Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MENNTAMÁLARÁÐHERRA tel- ur að sér beri skylda til að fara gaumgæfilega yfir ákvörðun Há- skóla Íslands um að kenna ekki táknmálstúlkun frá næsta hausti af sparnaðarástæðum og skoða hvort og hvernig náminu verði komið fyr- ir hvort sem það verði innan Há- skólans eða á öðrum forsendum að því er fram kom í svari við fyr- irspurn Önnu Kristínar Gunnars- dóttur, þingmanns Samfylkingar- innar. Anna Kristín sagði að komið hefði fram í fjölmiðlum að mikill skortur væri á táknmálstúlkum hér á landi og að þörf fyrir þá væri að aukast. Sagði hún að táknmálstúlk- ar sinntu einkum í dag skóla- og heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt væri að þjónusta við heyrnarskert börn á leikskólaaldri yrði aukin og bætt, en með því móti væri þeim tryggð leið til að taka þátt í skapandi leik og starfi og að þroskast á eigin for- sendum. Túlkun fyrir heyrnar- skerta væri ein mikilvægasta grunnforsenda þess að viðkomandi einstaklingar njóti jafnréttis á við aðra þegna landsins og jafnframt forsenda þess að hæfni og hæfi- leikar einstaklingsins geti nýst þjóðfélaginu. „Með boðuðum niðurskurði í Há- skólanum er vegið að stöðu lítils hóps sem þegar á undir högg að sækja, auk þess sem nemendur sem þegar hafa lagt á sig erfiði og tekið á sig fjárskuldbindingar eru settir í biðstöðu til hver veit hvað langs tíma,“ sagði Anna Kristín. Spurði hún menntamálaráðherra hvort hún hygðist taka upp málið við forsvarmenn Háskóla Íslands eða láta við svo búið sitja átölulaust. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði að það væri alveg rétt að heimspekideild HÍ hefði tekið þá sjálfstæðu ákvörð- un að fella niður nám í táknmáls- túlkun frá og með næsta hausti. Fjallaði hún um aðdragandann að náminu og sagði að menntamála- ráðuneytið hefði í einu og öllu sam- þykkt þær kröfur sem HÍ hefði sett fram varðandi táknmálstúlkun og táknmálsfræðin. Í dag væru tuttugu nemendur í táknmálsfræðum við HÍ, sautján eldri nemendur og þrír nýnemar og það væri enginn í námi í táknmálstúlkun. Menntamálaráðherra um nám í táknmálstúlkun Skylt að fara gaum- gæfilega yfir málið Morgunblaðið/Jim Smart Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. SIGURLÍN Margrét Sigurð- ardóttir, varaþingmaður fyrir Frjálslynda flokkinn, segir harka- lega vegið að ungri námsgrein verði kennslu í táknmálstúlkun hætt hér á landi í haust, en það er ein af þeim aðhalds- aðgerðum sem ákveð- ið hefur verið að grípa til innan heim- spekideildar Háskóla Íslands. Sígurlín segir að táknmálstúlkun hafi til þessa ein- göngu verið hægt að læra í Háskóla Íslands og aðgerðin muni hafa slæm áhrif á framtíðarmöguleika margra heyrn- arlausra, þar sem ekki sé nægjanlegt framboð af túlkum í dag til að anna allri eftirspurn. Sigurlín Margrét er fyrsti heyrn- arlausi þingmaðurinn sem hefur setið á þingi hér á landi. „Mín fyrstu viðbrögð voru þau að þetta gæti virkilega ekki verið að gerast, varla á þessum tíma, þar sem svo mikið hefur verið lagt í uppbyggingu deildarinnar. Táknmálið er orðið svo sjálfsagt mál hérlendis og er farið að sjást svo víða í samfélaginu. Það hefur líka sýnt sig að það er full þörf á því að mennta fleiri túlka og táknmálsfræðinga. Mér finnst mjög harkalega vegið að ungri náms- grein sem aðeins er kennd í einum háskóla hérlendis. Fólk sem vill læra táknmálsfræði eða -túlkun getur ekki leitað í aðra háskóla hér- lendis þar sem námið er aðeins kennt í HÍ. Þetta er því mjög ósann- gjarnt,“ segir Sigurlín. Ekki nógu margir túlkar Segir hún að þessi niðurskurður muni hafa mjög slæm áhrif á framtíðarmögu- leika margra heyrn- arlausra. „Það er ekki nægjanlegt framboð af túlkum í dag til að anna allri eftirspurn. Nú þegar eru sjö nem- ar í túlkanámi, þegar þeir koma má reikna með að það verði þá starfandi sautján túlk- ar. Ég efast samt um að sú tala sé nægjanleg til að fullnægja eft- irspurninni.“ Telur Sigurlín nauð- synlegt að gefa deild- inni meiri tíma, end- urskipuleggja námið og skoða hvað þurfi svo hún geti haldið áfram. Átti hún fund með Rannveigu Sverrisdóttur, lektor í táknmálsfræði, um framtíð deild- arinnar í síðustu viku. Segir Sig- urlín að þær hafi verið sammála um að eitthvað verði að gera til að halda þeirri þekkingu sem skapast hefur innan deildarinnar. Mögulegt sé að kennsla í táknmálstúlkun hefj- ist á ný skólaárið 2005-2006, það sé þó alveg óráðið. „Mér finnst líka mjög kaldhæðn- islegt að þetta gerist einmitt á sama tíma og fyrir liggur frumvarp um táknmál í menntamálanefnd Al- þingis og í frumvarpinu er m.a. að finna það að efla skuli táknmáls- fræði og táknmálstúlkunarnámið í Háskóla Íslands,“ segir hún. Hefur slæm áhrif á framtíðarmöguleika heyrnarlausra Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Vegagerðarinnar. Fram kemur einnig að aðalkostir Þverárfjalls- leiðarinnar séu hins vegar þeir að hún liggi í námunda við alla stærstu þéttbýlisstaðina á svæðinu. Þver- GERA á samanburð á bestu kost- um á legu þjóðvegar nr. 1 um Aust- ur-Húnavatnssýslu og Skagafjörð og skýrsla þar að lútandi á að liggja fyrir á hausti komanda, samkvæmt þingsályktunartillögu sex þing- manna stjórnarandstöðunnnar á Al- þingi. Í greinargerð kemur fram að breytingar á legu þjóðvegarins norður í Austur-Húnavatnssýslu hafi verið til umfjöllunar hjá Vega- gerðinni og hafi þær breytingar all- ar miðað að því að þjóðvegurinn liggi áfram um sömu héruð. Upp- bygging vegar yfir Þverárfjall hafi hins vegar beint sjónum manna að því hvort ekki sé skynsamlegt að láta aðalþjóðveginn liggja um Þver- árfjall og um Hegranes og Hjalta- dal og loks í gegnum Tröllaskaga með jarðgöngum, en með því næð- ist viðlíka stytting og nú væri fyr- irhuguð samkvæmt hugmyndum árfjallsvegur liggi miklu lægra en Öxnadalsheiði og líka lægra en Vatnsskarð, en jarðgöng hljóti síðar meir að leysa veginn af hólmi á þeim fjallvegum.                                                 Þjóðvegur nr. 1 verði lagður um Þverárfjall Nefnd um eignarhald á fjölmiðlum Vinnan dregst fram undir lok mánaðarins GREINILEGT er að vinna nefnd- ar um eignarhald á fjölmiðlum kemur til með að dragast eitthvað fram undir lok þessa mánaðar, að því er fram kom í svari mennta- málaráðherra við fyrirspurn Björgvins Sigurðssonar, þing- manns Samfylkingarinnar, um hvað liði störfum nefndar um eign- arhald á fjölmiðlum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist hafa það sem meginreglu að skipta sér ekki af nefndum sem væru að störfum. „Þeir vita þessir ágætu herramenn sem eru í þessari nefnd hvert hlutverk þeirra er og ég mun ekki skipta mér af störfum nefndarinnar. Ég kem til með að bíða niðurstaðna þessarar nefndar eins og aðrir þingmenn innan þessara veggja.“ Ráðherra ýti við nefndinni Björgvin sagði að mikilvægt væri að hvetja ráðherra til þess að hafa samband við nefndina og ýta við henni því tíminn liði. „Eigi þetta lagafrumvarp að koma inn í þingið fyrir þinglok í vor er mjög mikilvægt að þingið fái eðlilegan tíma til að fjalla um málið,“ sagði Björgvin. Hann sagði að mikilvægt væri að vandað væri til verka. Málið væri stórt og brýnt „en það er líka miklvægt að eyða þeirri rekstr- aróvissu sem hvílir yfir fjölmiðlum landsins í kjölfar þeirrar harðvít- ugu umræðu sem hefur geisað í samfélaginu um eignarhald á fjöl- miðlum,“ sagði Björgvin. Menntamálaráðherra sagðist telja að það væri alveg hárrétt að vanda þyrfti vel til verka. Þess vegna teldi hún að nefndin gæti fengið þann tíma sem hún hefði sagt að hún þyrfti þ.e.a.s. fram til loka þessa mánaðar. Huga þyrfti vel að atriðum í kringum okkur og hvernig umhverfið væri hér og annars staðar. „Þess vegna tel ég rétt að nefndin fái þennan tíma sem að hún er að biðja um. Síðan kemur málið til meðferðar Alþing- is ef svo ber undir,“ sagði Þor- gerður Katrín. TORVELT er fyrir íslensk stjórn- völd að taka upp mál gagnvart Þor- steini EA vegna brottkasts á síld í fiskverndarsvæðinu á Svalbarða að því er fram kom í svari Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn frá Magnúsi Hafsteins- syni, þingmanni Frjálslynda flokks- ins, um hvort íslensk stjórnvöld hyggist láta fara fram lögreglurann- sókn í málinu. Árni sagði að um grafalvarlegt mál væri að ræða. Svo fremi sem jafnræðis væri gætt milli allra aðila hefðum við viðurkennt að norsk stjórnvöld væru þau eftirlitsyfirvöld sem ættu að fylgjast með og fara með mál af þessu tagi í þessari lög- sögu við Svalbarða og við hlytum að líta þannig á að þau hefðu afgreitt málið. Árni sagði að ef um það væri að ræða að þetta atvik hefði átt sér stað innan íslenskrar lögsögu og jafnframt ef um alþjóðasvæði væri að ræða þá hefði það komið til kasta íslenskra stjórnvalda. „Ég á erfitt með að sjá hvernig það sé hægt að tvenn stjórnvöld í tveimur löndum séu að fjalla um sama málið,“ sagði Árni. Magnús sagði að um væri að ræða íslenskt skip undir íslenskum fána með íslenskri áhöfn sem væri að veiða úr íslenskri kvótaúthlutun úr norsk-íslenska síldarstofninum. Komið hefði fram í fjölmiðlum að Norðmenn hefðu ekki lagt í að taka skipið vegna þess að réttarstaða þeirra á Svalbarðasvæðinu væri mjög óljós. „Ég hlýt að lýsa furðu minni á því að íslensk stjórnvöld, að hæstvirtur sjávarútvegsráðherra skuli ekki bregðast við með ákveðnari hætti en hér er um að ræða,“ sagði Magnús. Sjávarútvegsráðherra sagði að sér fyndist mjög merkilegt að heyra að norsk stjórnvöld hefðu ekki grip- ið til harðari ráðstafana gegn Þor- steini EA en raun bæri vitni vegna þess að þeir teldu lagalega stöðu sína á Svalbarðasvæðinu óljósa. Ef skilaboð þessa efnis bærust frá norskum stjórnvöldum yrði málið að sjálfsögðu tekið upp. Sjávarútvegsráðherra um mál Þorsteins EA á Svalbarðasvæðinu Torvelt að taka upp málið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.