Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 11

Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 11 GENGI krónunnar getur lækkað snögglega um leið og hlutabréfaverð lækkar. Þetta gerðist veturinn 1999– 2000 og virðist aftur vera að gerast á þessum vetri þar sem verðvísitala krónunnar hefur hækkað um 90% á einu ári samhliða hækkun á gengi krónunnar, að mati greiningardeild- ar KB banka. Bent er á í Hálffimm fréttum KB banka í gær að sterk tengsl séu á milli verðþróunar á hlutabréfamark- aði og erlendrar lántöku þar sem miklar hækkanir á hlutabréfum leiði til aukinnar sóknar í lánsfé. Kemst KB banki að þeirri niðurstöðu að hækkun hlutabréfavísitölunnar um eitt stig dragi 54 milljónir inn í landið í erlendum endurlánum. „Af þessum sökum verður hlutabréfamarkaður- inn til þess að hækka gengi krónunn- ar, en erlend lántaka skapar gífur- legt skammtíma fjármagnsinnflæði til landsins. Þetta þýðir jafnframt að um leið og verð á hlutabréfum hefur náð hámarki muni erlendu endurlán- in stöðvast og fjármagnsstraumar til landsins þorna. Þannig getur gengi krónunnar lækkað snögglega um leið og hlutabréfaverð lækkar,“ segir í Hálffimm fréttum. Bent er á að verð hlutabréfa hafi hækkað um 90% á einu ári samhliða hækkun á gengi krónunnar og stefni allt í að til verðleiðréttinga komi á þessum vetri. KB banki telur að erlent innflæði fjármagns vegna stóriðjufram- kvæmda muni styðja við gengi krón- unnar að einhverju leyti en þau áhrif séu þó lítilvæg miðað við aðra fjár- magnsstrauma til landsins. Segir í Hálffimm fréttum að innflæði vegna fjárfestinga í stóriðju nemi 18–20 milljörðum króna á þessu ári en inn- flæði vegna erlendra endurlána hafi til samanburðar numið 15–40 millj- örðum á mánuði á síðari helmingi ársins 2003. „Svo virðist sem áhrif stóriðju- framkvæmdanna hafi verið mögnuð upp í hugum fólks langt upp fyrir það sem getur staðist miðað við þjóð- hagslegan veruleika. Þetta hefur m.a. orðið til þess að einkaneysla hef- ur vaxið og fjölmargir hafa tekið er- lend lán með fullvissu um að gengi krónunnar héldist hátt næstu árin. Sú spurning er hins vegar orðin mjög áleitin hvort sú stund sé ekki í nánd að væntingar muni rekast á raun- veruleikann þegar núverandi hækk- unarhrina er á enda á hlutabréfa- markaði,“ segir í fréttinni. Heldur svartsýnir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands, segir það rétt sem fram kemur hjá KB banka að aukið framboð fjármagns í landinu hafi áhrif á eignaverð. Hins vegar tel- ur hann ekki hættu á mikilli verð- lækkun á hlutabréfamarkaði og lækkun krónunnar í kjölfarið. „Mér sýnist þeir heldur svartsýn- ir,“ segir Sigurjón. „Ég á ekki von á að sú hringrás myndist sem þeir lýsa. Það er rétt að það var mikið innflæði af erlendu fjármagni á sl. ári og það sem af er þessu ári. Þetta stafar af því að íslenskt atvinnulíf greip tæki- færið og skuldsetti sig í erlendum myntum frekar en í íslenskum krón- um þegar menn sáu fram á mikið fjármagnsinnstreymi í tengslum við virkjanaframkvæmdirnar.“ Sigurjón segir ljóst að þetta aukna peningaframboð hafi haft einhver áhrif á eignaverð í landinu en segir of djúpt í árinni tekið að það skapi hættu á einhvers konar hruni. Hann bendir á að ekki sé reiknað með því mikla útflæði fjármagns frá Íslandi sem varð síðasta ári og fyr- irsjáanlegt er að haldi áfram á þessu ári. Þar sé fyrst og fremst um að ræða tvenns konar útflæði. „Annars vegar fjárfestu lífeyrissjóðirnir fyrir um 40–50 milljarða króna erlendis á síðasta ári. Og hins vegar fer hluti þess fjármagns sem kemur inn beint út úr landinu aftur. Íslenskir bankar lána oft erlendum aðilum eða íslensk- um fyrirtækjum erlendis auk þess sem íslensk fyrirtæki eru að fjár- magna dótturfélög sín erlendis. Þannig staldrar hluti þessa fjár- magns stutt við í landinu og hefur lítil áhrif hér heima.“ Sigurjón segir hins vegar tækifæri til mikilla verðhækkana á hlutabréfa- markaði héðan af takmörkuð en ger- ir þó ekki ráð fyrir verðfalli. Töluverðar líkur á lækkun á gengi krónunnar Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir að taka megi undir með greiningardeild KB banka um tengsl aukinnar erlendrar lán- töku og hækkunar á hlutabréfamark- aði. „Undanfarna mánuði hefur nokk- uð borið á skuldsettum hlutabréfa- kaupum í skráðum félögum á mark- aði og uppkaupum á félögum til afskráningar sem fjármögnuð eru með erlendum lánum. Því eru tölu- verðar líkur á lækkun á gengi krón- unar samhliða lækkun á hlutabréfa- markaði, þar sem tengslin virka að sjálfsögðu í báðar áttir.“ Hann segir ljóst að hlutabréfa- markaðurinn hér á landi hafi hækkað verulega umfram markaði iðn- væddra ríkja á undanförnum mánuð- um og misserum. „Framtíðin mun svo leiða í ljós hvort rekstur fyrir- tækjanna standi undir þessum hækkunum. Það er hins vegar fjár- festa að taka afstöðu til verðs á hluta- bréfum á hverjum tíma, hvernig svo sem kaup þeirra eru fjármögnuð,“ segir Bjarni. Sterk tengsl milli hluta- bréfa og erlendra lána KB banki segir að þegar verð á hlutabréfum hafi náð hámarki geti gengi krónu lækkað snögglega SKIPULAGSSTOFNUN hefur úrskurðað um matsskýrslu Landsvirkjunar vegna 90 MW gufuaflsvirkjunar í Bjarnarflagi í Mývatnssveit og 132 kV raflínu frá virkjuninni að Kröflustöð. Fellst stofnunin á framkvæmd- ina og telur að hún muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Stofnunin setur hins vegar nokkur skilyrði sem Landsvirkjun þarf að uppfylla varðandi eftirlit og vöktun á framkvæmda- og starfstíma. Skipulagsstofnun bárust um- sagnir frá sjö aðilum um fram- kvæmdina og á kynningartíma komu fimm athugasemdir, þ.e. frá Landvernd, landeigendum Reykjahlíðar, Prokaria, Bryn- dísi Brandsdóttur og Samtökum um náttúruvernd á Norður- landi. Kæra má úrskurð Skipu- lagsstofnunar til umhverfisráð- herra og frestur til þess rennur út 2. apríl nk. Meðal þeirra skilyrða sem Landsvirkjun þarf að uppfylla er að fylgjast með niðurdrætti og hitabreytingum í jarðhita- kerfinu, minnkun rennslis frá borholum og breytingum á efna- innihaldi borholuvökva. Einnig þarf að fylgjast með efnainni- haldi og virkni hvera á svæðinu og stunda mælingar á landhæð, skjálftum og gasi. Fylgjast á með hvort jarðhitavinnslan hafi áhrif á efnainnihald og streymi volgs grunnvatns til Mývatns með efnagreiningum og mæl- ingum á hitastigi og vatnsborði í borholum og gjám. Ef slík áhrif koma í ljós á að grípa til mót- vægisaðgerða. Fallist á Bjarnar- flagsvirkj- un með skilyrðum ORKUSTOFNUN telur að ekki sé tilefni til al- mennra hækkana á raforkuverði vegna nýrra raforkulaga og tillagna 19 manna nefndarinnar svonefndu um dreifingu og flutning raforku um landið. Telur stofnunin að hækkunin geti hið mesta orðið um 1% hjá meðalfjölskyldu á veitu- svæði Orkuveitu Reykjavíkur og 2,5% á svæði Hitaveitu Suðurnesja. Miðar Orkustofnun þar við 3% arðsemi af flutningsmannvirkjum. Orkustofnun reiknaði þetta út að beiðni Val- gerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra. Á vef stofnunarinnar segir að markmið skipulags- breytinga af því tagi sem gerðar hafi verið í ríkjum EES og víðar um heim hafi verið að stuðla að samkeppni í þeim þáttum raforku- geirans sem við á. Aðeins sé til umræðu sá hluti sem lúti að flutningi rafmagns frá virkj- unum eftir háspennulínum að veitusvæðum og síðan dreifingu þess innan þeirra. Þessi starf- semi verði bundin sérleyfum og muni Orku- stofnun hafa eftirlit með verðlagningu þjónust- unnar. Enda þótt ekki sé tilefni til almennra hækk- ana segir Orkustofnun að tillögurnar leiði til „nokkurrar tilfærslu byrða“ milli veitusvæða. Mismunandi forsendur í útreikningum „Þannig getur kostnaðarhækkun við flutning og dreifingu rafmagns leitt til hækkunar raf- magnsverðs hjá meðalfjölskyldu á svæði Orku- veitu Reykjavíkur (OR) um því sem næst 1% og hjá Hitaveitu Suðurnesja (HS) um 2½%. Hjá Norðurorku gæti hækkunin orðið 1½% en lækkun verður hjá Rarik um 2½%. Hjá Orkubúi Vestfjarða (OV) má ætla að tilkostn- aður aukist um 1½%, en á hitt er að líta að nítjánmannanefndin leggur ennfremur til að kostnaður við dreifingu verði niðurgreiddur í dreifbýli. Að teknu tilliti til þess lækkar með- alrafmagnskostnaður á svæði OV um 2½% frá núverandi ástandi og hjá Rarik um 5%,“ segir á vef Orkustofnunar. Einnig er vitnað til ummæla forstjóra orku- veitna á Suðvesturlandi um að kostnaður við flutning og dreifingu geti hækkað raforkuverð um 20% eða meira. Segir Orkustofnun meg- inskýringuna á þessum mikla skoðanamun vera mismunandi forsendur um fjármagnskostnað og arð. Í útreikningum Orkustofnunar sé miðað við 3% arðsemi af bundnu fjármagni bæði í flutningi og dreifingu, jafnt fyrir sem eftir kerfisbreytinguna. Ef arðsemin sé hækkuð í 6%, án hagræðingar á móti, sé hægt að fá út tilefni til um 10% hækkunar á raforkuverði til almennings. „Ef sama stökk yrði í arðsem- iskröfu af flutningi eftir háspennulínunum geta önnur 10% bæst við. Viðbótarhækkunin til að standa undir slíkri aukinni arðsemi yrði svipuð um allt land, en ekkert meiri á Suðvesturlandi,“ segir Orkustofnun. Orkustofnun segir raforku- verð hækka um allt að 2,5% LISTAMENN sækja sér víða efni- við og hráefni í sköpun sína og oft gefa stórframkvæmdir tækifæri til að næla sér í gæðaefni til að móta sýn sína í. Áki Granz, listmálari og myndhöggvari í Reykjanesbæ, er um þessar mundir að leggja lokahönd á grjótstyttur sem búnar eru til úr sprengigrjóti úr Helgu- vík, þar sem verið er að stækka hafnaraðstöðuna og rýma fyrir stálröraverksmiðju. Áki er nú að móta fjögurra manna fjölskyldu og sýslumann- inn. Hann hefur þegar lokið við styttu af Leifi heppna, sem er í bakgrunni hinnar nýju merkingar Reykjanesbæjar við Vogastapa. Það er því ljóst að það fjölgar á heiðinni í nágrenni Reykjanes- bæjar, þar sem til eru ýmsar sagn- ir um huldufólk, drauga og aðra vætti. Sprengigrjót nýtt til listsköpunar Morgunblaðið/RAX FYLGI Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks hefur dalað að undanförnu skv. nýrri könn- un Þjóðarpúls Gallup á fylgi flokkanna og hefur fylgi Sam- fylkingarinnar ekki mælst minna það sem af er þessu kjör- tímabili. Fylgi Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs og Framsóknarflokks hefur auk- ist. Skv. könnuninni fengi Sjálf- stæðisflokkurinn 35% fylgi ef kosið yrði nú en hann mældist með 38% í seinustu könnun í janúar. Samfylkingin mælist með tæplega 26% fylgi og hefur fylgið minnkað úr 30% fyrir mánuði. Vinstrihreyfingin fengi tæplega 17% nú en mæld- ist með 13% í seinustu könnun og Framsóknarflokkurinn mælist með rúm 16% og hefur fylgi flokksins aukist úr 14% í seinasta mánuði. Frjálslyndi flokkurinn bætir við sig einu prósentustigi frá seinustu könnun og mælist nú með 7% fylgi. 19% tóku ekki afstöðu og 7,5% sögðust myndu skila auðu. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 52% en var 54% í seinustu könnun. Könnunin var gerð í gegnum síma 28. janúar til 24. febrúar. Úrtakið var 2.443 manns og var svarhlutfallið 63%. Þjóðarpúls Gallup Sveiflur á fylgi stjórnmála- flokkanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.