlækkun. „Mér sýnist þeir [sérfræðingar KB banka] heldur svartsýnir. Ég á ekki von á því að sú hringrás mynd- ist sem þeir lýsa,“ segir Sigurjón. Hann segir mikið innflæði fjár- magns stafa af því að íslenskt at- vinnulíf hafi gripið tækifærið og skuldsett sig í erlendum myntum frekar en krónunni, ljóst sé að auk- ið peningaframboð hafi haft ein- hver áhrif á eignaverð í landinu en segir of djúpt í árinni tekið að það skapi hættu á einhvers konar hruni. Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, segist geta tekið undir með greiningardeild KB banka um tengsl aukinnar erlendrar lántöku og hækkunar á hlutabréfamarkaði. „Undanfarna mánaði hefur nokkuð borið á skuldsettum hlutabréfa- kaupum í skráðum félögum á mark- aði og uppkaupum á félögum til af- skráningar sem fjármögnuð eru með erlendum lánum. Því eru tölu- verðar líkur á lækkun á gengi krón- unnar samhliða lækkun á hluta- bréfamarkaði, þar sem tengslin virka að sjálfsögðu í báðar áttir,“ segir Bjarni. Snögg lækkun krónu ef hlutabréf falla í verði KB banki bendir á sterk tengsl er- lendra lána og verðs á hlutabréfum  KB banki/11 Konum í stjórn- unarstöðum hættara við áfengisvanda KONUM í stjórnunarstöðum er hættara við áfengisvanda en þeim sem lægra eru settar, að því er nið- urstöður rann- sóknar er gerð var í University College í London benda til. Greint er frá þessu á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Ennfremur bendir rann- sóknin til að konur í stjórn- unarstöðum séu líklegri en karlar í sambærilegum stöðum til að snúa sér að flöskunni. Talið er að streit- an sem fylgi því að keppa um yf- irmannastöður við karlmenn sé að nokkru leyti orsökin fyrir þessu. Í niðurstöðum rannsóknarinnar, sem birtar eru í tímaritinu Occupational Environmental Med- icine, kemur aftur á móti fram, að meðal karlmanna er tíðni áfengis- vanda jafnhá meðal yfir- og undir- manna. Um átta þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi tóku þátt í rannsókninni. Jenny Head, lektor í faraldsfræði og lýðheilsu við University College, stjórnaði rannsókninni, og telur hún að ástæðu þess hvernig málum er komið kunni að mega rekja til þeirra hafta sem konur reki sig á þegar þær reyni að vinna sig til æðstu metorða. „Þeim sem finnst þeir leggja sig fram en finnst þeir ekki hljóta umbun er hættara við að lenda í vandræðum vegna áfeng- isneyslu,“ sagði Head. Leiðtogar uppreisnarmannanna áttu fund með frammámönnum í stjórn- arandstöðunni, og meðal þeirra sem sátu fundinn voru Philippe og Evans Paul, fyrrverandi borgarstjóri í Port-au-Prince og einn helsti póli- tíski andstæðingur Jeans Bertrands Aristides forseta, sem flúinn er til Afríku. Einnig var Louis-Jodel Chamblain, sem er frammámaður í uppreisnarliðinu og fyrrverandi for- ingi í dauðasveitum, á fundinum. Philippe sagði aðspurður að upp- reisnarmennirnir hygðust einungis tryggja öryggi hins nýja forseta landsins, Boniface Alexandre, for- seta hæstaréttar, sem samkvæmt stjórnarskrá tók við forsetavaldinu þegar Aristide fór úr landi. Bandarískir landgönguliðar tóku sér stöðu við forsetahöllina í Port- au-Prince í gær, en bandarískir og franskir hermenn komu til Haítí á sunnudag og hafa síðan haft varð- stöðu á flugvelli höfuðborgarinnar. Philippe fagnaði komu þeirra. Yfir- maður bandarísku landgönguliðanna sagði Haítíbúa hafa tekið liðinu vel. Bandarísk stjórnvöld sögðu í gær að ekkert væri hæft í fregnum þess efnis að bandarískir hermenn hefðu flutt Aristide nauðugan viljugan úr landi. Fyrrverandi formaður sam- takanna Transafrica, sem starfa í Washington, tjáði CNN að hann hefði talað við Aristide í síma og hefði forsetinn fyrrverandi sagt, að um 20 bandarískir hermenn með al- væpni hefðu neytt hann og fjöl- skyldu hans um borð í flugvél á sunnudaginn og flogið með hann til Miðafríkulýðveldisins. Þar væri for- setanum og fjölskyldu hans nú hald- ið í litlu herbergi. Uppreisnarliði fagnað í höfuð- borg Haítí Bandaríkjamenn neita því að hafa flutt Aristide nauðugan úr landi ÞÚSUNDIR fagnandi Haítíbúa fylltu aðaltorgið í höfuðborg lands- ins, Port-au-Prince, í gær og hylltu Guy Pilippe, leiðtoga uppreisnar- manna er hann ók fyrir liði sínu inn í borgina. Hrópaði fólkið nafn hans og haft var eftir einum borgarbúa: „Mér finnst Guð hafa frelsað mig!“ Bandarískir hermenn tóku sér stöðu við forsetahöllina. Port-au-Prince, Washington. AP, AFP.  Sagður hafa/14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.