Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Síðustu sætin til Prag þann 15. mars. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara fyrir 1. Kynnstu þessari yndisfögru borg á besta tíma ársins þegar vorið er að byrja. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin og að auki getur þú valið um úrval hótela, þriggja og fjögurra stjarna og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 19.950 Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300. Skattar kr. 3.650. Alm. verð kr. 20.950. Glæsileg hótel í hjarta Prag í boði. 2 fyrir 1 til Prag 15. mars frá kr. 19.950 AÐILDARSAMTÖK ASÍ hafa lagt fram kröfur á hendur stjórnvöldum og atvinnurekendum um jöfnun líf- eyrisréttinda í tengslum við gerð næstu kjarasamninga. Unnin hefur verið ítarleg úttekt á vettvangi ASÍ á vanda lífeyriskerfisins og hvaða leið- ir séu færar til að jafna lífeyrisrétt- indin. Voru þessi mál m.a. til um- ræðu á fundi forystumanna hreyfingarinnar og ríkisstjórnarinn- ar sl. laugardag. Iðgjöld þurfa að hækka um 2% til að réttindi haldist óbreytt Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er það mat ASÍ að iðgjöld verði að hækka um allt að 2%, ein- ungis til þess að halda núverandi réttindum lífeyriskerfisins óbreytt- um þegar til lengri tíma er litið. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er m.a. lagt til í greinargerð sam- bandsins að framlög atvinnurekenda til sjóðanna verði aukin í 8% á móti skerða ekki áunnna stigaeign hjá neinum sjóðsfélaga. Að mati ASÍ er einnig óhjákvæmilegt að hækka ið- gjöld lífeyrissjóðanna á næstu árum og er lögð fram sú hugmynd að samningsaðilar endurskoði sam- komulag sitt frá 13. desember 2001 í þá veru, að 1% skylduframlag at- vinnurekenda í séreignasjóð færist yfir í samtryggingu, sem sjöunda prósentið af framlagi þeirra, og jafn- framt yrði mótframlag þeirra í viðbótarlífeyrissparnað hækkað aft- ur í 2% hjá þeim sem velja að spara. Talið er að launakostnaðaráhrif þessarar aðgerðar yrðu 0,5–0,7% eft- ir því hversu stór hluti launamanna hefur valið að greiða viðbótariðgjald í séreignasjóð. Þessu til viðbótar er lagt til að framlag atvinnureknda hækki um 0,25% á ári í fjögur ár á ár- unum 2005 til 2008 eða samtals um 1%. Þar með yrði mótframlag at- vinnurekenda 8% á móti 4% framlagi launafólks. ASÍ telur hækkun lífeyrisiðgjalda nauðsynlega og leggur fram tillögur til jöfnunar lífeyrisréttinda Ríkið leggi afrakstur einka- væðingar inn í lífeyrissjóðina Framlag atvinnurekenda hækki í 8% á móti 4% framlagi launafólks 4% framlagi launafólks og að ríkið axli ábyrgð á kostnaði við örorku- byrði lífeyrissjóðanna almennum vinnumarkaði. Er kostnaður ríkisins vegna þessa talinn gera numið 3,2 milljörðum kr. brúttó ef tekið er mið af útgjöldum sjóðanna árið 2002, en á móti er talið að skatttekjur ríkis- sjóðs og sveitarfélaga myndu aukast við slíka breytingu, auk þess sem skerðing yrði á tekjutryggingu Tryggingastofnunar með auknum greiðslum frá lífeyrissjóðum í eftir- laun. Þá er lagt til að ríkið leggi eignir inn í almennu lífeyrissjóðina. Talið er að ná mætti verulegum árangri í jöfnun lífeyrisréttinda landsmanna ef ríkið legði afrakstur einkavæðing- ar t.d. Landssímans inn í lífeyris- sjóðina til þess að skapa grundvöll fyrir auknum lífeyrisréttindum án þess að til skattahækkunar þurfi að koma. Með þessari aðgerð er talið að sjóðunum yrði gert auðveldara að rétta upp halla sem leiða muni af breyttri aldurssamsetningu þjóðar- innar og lengri meðalævi. Breyta þarf ávinnslukerfi lífeyrisréttinda Að mati ASÍ er óhjákvæmilegt að stefna að því að breyta ávinnslukerfi lífeyrisréttina þannig að farið yrði frá jöfnu ávinnslukerfi yfir í aldurs- tengt ávinnslukerfi, þar sem núver- andi stigaeign einstakra sjóðsfélaga yrði endurreiknuð. Lögð er þó áhersla á að ekki megi bakka frá þeirri kynslóðasátt sem náðist fyrir 35 árum og gæta verði þess að SAMNINGANEFNDIR Verzl- unarmannafélags Reykjavík- ur og Landssambands ís- lensks verslunarfólks hafa vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til rík- issáttasemjara. Í frétt á vefsíðu VR kemur fram að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafi ekki tekist að fá samningafund með fulltrú- um SA og því verið gripið til þessa ráðs. Samkvæmt viðræ- ðuáætlun ætti samningagerð nú að vera lokið. Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri SA, gerir ráð fyrir að hafnar verði við- ræður við verslunarmenn og fleiri hópa á næstu dögum en hann segir það jafnframt for- gangsmál að reyna að ljúka samningum við Flóa- bandalagið og Starfsgreina- sambandið. Kjaradeilu verslunar- manna vísað til sáttasemjara AÐALSAMNINGANEFNDIR Samtaka atvinnulífsins, Starfs- greinasambandsins og Flóabanda- lagsfélaganna komu saman hjá rík- issáttasemjara eftir hádegi í gær. Á fundinum átti að leita leiða til sam- komulags um almennar launahækk- anir næstu samninga, lífeyrismál o.fl., en ákveðið var síðdegis að fresta frekari viðræðum til kl. 10 á föstudaginn. Í ljós kom að mikið ber í milli krafna verkalýðsfélaganna um almennar launahækkanir og þeirra hugmynda sem atvinnurekendur settu fram. Forsvarsmenn deiluaðila leggja þó áherslu á að ekki hafi slitnað upp úr viðræðunum, heldur ætli menn að nota næstu daga til að meta stöðuna með sínu fólki. Erfitt að ná saman lokatölum „Þetta endurspeglar þá stöðu að það er erfitt að ná saman lokatöl- unum í samningnum,“ segir Ari Ed- wald, framkvæmdastjóri SA. „Ég tel að það væru nú ýkjur að segja að himin og haf beri á milli en það er ljóst að það verður erfitt að ná þessu á lokapunkt svo flestum líki.“ Ari segir alla gera sér grein fyrir að SA hafi lagt alla áherslu á að kostnaðarhækkanir í samningunum þyrftu að vera sambærilegar fyrir íslenskt atvinnulíf og gilda í sam- keppnislöndunum. „Það er ekki þar með sagt að slíkur árangur náist í einu vetfangi. Við höfum verið að feta okkur í þá átt en ef við lítum sex til sjö ár aftur í tímann hafa kostn- aðarhækkanir verið tvöfaldar sam- anborið við viðskiptalönd okkar og við getum að sjálfsögðu ekki haldið áfram á þeirri braut. Prósentu- hækkanir samninga hafa þó farið lækkandi og við hljótum að halda áfram á þeirri braut að ná launa- breytingataktinum niður í áttina að því sem er í okkar umhverfi,“ sagði hann. Meta stöðuna og leggja á ráðin „Við tókum þá ákvörðun að taka hlé og fara yfir stöðuna í okkar bak- landi og meta framhaldið með fé- lögum okkar,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar-stétt- arfélags. Hann segir ljóst að hlé sé gert á viðræðum nú þar sem það beri í milli aðila og menn þurfum að reyna að átta sig á hvar lendingin geti orðið. Sigurður segir að á þessari stundu sé mikilvægt að gefa stjórnvöldum tækifæri til leggja fram tillögur sín- ar varðandi lífeyrismál og atvinnu- leysisbætur. „Við höfum átt samtöl við ríkis- stjórnina og erum raunverulega að kalla eftir ákveðinni aðkomu hennar að málum sem snúa að lífeyrissjóð- um og atvinnuleysistryggingunum. [...] Það er alveg ljóst að þeirra út- spil getur skipt verulegu máli um hvernig tekst til að leysa þessa samninga.“ Ekki er komið að þeim tímapunkti í kjaradeilunni að einstök félög fari að undirbúa atkvæðagreiðslu um verkfallsboðanir. ,„Ég tel að á þessu stigi séum við ekki staddir á þeirri vegferð, heldur ætlum við að fara í gegnum það með félögum okkar hvernig haldið verður á málum í framhaldinu en auðvitað ræðst það af viðræðum helgarinnar hvert framhaldið verður,“ segir hann. Mikið ber í milli í kjaradeilunni FYRIRTÆKIÐ Kraftvélar í Kópa- vogi bauð leikskólabörnum í heimsókn og skemmtu þau litlu sér við að skoða tröllvaxnar vinnuvélar fyrirtækisins. Þau fengu ekki aðeins að standa í skóflunni, sem er heljarstór, heldur fengi þau hugrökkustu einnig að setjast undir stýri. Eins og gefur að skilja var þó lítið ek- ið um á vinnuvélunum en frjótt ímyndunarafl er reyndar það eina sem til þarf þegar maður er tæpur metri á hæð. Morgunblaðið/Sverrir Lítil börn í stórri skóflu FYRIRTÆKIÐ Nesbú – egg, sem er í eigu KB banka, hefur yfirtekið rekstur Nesbúsins, en búið er annar stærsti eggjaframleiðandi landsins. Nesbúið var í eigu Svínabúsins í Brautarholti, en það félag var úr- skurðað gjaldþrota í janúarmánuði og rekur fyrirtækið Braut ehf., dóttur- fyrirtæki KB banka, svínabúið í dag. Eigendur Svínabúsins í Brautar- holti keyptu Nesbúið vorið 1999 og fjárfestu árið eftir í sérhæfðri eggja- vinnsluvél. Þó að rekstur fyrirtækis- ins hafi gengið sæmilega að undan- förnu hefur mikil skuldsetning valdið félaginu erfiðleikum. Auk þess varð fyrirtækið fyrir fjárhagstapi þegar kjúklingaframleiðandinn Móar og Svínabúið í Brautarholti urðu gjald- þrota. Í árslok 2002 námu heildarskuldir Nesbúsins 735 milljónum króna. Félag í eigu KB banka yfirtekur Nesbúið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.