Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 4

Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ FYRRVERANDI starfsmenn, alls 13 hjúkr- unarfræðingar og 27 sjúkraliðar, telja að for- svarsmenn Heilsugæslunnar í Reykjavík hafi sýnt störfum þeirra vanvirðu og líta svo á að þeim hafi verið sagt upp störfum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá fyrrverandi starfsmönnum Miðstöðvar heimahjúkrunar frá því í gær. Til stóð að fyr- irtækið Alhjúkrun legði til starfsfólk til að ganga tímabundið í störf þeirra sem hættu í gær en af því verður ekki og mun Alhjúkrun hafa hætt við. Einhverjir skjólstæðingar heimahjúkrunar fengu ekki þjónustu í gær, en nítján sjúkra- liðar og átta hjúkrunarfræðingar eru enn starfandi við heimahjúkrun. Deila starfsmanna heimahjúkrunar og Heilsugæslunnar í Reykjavík er óleyst en 37 starfsmenn hættu störfum í gær. Deilan snýst um það hvernig standa skuli að akst- ursgreiðslum. Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir að starfsmenn fái greiddar um 450 krónur fyrir hverja vitjun, þ.e.a.s. fyrir hvert hús sem þeir heimsækja. Breytingarnar sem forsvarsmenn heilsugæslunnar vilja koma í gegn fela í sér að greitt sé fyrir raunakstur, kjósi starfsmenn að vera á eigin bíl í vinnunni. Að öðrum kosti geti starfsmenn fengið bíla til afnota sem heilsugæslan tekur á rekstrarleigu. Þegar hefur verið samið um að heilsugæslan taki fjörutíu slíka bíla í notk- un á þessu ári. Heilsugæslan hefur sagt að kostnaður við rekstrarleigubílana sé lægri en að markmið breytinganna sé að efla og bæta þjónustuna. Þá hefur komið fram að heilsugæslan telji nú- verandi akstursfyrirkomulag óheppilegt þar sem það hvetji til hraða í vitjunum. Starfsmenn taka ekki ákvarðanir um fjölda vitjana „Við höfum náð að halda úti dagþjónust- unni í [gær]dag eins og talað hafði verið um og ég held að kvöldþjónustan ætli að bjargast að mestu leyti,“ segir Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunarforstjóri hjá Heilsugæslunni í Reykjavík. Hún segir að málið sé erfitt vegna þess að brugðið hafi verið fæti fyrir starfsfólk heimahjúkrunarinnar. „Það fólk, sem við höfum leitað til til þess að liðsinna okkur, hefur verið beitt gífurleg- um þrýstingi, að liðsinna okkur ekki,“ segir Þórunn. „Við höfum aðallega verið að tala við hjúkrunarmiðlanir eins og Alhjúkrun og Lið- sinni. Síðan auglýstum við eftir starfsfólki fyrir viku og það hafa verið að skila sér inn fyrirspurnir frá fólki og einhverjir eru líkleg- ir til þess að sækja um en það er ekki auðvelt fyrir fólk að sækja um þessar stöður vegna þess að það er gífurlegur þrýstingur.“ Í yfirlýsingu frá fyrrverandi starfsmönnum segir að ákvarðanir um fjölda vitjana hvers starfsmanns heimahjúkrunar séu alfarið í höndum svokallaðra hverfisstjóra, sem eru fimm talsins, en ekki í höndum hvers starfs- manns. „Starfsfólk Miðstöðvar Heimahjúkr- unar hefur verið tilbúið að taka á sig ómælt álag vegna yfirvinnubanns þegar veikindi samstarfsfólks hafa komið uppá. Árum saman hefur það tíðkast að starfsmenn hafa deilt með sér vitjunum sem eru á vinnukortum þeirra sem komast ekki til vinnu vegna veik- inda og þannig tryggt að allir skjólstæðingar fái þá þjónustu sem þeir þurfa. Þetta hefur einnig gilt á orlofstíma á sumrin þegar ekki hefur tekist að manna afleysingastöður vegna orlofs starfsmanna. Starfsfólk hefur verið tilbúið að halda uppi heiðri stofnunarinnar og bætt á sig vinnu sem var þó ærin fyrir,“ segir í yfirlýsingunni. Fyrrverandi starfsmenn fara fram á op- inbera afsökunarbeiðni frá forsvarsmönnum heilsugæslunnar vegna þeirra ummæla sem viðhöfð hafa verið um störf þeirra. Stjórnvöld bera ábyrgð á deilunni Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, kveðst hissa á því að heilbrigðisyfirvöld beini ekki kröftum sínum að því að ná samkomu- lagi við starfsmenn heimahjúkrunar á höf- uðborgarsvæðinu. „Mér finnst dapurlegt að þeir sem þarna eiga hlut að máli skuli taka þátt í tilraunum til að hrekja núverandi starfsfólk frá starfi. Öðrum augum er ekki hægt að líta það sem nú er að gerast. Þetta er ekkert annað en kjaradeila sem stéttarfélögin hafa komið að og sýnt fulla ábyrgð. Heil- brigðisráðherra hefur sagst vilja bíða átekta en það verður ekkert lengur beðið. Alvarlegt ástand er að skapast í heimahjúkruninni og ef ekkert verður aðhafst af hálfu stjórnvalda þá er ábyrgðin alfarið þeirra,“ er haft eftir Ög- mundi á vefsvæði BSRB. Þingflokkur Samfylkingarinnar sendi frá sér ályktun vegna deilunnar í gær þar sem lýst er áhyggjum af þeirri óvissu sem nú ríki um heimahjúkrun í Reykjavík og Kópavogi. Í ályktuninni segir m.a. að góð og mikilvæg þjónusta sé í uppnámi vegna þess að stjórn heilsugæslunnar hafi einhliða ákveðið að segja upp gildandi samningum um fyrir- komulag aksturs í stað þess að ná samkomu- lagi um breytingar. Aðgerðin endurspegli skort á pólitískri forgangsröðun verkefna. Deila starfsmanna heimahjúkrunar og Heilsugæslunnar í Reykjavík er enn óleyst Telja störfum sín- um sýnd vanvirða Mannréttindi eru brotin á skjólstæð-ingum heimahjúkrunar með skerð-ingu á þjónustu. Þetta segir Þórður Jónsson, en hann er bundinn við hjólastól og háður þjónustu heimahjúkrunar daglega. Þórður telur að stjórnvöld hefðu átt að grípa í taumana fyrr og telur að nýtt fyr- irkomulag aksturssamninga feli í sér aukinn kostnað fyrir ríkið í stað þess að draga úr honum. Þórður er sextugur íbúi Sjálfsbjargarhúss- ins í Hátúni. Hann hefur verið bundinn við hjólastól frá fæðingu og fer allra sinna ferða í rafmagnshjólastól. Starfsmaður heima- hjúkrunar kemur til hans á hverjum morgni og aðstoðar hann við að komast í stólinn svo hann geti tekist á við verkefni dagsins. Þórður hefur miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem kjaradeila stjórnar heilsugæsl- unnar í Reykjavík og starfsmanna heima- hjúkrunar hefur skapað. „Þetta er til stórrar skammar. Þarna er verið að fremja mann- réttindabrot […] Mér finnst að stjórnvöld hér verði að sýna fordæmi í þessum málum. Stjórnvöld ættu ekki að láta líðast að mann- réttindabrot séu framin.“ Dýrara þegar upp er staðið Þórður kveðst fullviss um að breyting- arnar sem forsvarsmenn heilsugæslunnar vilja gera á aksturssamningum við starfsfólk verði dýrari en núverandi fyrirkomulag þeg- ar upp er staðið. „Það er alveg grátlegt að það skuli verið að eyðileggja þessa þjónustu núna og skapa fólki sem þarf á henni að halda miklu verri aðstæður. Þetta verður til þess að fólk verð- ur lagt inn á spítalana, sem er miklu dýrara. Þetta nýja fyrirkomulag verður mörgum sinnum dýrara fyrir hið opinbera. Ég er al- veg sannfærður um það,“ segir Þórður. Að mati Þórðar er þjónusta heimahjúkr- unar eins og best verður á kosið. „Þessi þjónusta hefur farið stigbatnandi í mörg ár. Þjónustan getur ekki verið betri en hún er akkúrat núna.“ Þórður segist hafa áhyggjur af því að þjónustan kunni að skerðast. Einkum lýsir hann áhyggjum af næturþjónustu, en skjól- stæðingar hafa aðgang að starfsmanni heimahjúkrunar á nóttunni, ef upp koma neyðartilfelli. Hann segir þá óvissu sem fylgir kjaradeilu starfsfólks heimahjúkrunar og heilsugæslunnar í Reykjavík hafa afar slæm áhrif á skjólstæðinga, ekki síst and- lega. „Fólk hættir að geta sofið og hefur áhyggjur,“ segir Þórður. Þórður telur að forsvarsmenn heilsugæsl- unnar hefðu átt að fara öðruvísi að breyt- ingum á samningum við starfsfólk. „Það hefði verið hægt að beita mannlegri aðferð- um við þessar breytingar. Þetta verður miklu dýrara á buddu skattgreiðenda,“ segir Þórður og kveðst reiður yfir því að stjórn- völd hafi ekki „stigið á bremsuna fyrr“ til að koma í veg fyrir að tæpur helmingur starfs- fólks heimahjúkrunar segði upp störfum. Þjónustan ekki of hröð Þórður segist ekki telja þjónustu heima- hjúkrunar of hraða, en forsvarsmenn heilsu- gæslunnar hafa sagt að núverandi aksturs- samningar hvetji til hraða í vitjunum og því beri að greiða fyrir raunakstur fremur en fyrir ákveðið marga kílómetra á hverja vitj- un. Þannig sé frekar hvatt til lengri viðveru með hverjum skjólstæðingi. Þórður gefur ekki mikið fyrir þessi rök og segir að spyrja megi á móti hvernig heilsugæslan ætlar að fara að því að lengja viðveru þegar starfs- fólki hefur fækkað um nær helming. Brotið á mannrétt- indum skjólstæðinga Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórður Jónsson, skjólstæðingur heimahjúkr- unar, segir það vera brot á mannréttindum að draga úr þjónustu heimahjúkrunar. VEGAGERÐIN og Reykjavíkur- borg hafa auglýst útboð á færslu Hringbrautar, sem á að fara fram 30. mars næstkomandi þegar frestur rennur út fyrir verktaka að skila inn tilboði. Frá þessu var m.a. greint á vef Vegagerðarinnar í gær. Samkvæmt útboðslýsingu á verkinu að vera lokið í síðasta lagi 15. október á næsta ári en útboðið er auglýst á öllu Evrópska efna- hagssvæðinu. Braut í fjórum akreinum og undirgöng fyrir göngufólk Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu nær færsla Hringbrautarinnar frá Rauðarár- stíg að Tjörninni. Kemur brautin í fjórum akreinum milli Bifreiðar- stöðvar Íslands, BSÍ og lóðar Landspítalans sem fara undir nú- verandi Bústaðavegarbrú. Endur- gera þarf allar tengingar inn á gömlu Hringbrautina, auk þess sem hringtorg kemur á mótum Njarðargötu og Sóleyjargötu. Þá munu verktakar bjóða í und- irgöng fyrir gangandi og hjólandi umferð og fjórar göngubrýr. Tvær slíkar brýr verða yfir Hringbraut, ein yfir Njarðargötu og loks ein yfir læk sem tengir Vatnsmýrartjörn og Þorfinns- tjörn. Umferðarljós bætast við á Bústaðavegi Þegar litið er nánar á kort Vegagerðarinnar af gatnamótum Hringbrautar og Bústaðavegar, eins og þau verða að framkvæmd- um loknum, sést að umferðarljós- um verður bætt við á Bústaðavegi til að ná tengingu við svonefndan suðvestur-ramp inn á Hring- brautina. Umferðarljósin á núverandi gatnamótum verða nær óbreytt. Megintilgangur framkvæmdar- innar að liðka fyrir umferð um Hringbrautina og búist er við að hún færist meira af Bústaðaveg- inum. Umferð um núverandi gatnamót muni um leið minnka frá því sem verið hefur og ekki tal- ið að tafir verði miklar um Bú- staðaveg þar sem umferðarljósin verði samstillt. Færsla Hring- brautar boðin út Vegagerðin og Reykjavíkurborg ÚTFÖR Svövu Jakobsdóttur, rit- höfundar og fyrrverandi alþingis- manns, fór fram frá Hallgríms- kirkju í gær. Svava andaðist á Landspítalanum – háskólasjúkra- húsi laugardaginn 21. febrúar síð- astliðinn. Séra Ragnar Fjalar Lárusson jarðsöng og organisti var Hörður Áskelsson. Kammerkórinn Schola cantorum söng við athöfnina, Gunn- ar Guðbjörnsson söng einsöng, Inga Rós Ingólfsdóttir lék einleik á selló og Hjalti Rögnvaldsson leikari las upp. Líkmenn sem báru kistuna úr kirkju voru Ragnar Arnalds, fyrr- verandi alþingismaður, Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands, Vig- dís Grímsdóttir rithöfundur, Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður, Hjörleifur Guttormsson, fyrrver- andi alþingismaður, Gerður Kristný rithöfundur, Ingibjörg Haraldsdótt- ir rithöfundur og Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður. Morgunblaðið/Þorkell Útför Svövu Jakobsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.