Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í upphafi skyldi endinn skoða. Málþing um meðferð Meðferðar- hugtakið krufið Næsta föstudagheldur FÍUMmálþing þar sem hugtakið meðferð verður krufið frá ýmsum hliðum. Morgunblaðið ræddi við Drífu Kristjánsdóttur á Meðferðarheimilinu Torfastöðum í tilefni þessa. – Segðu okkur fyrst frá Meðferðarheimilinu Torfastöðum … „Fyrir 25 árum gerðum við ríkinu tilboð um að reka meðferðarheimili fyrir sex ungmenni. Til- boðinu var strax tekið en við nutum mikils trausts þar sem við höfðum unnið á Unglingaheimili ríkisins í mörg ár og vorum orðin þjálfuð í meðferðarvinnu fyrir unglinga. Þá þurfti að finna meðferðarheim- ilinu stað en áhugi Ólafs á búskap beindi sjónum okkar í sveitina. Útgangspunkturinn var að vera ekki langt frá Reykjavík enda lögðum við vinnuna strax upp þannig að samstarf við for- eldra yrði að vera mikið. Þá skipti máli að fólk kæmist auð- veldlega til okkar. Í lok maí vor- um við komin á fullt skrið, tók- um á leigu jörð í Fljótshlíðinni, rákum þar stórbú, meðferðar- heimili og skóla fyrir skjólstæð- inga okkar. Við fengum strax fjögur ungmenni og innan tveggja mánaða voru öll pláss orðin fullskipuð. Síðan hefur allt- af verið fullt hjá okkur. Fjórum árum síðar flutti meðferðarheim- ilið á Torfastaði í Biskupstung- um og hefur verið starfrækt þar síðan. Skólastarfið hjá okkur er mjög mikilvægt en menntun barnanna hefur farið forgörðum vegna erfiðleika sem verið hafa í lífi þeirra. Áhugi okkar Ólafs á hestamennsku hefur farið stöð- ugt vaxandi og hana notum við mikið og markvisst í meðferð- arvinnunni. Lifandi svörun hest- anna á börnin er mjög dýrmæt, þau fá nýja aðferð við að njóta lífsins, við ferðumst mikið á hestum um svæði sem þau hafa aldrei komið á, kennum flotta reiðmennsku, látum þau taka þátt í keppni. Þannig vaxa þau mjög í verkefnum með hestana. Virðing er útgangspunktur í meðferðarvinnunni, virðing fyrir börnunum, virðing þeirra fyrir fullorðnum og að þau læri að virða hvert annað um leið og sjálfsvirðing er efld.“ – Hvað hefur helst breyst á 25 árum? „Hvað okkur varðar þá vorum við eina einkarekna meðferðar- heimilið til margra ára. Barna- hjálp kom á fót heimili fyrir yngri börn að okkar fyrirmynd á Geldingalæk 1992. Meðferðar- heimililið á Laugalandi var stofnað vorið 1997 og Meðferð- arheimilið á Hvítárbakka 1998. Skjöldólfsstaðir voru einnig stofnaðir af Barnaverndarstofu en störfuðu stutt. Ár- bót byrjaði öðruvísi en við. Þau voru með fá og veik börn í byrjun, en nú er rekið þar og á Bergi meðferðar- heimili fyrir 10. Háholt í Skaga- firði hefur verið rekið í ein fimm ár.“ – Hvað hafið þið útskrifað marga? „Það hafa um 150 krakkar dvalið á Torfastöðum. Við erum langtímameðferðarheimili. Það þýðir að vistunarsamningur er gerður til eins árs í byrjun. Áhersla okkar hefur verið að ná árangri með vinnu okkar og reynslan sýnir að árangur verð- ur mun betri þegar til langs tíma er litið ef við tökum þann tíma sem börnin þurfa til að ná þeim markmiðum sem við setjum okk- ur.“ – Segðu okkur frá tilurð og til- gangi málþingsins … „Á föstudaginn næsta, hinn 5. mars, kl. 9.30 ætlar FÍUM að halda málþing á Hótel Borgar- nesi. FÍUM er félagsskapur starfsfólks sem vinnur í meðferð með ungmenni. Yfirskrift mál- þingsins er „Hvað gerir meðferð að meðferð? og getur meðferð verið verri en engin meðferð?“ Þegar við vorum að undirbúa málþingið ákváðum við að efna til umræðu um hvað meðferð- arvinna væri. Þannig ætlum við að skoða margs konar gerðir af meðferðarvinnu með unglinga og reyna að gera okkur grein fyrir hvernig megi ná árangri með mismunandi aðferðafræði og meðferðaráhöldum. Jón Björns- son er að skoða einkarekin með- ferðarheimili Barnaverndarstofu og ætlar að gefa okkur hlutdeild í hugrenningum sínum í gegnum þá vinnu. Páll Biering verður með erindi sem hann kallar Með- ferð og heimssýn, Hrefna Ólafs- dóttir kynnir sína aðferðafræði í fjölskyldumeðferð. Árni Magn- ússon ráðherra ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni og ávarpar þingið strax eftir hádegi. Síðan verða ýmsar kynning- ar á mismunandi með- ferðarvinnu sem unnin er af mismunandi meðferðarstöðum. Við fáum spennandi erindi frá Foreldra- húsi, BUGL, Hvítárbakka og Torfastöðum. Allt áhugafólk um uppeldi og velferð barna er vel- komið á málþingið.“ Skráning þátttöku er á tölvu- pósti thorunno@fel.rvk.is. Þátt- tökugjald er 5.000 kr. fyrir utan- félagsfólk en 3.000 kr. fyrir félagsmenn í FÍUM. Drífa Kristjánsdóttir  Drífa Kristjánsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík, tók próf frá Verslunarskólanum 1970 og kennarapróf 1973. Hóf störf á Unglingaheimili ríkisins sem var fyrsta íslenska með- ferðarstofnunin fyrir ungmenni þegar það var stofnað 1972. Er gift Ólafi Einarssyni og eiga þau þrjú börn, tvo stráka og eina stelpu á aldrinum 18–25 ára. Þau stofnuðu Meðferð- arheimilið Torfastöðum árið 1979. Síðan hefur alltaf verið fullt hjá okkur ÁÆTLAÐ er að framkvæmdir við átján hæða skrifstofubyggingu við Smáratorg 3 í Kópavogi geti hafist í sumar og að þeim verði lokið um mitt ár 2006. Háhýsið verður rúmlega 12 þúsund fermetrar að flatarmáli. Jarð- hæðin, sem hýsa á verslun og þjón- ustu, er 4.000 fermetrar en af þeim hafa 2.500 þegar verið leigðir út. Meðalleiguverð á hvern fermetra á efri hæðunum, skrifstofuhúsnæðinu, er 1.200 krónur en meðalverð í versl- unarhluta hússins er um 1.500 krónur á hvern fermetra. Miðað er við að húsnæðið sé leigt út tilbúið til innrétt- inga. Hafist verður handa við bygg- ingu hússins þegar meirihluti hús- næðisins hefur verið leigður út. Að sögn Magnúsar Gunnarssonar hjá fasteignasölunni Valhöll, sem sér um útleigu húsnæðisins, er nú þegar töluverður áhugi fyrir húsnæðinu. Hann segist telja að leiguverð á fer- metra í háhýsinu sé afar hagstætt. Áætlaður byggingartími hússins er 1,5–2 ár. Til tals hefur komið að hluti skrifstofuhúsnæðisins verði nýttur undir hótel. Fram- kvæmdir hefjast í sumar Háhýsið við Smáratorg Byggt við Stuðla ÁKVEÐIÐ hefur verið að byggja við húsnæði Stuðla, Meðferðarmið- stöðvar ríkisins fyrir unglinga. Nýja viðbyggingin verður 188 m² að stærð og á verkinu að vera að fullu lokið 1. nóvember í haust. Ríkiskaup fyrir hönd Fram- kvæmdasýslu ríkisins og félagsmála- ráðuneytisins hafa auglýst eftir til- boðum í viðbyggingu og breytingar á húsnæði Stuðla. Húsið sem núver- andi starfsemi er í er einnar hæðar steinsteypt bygging. Um leið og samningur er kominn á getur verkið hafist en því á að vera að fullu lokið 1. nóvember, að því er fram kemur á vef Ríkiskaupa. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.