Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VERKFRÆÐI Í HR
Háskólinn í Reykjavík stefnir að
því að hefja kennslu í verkfræði
haustið 2005. Undirbúningur er
langt á veg kominn og væri hægt að
taka inn 50 nemendur á fyrsta ári.
Þá er á teikniborðinu að bjóða nám í
kennslufræðum.
Uppreisnarmenn funda
Uppreisnarmenn og stjórnarand-
stæðingar á Haítí áttu fund í höf-
uðborginni, Port-au-Prince, í gær í
kjölfar brotthvarfs forsetans, Jeans
Bertrands Aristides, sem farinn er
til Afríku. Bandaríkjastjórn neitar
fregnum þess efnis að hún hafi látið
flytja forsetan nauðugan úr landi.
Hætta á gengislækkun
KB banki segir hættu á geng-
islækkun krónunnar ef hlutabréfa-
verð lækkar. Þetta gerðist veturinn
1999–2000 og virðist aftur vera að
gerast á þessum vetri þar sem verð-
vísitala krónunnar hefur hækkað um
90% á einu ári samhliða hækkun á
gengi krónunnar. Bent er á í Hálf-
fimm fréttum KB banka í gær að
sterk tengsl séu á milli verðþróunar
á hlutabréfamarkaði og erlendrar
lántöku þar sem miklar hækkanir á
hlutabréfum leiði til aukinnar sókn-
ar í lánsfé.
Meiri áfengisvandi
Konum í stjórnunarstöðum er
hættara við áfengismisnotkun en
lægra settum konum, samkvæmt
niðurstöðum breskrar rannsóknar.
Einnig eru meiri líkur á að konur í
yfirmannastöðum eigi við drykkju-
vanda að etja en karlar í svipuðum
stöðum.
Kári kaupir í Norðurljósum
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur
keypt 15% eignarhlut í Norður-
ljósum, sem reka m.a. Stöð 2 og
Bylgjuna. Eftir kaupin er Kári
næststærsti hluthafi félagsins en
Baugur Group er stærsti eignarað-
ilinni og á rúm 28%. Skv. upplýs-
ingum Sigurðar G. Guðjónssonar,
forstjóra Norðurljósa, keypti Kári
allt óselt hlutafé félagsins.
Dutroux fyrir rétt
Réttarhöld hófust í Belgíu í gær
yfir Marc Dutroux, sem sakaður er
um að hafa rænt sex stúlkum,
nauðgað þeim og myrt fjórar þeirra.
Hann var handtekinn fyrir átta ár-
um.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Viðskipti 12/13 Þjónusta 31
Úr verinu 13 Viðhorf 32
Erlent 14/16 Minningar 32/36
Minn staður 17 Kirkjustarf 39
Höfuðborgin 18 Bréf 40
Akureyri 19 Dagbók 42/43
Suðurnes 20 Kvikmyndir 48
Landið 22 Fólk 49/53
Daglegt líf 23 Bíó 50/53
Listir 24/25 Ljósvakar 54
Umræðan 26/27 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra boðar um-
talsverða fjölgun í sérsveit lögreglunnar á næstu
árum, eða úr 21 liðsmanni í 50. Einnig verður sér-
sveitin gerð að stoðdeild undir forsjá ríkislög-
reglustjóra og sérsveitarmenn hjá lögreglunni í
Reykjavík heyra héðan í frá undir embætti rík-
islögreglustjóra. Björn Bjarnason tilkynnti efl-
ingu sérsveitar lögreglunnar á blaðamannafundi í
gær og sagði að breytingarnar væru gerðar vegna
breyttra aðstæðna og vaxandi hörku í afbrotum.
Eiga breytingarnar að stuðla að auknu öryggi lög-
reglumanna og almennings alls. Ekki verða gerð-
ar breytingar á vopnabúnaði sérsveitarinnar eða
henni veittar auknar valdheimildir að sögn Björns.
Mun sérsveitin starfa innan ramma núgildandi
lögreglulaga.
Þarf að vera búin undir hryðjuverkavarnir
Breytingin felur í sér að frá og með 1. mars 2004
heyra 16 sérsveitarmenn hjá lögreglunni í Reykja-
vík undir embætti ríkislögreglustjóra. Þess vegna
verður lögreglumönnum í Reykjavík fjölgað um
tíu frá og með 1. júní nk. og má búast við að þær
stöður verði auglýstar til umsóknar fljótlega.
Björn sagði að meginkjarninn með breytingun-
um væri sá að verið væri að efla löggæsluna í land-
inu öllu.
Áætlaður kostnaður á ári við rekstur sérsveit-
arinnar með 50 lögreglumönnum nemur 250 millj-
ónum króna. Björn sagði að lögreglan þyrfti að
vera búin undir að sinna vörnum gegn m.a.
hryðjuverkum. Þá þyrfti að bregðast við aukinni
hörku í glæpastarfsemi í landinu. „Þetta endur-
speglar að við teljum að við séum komin inn í nýtt
umhverfi og við skilgreinum þau verkefni sem að
lögreglunni snúa á annan veg en áður,“ sagði
Björn og bætti við að ríkisstjórnin hefði fallist á
þetta mat sitt.
Sérsveitarmenn munu áfram sinna almennum
lögreglustörfum samhliða þjálfun og sérsveitar-
verkefnum. Þá munu þeir sinna sérstökum verk-
efnum um land allt, s.s. að þjálfa aðra lögreglu-
menn, flugvernd, siglingavernd og friðargæslu.
Björn nefndi sem dæmi að von væri á tugum
þúsunda farþega með skemmtiferðaskipum og
siglingavernd sérsveitarinnar fælist m.a. í að
tryggja öryggi slíkra skipa. „Við þurfum að búa
þannig um hnútana að annarra þjóða menn hafi
trú á því að við getum brugðist við þeim verk-
efnum sem upp kunna að koma hér á landi sem
annars staðar,“ sagði hann.
Björn sagði stefnt að því að hluti sérsveitarinn-
ar væri alltaf til taks á höfuðborgarsvæðinu fyr-
irvaralaust. Sérsveitin mun hafa sérstakan vaktbíl
til umráða og þurfi að senda sérsveitarmenn
lengra en sem nemur einnar klukkustundar akstri
verða þeir sendir með þyrlu Landhelgisgæslunnar
eða öðrum þyrlum sem eru til taks.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra boðar eflingu sérsveitar lögreglunnar
Sérsveitarmönnum
fjölgað úr 21 í 50
Morgunblaðið/Júlíus
Sérsveit ríkislögreglustjóra við æfingar, en
dómsmálaráðherra hefur ákveðið að fjölga sér-
sveitarmönnum úr 21 í 50 á næstu árum.
UM 28.000 gestir heimsóttu
sýninguna Matur 2004 sem
haldin var í Fífunni í Kópavogi
um síðustu helgi eða 17% fleiri
en heimsóttu sýninguna fyrir
tveimur árum.
Að sögn Dagmarar Haralds-
dóttur sýningarstjóra tóku ná-
lægt fjögur hundruð fyrirtæki
þátt í sýningunni í ár og var
sýningarsvæðið um 2.000 fer-
metrum stærra en síðast eða
sem svarar einni Laugardals-
höll. Þá var sýningin í fyrsta
sinn kynnt erlendis. Að sögn
Dagmarar var allt umfang
hennar stærra nú en fyrir
tveimur árum og m.a. var Vín
og drykkir 2004 haldin í fyrsta
sinn innan hennar vébanda
auk Veislunnar 2004. Að sögn
Dagmarar voru sýnendur og
gestir almennt mjög ánægðir
með hvernig til tókst í ár og
hafa mörg fyrirtæki þegar
bókað sig á næstu sýningu,
Matur 2006.
28.000
gestir á
Matur 2004
ÞÓRÓLFUR Árnason borg-
arstjóri lék fyrsta leiknum fyrir
Júlíu Rós Hafþórsdóttur gegn
Regínu Pokornu í Stórmóti
Hróksins og Fjölnis sem hófst í
Rimaskóla í gær. Mótið er at-
skákmót með 25 mínútna um-
hugsunartíma.
Þátttakendur eru 103, þar af
fimm erlendir og þrír íslenskir
stórmeistarar. Þeir Helgi Árna-
son, skólastjóri Rimaskóla, og
Hrafn Jökulsson, forseti Hróks-
ins, fylgdust með fyrsta leiknum
af nákvæmni. Skákmótinu lýkur á
morgun. Morgunblaðið/Ómar
Stórmót
Hróksins
hafið
SETJA þyrfti að lágmarki hálfan
milljarð króna í íslenskt leikið efni á
ári, umfram það sem nú er gert, ef
standa ætti almennilega að íslenskri
kvikmyndagerð. Þetta kom fram í
máli Rúnars Gunnarssonar, dag-
skrárstjóra Sjónvarpsins, á fundi
Félags kvikmyndagerðarmanna
(FK) sem haldinn var á Jóni forseta í
gærkvöldi. Þar var m.a. rætt um
kaup Sjónvarpsins á heimildar-
myndum og öðru kvikmyndaefni frá
sjálfstæðum framleiðendum.
Á fundinum komu fram margar
spurningar til Bjarna Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Sjón-
varpsins og Rúnars Gunnarssonar. Í
máli þeirra kom fram að fjármagn
sem veitt er til kaupa á heimildar- og
stuttmyndum hefði aukist jafnt og
þétt undanfarin ár og væri að með-
altali 110 milljónir króna á ári. Rún-
ar sagði stökk hafa orðið í fjárveit-
ingum til sjálfstæðra framleiðenda
árið 1997 og þróunin hefði verið stöð-
ugt upp á við síðan. Þá sagði hann
vissulega keppandi að því að auka
hlut innlends efnis, enda uppskæru
nágrannaþjóðir okkar góðan árang-
ur á því sviði, t.d. með þáttum eins og
Nikolaj og Julie og Taxi. Hann bætti
því við að hlutur innlends efnis í dag-
skrá Sjónvarpsins hefði aukist til
muna milli ára, eða um 36% á milli
2002 og 2003.
Rúnar sagði ennfremur að nokkuð
föst fjárhæð væri veitt í þá fram-
leiðslu sem ætti sér stað innan Sjón-
varpsins. Ef fjárveiting myndi
aukast, t.d. með hækkun afnota-
gjalda, myndi stærstur hluti aukinna
útgjalda hjá innlendri dagskrárdeild
fara til sjálfstæðra framleiðenda.
Auka þarf fjármagn
til kvikmyndagerðar
Morgunblaðið/Svavar
Björn Brynjúlfur Björnsson stýrði umræðum en Bjarni Guðmundsson og
Rúnar Gunnarsson svöruðu fyrirspurnum kvikmyndagerðarmanna.